Akranesi 23. október 2006

Til nemenda á sjúkraliðabraut

Vegna forfalla Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur er óhjákvæmilegt að breyta skipulagi náms á sjúkraliðabraut. Keyrsla áfanganna LOL1036 og HBF1036 er þó óbreytt frá upphaflegri áætlun. Vinnustaðanám á Sjúkrahúsi Akraness og Landspítala fylgir einnig upphaflegri áætlun. Hins vegar þarf að færa staðbundnar lotur í HJÚ1036 og HJV1036 og fresta LÍB1012 fram á vorönn.

Fyrir þá sem mæta í tíma í HBF1036 og LOL1036 verður kennsla samkvæmt stundaskrá á morgun, þriðjudag 24. október.

Fimmtudagshópur í HJÚ103 og HJV103 mætir klukkan 9:00 til 17:00 dagana 9. nóvember og 14. desember.
Föstudagshópur í HJÚ103 og HJV103 mætir klukkan 9:00 til 17:00 dagana 10. nóvember og 15. desember.

Þar sem föstudagshópurinn á meira eftir en fimmtudagshópurinn getur farið svo að hann verði lengur en til klukkan 17 þessa tvo daga.

Þess verður gætt að nemendur á sjúkraliðabraut þurfi ekki að taka próf dagana 14. og 15. desember.

Kennarar sem taka að sér að ljúka kennslu í sérgreinum brautarinnar eru:

Umsjónarkennari nemenda á sjúkraliðabraut verður Ragnheiður Ragnarsdóttir (ragnheidur@fva.is) og mun hún einnig hafa umsjón með vinnustaðanámi og vera tengiliður skólans við nemendur og spítala þar sem vinnustaðanám fer fram.

Hætt er við að yfirferð verkefna og prófa sem er búið að skila dragist eitthvað og bið ég þig að sýna þolinmæði vegna þess.

Ef þú átt eftir að skrá val í Innu fyrir næstu önn og treystir þér ekki til að gera það sjálf skaltu hafa samband við mig eða Jens B. Baldursson í tölvupósti eða síma. Tölvupóstföng okkar eru atli@fva.is og jens@fva.is og það er hægt að ná sambandi við okkur í síma 433-2500.

Kveðja Atli Harðarson