17. febrúar: Hugrún Haraldsdóttir sigurvegari í söngkeppni NFFA
Fjölmenni mætti á söngkeppni nemendafélagsins sem haldin var í Gamla Kaupfélaginu í gærkvöldi. Tólf keppendur komu fram. Sigurvegari kvöldsins var Hugrún Eva Haraldsdóttir sem flutti lagið Hometown glory eftir Adele við undirleik Tómasar Alexanders Árnasonar. Í öðru sæti var Ásta Marý Stefánsdóttir og í því þriðja Heiðmar Eyjólfsson og Arnar Ólafsson.
   Skólavefurinn óskar sigurvegurum til hamingju með glæsilega frammistöðu.

16. febrúar: Söngkeppni nemendafélagsins
Söngkeppni nemendafélagsins, NFFA, verður haldin á Gamla Kaupfélaginu í kvöld klukkan 20.
   Fram koma Ína Sigrún Rúnarsdóttir, Ásta Marý Stefánsdóttir, Hallmar Gauti Halldórsson, Svanhildur Alexandra Elínborgardóttir, Inga María Hjartardóttir, Hróbjartur Árnason, Sigurbjörn kári Hlynsson, Ragnhildur Día Andrésdóttir, Guðbergur (Guzzi Lollköttur), Bergur Líndal Guðnason, Heiðmar Eyjólfsson og Arnar Ólafsson, Hugrún Haraldsdóttir.
   Húsbandið skipa Jakob Grétar Sigurðsson, Bergur Líndal Guðnason, Hallmar Gauti Halldórsson, Þórður Helgi Guðjónsson, Tómas Alexander Árnason, Sindri Snær Lilliendahl.
   Kynnir verður Egill Ragnarsson. Miðaverð 500 krónur.

14. febrúar: Jón Ingi Sigurðsson íþróttamaður Borgarbyggðar 2011
Laugardaginn 11. febrúar útnefndi íþrótta- og tómstundanefnd Borgarbyggðar Jón Inga Sigurðsson íþróttamann sveitarfélagsins fyrir árið 2011 við athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Jón Ingi náð góðum árangri í sundi á árinu og var meðal annars tvöfaldur aldursflokkameistari, keppti fyrir hönd unglingalandsliðsins á erlendri grundu og margbætti héraðsmet. Jón Ingi hóf nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 2011. Skólavefurinn óskar honum til hamingju með útnefninguna.

10. febrúar: Undirbúningur opinna daga hafinn
Opnir dagar á vorönn 2012 verða 6. til 8. mars. Undirbúningur er hafinn og dagskráin að þessu sinni verður tengd verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli. Kvikmynd sem sýnir hluta af dagskrá opinna daga í fyrra liggur hér frammi.

9. febrúar: Háskóladagurinn nálgast - 18. febrúar klukkan 12 til 16
Laugardaginn 18. febrúar kynna háskólar starfsemi sína milli klukkan 12 og 16.
   Í Háskólabíó verður kynning á námi frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Keili og Listaháskóla Íslands. Einnig verður þar kynning á háskólanámi í Danmörku og Svíþjóð.
   Í Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Öskju og Háskólabíó verður kynning á
námi við Háskóla Íslands.
   Háskólinn á Bifröst kynnir námsframboð í Norræna húsinu.
   Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands kynna námsframboð sitt í húsakynnum Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.
   Fríar rútuferðir á milli staða á tuttugu mínútna fresti. Nánari upplýsingar á vefnum www.haskoladagurinn.is

9. febrúar: Starfsmenn skólans taka þátt í lífshlaupinu
Starfsmenn skólans mynda fjögur lið í Lífshlaupinu. Upplýsingar um þennan skemmtilega leik sem hvetur fólk til að hreyfa sig meira eru á vefnum www.lifshlaupid.is.

8. febrúar: Rafiðnadeild færðar gjafir
Nú í febrúar hafa tvo fyrir tæki fært rafiðnadeild skólans tæki að gjöf. Þessi fyrirtæki eru annars vegar Reykjafell sem gaf dyrasíma með myndavél og hins vegar Smith & Norland sem gaf m.a. verkfæri og verkfæratösku. Fyrirtækjunum eru hér með færðar þakkir fyrir stuðning sinn við skólann.

31. janúar: Jöfnunarstyrkur
Frestur til að sækja um jöfnunarstyrk vegna vorannar 2012 rennur út 15. febrúar. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabanka eða Innu. Reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um umsóknir eru á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna, http://www.lin.is.

26. janúar: West Side frestað en ballið verður
Ákveðið hefur verið að fresta West Side vegna þess að óvíst er með færð í kvöld og nótt og hætt við að þeir sem kæmu úr Borgarbyggð og af Snæfellsnesi ættu erfitt með að komast aftur heim. Ballið í kvöld verður samt haldið.
   Ekkert kennslufall verður heldur kennt eftir stundaskrá bæði í dag og á morgun.

24. janúar: West Side á fimmtudag
Næsta fimmtudag, 26. janúar, verður West Side, sem er sameiginleg skemmtun nemenda framhaldsskólanna á Akranesi, í Borgarnesi og Grundarfirði haldin hér á Akranesi. Gleðskapurinn byrjar klukkan 15 í íþróttahúsinu við Vesturgötu og honum lýkur með dansleik í Gamla kaupfélaginu við Kirkjubraut sem stendur frá klukkan 22 til 01. Á milli klukkan 18 og 22 verður samkoma á sal skólans og þar verður einnig boðið upp á kvöldverð.
   Vegna þessa fellur öll kennsla við Fjölbrautaskóla Vesturlands niður frá klukkan 14:40 á fimmtudag. Á föstudag verður kennt frá klukkan 8:30 samkvæmt venjulegri stundaskrá.

17. janúar: Inga Elín valin íþróttamaður ársins
Í lok síðustu viku var Inga Elín Cryer var kjörin Íþróttamaður ársins 2011 á Akranesi. Á árinu vann hún til margra verðlauna fyrir afrek sín í sundi. Hún varð m.a. tvöfaldur Norðurlandameistari unglinga og fimmfaldur Íslandsmeistari. Auk þess setti hún sex Íslandsmet á árinu í þremur greinum og átta Akranesmet.
   Inga Elín stundar nám á málabraut við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Skólavefurinn óskar henni til hamingju með glæsilegan árangur.

13. janúar: Nýtt Comeniusverkefni
FVA er í samstarfi við 10 erlenda framhaldsskóla í verkefni sem heitir Sáð til framtíðar (Planting our Future).
   Nemendur geta kynnt sér verkefnið á síðunni http://www.fva.is/comenius/pof/. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku geta sótt eyðublað á ofangreinda síðu. Nánari upplýsingar verða veittar í næsta umsjónartíma. Einnig má senda tölvupóst með fyrirspurn á jaf@fva.is eða jens@fva.is eða keg@fva.is eða steinben@fva.is.

Fleiri fréttir ...

 
Ýmsar upplýsingar
Ársskýrsla fyrir árið 2011
Mat á námi í stóriðjuskóla
Vélvirkjanám m. vinnu - stundaskrá
Helgarkennsla í húsasm. - dagatal
Skóladagatal fyrir vorönn 2012
Bókalisti fyrir vorönn 2012
Umsóknareyðublað
Leiðbeiningar um meðferð heimilda
Viðtalstímar
Foreldraráð
Skólareglur
Lykilorđ ađ tölvukerfum
Tenglar á vef bókasafns