Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
skólaárið 2006-2007
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
20. júní: Umsóknarfrestur um nám á þrem námsbrautum framlengdur
Enn er hægt að bæta við nokkrum nemendum í viðskiptanám með vinnu á næstu haustönn. Einnig er hægt að bæta við nemendum í nám til iðnmeistaraprófs sem hefst í haust. Á báðum þessum námsbrautum er kennslan miðuð við þarfir fullorðinna nemenda og skipulögð sem fjarkennsla með staðbundnum lotum.
Enn eru örfá pláss laus í grunnnámi málmiðngreina næsta haust. Kennt er samkvæmt venjulegri stundaskrá og miðað við fulla tímasókn nemenda.
Þeim sem hafa hug á að hefja nám á einhverri þessara þriggja námsbrauta næsta haust er velkomið að ræða við skólastjórnendur. Hægt er að ná í þá í síma 433-2500 til 22. júní.20. júní: Framkvæmdir við nýbyggingu hafnar
Framkvæmdir vegna byggingar nýs verkstæðishúss fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar eru hafnar. Á myndinni sést hvar unnið er að því að brjóta niður klöpp sem stóð upp úr jörðinni þar sem húsið á að koma.
13. júní: Innritun lokið
Nú, þegar búið er að innrita alla nemendur sem sóttu um áður en frestur rann út á mánudaginn, eru 663 skráðir í skólann. Sambærileg tala frá 14. júní 2006 er 630. Þetta er fjölgun um 33 nemendur.
Aðsókn að verknámi hefur aukist mikið miðað við undanfarin ár og stefnir í að verði tvöföld grunndeild í byggingagreinum, rafiðnagreinum og málmiðngreinum.
Til stóð að fara af stað með nýjan hóp í sjúkraliðanámi en of fáir sóttu um til að af því geti orðið. Einnig voru umsækjendur um nám á tölvufræðibraut of fáir til að nýr hópur byrji á henni í haust. (Nemendur sem hófu nám á sjúkraliða- eða tölvufræðibraut síðasta haust geta að sjálfsögðu haldið áfram). Auglýst var nám til iðnmeistaraprófs og voru umsækjendur um það með færra móti svo reynt verður að fá fleiri með því að framlengja umsóknarfrest.12. júní: Innritun fyrir haustönn 2007
Rafrænni innritun fyrir haustönn 2007 lauk í gærkvöldi. Góð aðsókn er að skólanum. Alls hafa 134 unglingar sem luku grunnskóla í vor sótt um skólavist. Þar af eru 68 piltar og 66 stúlkur. Af þessum 134 nemendum eru 91 frá Akranesi og 28 frá öðrum stöðum á Vesturlandi.
Um svipað leyti í fyrra voru umsóknir frá nemendum sem höfðu nýlokið grunnskóla 155 talsins.
Þótt fækkun sé í yngsta árgangi nýnema frá fyrra ári stefnir heildarfjöldi nemenda í að verða svipaður, enda hefur orðið töluverð fjölgun í hópi eldri nemenda.4. júní: Verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar
Síðan 1995 hefur Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti árlega veitt einum útskriftarnema frá Fjölbrautaskóla Vesturlands peningaverðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Verðlaunin hafa jafnan verið veitt við skólaslit að vori. Að þessu sinni hlaut María Mist Helgadóttir verðlaunin. Hún brautskráðist með stúdentspróf í desember og þar sem hún gat ekki verið við skólaslit þann 26. maí veitti hún verðlaununum viðtöku í dag.4. júní: Sjöunda útgáfa skólanámskrár
Sjöunda útgáfa skólanámskrár er kominn á vefinn og er aðgengileg af valmyndinni til vinstri. Helstu breytingar frá fyrri útgáfu eru:
- Bætt hefur verið við einni skólareglu og er hún númer 2 of fjallar um einelti og viðbrögð við því. Reglan sem var númer 2 er nú númer 3 o.s.frv.
- Í kafla um utanskólanám og fjarnám hefur verið bætt inn viðmiðum um fjarkennslu.
- Settar hafa verið nýjar reglur um mat á námi úr öðrum framhaldsskólum.
- Reglum um mat á þjálfun hjá íþróttafélagi hefur verið breytt.
- Inntökuskilyrði á viðskipta- og hagfræðibraut hafa verið sett í samræmi við ákvörðun menntamálaráðuneytis.
- Horfið hefur verið frá því að telja landafræði og jarðfræði saman sem eina námsgrein á kjörsviði náttúrufræðibrautar.
Til viðbótar við þetta hafa fáeinar villur verið leiðréttar og nokkrar áfangalýsingar uppfærðar.
1. júní: Brautskráning af almennri námsbraut og úr grunnnámi
Nú í vor luku 23 nemendur námi á almennri námsbraut og 4 luku grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina. Þessir 27 nemendur fá skírteini send í pósti á næstu dögum. Nemendur sem útskrifast nú í vor eru því þessir 27 auk þeirra 40 sem útkskrifuðust á laugardaginn eða alls 67. Í desember voru 49 brautskráðir frá skólanum. Útskrifaðir nemendur á skólaárinu eru því alls 116. Sambærileg tala fyrir skólaárið 2005 til 2006 var 140.29. maí: Afmælisárgangar færa skólanum málverk að gjöf
Við brautskráningu og skólaslit á laugardaginn stigu bræðurnir Björn Þorri Viktorsson og Viktor Viktorsson á svið. Þeir komu fram sem fulltrúar nemenda sem brautskráðir voru frá skólanum fyrir 10 árum og fyrir 20 árum, þ.e. á haustönn 1986, vorönn 1987, haustönn 1996 og vorönn 1997. Eftir stutta framsögu færðu þeir skólanum málverk að gjöf frá afmælisárgöngunum. Verkið heitir Þorpið og er eftir Bjarna Skúla Ketilsson, sem kallaður er Baski.
26. maí: Brautskráning og skólaslit (Myndir ...)
Í dag, laugardag 26. maí 2007, var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 40 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Athöfnin hófst klukkan 14. Taflan sýnir hvernig þessir nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
Piltar Stúlkur Alls Stúdentspróf 9 19 28 Burtfararpróf af iðnbraut 10 0 10 Stúdentspróf og burtfararpróf af iðnbraut 1 0 1 Einnar annar nám sem skiptinemi 1 0 1 Alls 21 19 40Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2007. Gustavo Costa Ferreira flutti ávarp skiptinema. Ásdís Sigtryggsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Björn Þorri Viktorsson og Viktor Viktorsson fluttu kveðjur frá afmælisárgöngum sem brautskráðir voru frá skólanum fyrir 10 árum og 20 árum.
![]()
Forvarnahópur nemenda fékk styrk úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar og veitti Sylvía Hera Skúladóttir styrknum viðtöku fyrir hönd hópsins.
