Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
frá skólaárinu 1999-2000


Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007

24.5. Þróunarstyrkir til FVA
Nú hefur menntamálaráðuneytið lokið úthlutun styrkja til þróunarverkefna í framhaldsskólum. Að þessu sinni fékk FVA styrki til að vinna tvö þróunarverkefni. Annað verkefnið er Hugbúnaðargerð fyrir kennslu á vef, en umsjón með því hafa þær Harpa Hreinsdóttir kennari og Hafdís D. Hafsteinsdóttir bókasafnsfræðingur. Hitt verkefnið er sameiginlegt verkefni Fjölbrautaskóla Vesturlands, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurnesja um mótun náms á almennri námsbraut.

19.5. Brautskráning úr FVA á vorönn 2000
Í dag fór fram brautskráning nemenda FVA á vorönn 2000 við hátíðlega athöfn á sal skólans. Að þessu sinni brautskráðust 62 nemendur: 31 stúdent af 8 mismunandi brautum, 13 nemendur af sjúkraliðabraut, 3 nemendur af viðskiptabraut, 2 nemendur í rafvirkjun, 2 nemendur í húsasmíði, 2 nemendur í vélsmíði, 1 nemandi af starfsbraut, 1 nemandi í rafsuðu,1 nemandi af íþróttabraut fyrri hluta og 6 nemendur luku fyrri hluta prófi í rafeindavirkjun. Auk þess kvöddu 3 skiptinemar skólann eftir árs nám hér. Í hópnum sem útskrifaðist nú voru stúlkur nokkru fleiri en piltar og athyglisvert er að af fjórum nemendum sem luku stúdentsprófi af eðlisfræðibraut voru 3 stúlkur.
    Margar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur voru veittar. Viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut Kristín Gróa Þorvaldsdóttir stúdent af eðlisfræðibraut. Námsárangur Kristínar Gróu er sérlega glæsilegur en hún lauk stúdentsprófi á aðeins 6 önnum. Kristín Gróa hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í dönsku, frönsku, ensku, íslensku og sögu. Loks hlaut hún verðlaun úr minningarsjóði Þorvaldar Þorvaldssonar fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði og eðlisfræði. Theódóra Lind Þorvaldsdóttir hlaut verðlaun sem Katla Hallsdóttir hárgreiðslumeistari gefur fyrir framúrskarandi árangur í verklegum greinum. Iðnsveinadeild Verkalýðsfélags Borgarness veitti viðurkenningu fyrir ágætan árangur í húsasmíði og fékk Theódóra Lind þá viðurkenningu einnig. Ágúst Elvar Jóhannsson, Davíð Freyr Jónsson og Sverrir Aðalsteinn Jónsson fengu viðurkenningu fyrir ágætan árangur í verklegum greinum sem Landsskrifstofa Leonardó á Íslandi gaf. Ragnheiður Guðmundsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku og heilbrigðisgreinum, Signý Gunnarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku og ensku, Erla Björg Guðrúnardóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í stærðfræði og viðskiptagreinum, Guðrún Lísbet Níelsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í ensku og Katrín Rós Baldursdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í efnafræði og líffræði. Gísli Gíslason bæjarstjóri Akraness afhenti námsstyrk Akraneskaupstaðar sem Gauti Jóhannesson hlaut að þessu sinni. Gauti útskrifaðist á síðustu haustönn með miklum ágætum og nemur hann nú læknisfræði í Svíþjóð. Unnar Þór Bachmann sem einnig útskrifaðist á síðustu haustönn hlaut verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti, en Unnar hyggur á nám í eðlisfræði næstkomandi haust. Auk þeirra aðila sem taldir eru upp hér að framan sýndu eftirtaldir skólanum þá vinsemd að gefa viðurkenningar fyrir ágætan námsárangur: Eyrarsveit fyrir ágætan árangur í frönsku, Stykkishólmsbær fyrir ágætan árangur í dönsku, sömuleiðis danska sendiráðið og Verslunarmannafélag Akraness fyrir ágætan árangur í viðskiptagreinum. Davíð Rósenkrans hlaut viðurkenningu úr verðlaunasjóði Elínar Írisar Jónasdóttur fyrir bestu ritgerð skrifaða á skólaárinu.
    Við athöfnina voru kvaddir tveir starfsmenn skólans sem nú láta af störfum vegna aldurs. Það eru þær Hildur Guðmundsdóttir myndlistarkennari og Guðrún Jónsdóttir starfsmaður heimavistar, en báðar hafa þær unnið við skólann frá því að hann var stofnaður árið 1977.
    Hörður Ó. Helgason aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar og varpaði ljósi á það fjölbreytta starf sem fram fer í skólanum. Í máli Harðar kom m.a. fram að á önninni hefur mikið verið unnið að því að aðlaga skólastarfið að nýrri námskrá fyrir framhaldsskóla og nýjar námsbrautir eru í undirbúningi. Hörður ræddi einnig um erlend samskipti sem eru vaxandi þáttur í skólastarfinu. Loks fjallaði Hörður um þátt nemenda í skólastarfinu, bæði í námi og félagsstarfi, og kom þar fram að í skólanum eru margir hæfileikaríkir einstaklingar sem með góðum vinnubrögðum geta sameinað nám og önnur störf þannig að hvoru tveggja njóti sín. Þórir Ólafsson skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur og flutti þeim kveðjur skólans. Þórir hvatti útskriftarnemendur til að huga vel að menntun sinni og minnti á að menntun er viðfangsefni alla ævina því hún er virkasta aðferð okkar til að aðlagast breyttum aðstæðum. "Annað sem skiptir máli er að við leggjum rækt við það sem ekki verður vegið og metið til beinna fjármuna. Visst jafnvægi milli hins veraldlega og hins andlega verður að ríkja. Við megum ekki gleyma okkur í þeirri veraldlegu dýrð sem er svo mikið hampað í dag," sagði Þórir að lokum. Alma Auðunsdóttir nýstúdent ávarpaði samkomuna fyrir hönd útskriftarnemenda. Alma rifjaði upp atburði frá skólagöngunni og þakkaði starfsfólki skólans fyrir samveruna á sliðnum árum. Nemendur skólans sáu um tónlistarflutning. Sönghópur FVA söng undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur og Dóra Erna Ásbjörnsdóttir nemandi á tónlistarbraut lék á píanó verkið Brúðkaup á Tröllhaugen, eftir Edvard Grieg. Dóra Erna hefur nýlokið 8. stigs prófi í píanóleik.
    Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.

5.5. Próf hafin, brautskráning 19. maí
Próf á vorönn 2000 hófust s.l. þriðjudag. Síðasti prófdagur er 16. maí, en sjúkrapróf verða haldin þann 17. Brautskráning nemenda verður föstudaginn 19. maí á sal skólans og hefst athöfnin kl. 14. Að þessu sinni brautskrást frá skólanum tæplega 70 nemendur. Nánar verður greint frá brautskráningunni hér á fréttasíðunni kl. 17 þann sama dag.

