Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
Haustönn 2008Kennsluáætlun
Námsgögn:
Laxdæla saga; Grafarþögn eftir Arnald Indriðason, ýmiss konar handbækur og tölvuforrit sem styðja við ritun og stafsetningu, Málefli (efni í eigu skólans) til upprifjunar í málfræði.Markmið:
Nemendur lesi Laxdæla sögu vandlega svo þeir geti fjallað um sögusvið, persónusköpun, boðskap, málfar, stíl og aðra þætti sögunnar af einhverju viti. Þeir æfist í að tjá sig á góðu máli, jafnt í riti sem ræðu. Nemendur nái tökum á ýmiss konar ritsmíðum. Sérstök áhersla verður lögð á undirbúning og skipulag ritgerðaskrifa, auk reglubundinna æfinga í frjálsum skrifum (dagbók). Nemendur kynnist tölvuforritum sem styðja við stafsetningu, ritun og lestur.Kennsluform:
Kennari flytur talsvert af fyrirlestrum, sérstaklega í umfjöllun um Laxdælu. Nemendur vinna ýmiskonar verkefni, í tímum og heima, og gera grein fyrir þeim bæði munnlega og skriflega. Hver nemandi skilar dagbók einu sinni í viku (5 handskrifuðum síðum) í 10 vikur. Dagbók skal skila í fyrstu kennslustund vikunnar og er ekki tekið við henni utan þess tíma. Nemendur skila stuttri ritgerð um efni tengt Laxdælu og vinna verkefni um efni tengt skáldsögu. Stefnt er að námsferð á miðri önn og þurfa nemendur að bera hluta ferðakostnaðar og inngangseyri á söfn.Námsmat:
Próf í lok annarinnar gildir 50% af lokaeinkunn.
Tvö próf verða á önninni úr Laxdælu og gilda þau samtals 20 %.
Dagbók gildir 10 %.
Ritgerð um efni tengt Laxdælu gildir 10 %.
Verkefni úr Grafarþögn gilda 10 %.Annaráætlun:
36. - 40. vika (1. september – 3. október): Laxdæla. Dagbók skilað í fyrsta sinn 8. september
40. vika (29. september - 3. október): Próf úr Laxdælu.
41. vika (6.- 10. október): Laxdælu.
42. vika (13. -18. október): Ritgerð skilað
43.vika : Miðannarfrí
44. - 45. vika (27. 10 - 7. 11): Próf úr Laxdælu.
46. vika (10.- 14. nóvember): Grafarþögn
47. vika (17.-21. nóvember): Verkefnum úr Grafarþögn skilað.
48. vika (24. - 28. nóvember): Undirbúningur undir lokapróf.