Listamenn sem komu fram við athöfnina voru:
- Anna Heiða Baldursdóttir, Katrín Björk Þórhallsdóttir og Patrycja Szalkowicz sem léku saman á þverflautur;
- Hljómsveitin Vetrarsól, sem í eru: Arna Pétursdóttir, Hulda Halldórsdóttir og Lena Gunnlaugsdóttir sem leika á fiðlur, Dagný Björk Egilsdóttir píanóleikari, Guðmundur Sigurðsson á kontrabassa og Kristín Edda Egilsdóttir sem spilar á klarinett.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur eða störf að félagsmálum. Nafn þess sem gaf verðlaunin eru innan sviga.
- Ásdís Sigtryggsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku (Danska sendiráðið) fyrir góðan árangur í ensku (Landsbankinn á Akranesi) og fyrir störf að félagsmálum nemenda (Rótarýklúbburinn á Akranesi).
- Gísli Líndal Karvelsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í málmiðngreinum og fyrir störf að félagsmálum iðnnema (Félag iðn- og tæknigreina).
- Ingólfur Pétursson hlaut viðurkenningu fyrir bestan námsárangur útskriftarnema af iðn- og starfsmenntabrautum á vorönn 2007 (Verkalýðsfélag Akraness).
- Jakob Orri Jónsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku (Glitnir).
- Kristín Mist Sigurbjörnsdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur þeirra sem luku stúdentsprófi á vorönn 2007. Einnig hlaut Kristín Mist viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku og frönsku (Kanadíska sendiráðið) og fyrir góðan árangur í þýsku (Þýska sendiráðið).
- Una Lovísa Ingólfsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur líffræði (Soroptimistasystur á Akranesi) og fyrir góðan árangur í efnafræði og líffæra- og lífeðlisfræði (Sparisjóðurinn á Akranesi).
Bjarki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð og Gísli Einarsson bæjarstjóri á Akranesi afhentu námsstyrk Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Hann skiptist jafnt milli tveggja umsækjenda sem báðir útskrifuðust frá skólanum í desember 2006. Þeir eru Dofri Jónasson sem lauk burtfararprófi af námsbraut í rafvirkjun og Stefán Jóhann Sigurðsson sem lauk stúdentsprófi af félagsfræðabraut.
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Síðan risu gestir úr sætum og sungu saman lag C.E.F Weyse við ljóð Steingríms Thorsteinssonar, Nú er sumar.
Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.16. maí: Styrkir til þróunarverkefna
Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til þróunarverkefna í framhaldsskólum árið 2007. Fjölbrautaskóli Vesturlands sótti um styrki vegna tveggja verkefna og fékk jákvætt svar við báðum umsóknunum.
Annað verkefnið er unnið í samvinnu við fjölbrautaskólana í Grundarfirði, í Keflavík og á Selfossi. Það nefnist Fjögurra skóla mat og snýst um samstarf skólanna um á sviði gæðamats. Hitt verkefnið er raungreinakennsla fyrir tíundu bekki grunnskóla á Akranesi.
Alls bárust ráðuneytinu umsóknir vegna 70 verkefna og fjárbeiðnir námu 112 milljónum króna. Til ráðstöfunar voru 30 milljónir.8. maí: Úttekt á sjálfsmati skólans
Nú á vorönn 2007 lét menntamálaráðuneytið vinna úttekt á sjálfsmatsaðferðum við Fjölbrautaskóla Vesturlands og fleiri framhaldsskóla. Unnar Hermannsson, Ásrún Matthíasdóttir og Þröstur Sigurjónsson voru fengin til að vinna verkið í umboði ráðuneytisins. Þau hafa nú lokið úttekt á matsaðferðum Fjölbrautaskóla Vesturlands og niðurstaða þeirra er að sjálfsmat við skólann uppfylli allar kröfur sem menntamálaráðuneytið gerir.2. maí: Samningur um byggingu undirritaður
Klukkan 19 í gær, 1. maí, var athöfn á sal skólans þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gísli Einarsson bæjarstjóri á Akranesi undirrituðu samning um byggingu 560 fermetra kennsluhúsnæðis fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Gísli skrifaði undir fyrir hönd sveitarstjórna allra þeirra 6 sveitarfélaga sem eiga aðild að samningi um skólann.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gísli Einarsson bæjarstjóri
undirrita samning um byggingu kennsluhúsnæðisNýja húsið verður byggt í norðvesturhorni skólalóðarinnar, þ.e. við enda Heiðarbrautar. Það tekur við af gamla trésmíðaverkstæðinu við Vesturgötu sem væntanlega verður rifið, enda er það húsnæði orðið afar lélegt og er auk þess illa staðsett. Áætlað er að framkvæmdir hefjist mjög fljótlega og þeim ljúki á næsta ári.
Undanfarið hefur verið vaxandi aðsókn að námi í húsasmíði og hefur því verið heldur þröngt um kennslu í byggingagreinum. Nýja húsnæðið mun bæta úr brýnni þörf fyrir rúmbetra og fullkomnara verkstæði.30. apríl: Kveðjuhóf útskriftarnema (Myndir ...)
Kveðjuhóf útskriftarnema, sem kallast dimission, var síðasta föstudag. Þá fóru nemendur sem ljúka námi nú í vor um skólann klæddir eins og sjóliðar og buðu skólafélögum til skemmtunar á sal í fjórðu kennslustund. Myndin hér að neðan er tekin á kennarastofu í frímínútum klukkan 9:30 þegar sjóliðarnir báru kennurum veitingar og buðu þeim að snæða með sér morgunverð. Nafnið á þessari skemmtun, dimission, er orð úr latínu sem merkir brottfararleyfi.
30. apríl: Vitra vestrið komið út
Dreifing er hafin á kynningarriti um Fjölbrautaskóla Vesturlands sem unnið er á vegum Akranesbæjar. Nefnist ritið Vitra vestrið. Umsjón með gerð texta hafði Kristján Kristjánsson og fyrirtæki hans Uppheimar hf. annaðist útlitshönnun og umbrot. Ljósmyndir eru eftir Friðþjóf Helgason. Stjórnendur skólans færa bæjaryfirvöldum og öllum sem unnu að gerð þessa skemmtilega kynningarrits sínar bestu þakkir.16. apríl: Skáld af Vesturlandi
Enn heldur skólavefurinn áfram að kynna ljóðskáld sem tengjst Vesturlandi. Að þessu sinni er Steingrímur Thorsteinsson skáld vikunnar, enda vel við hæfi að birta kvæði hans um sumarið í þessari viku, því sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn.13. apríl: Sigurvegari á Íslandsmótinu í fitness
Íslandsmótið í fitness var haldið á Akureyri um síðustu helgi. Marianne Sigurðardóttir nemandi á náttúrufræðibraut við skólann mætti þar til leiks og vann titilinn Íslandsmeistari í unglingaflokki. Greint er frá þessu á vef Fitnessfrétta þar sem segir m.a.: „Hún mætti þarna í sína fyrstu fitnesskeppni vel undirbúin í alla staði. Hún fór á frábærum tíma í hindranabrautinni og hafnaði þar í fyrsta sæti ...“. Skólavefurinn óskar Marianne til hamingju með þennan glæsilega árangur.12. apríl: Góð útkoma í könnun á starfsumhverfi
Í nóvember og desember á síðasta ári lét fjármálaráðuneytið vinna könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Starfsmenn við fjölmargar ríkisstofnanir voru beðnir að svara spurningalista þar sem þeir voru inntir eftir því hversu ánægðir þeir eru með starf, sitt, starfsanda á vinnustað og hvort þeir stefni á að halda áfram í sama starfi.