28.4. Lokaverkefni nemenda í fjölmiðlaáfanganum FJÖ 123 útvarpað þ. 29.4.
Athygli lesenda fréttasíðunnar er vakin á útvarpi nemenda á morgun. Þá verður útvarpað á FM 95.0 þáttum sem nemendur hafa unnið sem lokaverkefni í fjölmiðlaáfanganum FJÖ123. Dagskráin fer hér á eftir:
    Lokaverkefni nemenda í fjölmiðlafræði (FJÖ123) í FVA.
    Útsending á fm 95.0 Laugardaginn 29. apríl :
 

10-11 Karíus og Baktus Morgunþáttur fyrir börn, leikrit og sögur. Harpa H. Haraldsdóttir og Svala Ástríðardóttir

11-12 Suðrænt og seiðandi Kynning á latneskri menningu. Rætt við skiptinema. Júlíana Björnsdóttir

12-13 Vitund Tónlist unga fólksins í dag. Valur Birgisson

13-15 Stóri draumurinn Tónlist sem fyrrum nemendur skólans hafa gefið út. Gunnlaugur Jónsson

15-16 Rætur Menningarþáttur, ljóð og fleira. Harpa Hlín Haraldsdóttir og Svala Ástríðardóttir

16-18 Hugvekja Sigurðar. Eintalsþáttur til að skemmta fólki. Sigurður Tómas Helgason

18-20 Bannað innan 18 Dægurmálaþáttur. Karl Eiríksson og Björn Júlíus Grímsson

20-23 Rokkið þróast Saga rokksins rakin

Elías Jón Guðjónsson, Tryggvi Dór Gíslason og Hannibal Guðmundur Hauksson


14.4. Comeniusarverkefni á lokastigi
Nú er á lokastigi þriggja ára Comenius verkefni sem FVA hefur tekið þátt í með skólum á Ítalíu, Hollandi og Finnlandi um blöndun fatlaðra í skólum. S.l. vor sóttu kennarar frá þessum þátttökulöndum okkur heim og dvöldu á Akranesi í viku við að kynna sér blöndun á Íslandi og vinna að verkefninu. Þann 25. mars til 1. apríl s.l. var fundað í Finnlandi og sóttu Inga Sigurðardóttir og Marta Dögg Pálmadóttir fundinn á vegum FVA. Niðurstaða verkefnisins var í stuttu máli, að til að vel takist til við blöndun fatlaðs einstaklings í almennum skóla þarf hann að hafa einstaklingskennsluáætlun sem er í sífelldri endurskoðun meðan á náminu stendur. Margir aðrir þættir eru nefndir til sögunnar til að framkvæmd blöndunar skili árangri. Má þar nefna viðhorf stjórnenda, hæfni kennara, sjálfsstyrk nemandans og möguleika hans á samskiptum við aðra nemendur í skólanum. Einnig er mikilvægt að skipulag skólans sé með þeim hætti að auðvelt sé fyrir hinn fatlaða nemanda að stunda þann hluta námsins sem hann hefur getu til í hóp með ófötluðum nemendum. Álit þessa fjölþjóðlega hóps var m.a. að áfangakerfið okkar henti sérstaklega vel til að skipuleggja einstaklingsmiðað nám fyrir fatlaða nemendur.Verkefnið mun skila niðurstöðum á heimasíðu sem Inga Sigurðardóttir hefur umsjón með. Búið er að opna heimasíðuna og má þar lesa ýmislegt um verkefnið en loka niðurstöður verkefnisins verða birtar þegar líða fer á vorið.
    Slóðin er: http://www.ismennt.is/not/ingasig/comenius/
    Sjá nánar um Comenius verkefni og hvernig þau verða til: http://www.ask.hi.is/

29.3. Af meisturum
Nemendur FVA nota tíma sinn utan veggja skólans sem innan til margra góðra verka. Í skólanum eru margir hæfileikaríkir einstaklingar á ýmsum sviðum. Hér fyrr á fréttasíðunni hefur verið fjallað um hina glæsilegu sýningu Rocky Horror, sem u.þ.b. 80 nemendur komu að. En það eru fleiri að gera það gott. Um síðustu helgi fór fram Framhaldsskólamót í hestaíþróttum. Frá FVA tóku þátt fjórir keppendur, Anna Lára Ármannsdóttir, Karen Lind Marteinsdóttir, Ólöf Helga Sigurðardóttir og Sigurður Ólafsson. Þau stóðu sig öll mjög vel og þá sérstaklega Karen Lind sem ásamt hesti sínum Manna vann sigur í fjórgangi. Auk þess var Karen Lind stigahæsti knapi mótsins og hlaut því sæmdarheitið Framhaldsskólameistari í hestaíþróttum. Um þessa helgi fór einnig fram Fegurðarsamkeppni Vesturlands. Þar var Elín Málmfríður Magnúsdóttir nemandi í FVA kjörin Ungfrú Vesturlands. Í þessu sambandi má bæta því við að Ungfrú Ísland árið 1999 er Katrín Rós Baldursdóttir sem einnig er nemandi í FVA. Einnig fór fram um sömu helgi árleg keppni í flutningi franskra ljóða: Ljóðakeppni Félags frönskukennara og Franska sendiráðsins . Tveir nemendur FVA tóku þátt, þær Marta Jónsdóttir og Rakel Björk Gunnarsdóttir. Þær stóðu sig báðar mjög vel þótt ekki hafi þær unnið til verðlauna að þessu sinni. Þá var Sundmeistaramót Íslands innanhúss haldið fyrir skömmu. Þar voru nokkrir nemendur FVA keppendur. Þau stóðu sig öll vel, en enginn betur en Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sem vann til 6 gullverðlauna. Kolbrún Ýr ber sæmdartitilinn Íþróttamaður Akraness 1999, hún stefnir ótrauð á að ná þeim lágmörkum sem veita þátttökurétt á Ólympíuleikana í Sidney sem verða síðar á þessu ári. Þar vantar hana aðeins herslumuninn. Það eru fleiri snjallir sundmenn í FVA, meðal þeirra er Anton Kristjánsson sem nýverið tók þátt í Norðurlandamóti fatlaðra í sundi sem haldið var í Malmö í Svíþjóð og stóð hann sig þar mjög vel. Sá sem ber sæmdarheitið Íþróttamaður Borgarness er nemandi í FVA. Það er Hlynur Elías Bæringsson sem er einn af efnilegustu körfuknattleiksmönnum landsins. Hlynur var m.a. valinn í íslenska landsliðið nú í vetur þrátt fyrir ungan aldur. Margt annað afreksfólk er á meðal nemenda en of langt mál væri að telja þá alla upp, m.a. eru hér unglingalandsliðsmenn í knattspyrnu, bæði stúlkur og piltar, einnig fólk sem er að gera það gott á öðrum sviðum. Allir þessir efnilegu unglingar eru góðir fulltrúar skólans hver á sínum vettvangi. Það er heiður fyrir skólann að hafa svo margt efnisfólk innan nemendahópsins. Fréttasíðan óskar þeim öllum til hamingju með unna sigra og alls hins besta í framtíðinni.

