r

Forsendur:  Til að verða flinkur í að semja ritmálstexta þarf að æfa sig að skrifa texta.  Auk þess er talið hollt fyrir sálina að skrifa hugsanir sínar. 

Framkvæmd;  Hver nemandi skrifar 4 síður á viku, í venjulega stílabók, og skilar kennara í fyrstu kennslustund hverrar viku.  (Miðað er við skrif í hverja línu.)  Athugið að ekki er tekið við dagbókum utan þessa tíma. (Þetta er ófrávíkjanleg regla og gildir einu hvort nemandi er veikur á mánudegi/þriðjudegi eða skilar ekki af öðrum orsökum.)   

Skilyrði er að skrifa á íslensku og ekki má skrifa upp úr bók.  Að öðru leyti ræður nemandinn algerlega um hvað hann skrifar.  Sömuleiðis ræður nemandi hvort hann skrifar allar 4 síðurnar í einu eða skrifar eina síðu á dag.  

Ef ætlast er til að kennari lesi dagbók verður að gæta almennrar kurteisi í orðalagi og efnistökum. Kennarinn hnýsist ekki í annarra manna dagbækur nema með leyfi, svo hún/hann les ekki neitt nema síðurnar séu kirfilega merktar „Lestu þetta“. Kennari er bundinn þagnarskyldu um það sem hann / hún  les í dagbókum nemenda, nema um sé að ræða grafalvarleg mál.  Sé ekki merkt við einstakar síður þá telur kennarinn bara síðurnar. 

Mat;  Í hvert sinn sem nemandi skilar dagbók (4 síðum) kvittar kennari fyrir og merkir við í einkunnabókhaldi.  Nemandi fær 0,1 stig fyrir hvert skipti.  Alls er gert ráð fyrir 10 skiptum svo nemandi sem skilar alltaf dagbók getur safnað sér 10 stigum, sem er 1,0 af lokaeinkunn. 
 
 

 

© Harpa Hreinsdóttir, gert í janúar 2008