Niðurstöður hafa nú verið sendar yfirmönnum stofnana. Skemmst er frá því að segja að Fjölbrautaskóli Vesturlands kemur vel út úr könnuninni og er alls staðar bæði yfir meðallagi allra vinnustaða og meðaltali framhaldsskóla og háskóla.
Einkunnakvarðinn sem notaður er nær frá 1 upp í 5 (þar sem 5 svarmöguleikar voru í hverri spurningu og besta svar gaf 5, næstbesta 4 o.s.frv.).
Þar sem spurt var um starfsánægju fékk skólinn einkunnina 4,40. (Meðaltal allra framhalds- og háskóla var 4,22, meðaltal á almennum vinnumarkaði 4,17 og meðaltal allra opinberra fyrirtækja og stofnana 4,01).
Þar sem spurt var um starfsanda fékk skólinn einkunnina 4,08. (Meðaltal allra framhalds- og háskóla var 4,07, meðaltal á almennum vinnumarkaði 3,93 og meðaltal allra opinberra fyrirtækja og stofnana 3,93).
Þar sem spurt var um hollustu, þ.e. hvort starfsmenn vildu vinna áfram á sama stað fékk skólinn einkunnina 4,08. (Meðaltal allra framhalds- og háskóla var 4,07, meðaltal á almennum vinnumarkaði 3,93 og meðaltal allra opinberra fyrirtækja og stofnana 3,93).
63,5% starfsmanna við Fjölbrautaskóla Vesturlands svaraði könnuninni en heildarsvarhlutfall í öllum stofnunum var 59,5%.
Nánari upplýsingar um könnunina og niðurstöður hennar liggja frammi á vef fjármálaráðuneytisins (http://www.fjarmalaraduneyti.is/starfsmenn-rikisins/almennt/konnun/)
11. apríl: Þriðja sæti í „gefðu betur“
Fyrir nokkru var blóðbankabílinn á ferð milli framhaldsskóla á suðvesturhorni landsins. Hann stoppaði daglangt hér við Vogabrautina þann 21. mars og voru nemendur hvattir til að gefa blóð. Þetta var sett upp sem keppni milli framhaldsskóla og bar Fjölbrautaskóli Suðurlands sigur úr býtum því hann átti flesta blóðgjafa. Í öðru sæti var Fjölbrautaskóli Suðurnesja og við hér í Fjölbrautaskóla Vesturlands í því þriðja. Fjórða sætið kom í hlut Verslunarskólans. Við hér á Akranesi getum verið nokkuð stolt af okkar hlut. Við erum best miðað við höfðatölu, því skólarnir sem gáfu meira eru talsvert fjölmennari. (Lesa má meira um þetta á vef Blóðbankans.)26. mars: Íslandsmót iðnnema
Föstudaginn 23. mars var Íslandsmót iðnnema haldið í Kringlunni í Reykjavík. Sex nemendur kepptu fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þeir eru: Helgi Þórir Gunnarsson og Jónas Arnþór Guðmundsson í rafvirkjun; Magnús Ingimarsson og Höskuldur Kolbeinsson í trésmíði; Gísli Líndal Karvelsson og Guðjón Smári Guðmundsson í málmsmíði.
Jónas Arnþór Guðmundsson keppir í rafvirkjun.21. mars: Blóðsöfnun Blóðbankans
Blóðbankabílinn verður hér utan við skólann til klukkan 17 í dag. Safnað er við alla framhaldsskóla landsins og er keppni milli skólanna um hver á gjafmildustu nemendurna, en starfsmenn eru einnig hvattir til að gefa blóð.17. mars: Úrslit í stærðfræðikeppni
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla var haldin við Fjölbrautaskóla Vesturlands þriðjudaginn 27. febrúar.
Í dag, laugardaginn 17. mars, var 10 efstu nemendum í hverjum árgangi boðið til athafnar á sal skólans þar sem þeim voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í keppninni. Eins og undanfarin ár voru þeim þrem efstu í hverjum árgangi veitt peningaverðlaun: 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti; 10.000 kr. fyrir annað sæti; 5.000 kr. fyrir það þriðja.
Keppnin er kostuð af Sparisjóðnum Akranesi.
Hér á eftir eru taldir upp þeir sem voru í efstu sætum í hverjum árgangi:8. bekkur
1. Kristófer Már Maronsson, Grundaskóla
2. Guðrún Valdís Jónsdóttir, Brekkubæjarskóla
3. Hafdís Erla Helgadóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Heiðrún Sara Guðmundsdóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Birta Stefánsdóttir, Grundaskóla
4.-10. Kristín Björk Lárusdóttir, Grundaskóla
4.-10. Sigríður Lóa Björnsdóttir, Grundaskóla
4.-10. Ásgeir Jarl Júlíusson, Varmalandsskóla
4.-10. Sigurdís Egilsdóttir, Reykhólaskóla
4.-10. Valgerður Helgadóttir, Brekkubæjarskóla9. bekkur
1. Jóhann Óli Eiðsson, Varmalandsskóla
2.-3. Hrafn Traustason, Grundaskóla
2.-3. Sigurður Trausti Karvelsson, Grundaskóla
4.-11. Sigvaldi Ólafsson, Laugargerðisskóla
4.-11. Guðrún Ingadóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-11. Hrefna Jónsdóttir, Reykhólaskóla
4.-11. Fjölnir Jónsson, Grunnskóla Borgarfjarðar
4.-11. Haukur Brynjólfsson, Varmalandsskóla
4.-11. Ingþór Kárason, Brekkubæjarskóla
4.-11. Erla Karítas Pétursdóttir, Grundaskóla
4.-11. Heiðar Þór Lárusson, Brekkubæjarskóla10.bekkur
1. Aron Öfjörð Jóhannesson, Brekkubæjarskóla
2. Kristinn Hlíðar Grétarsson, Grundaskóla
3.-4. Brynjar Sævarsson, Brekkubæjarskóla
3.-4. Jónas Bjartur Valdimarsson, Grundaskóla
5.-10. Tinna Kristín Finnbogadóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
5.-10. Þorleifur Gaukur Davíðsson, Brekkubæjarskóla
5.-10. Orri Jónsson, Grundaskóla
5.-10. Elísabet Ýr Bjarnadóttir, Lýsuhólsskóla
5.-10. Ástþór Helgi Hjálmarsson, Grundaskóla
5.-10. Klara Árný Harðardóttir, BrekkubæjarskólaAð þessu sinni var keppnin haldin við 9 framhaldsskóla og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þessi skólar eru: Flensborgarskóli, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn við Sund, Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn í Reykjavík. Flensborgarskólinn sér um að búa til keppnina en hinir skólarnir hafa forsíðurnar með sínu merki. Keppnin er haldin á sama tíma í öllum skólunum.