21.3. Viðurkenning fyrir stýringar
Sveinsprófi í rafvirkjun lauk fyrir stuttu. Sigurður Ari Ómarsson sem lauk námi frá FVA í rafvirkjun af verknámsbraut rafiðna í desember s.l. var einn þeirra sem þreytti sveinspróf að þessu sinni. Sigurður Ari stóð sig með mikilli prýði og fékk hann viðurkenningu fyrir frábæran árangur í stýringum. Þetta er í annað skiptið á innan við ári sem nemandi frá FVA fær viðurkenningu fyrir frábæran árangur á sveinsprófi í rafvirkjun. Fréttasíðan óskar Sigurði Ara og rafiðnaðardeildinni til hamingju með árangurinn.

15.3. "Rocky Horror Picture Show"
Söngleikurinn "Rocky Horror Picture Show" í uppfærslu leiklistarklúbbs NFFA var frumsýndur s.l. föstudag. Húsfyllir var á frumsýningunni og voru viðtökur áhorfenda mjög góðar. Sýningin var vel heppnuð og stórskemmtileg. Leikararnir stóðu sig allir með prýði, en með aðalhlutverk fara þau Aldís Birna Róbertsdóttir, Sindri Birgisson og Valur Birgisson. Fjölmörg dans- og söngvaatriði eru í söngleiknum og eru dansatriðin afar vel útfærð og söngurinn skemmtilegur og er ljóst að á meðal nemenda skólans eru margir afbragðssöngvarar. Leikstjóri er Ari Matthíasson, tónlistarstjóri er Flosi Einarsson og danshöfundur er Indíana Unnarsdóttir. Góð aðsókn hefur verið að söngleiknum og hafa áhorfendur skemmt sér mjög vel. Það er óhætt að mæla með þessari sýningu. Aðsókn á þrjár fyrstu sýningarnar hefur verið góð og það er engin ástæða til að ætla annað en að svo verði áfram því hér er um ósvikna skemmtun að ræða. Á milli 70 og 80 nemendur skólans koma að uppfærslunni á einn eða annan hátt og hafa þau unnið mjög gott starf og afraksturinn er þeim öllum til sóma.

11.3. Afhending verðlauna í stærðfræðikeppninni
Í dag voru afhent verðlaun í Stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi. Keppnin fór fram þann 19.2. s.l. og sá stærðfræðideild FVA um framkvæmdina hér, en sams konar keppni fór fram í mörgum öðrum framhaldsskólum á sama tíma, en það er Flensborgarskóli sem sér um keppnina á landsvísu og útbýr verkefnin. Þátttakendur hér komu úr nær öllum grunnskólum á Vesturlandi, en alls tóku 125 nemendur úr 8., 9. og 10. bekk þátt. Þrír efstu keppendurnir úr hverjum aldursflokki hlutu peningaverðlaun, kr.15.000 fyrir 1. sæti, 10.000.- fyrir 2. sæti og kr. 5.000.- fyrir 3. sæti. Þeir sem voru í 4. til 10. sæti í hverjum aldursflokki hlutu sérstaka viðurkenningu. Eftirtalin fyrirtæki á Vesturlandi styrktu keppnina að þessu sinni og gáfu verðlaun: Búnaðarbanki Íslands hf. Akranesi, Sigurður Ágústsson ehf. Stykkishólmi, Skaginn hf. Akranesi, Verslunin Einar Ólafsson Akranesi og Þorgeir & Ellert hf. Akranesi. Fjölmenni var við verðlaunaafhendinguna og þáðu gestir veitingar í boði skólans að henni lokinni og lauk þar með vel heppnaðri keppni. Verðlaunahafar í ár voru eftirtaldir:

8. bekkur
1. Ólöf Erla Hauksdóttir, Varmalandsskóla
2.-3. Gísli Laxdal Sturlaugsson, Brekkubæjarskóla
2.-3. Hans Pétursson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Agnar Sigurjónsson, Grundaskóla
4.-10. Áskell Jónsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Benedikt Magnússon, Brekkubæjarskóla
4.-10. Einar Ágúst Gylfason, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Heiða Lind Heimisdóttir, Grunnskólanum í Stykkishólmi
4.-10. Hrefna Hallgrímsdóttir, Grunnskólanum Hellissandi
4.-10. Þóra Hlín Þórisdóttir, Grundaskóla

9.bekkur
1. Máni Atlason, Grundaskóla
2. Jóhannes Guðbrandsson, Grunnskólanum í Borgarnesi
3. Inga Helga Sveinsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Axel Björgvin Höskuldsson, Grunnskóla Eyrarsveitar
4.-10. Birna Björnsdóttir, Grundaskóla
4.-10. Borghildur Eiríksdóttir, Grunnskólanum í Stykkishólmi
4.-10. Flosi Hrafn Sigurðsson, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Jónína Svavarsdóttir, Grunnskólanum í Staðarsveit
4.-10. Ólafur Nils Sigurðsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Soffía Helgadóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi

10. bekkur
1. Harald Björnsson, Grundaskóla
2. Eyrún Harpa Gísladóttir, Grunnskólanum í Búðardal
3. Páll Óskar Kristjánsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Laugaskóla, Dalasýslu
4.-10. Eyþór Friðriksson, Grundaskóla
4.-10. Lára María Harðardóttir, Grunnskólanum í Stykkishólmi
4.-10. Sara Sigurðardóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Sigríður Helga Sigurðardóttir, Grundaskóla
4.-10. Sveinn Kristjánsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Ævar Þór Benediktsson, Varmalandsskóla

6.3. Viðburðarík vika: "Skammhlaup" og frumsýning
Nú í vikunni verður mikið um að vera hér í skólanum. Á miðvikudaginn, öskudag, fer fram "Skammhlaup 2000". "Skammhlaupið" var háð í fyrsta sinn hér í fyrra. Það fer þannig fram að nemendum skólans er skipt í 8 lið sem keppa í hinum ýmsu greinum sem tengjast beint eða óbeint þeim námsgreinum sem kenndar eru í skólanum. Keppnin er nokkurs konar boðhlaup og sigrar það lið sem leysir þrautirnar best og á sem skemmstum tíma. Keppt er m.a. í reiptogi, þýsku, logsuðu, sundi, líffræði, sögn o.fl. Keppnin hefst snemma að morgni miðvikudags, en þá marsera nemendur frá skólanum niður í íþróttahús þar sem keppnin hefst. Keppninn lýkur svo á sal skólans með hópatriðum.
    Á föstudaginn verður frumsýndur hér söngleikurinn "Rocky Horror Picture Show". Leiklistarklúbbur NFFA sér um uppsetninguna, en leikstjóri er Ari Matthíasson. Nánar verður fjallað um sýninguna síðar.

