Ritgerðin gildir 12 stig af annareinkunn. Hún á að vera 2- 3 blaðsíðna löng, miðað við línubil 1,5  (Til að stilla línubil í Word er valið Format - Paragraph - Line Spacing.) og 12 punkta letur.

Ætlast er til að ritgerðin sé á góðu máli og án stafsetningarvilla. (Í tölvum sem nemendur hafa aðgang að í FVA má nota yfirlestrarforritið Púkann. Til að virkja Púkann í Word er fyrst stillt á tungumálið íslensku, með Tools - Language - Set Language - Icelandic - Set as Default.  Stundum þarf að endurræsa tölvuna til að stillingin festist. Til að láta Púkann lesa yfir texta er hann blokkaður og síðan valið Tools - Spelling and Grammar.)

Nemendur eru eindregið varaðir við ritstuldi (athugið að kennarinn sér gegnum holt og hæðir þegar um slíkt er að ræða) en að sjálfsögðu má vitna í heimildir máli sínu til stuðnings.

Gert er ráð fyrir klassískri byggingu ritgerðarinnar, þ.e. stuttum inngangi, þar sem kemur fram um hvað ritgerðin er og hugsanlega er sett fram einhver meginspurning sem nemandi hyggst svara í ritgerðinni, meginmáli og loks stuttum niðurstöðu / niðurlags / lokaorðakafla þar sem helstu niðurstöður eru dregnar saman. Í svona stuttri ritgerð er óþarfi að kaflaskipta, dugir að hafa tvöfalt línubil til að afmarka inngangs- og niðurlagskafla frá meginmáli.

Þessari ritgerð á að skila fyrir 17. september 2008.

Veldu eitt af eftirfarandi ritefnum:

Aldur og varðveisla Hávamála / Gestaþátts Hávamála. (Þetta er verkefni fyrir þá sem finnst þægilegast að skrifa heimildaritgerðir. Hér þarf að lesa sér til í bókmenntasögum og finna e.t.v. vefsíður sem mark er á takandi. Mætti t.d. fjalla um hvort Hávamál eru íslenskt eða norskt kvæði, í hvaða handritum það er helst varðveitt og hve gömul þau handrit eru, ásamt vangaveltum um hvort í kvæðinu megi greina kristnar eða heiðnar lífsskoðanir, jafnvel heimspekiskoðanir Aristótelesar.)

Hófsemi í Hávamálum. (Oft er meginboðskapur Gestaþátts talinn vera hófsemi. Í ritgerðinni væri rétt að rökstyðja þessa skoðun, með dæmum og útleggingum. Einnig velta því fyrir sér af hverju hófsemi er talin æskileg, hvort einhvern tíma leyfist að gera eitthvað í óhófi og hvort þessi hófsemdarboðskapur sé í samræmi við þann boðskap sem yfirleitt birtist í Íslendingasögum.Til að kynna sér hið síðasttalda þarf að renna yfir nokkra formála skólaútgáfa á Íslendingasögum, einkum það sem talið var til dyggða eða lasta í miðaldakristni. )

Gildi Hávamála fyrir nútímamenn. (Þetta er verkefni fyrir þá sem finnst gaman að skrifa eigin vangaveltur. Hvað af boðskap Hávamála um einstök efni er í fullu samræmi við lífsskoðanir nútímamanna? Hvað af boðskapnum fellur illa að okkar lífsskoðun?  Er hægt að nota Hávamál sem sjálfshjálparrit?  Hér mætti bera Hávamál saman við aðrar vinsælar aðferðir til sjálfshjálpar, t.d. Geðorðin 10, sem hanga væntanlega á ísskápum heima hjá nemendum, eða 12 spora kerfið eða nútíma hugmyndir um sjálfstyrkingu og andlega velferð.)
 

Síðast breytt í ágúst 2008
Harpa Hreinsdóttir