Samtals 135 nemendur tóku þátt í keppninni sem haldin var hér á Akranesi. 41 eru í 8. bekk; 55 í 9. bekk; 39 í 10. bekk. Flestir þátttakenda komu úr Brekkubæjarskóla eða 33, úr Grundaskóla 22, úr Varmalandsskóla 22, Grunnskólanum í Borgarnesi 18 og Laugargerðisskóla 13. Úr öðrum skólum voru færri en 10.15. mars: Söngvakeppni nemendafélagsins
Söngvakeppni nemendafélagsins var haldin í Bíóhöllinni í gærkvöldi. Dómnefndin og salurinn komust að sömu niðurstöðu og kusu Álfheiði Sverrisdóttur og Ástu Marý Stefánsdóttur í fyrsta sæti og munu þær því keppa fyrir hönd skólans í Söngkeppni Framhaldsskólanna á Akureyri þann 14. apríl.
Í öðru sæti voru Bjarki Sigmundsson og Arnþór Ingi Kristinsson og í því þriðja Þór Birgisson og Rakel Pálsdóttir.
Dómnefndina skipuðu Pétur Óðinsson, Óli Pétur Pétursson, Ingþór Bergmann Þórhallsson, Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir og Elínborg Halldórsdóttir (sem margir þekkja undir nafninu Ellý úr Q4U).14. mars: Opið hús í skólanum
Á morgun, 15. mars, verður opið hús í Fjölbrautaskóla Vesturlands frá klukkan 16:30 til 19:30. Allir eru velkomnir og forráðmenn nemenda, fyrrum nemendur og velunnarar skólans eru sérstaklega hvattir til að mæta og skoða skólann, spjalla við starfsfólk og kynna sér námsgreinarnar sem kenndar eru. Hægt verður að kaupa hressingu í mötuneytinu. Strax að dagskrá lokinni, klukkan 19:30, verður fundur með forráðmönnum nemenda sem eru undir 18 ára aldri.12. mars: Sigur í forritunarkeppni framhaldsskólanna
Árleg forritunarkeppni framhaldsskólanema var haldin við Háskólann í Reykjavík laugardaginn 10. mars. Keppt var í 4 deildum. Fjölbrautaskóli Vesturlands sendi eitt lið til keppni í delta deild, en í þeirri deild eru nemendur á fyrsta á ári í forritunarnámi. Í þessari deild kepptu 18 lið úr 10 skólum og fór okkar lið með sigur af hólmi. Í liðinu eru Elín Carstensdóttir, Gísli Birgir Guðsteinsson og Guðmundur Freyr Hallgrímsson. Skólavefurinn óskar þeim til hamingju með glæsilegan árangur.
Þau Elín, Gísli og Guðmundur eru öll nemendur í áfanganum Forritun 103 (FOR103) sem er annar áfangi í forritun, tekinn í framhaldi af TÖL103. Kennari þeirra er Dröfn Viðarsdóttir.12. mars: Lækkun matarverðs
Verð á mat í mötuneyti skólans hefur verið lækkað í samræmi við lækkun virðisaukaskatts á matvöru.12. mars: Erlendir gestir
Nú á vorönn 2007 er Valerija Peternel, sem er kennaranemi frá Slóveníu, starfandi sem gistikennari í ensku við skólann. Kennslan hér er hluti af starfsþjálfun hennar.
Í byrjun síðustu viku komu hingað 4 nemendur frá Kemi-Torneo starfsmenntaskólanum, sem er samstarfsskóli okkar í Norður Finnlandi. Þetta eru tveir piltar og tvær stúlkur. Piltarnir, sem stunda nám í pípulögnum, dvelja á heimavistinni og eru í starfsþjálfun hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Stúlkurnar eru nemar á veitingahúsabraut, dvelja á Hótel Hamri í Borgarnesi og eru í starfsþjálfun þar og við Landnámssetrið. Einnig er von á tveggja vikna heimsókn eins kennara af veitingahúsabraut Kemi-Torneo skólans.
Nú um helgina komu 5 piltar frá samstarfsskóla okkar í Nice í Suður-Frakklandi, Lycée Professionnel Régional du Batiment, hingað í kynningarferð og starfsþjálfun. Þrír þeirra stunda nám í málmiðngreinum og tveir eru á orkubraut. Þeir munu dvelja hér fram að páskaleyfi og verða í starfsþjálfun hjá Norðuráli, Orkuveitu Reykjavíkur o.fl. Auk nemendanna koma 2 kennarar frá Nice og dvelja í 10 daga hvor.
Allar þessar heimsóknir eru styrktar af menntaáætlunum Evrópusambandsins og skipulag þeirra og undirbúningur hefur verið í höndum Kristjáns E. Guðmundssonar sem er umsjónarmaður erlendra samskipta við skólann.8. mars: Kvikmynd af opnum dögum
Hópur á námskeiði í stuttmyndagerð undir stjórn Jens B. Baldurssonar fór um skólann með upptökuvél meðan dagskrá opinna daga stóð yfir. Nokkur skemmtileg myndskeið eru hér (alls um fjórar og hálf mínúta í 35MB wmf skrá). Lengri kvikmynd af opnum dögum verður á DVD-diski á bókasafni skólans í næstu viku.8. mars: Opnum dögum að ljúka
Opnum dögum á vorönn 2007 lýkur í dag. Margt skemmtilegt hefur verið gert síðan þeir hófust á þriðjudaginn. Til dæmis smíðaði hópur nemenda eftirlíkingar af fiskum og fleiri sjávardýrum á málmsmíðaverkstæði skólans undir stjórn Philips Ricard og Þráins Sigurðssonar. Dagskránni eru annars gerð skil í fjölmiðlum opinna daga sem eru á vefnum www.nffa.is/od og í útvarpinu á FM 95,0.6. mars: Styrkir til námsefnisgerðar
Menntamálaráðneytið hefur úthlutað styrkjum til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi. Þessum styrkjum er jafnan úthlutað síðla vetrar eða snemma vors. Eins og oft áður hlutu kennarar við Fjölbrautaskóla Vesturlands styrk til að semja nýtt námsefni. Það eru kennararnir Halla I. Guðmundsdóttir og Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir sem vinna saman að gerð námsefnis í stærðfræði og Jón Árni Friðjónsson sem vinnur að námsefnisgerð í menningarsögu.5. mars: Sveinspróf í vélvirkun
Um helgina (3. og 4. mars) þreyttu 5 nemendur sveinspróf í vélvirkjun á málmsmíðaverkstæði skólans. Tveir prófdómarar voru á staðnum og önnuðust framkvæmd prófsins. Á næstu dögum munu þeir fara yfir úrlausnir nemenda og gefa þeim einkunn. Prófdómarar í sveinsprófum, sem eru samræmd lokapróf í iðngreinum, starfa í umboði menntamálaráðherra og sveinsprófsnefnda, sem ráðherra skipar í samræmi við ákvæði Reglugerðar um sveinspróf frá árinu 2000.28. febrúar: Stærðfræðikeppni fyrir grunnskóla
Hin árlega stærðfræðikeppni sem Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi heldur fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í gær þriðjudaginn 27. febrúar. Þátttakendur voru um það bil 140 talsins úr 10 grunnskólum. Þeir sem komu lengst að eru frá Hólmavík.