29.2. Svandís sigurvegari í þýskuþraut
Svandís Halldórsdóttir nemandi í FVA sigraði í "Þýskuþraut framhaldsskólanna" sem fór fram fyrir stuttu. Svandís hlýtur þar með 1. verðlaun sem er ferð til Þýskalands og 4 vikna dvöl þar næsta sumar. Það er Þýskukennarafélag Íslands sem stendur fyrir keppninni, en fjölmargir framhaldsskólanemendur úr öllum framhaldsskólum landsins tóku þátt. Nemendur úr FVA hafa áður náð góðum árangri í þessari keppni en ekki lent í 1. sæti fyrr en nú. Þetta er glæsilegur árangur hjá Svandísi og fréttasíðan óskar henni til hamingju með sigurinn.

28.2. Vélavarðanám í Ólafsvík
Samstarfsverkefni FVA og Símenntunarmiðstöðvarinnar um vélstjórnarnám er nýlega farið af stað í Ólafsvík Þar eru 12 nemendur í skráðir á vélstjórnarbraut 1. stigs (vélavarðarnám). Brautin er alls 22 einingar en nú eru kenndir þrír áfangar: vélgæsla (VGÆ 105), málmsuða (MLS 102) og smíðar (SMÍ 104), samtals 11 einingar. Umsjón með náminu hefur málmiðnaðardeild FVA, en kennari er Jóhann Þóroddson vélfræðingur. Nám þetta veitir vélstjórnarréttindi á skip með vélar allt að 220 kW (300 hö) og vélavarðaréttindi á önnur skip.

19.2. Mjög góð þátttaka í stærðfræðikeppni grunnskólanna
Í morgun fór fram stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi. Stærðfræðideild FVA sá um skipulag og framkvæmd keppninnar og eiga allir sem komu að þeirri vinnu þakkir skildar fyrir gott framtak. Þátttakendur komu úr langflestum grunnskólum á Vesturlandi, en alls tóku 125 nemendur úr 8., 9. og 10. bekk þátt. Þetta er heldur betri þátttaka en í fyrra en þá var keppnin haldin í fyrsta sinn hér. Sambærileg keppni var haldin í öðrum framhaldsskólum á landinu í morgun. Þegar þátttakendur voru búnir að leysa stærðfræðiþrautirnar var þeim sýndur skólinn og fengu m.a. að fylgjast með eðlisfræðitilraunum í nýju eðlisfræðistofunni. Öllum var síðan boðið upp á veitingar áður en haldið var heim. Keppnin þótti takast mjög vel og óhætt er að segja að allir hafi farið héðan ánægðir. Nú taka stærðfræðikennarar til hendinni og fara yfir úrlausnir. Þann 11. mars fer fram verðlaunaafhending hér í skólanum. Þá fá 10 efstu einstaklingarnir úr hverjum aldurshópi viðurkenningu og þrír efstu úr hverjum aldurshópi fá vegleg verðlaun. Eftirtalin fyrirtæki á Vesturlandi styrkja keppnina og gefa verðlaun: Búnaðarbanki Íslands hf. Akranesi, Sigurður Ágústsson ehf. Stykkishólmi, Skaginn hf. Akranesi, Verslunin Einar Ólafsson Akranesi og Þorgeir & Ellert hf. Akranesi.

18.2. MS sigur í "Gettu betur"
Nú er lokið 1. umferð í 8. liða úrslitum í spurningakeppni framhaldsskólanna "Gettu betur". Lið FVA keppti gegn liði MS og fóru leikar þannig að MS sigraði með 31 stigi gegn 18. Eftir hraðaspurningarnar var staðan 16 - 14 MS í vil en eftir það fór að halla undan fæti hjá okkar mönnum. Salurinn var fullur af fólki og gríðarlega góð stemning. Klapplið beggja skóla hvöttu sín lið af miklu kappi. Skemmtiatriði frá báðum skólunum voru flutt. Þær Sylvía Rún Ómarsdóttir og Elsa Jóhannesdóttir sungu mjög vel lag úr söngleiknum "Rocky Horror Picture Show" sem leiklistaklúbbur NFFA mun frumsýna þ. 10. mars n.k. Nemendur úr MS fluttu atriði úr leikritinu Fílamaðurinn sem þeirra leiklistarklúbbur sýnir þessa dagana. Þrátt fyrir tapið þá má segja að okkar lið, þeir Andrés, Lárus og Ómar, hafi staðið sig vel í keppninni og verið skólanum til sóma sem og þjálfarar liðsins, liðstjóri, klapplið og áhorfendur.

15.2. "Gettu betur" sjónvarpað frá FVA
Næstkomandi föstudag hefjast 8 liða úrslit í spurningarkeppni framhaldsskólanna "Gettu betur". Fyrstu skólarnir til að spreyta sig í þessari lotu eru FVA og Menntaskólinn við Sund. Keppnin fer fram á sal FVA og verður henni sjónvarpað. Mikil stemmning er fyrir keppninni og víst er að salurinn verður þéttsetinn. Fréttasíðan óskar liði FVA góðs gengis á föstudaginn og um leið bjóðum við lið MS velkomið á Skagann, en þess má geta að rektor MS er Eiríkur G. Guðmundsson sem um árabil var aðstoðarskólameistari í FVA. Óvenjumikið verður um að vera hér í skólanum nú í vikulokin, því auk "Gettu betur" verður árshátíð NFFA haldin á laugardagskvöldið og um morguninn fer fram stærðfræðikeppni grunnskólanna.

11.2. Góð þátttaka í stærðfræðikeppninni
Stærðfræðikeppni FVA fyrir efstu bekki grunnskólanna á Vesturlandi verður haldin hér í skólanum laugardaginn 19.2. eins og áður hefur komið fram hér á síðunni. Það stefnir í góða þátttöku, 133 grunnskólanemendur af öllu Vesturlandi hafa tilkynnt þátttöku.

10.2. Kynningarfundur í Borgarnesi
Í gærkvöldi var haldinn í Borgarnesi kynningarfundur um Fjölbrautaskóla Vesturlands og nýja námskrá framhaldsskóla. Foreldrum og forráðamönnum nemenda í 9. og 10. bekk Grunnskólans í Borgarnesi var boðið á fundinn ásamt nemendum. Þórir Ólafsson skólameistari FVA og Hörður Ó. Helgason aðstoðarskólameistari mættu á fundinn fyrir hönd FVA. Þeir fjölluðu um nýja námskrá framhaldsskóla og breytingar á framhaldsskólanum í kjölfar hennar. Einnig kynntu þeir þær námsleiðir sem Fjölbrautaskóli Vesturlands býður nemendum sínum. Að lokum var fjallað um þá þjónustu sem FVA býður nemendum úr Borgarnesi og þá sérstöðu sem þeir hafa. Fundargestir, sem voru fjölmargir, tóku virkan þátt í fundinum með spurningum og umræðum um málefni kvöldsins. Fundurinn tókst mjög vel og var upplýsandi fyrir fundarmenn , bæði fyrir fundargesti og Þóri og Hörð.

