Reglur um skólasókn
Nemendur skulu sækja allar kennslustundir samkvæmt stundatöflu sinni og koma stundvíslega til kennslu.Eftirfarandi reglur gilda um skráningu fjarvista, viðurlög við þeim og einkunn fyrir skólasókn:
- Ef nemandi er fjarverandi úr kennslustund (klukkustund) eða mætir eftir að fjórðungur kennslustundar er liðinn skrifar kennari F í kladda. Komi nemandi of seint en þó áður en fjórðungur kennslustundar er liðinn skrifar kennari S. Sambærilegar reglur gilda yfirgefi nemandi kennslustund áður en henni er lokið. Þrjú S jafngilda einu F.
- Fari skólasókn niður fyrir 90% eftir að 5 vikur er liðnar af önn fær nemandi áminningu.
- Fari skólasókn niður fyrir 80% eftir að 5 vikur er liðnar af önn má vísa nemanda úr skóla.
- Veikindi og önnur forföll skal tilkynna samdægurs. Nemanda ber að tilkynna forföll áður en hringt er út úr fyrstu kennslustund sem hann skal, samkvæmt stundatöflu, sækja þann daginn. Tekið er við tilkynningum um forföll í síma. Sé nemandi yngri en 18 ára skulu forföll staðfest af forráðamanni. Ef um þrálát eða langvarandi veikindi er að ræða getur skólameistari krafist þess að þau séu staðfest af lækni.
- Ef nemandi gerir grein fyrir öllum veikindaforföllum í samræmi við 4. grein hér að ofan þá valda veikindi því ekki að hann fái lægri einkunn en 7 fyrir skólasókn. (Veikindi eru dregin frá upp að 94%.)
- Einkunn er gefin fyrir skólasókn og birtist hún í námsferli nemenda og á útskriftarskírteini. Skólasóknareinkunn ræðst af skólasókn samkvæmt töflunni hér fyrir neðan. Nemandi sem nær 9 eða 10 í skólasóknareinkunn fær 1 einingu sem er færð inn í námsferil hans við lok annar.
Frá 99% upp í 100% gefur einkunnina 10
Frá 98% upp að 99% gefur einkunnina 9
Frá 96% upp að 98% gefur einkunnina 8
Frá 94% upp að 96% gefur einkunnina 7
Frá 92% upp að 94% gefur einkunnina 6
Frá 90% upp að 92% gefur einkunnina 5
Frá 87% upp að 90% gefur einkunnina 4
Frá 84% upp að 87% gefur einkunnina 3
Frá 80% upp að 84% gefur einkunnina 2
Skólasókn undir 80% gefur einkunnina 1
Sé skólasóknareinkunn lægri en 5 á nemandi ekki vísa skólavist á næstu önn. Í einstökum áföngum er sérstök mætingarskylda sem tilgreind er í kennsluáætlun. Hér er t.d. um að ræða íþróttir, verklega áfanga og áfanga þar sem námsmat fer að miklu eða öllu leyti fram í kennslustundum. Hið sama getur átt við um einstaka þætti í áfanga svo sem vettvangsferðir og verklegar æfingar.
Reglur um niðurfellingu fjarvista af öðrum ástæðum en veikindum
Skólaráð getur heimilað að fjarvistir séu felldar niður að fullu eða nokkru leyti þegar nemendur hafa verið fjarverandi í eftirfarandi tilvikum:Vegna námsferða á vegum skólans (ferðir skipulagðar af NFFA samþykktar af skólastjórnendum falla hér undir).Vegna tiltekinna starfa í stjórn NFFA að fengnu leyfi skólaráðs.Vegna keppnisferða á vegum skólans eða NFFA.Vegna vinnu við undirbúning og framkvæmd stórviðburða á vegum NFFA að undanfengnu leyfi skólaráðs.Vegna þátttöku í, eða undirbúnings fyrir, íþróttakeppni á vegum landsliðs eða íþróttafélags, enda liggi fyrir staðfesting á slíkri þátttöku frá viðkomandi sérsambandi eða íþróttafélagi.Vegna ófærðar eða annarra óviðráðanlegra tilvika, enda geti nemandi skýrt og staðfest þá töf sem hann varð fyrir.Vegna útfarar nákomins ættingja eða vinar.Vegna veikinda barns sem nemandi á eða hefur á framfæri.Ekki er veittur frádráttur á fjarvistum vegna vinnu, almennra félagsstarfa í skólanum, ferðalaga á eigin vegum eða annars í þeim dúr.