Haustönn 1999 Kennsluáætlun í JAR 113 Grein:  Náttúrufræði
Heiti áfanga:  JAR 113
Undanfari:  ÍSL 203
 

Kennslugögn:  Jarðfræðikort af Íslandi, miðvesturland.  Gefið út af Náttúrufræðistofnun Íslands og Landmælingum Íslands 1994.  Stuðst verður við Árbækur Ferðafélags Íslands, árganga 1982, 1987 og 1989.  Kennarar vísa á annað efni.

Markmið áfangans: Nemendur eiga að þekkja ríkjandi hugmyndir um jarðfræði Snæfellsness og megin hugmyndir um eldvirkni á Íslandi. Þeir eiga að kunna skil á einföldu flokkunarkerfi fyrir landform.
Þeir eiga að þekkja landafræði Snæfellsness, svo sem sýslumörk, sveitafélög, helstu örnefni á fjallgarðinum, vatnsmestu ár, stærstu vötn og helstu byggðakjarna, svo og merk kennileiti.
Nemendur eiga að öðlast færni í að vinna úr heimildum sem þeir afla sjálfir og geta sýnt frumkvæði við að vinna úr nýjum upplýsingum.  Þeir eiga að geta sett þær upplýsingar er þeir afla með rannsóknarvinnu fram á margmiðlunarformi og kunna að gera heimasíður.  Auk þess eiga þeir að hafa öðlast nokkra þekkingu á myndvinnslu fyrir vefsíður.
Nemendur eiga að kunna skil á því hvernig menn flokka sagnir eftir uppruna þeirra og tilgangi og geta svarað því hver eru tengsl umhverfis og menningararfleifðar, einkum Íslendingasagna og þjóðsagna.

Kennsluform:  Fyrirlestrar og umræ›ur auk verkefnavinnu.  Nemendur vinna saman í hópum að lausn ákveðinna verkefna auk þess sem hóparnir finna sér rannsóknarverkefni í samráði við kennara. Þau verkefni verða að nokkru unnin utan kennslutíma og í tölvuveri.  Farin verður ferð á önninni þar sem nemendur afla sér gagna er tengjast verkefnum er þeir eru að vinna að.  Hver hópur kynnir niðurstöður úr einu stóru verkefni síðari hluta annarinnar.

Námsmat:  Áfanginn er próflaus.  Námsmati› byggir á 6 þáttum, könnun í 2. viku (10%); verkefni í 4. viku (10%); framsetningu  margmiðlunarefnis (10%); efnisöflun og efnistök í rannsóknarverkefni (hópverkefni) (40%); framsetning lokaverkefnis (kynning á niðurstöðum í lok annar) (20%) og verkefnavinna í lok annar (10%).  Vægi matsþátta eru sýnd í sviga.

Áætlun annarinnar:

23.-27. ág.: Landafræði Snæfellsness.  Eldvirkni á Íslandi, stutt kynning.
30. ág.-3. sept.: Jarðfræði Snæfellsness.  Kynning á flokkunarkerfi fyrir landslag.
6.-10. sept.: Sagnir af Snæfellsnesi.
13.-17. sept.: Tölvuvinnsla, framsetning efnis og frágangur.
20.-24. sept.: Verkefnavinna, kennarar úthluta verkefnum.
27. sept.-1. okt.: Hópastarf undirbúið, verkefni valið.
4.-8. okt.: Vinnuáætlun og frumdrög að meginverkefni annarinnar.
11.-15. okt.: Efnisöflun vegna ferðar sem farin verður 15. til 16. október.
19.-22. okt.: Verkefnavinna.
25.-29. okt.: Verkefnavinna.
1.-5. nóv.: Niðurstöður verkefna kynntar.
8.-12. nóv.: Niðurstöður verkefna kynntar.
15.-19. nóv.: Framsetning lokaverkefna í heild.
22.-26. nóv.: Verkefnavinna og fyrirlestrar.
29. nóv.-1. des.: Verkefnavinna og fyrirlestrar.

Kennarar:  Finnbogi Rögnvaldsson og Harpa Hreinsdóttir