9.2. FVA áfram í "Gettu betur"
Annarri umferð spurningakeppni framhaldsskólanna "Gettu betur" lauk í gærkvöld. Þá keppti lið FVA við lið Borgarholtsskóla. Viðureignin var mjög spennandi frá upphafi til enda. BHS hafði 3ja stiga forystu eftir hraðaspurningarnar en lið FVA saxaði á það forskot og tókst að jafna í lokin en flöskuðu þá á síðasta atriðinu sem um var spurt og fór svarrétturinn yfir til BHS sem svaraði og unnu því með ein stigs mun, 30 - 29. Lið FVA komst þó áfram sem stigahæsta taplið 2. umferðar og tekur þátt í næstu umferð sem hefst í Sjónvarpinu þann 18. Febrúar. Þá keppir lið FVA við lið Menntaskólans við Sund. Nú eru átta lið eftir í keppninni og er lið FVA eina liðið í þeim hópi sem er frá skóla utan höfuðborgarsvæðisins. Fréttasíðan óskar liði FVA til hamingju með góðan árangur.

28.1. Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Vesturlands
Laugardaginn 19. febrúar n.k. verður Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Vesturlands haldin. Samskonar keppni var haldin hér í fyrra og þótti takast mjög vel. Þá tóku rúmlega 100 grunnskólanemendur af Vesturlandi þátt, vonir standa til að þátttakendur verði enn fleiri nú. Þennan sama dag verður eins keppni haldin við framhaldsskóla í öðrum landshlutum. Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Vesturlands er fyrir alla nemendur í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla á Vesturlandi. Hver árgangur fær sérstök verkefni og veitt verða peningaverðlaun fyrir þrjár bestu lausnir í hverjum árgangi. 1. verðlaun eru 15.000 kr., 2. verðlaun eru 10.000 kr. og 3. verðlaun eru 5.000 kr. Eftirtalin fyrirtæki á Vesturlandi styrkja keppnina og gefa verðlaun: Búnaðarbanki Íslands hf. Akranesi, Sigurður Ágústsson ehf. Stykkishólmi, Skaginn hf. Akranesi, Verslunin Einar Ólafsson, Akranesi og Þorgeir & Ellert hf. Akranesi. Stærðfræðikennarar við FVA sjá um undirbúning og framkvæmd keppninnar.

27.1. Gettu betur
Spurningakeppni framhaldsskólanna "Gettu betur" er hafin. 1. umferð keppninnar lauk í gærkvöld. Þá keppti lið FVA við lið Menntaskólans á Egilsstöðum. Lið okkar stóð sig með miklum sóma, náði góðri stöðu strax í hraðaspurningunum og bætti um betur í víxlspurningunum. Leikar fóru þannig að lið FVA fékk 21 stig en lið ME 18 stig. Í lok keppninnar í gærkvöld var dregið um það hvaða lið lenda saman í næstu umferð. Lið FVA lendir á móti liði Borgarholtsskóla. Sigurvegarar í næstu umferð komast í 8 liða úrslit sem fram fara í Sjónvarpinu. Lið FVA er skipað þeim Andrési Böðvarssyni, Lárusi Viðari Lárussyni og Ómari Frey Sigurbjörnssyni. Liðstjóri er Sveinbjörn Hafsteinsson og þjálfari er Geir Guðjónsson. Fréttasíðan óskar liði FVA til hamingju með sigurinn og vonar að vel gangi í næstu umferð.

21.1.   Menntamálaráðherra í heimsókn
Í gær kom Björn Bjarnason menntamálaráðherra í heimsókn í FVA. Í för með honum voru fjórir samstarfsmenn hans í menntamálaráðuneytinu. Tilgangur heimsóknarinnar var að funda með nemendum skólans og kennurum. Fundur með nemendum var haldinn á sal skólans sem var þéttsetinn. Menntamálaráðherra fjallaði um nýja námskrá fyrir framhaldsskóla og skólastefnu menntamálaráðuneytisins almennt. Að lokinni ræðu hans var nemendum gefinn kostur á að spyrja ráðherrann um það sem þeim lá á hjarta varðandi skólamál. Fjölmargar spurningar voru bornar upp. M.a. spurðu nemendur um ástæðu fyrir því að ekki er lengur hægt að fá einingu fyrir góða skólasókn, spurt var um hvers vegna nemendur í verknámi þyrftu að greiða séstök efnisgjöld, einnig komu spurningar um dreifbýlisstyrk, inntökuskilyrði í skóla o.fl. o.fl. Ráðherra svaraði spurningunum jafnharðan og urðu nokkrar umræður um sum atriði. Fundurinn stóð í u.þ.b. klukkustund og þótti takast vel.
    Eftir fund með nemendum sat ráðherra fund með kennurum og stjórnendum skólans. Í inngangi sínum ræddi ráðherra m.a.  um framkvæmd nýju námskrárinnar. Í máli hans kom fram að gerðar voru breytingar á framhaldsskólalögunum á Alþingi nú rétt fyrir jólin. Þær breytingar þýða m.a. að unnt verður að ljúka stúdentsprófi af öllum starfsnámsbrautum ef nemendur á þeim brautum bæta við sig fyrirfram ákveðnum fjölda námseininga úr námsgreinum sem viðkomandi starfsgreinaráð taka ákvörðun um hverjar eigi að vera.  Þetta gerir t.d. verknámsnemendum kleift að halda áfram námi eftir að þeir hafa lokið  verknámsbraut og ljúka stúdentsprófi. Að loknum inngangi sínum svaraði ráðherra spurningum kennara. Fjölmargar spurningar voru bornar fram og sömuleiðis komu menn með ábendingar um það sem betur mætti vera gert. Í kjölfar spurninga kennara og svara ráðherra og ráðuneytismanna spunnust umræður um atriði sem snerta framkvæmd og innihald námskrárinnar, sérstöðu FVA, o.fl. o.fl. Almenn ánægja var með fundinn hjá fundarmönnum sem þótti hann bæði málefnalegur og upplýsandi.

14.1.   Vistfræði Skorradals
Eins og kom fram hér á fréttasíðunni s.l. haust þá unnu nemendur í vistfræði (LÍF 213) verkefni um vistkerfi Skorradals undir stjórn kennara síns Hannesar Þorsteinssonar. Nemendur skiptust í nokkra vinnuhópa. Saman unnu þeir alhliða lýsingu á vistkerfi Skorradals, bæði þurrlendiins og vatnsins. Afrakstur þessarar vinnu er nú kominn á heimasíðu skólans og er fólk hvatt til að skoða það sem þar gefur að líta. Fréttasíðan hvetur áhugasama að fara á heimasíðuna, smella á hnappinn "verkefni" og þar er vistfræðiverkefnið undir "raungreinar", "vistfræði (LÍF 213)".

