Nafn konu:  Guðrún Gjúkadóttir

Hvaðan kom hún?  Hún var kóngsdóttir

Maki, afkvæmi, gripir:  Hún var gift Sigurði Fáfnisbana, Atla Buðlasyni (Húnakonungi) og Jónakri konungi.  Sigmundur og Svanhildur voru börn hennar og Sigurðar, tvo syni átti hún með Atla og Sörli, Hamdir og Erpur voru synir hennar og Jónakurs.

Saga af Guðrúnu:  Sigurður var drepinn  og þá giftist hún Atla Húnakonungi.  Atli drap bræður hennar, þá drap hún syni Atla og gaf honum þá að borða og bruggaði blóð þeirra út í drykk hans.  Hún reyndi líka að drepa sig með því að fleygja sér í sjóinn en hún drukknaði ekki heldur rak á land Jónakurs konungs og giftist honum.  Síðar eggjaði hún syni sína, Sörla, Hamdi og Erp, að hefna Svanhildar systur sinnar.

Hvernig er nafnið notað í nútímasamfélagi: Guðrún er algengt kvenmannsnafn.

Alfreð, Valdimar og Mikael