![]()
ÍSL 303Kennarar:
Harpa Hreinsdóttir, harpa@fva.is
Leó Jóhannesson, leo@fva.is
Haustönn 2008
Kennslugögn: Egils saga, Jón Árni Friðjónsson: Leiðslubók (IÐNÚ), Sígild kvæði (MM) eða einhver önnur skólaútgáfa af Hávamálum og Völuspá.
Nemendum er sérstaklega bent á að kynna sér ítarefni sem vísað er í af krækjulistum og verkefnum á heimasíðu áfangans ÍSL 303, http://www.fva.is/harpa/isl303/index.html.Markmið: Nemendur viti nokkur skil á helstu bókmenntagreinum frá landnámi til siðaskipta. Þeir byggi á vitneskju sinni um hugmyndaheim heiðinna manna og geti nýtt þá þekkingu til skilnings á eddukvæðum og Íslendingasögum. Nemendur fá nokkra nasasjón af dróttkvæðum hætti og kunni að meta fornan skáldskap að verðleikum. Þeir geri sér grein fyrir hvaða sess þessi skáldskapur skipar í samfélagi nútímans. Nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum og hagnýtingu internetsins til heimildaöflunar.
Kennsluform: Talsvert er um hefðbundna fyrirlestra kennara en jafnframt eru hópvinnuverkefni lögð fyrir í kennslustundum öðru hvoru. Stærsta verkefnið er stutt ritgerð um valið efni úr Hávamálum, sem nemendur vinna heima. Stefnt er að hálfs dags ferð á Egluslóðir á önninni og þurfa nemendur að greiða hluta ferðakostnaðar.
Námsmat: Próf í lok annarinnar gildir 60% af lokaeinkunn og verður með hefðbundnu sniði, sjá mörg dæmi um lokapróf sem liggja frammi á heimasíðu áfangans. Verkefni sem unnin verða á önninni gilda 40 %. Þau eru: Próf úr Hávamálum (7 stig); Próf úr Eglu I (9 stig); Próf úr Eglu II (12 stig) og ritgerð um efni tengt Hávamálum (12 stig).
Kennsluáætlun annarinnar:
35. - 36. vika 26. ágúst - 5. september
- Kynning á efni áfangans
- Hávamál
- Próf úr Hávamálum í byrjun 37. viku (8. / 9. september)
37.- 40. vika 8. september - 3.október
- Egils saga, 1. - 40. kafli
- Ritgerð úr Hávamálum skilað fyrir 17. september
- Próf úr 1. - 40. kafla Egils sögu í upphafi 41. viku (6. / 7. október)
41. - 45. vika 6. október -7. nóvember Miðannarfrí 17. - 21. október
- Egils saga 41. - 90. kafli. (Köflum 83/84 - 88 er sleppt.)
- Listi yfir vísur sem á að kunna úr Eglu er á heimasíðu áfangans.
- Próf úr 41. - 90. kafla Eglu í upphafi 45. viku (3. - 7. nóvember).
46. vika 10. - 14. nóvember
- Völuspá
47. - 48. vika
- Leiðslubók
- Það sem afgangs kann að vera
- Undirbúningur undir lokapróf
16. - 17. vika 19. -29. apríl
- Leiðslubók
- Undirbúningur undir lokapróf
Gert í ágúst 2008
Harpa Hreinsdóttir
Leó Jóhannesson