![]()
Meðan nemendur spreyttu sig á verkefnunum, sem eru upprunnin við Flensborgarskólann í Hafnarfirði, sátu stærðfræðikennarar þeirra á fundi með stærðfræðikennurum Fjölbrautaskólans og réðu ráðum sínum um eflingu stærðfræðimenntunar. Að lokinni keppni nutu þátttakendur veitinga í boði Sparisjóðsins á Akranesi sem einnig gaf verðlaun og greiddi allan kostnað við keppnishaldið.
![]()
Þeir þrír einstaklingar í hverjum árgangi sem ná bestum árangri hljóta peningaverðlaun en tíu efstu fá viðurkenningarskjal. Verðlaunaafhending fer fram laugardaginn 17. mars 2007.28. febrúar: Sparisjóðurinn kostar stærðfræðikeppni
Í gær, þriðjudag 27. febrúar, kom Þorkell Logi Steinsson útibússtjóri hjá Sparisjóði Akraness í heimsókn í skólann til að ganga frá samningi um stuðning Sparisjóðsins við árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla. Samningurinn gildir til ársins 2011 og á samningstímanum mun Sparisjóðurinn kosta keppnina og gefa verðlaun. Á myndinni hér að neðan takast þeir Þorkell Logi og Hörður Ó. Helgason skólameistari í hendur eftir undirritun samningsins.
27. febrúar: Sumarhús í smíðum
Eitt af viðfangsefnum nemenda á námsbraut í húsasmíði er bygging sumarbústaðar. Bústaður sem byrjað var að smíða í haust stendur nú nær fullbúinn utan við trésmíðaverkstæði skólans. Þegar myndin hér að neðan var tekin voru nemendur úr rafiðnadeild í heimsókn til að ganga frá raflögnum í honum.
21. febrúar: Stærðfræðikeppni fyrir 8., 9. og 10. bekki
Hin árlega stærðfræðikeppni sem Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi heldur fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi verður haldin í húsakynnum skólans þriðjudaginn 27. febrúar kl. 15.00. Auk skólanna á Vesturlandi er Grunnskólanum á Hólmavík og Klébergsskóla á Kjalarnesi boðin þátttaka. Að lokinni keppni njóta þátttakendur veitinga í boði Sparisjóðsins á Akranesi sem einnig gefur verðlaun og greiðir allan kostnað við keppnishaldið.Allir nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja eru hvattir til að taka þátt í keppninni. Þeir þrír einstaklingar í hverjum árgangi sem ná bestum árangri hljóta peningaverðlaun en tíu efstu fá viðurkenningarskjal. Verðlaunaafhending fer fram laugardaginn 17. mars 2007.
Þeim sem vilja undirbúa sig fyrir keppnina er bent að gamlar keppnir eru á vefsíðunni http://www.flensborg.is/ebs/stækepp1.htm17. febrúar: Almost Famous
Í gærkvöldi frumsýndi leiklistarklúbbur nemendafélagsins söngleikinn Almost Famous. Leikstjóri er Ólafur S.K. Þorvalds. Höfundur dansa er Ásta Bærings og söngstjóri Védís Hervör Árnadóttir. Alls koma meira en 30 nemendur fram í sýningunni en með aðalhlutverk fara Rakel Pálsdóttir, Þór Birgisson, Ólafur Helgi Halldórsson, Bjarki Sigmundsson og Steinunn Eik Egilsdóttir.
Tónlistin er lög sem margir þekkja í flutningi The Who, Pink Floyd, David Bowie og fleiri stjórstjarna úr rokksögunni.
Frumsýningin tókst í alla staði vel. Í umsögn um hana segir blaðamaður Skessuhorns: „Í heild sinni var þetta alveg frábær sýning með góðri tónlist sem höfðar til stórs aldurshóps og ekki sakar kaldhæðnislegur húmor og skemmtilegir karekterar sem nemendur Fjölbrautaskólans ná að skapa.“
Skólavefurinn óskar nemendafélaginu til hamingju með þennan glæsilega söngleik og minnir á að næstu sýningar verða sem hér segir:
Sunnudag 18. febrúar klukkan 20. Mánudag 19. febrúar klukkan 20. Þriðjudag
20. febrúar klukkan 20. Fimmtudag
22. febrúar klukkan 20. Laugardag 24. febrúar klukkan 22. Miðapantanir í síma 431-2808 tveim tímum fyrir sýningu. Miðaverð er 1500 kr. fyrir meðlimi nemendafélagsins og 2000 kr. fyrir aðra.
14. febrúar: Námsferð um Dali
Í síðustu viku fóru nemendur í áfanganum ÍSL293 í námsferð um Dalina ásamt kennara sínum, Ingu Sigurðardóttur. Byrjað var á því að heimsækja Mjólkursamsöluna í Búðardal. Síðan var haldið á vit víkinga á Eiríksstöðum þar sem staðarhaldari heillaði fólk með kynngimögnuðum sögum af Eiríki rauða og hans fólki.7. febrúar: Fundur í skólanefnd
Í gær, 6. febrúar, var fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Fundargerð liggur hér frammi.6. febrúar: Afmæli Fjölbrautaskóla Vesturlands
Í dag eru 20 ár liðin síðan fjölbrautaskólinn hlaut það nafn sem hann nú hefur. Þegar skólinn var stofnaður, 12. sept. 1977, hét hann Fjölbrautaskólinn á Akranesi. Þann 6. feb. 1987 gerðu 32 sveitarfélög á Vesturlandi og menntamálaráðuneytið samning um rekstur skólans og þá var nafni hans breytt og hefur hann síðan heitið Fjölbrautaskóli Vesturlands.
