
Forsendur: Til að verða flinkur í að semja ritmálstexta þarf að æfa sig að skrifa texta. Auk þess er talið hollt fyrir sálina að skrifa hugsanir sínar.Framkvæmd; Hver nemandi skrifar 4 síður á viku, í sérstaka stílabók, og skilar kennara í fyrstu kennslustund hverrar viku. (Miðað er við skrif í hverja línu.) Athugið að ekki er tekið við dagbókum utan þessa tíma. (Þetta er ófrávíkjanleg regla og gildir einu hvort nemandi er veikur á mánudegi eða skilar ekki af öðrum orsökum.) Skilyrði er að skrifa á íslensku og ekki má skrifa upp úr bók. Að öðru leyti ræður nemandinn algerlega um hvað hann skrifar. Sömuleiðis ræður nemandi hvort hann skrifar allar 4 síðurnar í einu eða skrifar eina síðu á dag. Ef ætlast er til að kennari lesi dagbók verður að gæta almennrar kurteisi í orðalagi og efnistökum. Kennarinn hnýsist ekki í annarra manna dagbækur nema með leyfi, svo hún les ekki neitt nema síðurnar séu kirfilega merktar „Lestu þetta“. (Kennari er bundinn þagnarskyldu um það sem hún les í dagbókum nemenda, nema um sé að ræða grafalvarleg mál.) Sé ekki merkt við einstakar síður þá telur kennarinn bara síðurnar.
Mat; Í hvert sinn sem nemandi skilar dagbók (4 síðum) kvittar kennari fyrir og merkir við í einkunnabókhaldi. Nemandi fær 0,1 stig fyrir hvert skipti. Alls er gert ráð fyrir 10 skiptum svo nemandi sem skilar alltaf dagbók getur safnað sér 10 stigum, sem er 1,0 af lokaeinkunn.
© Harpa Hreinsdóttir
Gert í ágúst 2008