Fjölbrautaskóli Vesturlands
Haustönn 2008
Kennsluáætlun í ÍSL 193

Kennari:  Harpa Hreinsdóttir, harpa@fva.is

Kennslugögn: Jökull Valsson: Börnin í Húmdölum (útg. Bjartur). Málefli - vinnubók (IÐNÚ). Kvikmynd (ákveðin síðar). Ítarefni: Ýmiss konar fjölritað efni og efni á Vefnum frá kennara auk tölvuforrita sem tengjast námsefninu. Heimasíða áfangans er á http://www.fva.is/harpa/isl193/index.html.

Markmið áfanga: Nemendur þjálfist í lestri fjölbreyttra texta og umfjöllun um þá, bæði munnlega og skriflega. Lögð er áhersla á margs konar ritunaræfingar og að þjálfa nemendur í notkun hjálpargagna s.s. orðabóka og tölvuforrita. Með þessu móti er verið að búa nemendur enn frekar undir nám í framhaldsáföngum í íslensku.

Kennsluform: Í fyrstu kennslustund hverrar viku vinna nemendur í Málefli upp á eigin spýtur. Aðrar kennslustundir vikunnar verða nýttar í lestur og verkefnavinnu úr skáldsögunni Börnin í Húmdölum og fleira. Nemendur skulu skila handskrifaðri dagbók vikulega, í upphafi fyrstu kennslustundar vikunnar, í 10 vikur. Þjálfun í málnotkun og stafsetningu er samþætt í ritun og kennslu á tölvuforrit.

Námsmat:

Lokapróf verður í desember og gildir það 50%.

Þrjú próf verða á önninni, tvö úr Börnunum í Húmdölum, hvort gildir 10%, og eitt úr  kvikmynd sem gildir 5%.

Önnur verkefnavinna skiptist þannig:  Dagbók gildir 10%, vinnubók úr Börnunum í Húmdölum gildir 7%, og ýmis verkefni 8 %.

Nemendur þurfa að ná lágmarkseinkunn í verkefnum og á lokaprófi til að standast áfangann.
 
 
 
 
Vikur og dagsetningar Námsefni Vinna nemenda
35. -39. vika. 

25. ágúst til 26. september.

Börnin í Húmdölum, fyrri hluti (kaflar 1 - 33) 

Málefli eða annað málfræðiefni

Vefurinn

Dagbók skal skila í fyrstu kennslustund hverrar viku frá 8.  september. 

Í kennslustundum eru unnin verkefni úr Börnunum í Húmdölum og  stundum lesið í sömu skáldsögu. 

Í fyrstu kennslustund hverrar viku frá 3. september verður unnið í Málefli eða öðru málfræðiefni.

Í lok vikunnar 22. - 26. september verður próf úr köflum 1 - 33  í Börnunum í Húmdölum.
 

40. - 45. vika. 

29.september  til 7. nóvember
 

Börnin í Húmdölum, síðari hluti (kaflar 34 - 74) 

Málefli eða annað efni
 

Dagbók skal skila í fyrstu kennslustund hverrar viku til 10. nóvember. 

Í kennslustundum eru unnin verkefni úr Börnunum í Húmdölum og stundum lesið í sömu skáldsögu. 

Í lok vikunnar 10. - 15. nóvember verður próf úr köflum 34 - 74  í Börnunum í Húmdölum.
 

46. - 47. vika. 

10. - 22. nóvember
 

Kvikmynd Nemendur horfa á myndina, taka próf úr efnisþræði og vinna verkefni tengd kvikmyndum. 
48. vika. 

24. - 28. nóvember
 

Undirbúningur fyrir lokapróf