Síðan 32 sveitarfélög í fjórðungnum undirrituðu fyrst samning um Fjölbrautaskóla Vesturlands hafa nokkur þeirra sameinast og sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi hafið samstarf um rekstur framhaldsskóla í Grundarfirði. Nú eru sveitarfélögin sem eiga aðild að samningi um skólann því aðeins sex talsins: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur og Skorradalshreppur.5. febrúar: Tveir fyrrum nemendur skólans verðlaunaðir
Síðasta laugardag, 3. febrúar, voru heiðursverðalaun Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík afent í fyrsta sinn í tilefni af 140 ára afmæli félagsins. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og formaður félagsins, Ásgrímur Jónsson, afhentu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Alls hlutu 11 nemar viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi. Þar af voru tveir sem luku grunnnámi rafiðna og fyrri hluta náms í rafeindavirkjun við Fjölbrautaskóla Vesturlands, þeir Guðmundur Ingi Guðmundsson og Davíð Sigurðsson. Guðmundur Ingi hóf nám við skólann haustið 1998 og lauk stúdentsprófi af tæknibraut ásamt fyrri hluta náms í rafeindavirkjun vorið 2002. Davíð nam við skólann frá hausti 2000 til vors 2004.
Auk heiðursverðlauna Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur hlaut Guðmundur Ingi verðlaun Háskólans Í Reykjavík, en við þetta tækifæri veitti skólinn fjórum nemendum verðlaun á formi námsstyrks.
Skólavefurinn óskar Davíð og Guðmundi til hamingju með þessar viðurkenningar og þann góða árangur sem staðfestur er með þeim.30. janúar: Sveinspróf í húsasmíði
Um síðustu helgi þreyttu 10 nemar sem lokið hafa námsbraut í húsasmíði sveinspróf á trésmíðaverkstæði skólans. Af þessum 10 höfðu 8 lokið námi við Fjölbrautaskóla Vesturlands en 2 komuúr öðrum skólum.
Sveinspróf eru samræmd próf sem allir verðandi iðnaðarmenn gangast undir. Iðan annast prófin í umboði sveinsprófsnefnda og menntamálaráðuneytisins. Prófdómarar í húsasmíði koma frá bygginga- og mannvirkjasviði þeirrar stofnunar.
Prófið tók alls 20 klukkustundir og verkefnið sem nemendur unnu var snúinn tréstigi. Úrlausnir þeirra voru til sýnis í húsnæði skólans við Vesturgötu í gær, mánudaginn 29. janúar, klukkan 17 til 18. Nemendunum gekk vel og allir stóðust prófið.15. janúar: Helgarkennsla og staðbundnar lotur
Nú á vorönn 2007 stunda þrír stórir hópar nám við skólann samhliða vinnu. Námið er skipulagt sem fjarnám með staðbundnum lotum. Hóparnir eru á sjúkraliðpabraut, námsbraut í húsasmíði og á viðskiptabraut. Sjúkraliðahópurinn mætti í sína fyrstu staðbundu lotu á önninni síðasta fimmtudag og hinir tveir voru í skólanum um helgina. Myndin er tekin af nemendum á viðskiptabraut þar sem þeir voru í tölvutíma á laugardaginn.12. janúar: Afgreiðsla umsókna um árekstra, P o.fl.
Nemendur sem sóttu um árekstrarheimild, P-heimild eða undafarabrot eiga að hafa samband við skrifstofu skólans mánudaginn 15. janúar til að fá umsóknir sínar afgreiddar. Þeir sem sóttu um frávik frá skólasóknarreglu fá svör á næstu dögum.8. janúar: Skráning úr áfanga
Nemandi sem ætlar að hætta í áfanga þarf að skrá sig úr honum í síðasta lagi miðvikudaginn 17. janúar. Nemendur sem segja sig úr áfanga eftir þann dag munu fá „Ú“ í námsferil sinn og verða þar með að greiða 500 kr. á næstu önn fyrir hverja einingu viðkomandi áfanga.5. janúar: Upphaf vorannar 2007
Heimavistin opnar sunnudaginn 7. janúar klukkan 18. Skólinn hefst svo mánudaginn 8. janúar og þann dag eiga nýnemar að mæta klukkan 10. Stundatöflur fyrir vorönn verða afhentar klukkan 10 til 12 og kennsla hefst klukkan 12:25. Stundatöflurnar verða aðgengilegar í Innu klukkan 8 um morguninn.
Skólabíll fer frá Borgarnesi mánudaginn 8. janúar klukkan 9:15 og 11:40. Reglulegur skólaakstur hefst þriðjudaginn 9. janúar og þá fer bíllinn frá Borgarnesi klukkan 7:45. (Áætlun skólabíls er hér ...)5. janúar: Tilkynning til nemenda á sjúkraliðabraut
Hjá þeim sem aðeins stunda dreifnám í sérgreinum á sjúkraliðabraut (þ.e. áföngunum HJÚ203, LOL203, NÆR103 og SJÚ103) hefst skólastarf á vorönn fimmtudaginn 11. janúar. Þann dag skulu nemendur mæta í skólann klukkan 9. (Upplýsingar um kennslu í sérgreinum á sjúkraliðabraut á vorönn 2007 liggja hér frammi í Word-skrá ...)2. janúar: Afmælisár og skáld af Vesturlandi
Á árinu sem nú er nýbyrjað fagnar skólinn 30 ára afmæli. Af því tilefni minnist skólavefurinn ljóðskálda af Vesturlandi. Fyrsta skáldið sem birt er ljóð erftir er Helga Bárðardóttir. Erindið, sem er í rammanum hér til hægri, orti hún, eftir því sem Bárðar saga segir, þegar hún dvaldi hjá Eiríki rauða í Brattahlíð á Grænlandi og saknaði heimahaganna á Snæfellsnesi. Til Grænlands hafði hana rekið á ísjaka. Talið er að kveðskapur þessi sé fyrsta íslenska ættjarðarljóðið.27. desember: Námstími til stúdentsprófs
Tekin hafa verið saman gögn um stúdenta sem útskrifast hafa frá skólanum á árunum 2004, 2005 og 2006. Á þessu árbili hafa alls 175 nemendur útskrifast með stúdentspróf frá skólanum, 64 piltar og 111 stúlkur. Meðalnámstími þeirra var 8,4 annir. Piltarnir voru heldur lengur að jafnaði eða 8,9 annir en meðalnámstími stúlkna var 8,2 annir. Piltarnir luku að meðaltali 148 einingum og stúlkurnar 145.
36% stúdenta sem brautskráðir voru á þessu árabili luku námi á skemmri tíma en 8 önnum; 28% voru 8 annir; 23% voru 9 eða 10 annir og 13% lengur en 10 annir.