14.1.    Nýtt tölvuver
Nýtt tölvuver var tekið í notkun í upphafi annar. Með tilkomu þessa tölvuvers hefur aðgangur nemenda að tölvum verið bættur verulega og var hann þó nokkuð góður fyrir. Nú eru u.þ.b. átta nemendur um hverja tölu í skólanum og er það hlutfall með því besta sem gerist í íslenskum framhaldsskólum.  Á undanförnum misserum hefur það verið æ algengara að kennarar hafa farið með námshópa í tölvuver til að vinna að einhverjum ákveðnum verkefnum eða þá til að kynnast þeim möguleikum sem upplýsingatækni býður upp á í námi og kennslu. Með tilkomu nýja tölvuversins verður mun auðveldara fyrir kennara að fá slíka tíma fyrir nemendur sína.

14.1.   Skólastarf á vorönn 2000 hafið
Kennsla á vorönn 2000 hófst þann 7.1. s.l. Eins og ávallt á vorönn eru heldur færri nemendur í skólanum en á haustönn. Skráðir nemendur í dagskóla eru u.þ.b. 590, þar af 550 í skólanum á Akranesi en u.þ.b. 20 nemendur á hvorum stað í deildunum í Snæfellsbæ og í Stykkishólmi. Fjöldi nemenda sem stundar utanskólanám í 1 - 3 áföngum er svipaður og undanfarnar annir, eða u.þ.b. 60 nemendur.

18.12. Brautskráning nemenda á haustönn 1999
Í dag fór fram brautskráning nemenda í FVA á haustönn 1999. Brautskráðir voru 41 nemandi; 34 stúdentar, 3 nemendur í rafvirkjun, 2 nemendur í vélsmíði, 1 nemandi af uppeldisbraut og 1 nemandi í rafsuðu. Mjög margir af þessum nemendum náðu afbragsgóðum námsárangri og hlutu ýmsar viðurkenningar fyrir. Viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut Gauti Jóhannesson, en námsárangur hans var sérlega glæsilegur. Gauti hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í raungreinum, íslensku, sögu og stærðfræði. Veitt voru verðlaun úr minningarsjóði Þorvaldar Þorvaldssonar fyrrum kennara skólans, verðlaunin hlaut Unnar Bachmann fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði og eðlisfræði. Hann hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í náttúrufræði, sögu, tölvufræði og þýsku. Anna Berglind Halldórsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í stærðfræði, þýsku og viðskiptagreinum. Ingibjörg Gestsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku. Sigrún Halla Gísladóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í eðlisfræði, efnafræði, líffræði, stærðfræði, þýsku og viðskiptagreinum. Valþór Ásgrímsson hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í ensku, frönsku, raungreinum og stærðfræði. Þóra Björg Jónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur íslensku, dönsku, ensku og þýsku. Loks hlaut Þórbergur Guðjónsson viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku, stærðfræði og viðskiptagreinum. Verslunarmannafélag Akraness gaf verðlaunin fyrir námsáragnur í viðskiptagreinum. Hörður Ó. Helgason aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir skólastarfið á haustönn. Hann fjallaði m.a. um notkun upplýsingatækni í námi og kennslu sem er sívaxandi þáttur í skólastarfinu. Í máli Harðar kom fram að Fjölbrautaskólinn hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra framhaldsskóla á þessu sviði og sífellt fleiri kennarar nýta sér tæknina í kennslustarfinu. Hörður ræddi um hlutverk Fjölbrautaskólans sem svæðisskóla á Vesturlandi og nauðsyn þess að halda áfram að efla hann svo skólinn geti ávallt boðið nemendum sínum fjölbreytt námsframboð, góða kennslu og góða þjónustu m.a. með því að stækka heimavist skólans svo allir nemendur sem búsettir eru utan Akraness eigi þess kost að búa þar. En viðræður eru hafnar við menntamálaráðuneytið um fjölgun heimavistarplássa á Akranesi. Þórir Ólafsson skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur og hvatti þá til að nýta vel menntun sína, nota hana sem lykil að heildstæðari skilningi á lífinu, lykil að frekari menntun og betra lífi. "Notið menntunina til að láta gott af ykkur leiða fyrir ykkur sjálf og aðra," sagði Þórir að lokum. Gauti Jóhannesson nýstúdent ávarpaði samkomuna fyrir hönd útskriftarnema. Gauti rifjaði upp atburði úr skólagöngunni og þakkaði starfsfólki skólans fyrir samveruna á liðnum árum. Nemendur skólans sáu um stóran hlut dagskrárinnar á þessari hátíðlegu athöfn. Skólakórinn söng, undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur. Nokkrir úr hópi útskriftarnema lásu ljóð og kafla úr Sjálfstæðu fólki sem tengdist jólunum. Þá lék Rósa Sveinsdóttir á þverflautu við píanóundirleik Viðar Guðmundssonar. Loks lék Viðar einleik á píanó verk eftir Franz Liszt. Að athöfn lokinni þáðu allir viðstaddir veitingar í boði skólans.

10.12. Verkefni í JAR 113
Nú eru öll verkefni nemenda í áfanganum JAR113 komin inn á heimasíðu skólans. Verkefnin fjalla um sögu, þjóðhætti og jarðfræði á Snæfellsnesi og Breiðafjarðareyjum. Áfanginn er þróunarverkefni sem hlaut styrk úr þróunarsjóði menntamálaráðuneytisins s.l. sumar. Kennararnir Harpa Hreinsdóttir og Finnbogi Rögnvaldsson hafa þróað þennan áfanga ásamt nemendum sínum og hafa þau öll unnið mjög gott starf. Nú er hægt að skoða afraksturinn á heimasíðu skólans og verður enginn svikinn af því sem þar getur að líta.
    Farðu tilbaka á heimasíðuna og smelltu á takkann JAR113, góða skemmtun.

7.12. Norrænt verkefni í upplýsingatækni
FVA tekur þátt í verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem ætlað er að stuðla að samstarfi Norðurlandanna í upplýsingatækni í skólastarfi. Verkefnið verður birt á Norræna skólanetinu Odin http://www.odin.dk Verkefnið skiptist í þrjá hluta: upplýsingatækni í kennaramenntun, upplýsingatækni í fullorðinsfræðslu og fjarkennslu og brautryðjendaskólar í upplýsingatækni. FVA er þátttakandi í síðasttalda hlutanum. Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur FVA er fulltrúi skólans í verkefninu. Dagana 29. nóvember til 1. desember s.l. var haldin undirbúningsráðstefna Idun II verkefnisins í Båstad í Svíþjóð þar sem rætt var um hvernig norrænu samstarfi í upplýsingatækni skyldi hagað. Hafdís Dögg sótti ráðstefnuna fyrir hönd FVA. Þeir sem hafa áhuga á að fræðast meira um verkefnið geta skoðað heimasíðu Idun II, slóðin er: http://www.idun.dk

