Nafn jötnameyjar:  Gerður

Hvaðan kom  hún: Hún var bergrisa ættar.

Maki, afkvæmi, gripir:  Maki er Freyr. Gerður er allra kvenna fegurst.

Saga af Gerði: Freyr sest í Hliðskjálf og sér Gerði og verður strax yfir sig ástfanginn.  Hann sendir Skírni, skósvein sinn, til þess að ná í Gerði.  Freyr sagði að hann myndi deyja ef hann fengi ekki Gerði.  Skírnir vildi sverðið hans Freys að launum og hann fékk það.  Skírnir kemur með Gerði og hún giftist Frey.

Hvernig er nafnið notað í nútímasamfélagi?  Á sama hátt og í goðafræðinni, þ.e.a.s. sem nafn á konu.

Maren og Hrefna