Námstími til stúdentsprófs hefur smám saman verið að styttast. Stúdentar sem útskrifuðust 2002 voru að meðaltali 9,1 önn að ljúka náminu, þeir sem útskrifuðust 2004 voru að meðaltali 8,6 annir og þeir sem útskrifast hafa á þessu ári 8,3 annir.22. desember: Námsárangur á haustönn, tölfræðilegt yfirlit
Tölfræðilegt yfirlit yfir námsárangur og skólasókn nemenda á haustönn 2006 er komið á vef skólans. Eins og önnur matsgögn liggur það frammi á vefsíðum um innra mat sem eru undir Skólinn á valmyndinni til vinstri. Einnig er hægt að nálgast það með því að smella hér.21. desember: Brautskráning (Myndir ...)
Í dag, 21. desember, voru 49 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Taflan sýnir hvernig þessir 49 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
Piltar/Karlar
Stúlkur/Konur
Alls
Stúdentspróf af félagsfræðabraut
3
13
16
Stúdentspróf af málabraut
0
2
2
Stúdentspróf af náttúrufræðibraut 8 3 11Viðbótarnám til stúdentsprófs
2
1
3
Verslunarpróf af viðskiptabraut
0
1
1
Burtfararpróf af námsbraut í húsasmíði
1
0
1
Burtfararpróf af námsbraut í rafvirkjun 14 0 14 Burtfararpróf af námsbraut í vélvirkjun 1 0 1Alls
29
20
49
Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 14. Fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoðarskólameistari annál haustannar 2006.
Fyrir athöfnina lék klarínettukór Skólahljómsveitar Akraness. Aðrir listamenn sem komu fram voru: Kristín Edda Egilsdóttir og Guðmundur Freyr Hallgrímsson sem léku saman á klarínett og píanó; Karitas Ósk Ólafsdóttir og Birna Björk Sigurgeirsdóttir sem léku saman á flautu og píanó; Steinunn Eðvaldsdóttir sem söng við undrileik Birnu Bjarkar Sigurgeirsdóttur.
Skólameistari kvaddi Þórólf Ævar Sigurðsson íþróttakennara sem lét af störfum við skólann í sumar eftir langan og farsælan kennsluferil. Honum var fært listaverk að gjöf frá skólanum.
Hafdís Mjöll Lárusdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar:
- Dofri Jónasson fyrir bestan árangur útskriftarnema í verklegum greinum (verðlaun gefin af Kötlu Hallsdóttur og Ínu Dóru Ástríðardóttur) og fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (verðlaun gefin af Loftorku ehf. Borgarnesi).
- Gunnar Smári Jónbjörnsson fyrir störf að forvarnamálum (verðlaun gefin af Rótarýklúbbi Akraness).
- Ívar Árnason fyrir góðan árangur í tölvufræði (verðlaun gefin af Tölvuþjónustunni ehf. Akranesi).
- María Mist Helgadóttir fyrir góðan árangur í ensku (verðlaun gefin af Landsbankanum hf. Akranesi), fyrir góðan árangur í frönsku (verðlaun gefin af Kaupþingi banka hf. Akranesi) og fyrir góðan árangur í sálfræði og uppeldisfræði (verðlaun gefin af Glitni hf. Akranesi).
- Márus Lúðvík Heiðarsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (verðlaun gefin af GT-tækni ehf. Grundartanga).
- Sigurlaug Ásmundsdóttir fyrir góðan árangur í ensku (verðlaun gefin af Sparisjóðnum Akranesi).
- Stefán Jóhann Sigurðsson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2006 og verðlaun fyrir góðan árangur í ensku og dönsku (gefin af Kaupfélagi Borgfirðinga).
- Steinunn Eðvaldsdóttir fyrir góðan árangur í dönsku (verðlaun gefin af Danska sendiráðinu) og fyrir góðan árangur í þýsku (verðlaun gefin af Þýska sendiráðinu).
- Þór Daníel Hammer Ólafsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (verðlaun gefin af Íslenska járnblendifélaginu hf. Grundartanga).
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Bráðum koma blessuð jólin eftir Jóhannes úr Kötlum við lag W. B. Bradbury. Kristján Elís Jónasson var forsöngvari, Guðmundur Freyr Hallgrímsson lék undir á píanó. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.
11. desember: Brottfall á haustönn 2006
Brottfall á haustönn 2006 er meira en undanfarnar annir eða 8,2%. Þar af eru 4,95% vegna þess að 38 nemendur hættu alveg í skólanum á tímabilinu frá 4. september til 30. nóvember og 3,25% vegna þess að 103 nemendur sögðu sig úr eða var vísað úr einstökum áföngum á sama tímabili. Til samanburðar má geta þess að á haustönn 2004 var brottfallið 6,9% og á haustönn 2005 var það 5,0%. Nánari upplýsingar um brottfall og nýtingu á kennslu er að finna á vefsíðum um innra mat í skólanum (krækjurnar eru í næstneðstu línu töflunnar).1. desember: Síðasti kennsludagur - dimission
Í dag, föstudag 1. desember, er síðasti kennsludagur haustannar 2006. Á mánudag hefjast próf. Kveðjuhóf útskriftarnema, sem kallast dimission upp á latínu, er haldið í dag og fara þeir grímuklæddir um skólann og bjóða kennurum og skólafélögum til skemmtunar á sal í þriðju kennslustund. (Myndir...)1. desember: Fundur í fulltrúaráði
Samkvæmt samningi sveitarfélaga á Vesturtlandi og menntamálaráðuneytis skipa sveitarfélögin sex sem standa að skólanum fulltrúaráð. Það er skólanefnd til ráðuneytis og tengiliður hennar við sveitarstjórnir. Í ráðinu sitja 12 fulltrúar: 5 frá Akranesi; 3 frá Borgarbyggð; 1 frá Dalabyggð; 1 frá Eyja- og Miklaholtshreppi; 1 frá Hvalfjarðarsveit og 1 frá Skorradalshreppi. Auk þeirra sitja skólameistari, aðstoðarskólameistari og einn fulltrúi kennara fundi ráðsins.
Fulltrúaráðið hittist á fundi í gær þar sem skólameistari gerði grein fyrir skólastarfinu í haust og nýloknum byggingaframkvæmdum. Einnig voru kynntar breytingar á samningi sveitarfélaga um skólann þar sem sameining sveitarfélaga kallaði á breyttar reglur um skipan fulltrúa og kostnaðarskiptingu, en sveitarfélögin greiða 40% af byggingarkostnaði og veita skólanum árlegan styrk til tækjakaupa.
Skólameistari kynnti áætlun um 15,8 milljóna framlag sveitarfélaga vegna nýrra byggingaframkvæmda á árinu 2007, en þá er ráðgert að hefja smíði verkstæðishúss fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar. Einnig kynnti hann tillögu um framlög sveitarfélaga til tækjakaupa fyrir verknámsdeildir á næsta ári. Tillagan gerir ráð fyrir að sveitarfélögin greiði samtals 3 milljónir. Útgjöldin skiptast á milli þeirra eftir íbúafjölda og fjarlægð frá skólanum, þannig að fyrir hvern Akurnesing er borgað rúmlega tvöfalt meira en fyrir hvern íbúa annars staðar í Borgarfirði og rúmlega þrefalt meira en fyrir hvern íbúa í Dalabyggð og Eyja- og Miklaholtshreppi. Fundurinn samþykkti að mæla með tillögunni.