4.12. Vígsla nýbyggingar
Í dag var formlega tekinn í notkun A - hluti nýbyggingar FVA. Í þessum hluta er nýtt húsnæði fyrir rafiðnadeild skólans, kennslurými og verkstæði fyrir nemendur í rafvirkjun og rafeindavirkjun, auk þess er þar ný kennslustofa fyrir eðlisfræði. Einnig eru í þessum hluta almennar kennslustofur sem voru endurnýjaðar í tengslum við nýbygginguna og hljóðver sem m.a. er notað af nemendum til útvarpssendinga. Þá var gamli samkomusalur Gagnfræðaskólans einnig endurnýjaður. Hið eldra húsnæði sem nú hefur verið endurnýjað var byggt fyrir Gagnfræðaskóla Akraness og tekið í notkun árið 1958. Athöfnin í dag hófst með því að Þorgeir Jósefsson formaður skólanefndar FVA lýsti byggingaframkvæmdunum og fjallaði einnig um næstu áfanga í byggingu skólans. Þorgeir afhenti síðan Þóri Ólafssyni skólameistara lykil að nýja húsnæðinu. Þórir flutti ávarp og þakkaði öllum þeim sem unnu við framkvæmdirnar vel unnin störf. Margir verktakar komu að byggingunni. Aðalverktakar voru tveir: Trésmiðjan Kjölur sá um að gera húsnæðið fokhelt en það var reist með einingum frá Loftorku í Borgarnesi. Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar tók við húsnæðinu s.l. vor og lauk framkvæmdum við nýbygginguna og endurnýjun gamla hlutans fyrir upphaf skólaárs nú í haust. Kennarar rafiðnaðardeildar og nemendur ásamt öðrum starfsmönnum skólans báru svo hitann og þungann af flutningi úr gamla húsnæðinu og fullnaðarfrágangi á kennsluhúsnæðinu. Arkitekt hússins er Magnús H. Ólafsson og eftirlitsmaður með framkvæmdum fyrir hönd skólans var Lárus Ársælsson verkfræðingur.
    Auk þess að skoða nýja húsnæðið gafst gestum kostur á að skoða bókasafn skólans og tölvuver í tengslum við það og fá örlitla innsýn í hvernig upplýsingatæknin er nýtt til kennslu og náms í FVA.

1.12. Próf hefjast
Í dag er síðasti kennsludagur haustannar. Próf hefjast á morgun kl. 13. Síðasi prófdagur er 16. 12. en sjúkrapróf verða þann 17. Laugardaginn 18.12. verður brautskráning nemenda á haustönn 1999. Þá verða brautskráðir u.þ.b. 40 nemendur.

18.11. Námsmaraþon
Nú stendur yfir hið árlega námsmaraþon útskriftarnema. Það felst í því að útskriftarnemar eru við nám í skólanum stanslaust frá kl.10 í gærmorgun til kl. 15 á morgun. Nemendahópurinn er þrískiptur, alltaf eru tveir hópar við vinnu en einn hópur hvílir. Tilgangur námsmaraþonsins er tvíþættur. Annars vegar er þetta fjáröflun fyrir hópinn, en þau hafa safnað áheitum í tengslum við maraþonið, hins vegar gefst þeim hér ágætt tækifæri til að vinna verkefni og undirbúa sig fyrir komandi próf við góða aðstöðu og með stuðningi heildarinnar.

16.11. Dagur íslenskrar tungu
Í tilefni Dags íslenskrar tungu, sem haldinn er hátíðlegur um land allt í dag, var samkoma á sal FVA. Dagskráratriði voru flutt af nemendum skólans í umsjón íslenskukennara og kórstjóra. Jón Árni Friðjónsson deildarstjóri íslenskudeildar setti samkomuna og ræddi um Jónas Hallgrímsson og íslenska tungu. Konráð Brynjarsson, Kári Viðarsson, Andrés Böðvarsson og Sigurður Heiðarr Björgvinsson fluttu fumsamin ljóð. Nemendur Kristjáns Kristjánssonar í ÍSL 343 (barnabókmenntir) leiklásu ævintýri sem þau sömdu með ævintýrið Legg og skel að fyrirmynd. Skólakórinn söng Maríukvæði og íslenskt þjóðlag við Vísur Vatnsenda-Rósu, undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur. Sylvía Hlynsdóttir og Ólöf Vigdís Guðnadóttir léku íslenskt þjóðlag Ljósið kemur langt og mjótt á trompeta. Loks söng Sylvía Rún Ómarsdóttir Hvert örstutt spor eftir Jón Nordal við undirleik Viðars Guðmundssonar. Dagskráin heppnaðist vel og er ánægjulegt að sjá hve margt hæfileikafólk er í skólanum okkar.

9.11. Mikill áhugi á endurmenntun
Á haustdögum 1998 var gerð viðamikil könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Niðurstöður könnunarinnar hafa nú verið birtar og kemur þar margt athyglisvert í ljós. Spurningar sem lagðar voru fyrir ríkisstarfsmenn í þessari könnun voru fjölmargar. M.a. var fólk spurt hve oft það hafði sótt símenntunarnámskeið eða námsstefnur á s.l. 12 mánuðum. Svör við þessari spurningu komu reyndar ekkert á óvart en niðurstöðurnar voru engu að síður mjög ánægjulegar hvað varðar starfsfólk FVA. 57,7 % þeirra sem svöruðu höfðu sótt námskeið eða námstefnu oftar en einu sinni á tímabilinu, og 26,9 % einu sinni. Sambærilegar tölur frá öðrum framhaldsskólum voru 40,4 % og 26,9%, en sambærilegar tölur frá öllum sem spurðir voru í könnunninni voru 25,85% og 28,0 % .
    Af þessum tölum sést að starfsmenn framhaldsskóla eru mun duglegri að sækja símenntunarnámskeið eða námsstefnur en aðrir ríkisstarfsmenn. Og starfsmenn FVA mun duglegri við það en starfsfólk annarra framhaldsskóla.

8.11. Góð gjöf frá Akranesveitu
Akranesveita hefur ákveðið að gefa FVA nýjar iðntölvur til kennslu fyrir rafiðnaðardeild skólans að upphæð kr. 220.000. Gjöfin kemur sér mjög vel þar sem fé það sem skólinn hefur til tækjakaupa er takmarkað. Gjöf Akranesveitu er í tilefni þess að í haust flutti rafiðnaðardeildin í nýtt og glæsilegt húsnæði.

5.11. Tónlistarkeppnin "Millenium"
Í kvöld fer fram í Bíóhöllinni á Akranesi hin árlega Tónlistarkeppni NFFA. Keppni þessi er hápunktur félagslífsins á haustönn. Átta hljómsveitir taka þátt, þar af ein úr deild FVA í Stykkishólmi. Keppnin hefst kl. 18 og er hinn kunni útvarpsmaður Ólafur Páll Gunnarsson kynnir. Þegar keppninni í Bíóhöllinni lýkur hefst dansleikur í samkomusal FVA þar sem Sálin hans Jóns míns leikur fyrir dansi. Þar verða úrslit keppninnar kunngerð.

