
Nafn jötnameyjar: GunnlöðHvaðan kom hún: Hún býr í hellinum Hnitbjörgum.
Maki, afkvæmi, gripir: Enginn. En hún er dóttir Suttungs jötuns.
Saga af Gunnlöðu: Óðinn sóttist eftir bjór Suttungs sem var í gæslu Gunnlaðar. Óðinn sem kallaði sig Bölverk, skreið inn í holu í fjallinu, í ormslíki. Þegar Óðinn kom inn í hellinn var Gunnlöð þar að passa bjórinn, sem var í þremur kerjum. Óðinn sagðist mundu sofa hjá Gunnlöðu eina nótt fyrir sopa úr hverju keri. Eftir þrjár nætur hafði hann sopið allt úr kerjunum. Óðinn breytti sér þá í örn og flaug á brott og skildi Gunnlöðu eina og sára eftir.
Hvernig er nafnið notað í nútímasamfélagi? Gunnur er notað sem nafn og þýðir orusta. Síðan er það löð sem þýðir gestrisni en var bara notað í fornu máli.. Löð er skylt sagnorðinu að laða, sem þýðir að lokka.
Ólöf og Heiðrún