Í skólanámskrá sem liggur frammi á vef skólans vantar reglur um frjálsa mætingu. Á deildarstjórafundi 14. nóvember 2003 var ákveðið að reglurnar yrðu sem hér segir. Þær öðlast gildi við upphaf vorannar 2004 og verða birtar í fjórðu útgáfu skólanámskrár sem kemur á vefinn á næsta ári. Reglur um frjálsa tímasókn
Frjáls tímasókn felur í sér undanþágu frá almennum skólasóknarreglum.
Skólinn gerir þá kröfu að nemandi með frjálsa tímasókn geti sótt allverulegan hluta kennslustunda, þótt óreglulega sé. Þessi tímasókn á að nægja til að nemandinn geti fylgst með og tekið þátt í kennslunni. Nemandinn á ekki rétt á kennslu eða leiðsögn utan kennslustunda umfram aðra nemendur.
- Nemendur sem hafa fengið frjálsa tímasókn geta þurft að mæta í allar kennslustundir í sumum áföngum (einkum verklegum og próflausum) sem ekki er hægt að ljúka nema með reglulegri tímasókn.
- Nemendur með frjálsa tímasókn geta ekki stundað nám í fornámsáföngum (með millitöluna 9).
- Þurfi nemandi sem sækir um frjálsa tímasókn að ljúka hægferðaráfanga (í DAN, ENS, ÍSL, STÆ) skal honum vísað á fjarnám þar sem því verður við komið.
- Hafi nemandi fallið í einhverjum áföngum á síðustu önn sinni í skóla getur hann ekki fengið frjálsa tímasókn í fleiri einingum en hann lauk með fullnægjandi árangri á þeirri önn.
- Nemandi með frjálsa tímasókn fær hvorki skólasóknareinkunn né einingar fyrir skólasókn.
- Að jafnaði skal við það miðað að nemandi sem fær frjálsa tímasókn sé orðinn a.m.k. 20 ára, hafi stundað nám með góðum árangri og tilgreini í umsókn sinni ástæður þess að hann geti ekki haldið áfram námi án þess að fá undanþágu frá skólasóknarreglum.
Endurnýja þarf heimild til frjálsrar tímasóknar í upphafi hverrar annar. Það gerir nemandi með því að fylla út þar til gert eyðublað sem fæst á skrifstofu skólans. Umsóknin verður afgreidd í samráði við deildarstjóra og kennara fyrir lok annarrar kennsluviku.