27.10. Fornfræðivefurinn hlýtur verðlaun
Vefsíða sem Harpa Hreinsdóttir kennari við FVA hefur unnið með nemendum sínum var í gær valin sem ein af bestu vefsíðum sem tengjast námi og kennslu. Þeir sem standa fyrir valinu eru sérfræðingar hjá Study Web sem er mjög virtur vefur á internetinu og er sérhæfður fyrir nám og kennslufræði. Sérfræðingar Study Web hafa frá árinu 1996 vafrað um internetið og skoðað fjölda vefsíðna sem tengjast námi og kennslu. Þeir velja bestu vefsíðurnar og skrá á lista sem þeir birta á vefsíðu sinni ásamt lýsingu á hverri vefsíðu. Vefurinn sem Harpa og nemendur hennar fengu verðlaun fyrir er Fornfræðivefurinn. Vefinn vann Harpa með nemendum sínum í ÍSL 103 og ÍSL 313 í FVA og 3. og 4. bekk Menntaskólans á Laugarvatni.

Slóð verðlaunavefsins er: http://rvik.ismennt.is/~harpa/forn/e_welcom.htm

Slóð Study Web er: http://www.studyweb.com

Fréttasíðan óskar Hörpu og nemendum hennar innilega til hamingju með þessa viðurkenningu og við hvetjum þá sem ekki hafa nú þegar skoðað vefsíðuna að gera það hið fyrsta, það er vel þess virði.

25.10. SAM - ferðalag á Njáluslóðir
Nemendur í SAM 105 fóru í ferðalag s.l. föstudag og laugardag ásamt kennurum sínum, samtals 65 manna hópur. Ferðinni var heitið á Suðurland, nánar tiltekið á Njáluslóðir. Fyrst var farið að Skógarfossi, hann skoðaður og síðan farið í góða gönguferð áleiðis að Fimmvörðuhálsi. Eftir það var Njálusetrið á Hvolsvelli heimsótt. Þar tók á móti hópnum Arthúr Björgvin Bollason. Með Arthúri var farið um Fljótshlíðina og hlýddi hópurinn á skemmtilegar frásagnir um Gunnar og Njál, þeirra spúsur og fleiri góða kappa. Kviknaði þar áhugi margra á Njálu. Um nóttina var gist á þeim fræga stað Heimalandi. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og er óhætt að segja að allir hafi komið ánægðir heim á laugardaginn.

12.10 Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
Í dag er haldin í skólanum Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna. Keppt er í tveimur flokkum, yngri og eldri. Þátttakendur eru 35 og hafa þeir ekki verið fleiri hér áður. Keppnin er haldin í öllum framhaldsskólum landsins. 20 efstu keppendurnir í hvorum flokki komast í úrslitakeppnina sem haldin verður í marsmánuði árið 2000.

23.9. Vistfræði Skorradals
Nemendur í áfanganum LÍF 213 eru nú að vinna verkefni um vistfræði Skorradals undir stjórn kennara síns Hannesar Þorsteinssonar. Nemendur skiptast upp í nokkra vinnuhópa og er markmiðið að saman móti þeir alhliða lýsingu á vistkerfi Skorradals, bæði vatnsins og þurrlendisins. Rannsóknir á jarðfræði og myndunarsögu dalsins verða kannaðar, svo og upplýsingar um veðurfarslega þætti. Leitast verður við að draga upp mynd af náttúrulegu gróðurfari og dýralífi, uppruna og þróun þess í dalnum. Áhrif manna á vistkerfi dalsins eru skoðuð með því að kanna sögu mannvistar og landnýtingar, þ.e. skógarhögg, beit búpenings, túnrækt og framræsla, friðun upprunalegs skógar, skógrækt, veiðar í vatninu og fiskistofnar, virkjunarframkvæmdir og vatnsborðsbreytingar.

Niðurstöður nemendahópsins verða settar upp sem netverkefni. Meðan á vinnslu stendur verður það einungis aðgengilegt nemendahópnum en verður síðar opnað öllum sem aðgang hafa að netinu.

16.9. Þróunarverkefnið JAR 113
Eins og fram kom á fréttasíðunni s.l. vor, hlaut FVA styrk úr þróunarsjóði menntamálaráðuneytisins til að vinna verkefnið "Ferðamaður í tímanum". Verkefnið tengist námsáfanganum JAR 113, kennarar eru þau Finnbogi Rögnvaldsson og Harpa Hreinsdóttir. Hægt er að fylgjast með því sem er á döfinni í áfanganum á slóðinni: http://rvik.ismennt.is/~harpa/fva/jarheim.htm

13.9. FVA valinn ENIS - skóli
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að mæla með því að FVA verði valinn ENIS skóli. ENIS er ensk skammstöfun yfir European Network of Innovative Schools. Aðalmarkmið ENIS - verkefnisins er að skapa net skóla sem eru opnir fyrir nýjungum, aðallega á sviði upplýsingatækni, og auðvelda þeim aðgang að margvíslegum samstarfsverkefnum. 500 skólar víðsvegar í Evrópu eru aðilar að þessu neti, meðal þeirra þrír íslenskir framhaldsskólar og einn grunnskóli.

13.9. Frábær frammistaða
Hjörtur Jónsson sem útskrifaðist sem rafvirki frá rafiðnaðardeild FVA í maí s.l. lauk sveisprófi fyrir skömmu. Hjörtur stóð sig frábærlega í prófinu og hlaut hann viðurkenningu fyrir bestan árangur í faggreinum.

27. 8. Skólastarf á haustönn 1999 hafið
Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur mánudaginn 23.8. s.l. Skólasetning var á sal skólans kl. 10 um morguninn og kennsla hófst síðan kl. 13. Um 640 nemendur eru í skólanum á Akranesi þar af um 160 nýnemar. Í deild skólans í Stykkishólmi eru nemendur 21 og 16 nemendur eru í deild skólans í Snæfellsbæ.
    Nýtt húsnæði var tekið í notkun í upphafi annarinnar. Þar mun rafiðnaðardeild skólans vera til húsa, auk þess sem þar er ný kennslustofa fyrir eðlisfræðikennslu og stofur 1 - 4 hafa verið endurnýjaðar. Gamli samkomusalur skólans var einnig endurnýjaður og þar er ætlunin að skapa góða aðstöðu fyrir nemendur utan kennslustunda.

27.8. Dagur símenntunar - fjarkennslubúnaður í FVA
Á morgun, 28.8., er Dagur símenntunar haldinn um land allt. Í tengslum við þennan dag verður fjarkennslubúnaður sveitarfélaganna á Vesturlandi og Símenntunarmiðstöðvarinnar vígður. Stjórnstöð þessa fjarfundabúnaðar verður til húsa í FVA. Samtenging búnaðarins verður kl. 13 og kl.14 flytur dr. Jónas Kristjánsson erindi í boði Eiríksstaðanefndar, Grunnskóla Búðardals og Símenntunarmiðstöðvarinnar. Erindið verður flutt í Búðardal en sent um Vesturland um fjarfundabúnaðinn. Með tilkomu þessa búnaðar opnast nýir möguleikar fyrir fólk á Vesturlandi að afla sér aukinnar menntunar. Þegar hefur skólanum borist ósk um afnot af búnaðinum frá nemanda sem stundar fjarnám frá Háskólanum á Akureyri.
 
 


Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007