Spurningar úr Leiðslubók Nemendum er bent á að svara þessum spurningum úr Leiðslubók - Leiðarvísir um miðaldir, eftir Jón Árna Friðjónsson. Spurningarnar eru flokkaðar eftir köflum bókarinnar. Stjörnumerkta kafla á að lesa enn betur en aðra kafla.
1. Fornir siðir í nýju landi
1.1 Nýtt samfélag1. Við hvaða tímabil er átt þegar talað er um miðaldir?
2. Hvenær stóð svokölluð víkingaöld?
3. Hvað var „goði“?
4. Hvað var „goðorð“?1.2 Heiðinn siður
Þetta efni kunnið þið náttúrulega eftir að hafa lesið frumheimildir, þ.e. Snorra-Eddu! Hins vegar er þessi kafli fínt yfirlit yfir það sem segir í Snorra-Eddu ...
2. Kveðskapur
2.1 Um gildi kveðskapar5. Hvaða tilgangi þjónaði iðkun kveðskapar?
* 2.2 Eddukvæði
6. Í hvaða tvo flokka er eddukvæðum oftast skipt?
7. Eftir hverju fer skiptingin?
8. Hvorum flokknum tilheyrir Hávamál?* 2.3 Dróttkvæði
9. Hvað þýðir orðið „dróttkvæði“?
10. Í hvaða tilgangi ortu menn einkum dróttkvæði?
11. Lýstu dróttkvæðum hætti (bragahættinum).
*2.4 Snorra-Edda (Lesið þennan kafla vel!)
12. Hvenær fæddist Snorri Sturluson? Hvenær dó hann?
13. Hvar bjó Snorri?
14. Nefndu 3 rit sem eru eignuð Snorra Sturlusyni.
15. Í hvaða 3 hluta skiptist Snorra-Edda?3. Menningarbylting
3.1 Kristni16. Hvenær tóku Íslendingar kristna trú? Hvers lags kristna trú tóku þeir?
17. Hvað eru „þýðingar helgar“?*3.2 Upphaf íslensks ritmáls
18. Við hvaða ártal er upphaf ritunar á Íslandi miðað?
19. Hvað var skrifað allra fyrst?
20. Hvernig fóru menn að áður en þeir lærðu að skrifa, með lagagreinar t.d.?
21. Hvað er Íslendingabók? Hvenær var hún skrifuð? Eftir hvern er hún?
22. Hvað er Fyrsta málfræðiritgerðin?
23. Hvað er áttvísi?
24. Hvað er Landnáma?4. Sagnaritun
4.1 Heilagramannasögur
25. Hvað eru „heilagramannasögur“?
26. Til hvers voru þær skrifaðar?
27. Hver er eini íslenski dýrlingurinn? (Sjá einnig 4.3)*4.2 Konungasögur
28. Hvenær stóð konungasagnaritun með hvað mestum blóma?
29. Hvaða verk er talið mest konungasagna?4.3 Biskupasögur
30. Hvað heitir saga 5 fyrstu biskupa í Skálholti?
31. Hvenær (á hvaða tímabili) voru biskupasögur ritaðar?
*4.4 Veraldlegar samtíðarsögur
32. Hvenær stóð svokölluð Sturlungaöld?
33. Af hverju er þetta tímabil kallað Sturlungaöld?
34. Hvað er Sturlunga?
35. Hver er merkasta sagan í Sturlungu?4.5 Fornaldarsögur Norðurlanda
36. Um hvað fjalla þessar sögur?
37. Nefndu eitt dæmi um slíka sögu.4.6 Riddarasögur
38. Hvers konar sögur eru riddarasögur?
39. Nefndu eitt dæmi um slíka sögu.5. Frumlegasta grein íslenskrar menningar
*5.1 Íslendingasögur
40. Hvenær eru Íslendingasögur skrifaðar?
41. Hvar gerast flestar þær bestu?
42. Hvaða saga er oft talin mesta listaverk Íslendingasagna?
43. Af hverju er hún ekki lesin í FVA?
44. Hvenær gerast þeir atburðir sem flestar Íslendingasögur greina frá?Skoðið töflu á bls. 54. Ath. samt að þessi flokkun sagna sem þarna er sýnd er engan veginn einhlít og menn alls ekki sammála um hana.
Ágætt er að renna yfir kaflann 5.3 svona til að skilja Egils sögu betur. Er Egill ljós eða dökk hetja?
6. Kveðskapur síðmiðalda
6.1 Helgikvæði
45. Hvenær (á hvaða tímabili) voru helgikvæði ort?
46. Hvað er svona merkilegt við kvæðið Geisla og eftir hvern er það?
47. Hver orti „Heyr himna smiður“?
48. Hvað eru Sólarljóð?6.2 Dansar og rímur - lesa lauslega
7. Píramídar norðursins er yfirlitskafli sem gott er að renna yfir að lokum.