Dagbók
Forsendur: Til að verða flinkur í að semja ritmálstexta þarf að æfa sig að skrifa texta. Auk þess er talið hollt fyrir sálina að skrifa hugsanir sínar.
Framkvæmd: Hver nemandi skrifar 5 síður á viku, í sérstaka stílabók, og skilar kennara í fyrstu kennslustund hverrar viku. Miðað er við skrif í hverja línu og ekki er tekið við dagbók nema í þessari fyrstu kennslustund vikunnar, sama hver ástæðan er. Skilyrði er að skrifa á íslensku og ekki má skrifa upp úr bók. Að öðru leyti ræður nemandinn algerlega um hvað hann skrifar. Sömuleiðis ræður nemandi hvort hann skrifar allar 5 síðurnar í einu eða skrifar eina síðu á dag. Ef ætlast er til að kennari lesi dagbók verður að gæta almennrar kurteisi í orðalagi og efnistökum. Kennarinn hnýsist ekki í annarra manna dagbækur nema með leyfi, svo hún les ekki neitt nema síðurnar séu kirfilega merktar „Lestu þetta“. (Kennari er bundinn þagnarskyldu um það sem hún les í dagbókum nemenda, nema um sé að ræða grafalvarleg mál.) Sé ekki merkt við einstakar síður þá telur kennarinn bara síðurnar og kvittar undir.
Mat: Í hvert sinn sem nemandi skilar dagbók (5 síðum) kvittar kennari fyrir og merkir við í einkunnabókhaldi. Nemandi fær 0,1 stig fyrir hvert skipti. Alls er gert ráð fyrir 10 skiptum svo nemandi sem skilar alltaf dagbók getur safnað sér 10 stigum, sem er 1,0 af lokaeinkunn.