Góð skólasókn skilar árangri
Myndin hér að neðan sýnir sambandið milli skólasóknar og árangurs í námi við Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 2001.
Kvarðinn til vinstri á við línuna og táknar fjölda staðinna eininga. Þeir sem fengu 10 í skólasókn náðu að jafnaði tæplega 18 einingum. Þeir sem féllu í skólasókn (með einkunnina 4) náðu að jafnaði um 4 einingum.
Kvarðinn til hægri á við súlurnar og táknar fall í prósentum. Þeir sem fengu 10 í skólasókn féllu að jafnaði í rúmum 5% af þeim einingum sem þeir reyndu við á önninni en þeir sem féllu í skólasókn (með einkunnina 4) féllu að jafnaði í 75% af þeim einingum sem þeir reyndu við.
Þessi mynd bendir til að lítið sé hæft í orðrómi um að sumir séu svo gáfaðir að þeir nái öllu án þess að mæta í skólann og aðrir svo vitlausir að þeir falli hvort sem þeir stunda skólann vel eða illa. Næstum allir nemendur sem eru með 8, 9 eða 10 í skólasókn ná góðum árangri í námi og svo til allir sem hafa 4 og 5 í skólasóknareinkunn ná lélegum árangri.Taflan sýnir hvernig skólasóknareinkunn er reiknuð út frá fjarvistastigum. Fyrir að mæta ekki í einnar klukkustundar kennslustund fást 3 fjarvistastig og fyrir að mæta of seint fæst 1 stig. Hafi nemandi meira en 200 fjarvistastig (eftir að leyfi og veikindi hafa verið dregin frá) er hann fallinn í skólasókn og hefur glatað rétti sínum til að sækja fleiri kennslustundir á önninni. Nemendum sem falla í skólasókn er yfirleitt leyft að taka próf. En eins og línuritið sýnir falla þeir í þrjú skipti af hverjum fjórum eða þar um bil.