Kennsluáætlun í ÍSL 102 í FVA, vorönn 2008, sem Word-skjal.

Námsgögn
Bárðar saga Snæfellsáss (Bjarki Bjarnason sá um útgáfuna, IÐNÚ); 
Arnaldur Indriðason: Grafarþögn
Málefli (möppur í eigu skólans); 
vefsíður, fjölritað efni, myndbönd.

Markmið:
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti færni sína í lestri og lesi fjölbreytta texta (Bárðar sögu Snæfellsáss, Grafarþögn, Málefli). Nemendur fá þjálfun í ritun og tjáningu (dagbók, ritgerð o.fl.) og læri að nota tölvutæk hjálpargögn (Púkann, Ritbjörgu, Röggu) eftir því sem kostur gefst. 

Kennsla
Kennt verður með fyrirlestrum og verkefnavinnu. Kennslustundum hverrar viku er aðallega skipt í verkefnavinnu í Málefli og bókmenntum. Heimavinna nemenda verður einkum lestur og ritun. 

Námsmat:
Lokapróf  í maí  úr öllu námsefninu gildir 50%. 
Verkefni á önninni gilda 50%.  Vægi þeirra skiptist þannig: 
Dagbók: 10 stig; 
Próf úr Bárðar sögu Snæfellsáss: 15 stig; 
Próf úr Grafarþögn: 5 stig; 
Ritgerð úr Grafarþögn: 10 stig; 
Kvikmyndarverkefni: 5 stig; 
Málefli og smáverkefni: 5 stig.

Annaráætlun:
2.- 6. vika.  (7. janúar -9. febrúar) 

  • Málefli - Bárðar saga Snæfellsáss- Ritun og stafsetning 
  • Dagbók skilað í fyrstu kennslustund vikunnar, frá og með 3. viku (14. janúar). 
  • Málefli eða önnur sjálfstæð verkefnavinna er alltaf í 1. kennslustund vikunnar, frá og með 3. viku. 
  • Verkefni í Bárðar sögu eru unnin í kennslustundum. 
  • Stafsetning og ritun er unnið í tölvum þegar færi gefst á slíku. 
  • Próf úr Bárðar sögu í lok 6. viku (4.- 9. febrúar).
7. -10. vika (11. febrúar - 6. mars) 
  • Málefli -  Grafarþögn - Ritun og stafsetning. 
11.- 17. vika (9. mars - 25. apríl) 
  • Málefli - Grafarþögn - Ritun og stafsetning 
  • Ritgerð úr Grafarþögn skal skilað fyrir 1. apríl.
  • Próf úr Grafarþögn er í 11.viku (9.- 15. mars) 


18. vika (27.– 30. apríl): Undirbúningur undir próf. 

Kennarar: Harpa Hreinsdóttir og Steingrímur Bragason.

 
 
 

 

© Harpa Hreinsdóttir, gert í janúar 2008