Hér á eftir eru talin upp númer þeirra vísna sem nemendur eiga að læra.  Það sem á að kunna í hverri vísu:

1. Geta bent á stuðla, höfuðstafi, aðalhendingar og skothendingar í hverri vísu.
2. Geta tekið vísuna saman (þ.e.a.s. raða henni í eðlilega orðaröð).
3. Geta skýrt einstakar kenningar og heiti í vísunni.
4. Geta umorðað samantekt vísunnar á nútímamáli.
5. Vita af hvaða tilefni eða hvenær viðkomandi vísa var ort.

Ath.  Ég þekki enga aðferð til að læra þetta nema læra allt saman utanað!



Vísurnar:  nr. 7 (40. kafli), nr. 9 og 10 (44. kafli), nr. 20 (55. kafli), nr. 32 (59. kafli). Ath. að kaflanúmer eru ekki eins í mismunandi skólaútgáfum en vísnanúmer eru þau sömu í útgáfum sem nemendur nota.

Verkefnablöð fyrir nokkrar vísanna (ekki allar), á Word-formi

Nánari skýringar á dróttkvæðum vísum má finna:

Í Bragfræði Jóns Yngvars Jónssonar;

Á síðum Eysteins Björnssonar er Lexicon Poeticum og safn kenninga, ásamt fleiru (flest á ensku). Sjá valorð neðst á síðunni.

Í skólaútgáfum Eglu er að finna samantekt hverrar vísu ásamt skýringum á einstökum orðum, kenningum og heitum.

Kynningu á skáldinu Agli Skallagrímssyni er að finna á Skólavefnum.
 
 

©Harpa Hreinsdóttir
Gert í janúar 2006