Til forráðamanna nemenda í Fjölbrautaskóla Vesturlands.

Akranesi 23. janúar 2009

Þann 17. desember s.l. tilkynnti ég stjórn nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands að framvegis muni ég sem skólameistari ekki bera ábyrgð á dansleikjum sem haldnir eru í nafni nemendafélagsins nema það sé auglýst og eftirlit haft með því að einstaklingum undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna sé óheimill aðgangur.
Fram að þessu hefur nemendafélagið fengið mitt samþykki fyrir að halda dansleiki með eftirtöldum skilyrðum:

  1. Félagar úr Björgunarfélagi Akraness sjá um gæslu og áfengisleit við innganginn.
  2. Enginn má koma með áfengi eða aðra vímugjafa á dansleikinn.
  3. Félagsmálastjóri skólans, forvarnarfulltrúi og tveir kennarar hafa umsjón með gæslu.
  4. Nemendafélagið sér um frágang eftir dansleikinn.
  5. Áberandi ölvuðum einstaklingum er ekki veittur aðgangur.

Það er óhætt að fullyrða að staðið hefur verið mjög vel við skilyrði 1 – 4. Því miður er ekki sama hægt að segja um 5. skilyrðið. Enda er það skilyrði þess eðlis að það er ómögulegt að standa við það. Staðreyndin er því miður sú að allt of margir hafa komið undir áhrifum áfengis á dansleikina.

Í Skólanámskrá Fjölbrautaskóla Vesturlands eru skólareglur birtar og sömuleiðis vímuvarnarstefna skólans.
Skólaregla númer 4 er svohljóðandi:

4. Neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð í skólanum og á samkomum og ferðalögum á hans vegum.

Greinar númer 2 og 3 í vímuvarnarstefnunni eru svohljóðandi:

2. Skólinn setur sér það mark að hvetja nemendur til að hafna vímuefnum. Lögð skal áhersla á að styðja við bakið á heilbrigðu félagsstarfi.
3. Stjórn nemendafélagsins, félagsmálastjórar, kennarar og stjórnendur beiti sér gegn því að nemendur komi undir áhrifum vímuefna á skóladansleiki.

Með ofangreind atriði í huga og þann grun minn að skólinn hafi fram að þessu sent nemendum og forráðamönnum röng skilaboð um áfengis- og vímuefnaneyslu, get ég ekki varið það lengur að horft sé framhjá því að ölvaðir einstaklingar fái aðgang að skemmtunum sem haldnar eru í nafni nemendafélagsins og á ábyrgð skólans.


Með bestu kveðjum og ósk um gleðilegt nýtt ár,

Hörður Ó. Helgason, skólameistari