29. nóvember: Próf hjá nemendum á sjúkraliðabraut
Próf í sérgreinum á sjúkraliðabraut (þ.e. HBF1036, HJÚ1036 og LOL1036) verða lögð fyrir á 4 stöðum: Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi; Hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands við Bjarnarbraut í Borgarnesi; Í Grunnskóla Stykkishólms; Við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Nemendur sem ætla að taka próf annars staðar en á Akranesi og hafa ekki þegar tilkynnt um það þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara í síðasta lagi 1. desember. Hægt er að ná í hann í síma 433 2500 eða með því að senda tölvupóst á atli@fva.is.29. nóvember: Ný gögn um innra mat
Samantekt um mat á skólareglum, samskiptum í skólanum, félagslífi, umsjónartímum, upplýsingagjöf og námsráðgjöf liggur frammi á vef skólans. Eins og önnur gögn um innramat er hægt að finna hana með því að velja Skólinn -> Innra mat á valmyndinni hér til vinstri. Gögn sem birst hafa á þessari önn eru opnuð með því að smella á X í dálkinum fyrir H06.23. nóvember: Gjaldskrá fyrir fjar- og dreifkennslu
Vakin er athygli á breytingum á gjaldskrá skólans þar sem nýr liður hefur bæst við, sem er fjar- og dreifkennsla. Kennslugjald fyrir nemendur sem nýta sér slíka kennslu er 1.500 krónur á einingu. Hægferðaráfangar (þ.e. áfangar með númer 1026, 1226, 2026, 2126 og 2626 í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði) reiknast sem 3ja eininga áfangar.23. nóvember: Æfing í samvinnu við slökkviliðið á Akranesi
Í dag klukkan 15:25 verður æfing í að rýma skólann. Þegar brunabjöllu er hringt tvisvar með stuttu hléi á milli eiga allir að fylgja fyrirmælum kennara og ganga úr kennslustund og stystu leið út úr skólahúsinu. Áður en gengið er út þarf að vera ljóst að kennari viti hve margir eru í stofunni hjá honum. Kennari fer síðastur út úr stofunni. Hann hittir hópinn svo úti á bílastæðum og sannreynir að allir hafi skilað sér þangað.16. nóvember: KK á degi íslenskrar tungu
Í dag er afmælisdagur Jónasar Hallgrímssonar, sem jafnframt er dagur íslenskrar tungu. Af því tilefni bauð skólinn öllum nemendum á tónleika í fyrstu kennslustund eftir hádegi. Kristján Kristjánsson, sem þekktari er undir nafninu KK, lék og söng fyrir fullum sal.15. nóvember: Patrekur 1,5
Gestir frá Þjóðleikhúsinu sýna leikritið Patrekur 1,5 eftir Michael Druker á sal skólans í kvöld klukkan 20. Miðaverð er 1300 krónur. Nánari upplýsingar eru á vef Þjóðleikhússins.8. nóvember: Forvarnahópur nemenda
Eins og undanfarin ár starfar hópur nemenda í skólanum að forvarnamálum. Markmið hans eru að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og vinna gegn hegðun sem fer illa með fólk og spillir tilverunni. Að þessu sinni er hópurinn óvenjulega fjölmennur. Myndin hér að neðan var tekin á fundi hans sem haldinn var um hádegisbil í dag. Lengst til hægri á myndinni er Hjördís Árnadóttir námsráðgjafi sem starfar með hópnum. (Sjá stærri mynd ...)7. nóvember: Nemendahópurinn á haustönn 2006
Áfangastjóri hefur tekið saman gögn um nemendahópinn á haustönn 2006. Þann 16. október voru 590 nemendur í skólanum, þar af eiga 344 (eða 58%) lögheimili á Akranesi, 201 (eða 34%) á öðrum stöðum á Vesturlandi og 45 (eða 8%) utan Vesturlands.
Piltar eða karlar eru 318 (eða 54% nemenda) og stúlkur eða konur eru 272 (eða 46%).
Af nemendum eru 442 (eða 75%) sem eru fæddir 1987 eða seinna. Nemendur sem fæddir eru 1986 eða fyrr og luku því grunnskóla fyrir meira en fjórum árum eru 148 (eða 25%).
Nemendur skiptast þannig á námsbrautir að 274 (eða 46%) eru á stúdentsbrautum; 120 (eða 20%) eru á iðnbrautum; 61 (eða 10%) eru á öðrum starfsmenntabrautum eða á listnámsbraut; 119 (eða 20%) er á almennri námsbraut; 6 (eða 1%) eru á starfsbraut fyrir fatlaða. 10 nemendur (eða 2%) eru enn í grunnskóla en nema einstaka áfanga í Fjölbrautaskólanum samhliða námi í 9. eða 10. bekk.
Kynjaskipting er nokkuð misjöfn eftir námsbrautum þar sem 59% nemenda á bóknámsbrautum eru konur eða stúlkur og 96% nemenda á iðnbrautum eru piltar eða karlar.6. nóvember: Árangur í stærðfræðikeppni
Stærðfræðikeppni framhaldskólanema sem haldin er á hverju ári að tilstuðlan Hins Íslenska stærðfræðafélags var haldin þann 17. október síðastliðinn. Hópur nemenda við Fjölbrautaskóla Vesturlands tók þátt í keppninni og komst einn þeirra, Birkir Guðmundarson, áfram og tekur þátt í úrslitakeppni. Birkir er nemandi á öðru ári á náttúrufræðibraut.26. október: Miðannarfrí
Vegna miðannarleyfis verða skrifstofa skólans og heimavist lokuð frá og með föstudegi 27. október til mánudags 30. október. Skrifstofan opnar aftur klukkan 7:50 að morgni þriðjudagsins 31. október. Engin kennsla verður í skólanum 27. og 30. október.26. október: Úrslit tónlistarkeppni
Tónlistarkeppni nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands fór fram föstudaginn 20. október. Að þessu sinni nefndist keppnin Námurokk.
Hljómsveitin sem sigraði heitir Ypsilon. Hana skipuðu: J. Aðalsteinn Árnason á trommur, Ylfa Flosadóttir söngvari, Sigurður Bachmann gítarleikari og Björn Breiðfjörð bassaleikari. Í öðru sæti var hljómsveitin Syna og í þriðja sæti hljómsveitin Darwin Blue.
Ylfa Flosadóttir úr hljómsveitinni Ypsilon var valin besti söngvari keppninnar; Besti trommari Aðalsteinn Árnason sem trommaði bæði með Ypsilon og Synu; Besti gítarleikari Sigurður Bachmann úr hljómsveitinni Ypsilon; Besti bassaleikari Björn Breiðfjörð úr hljómsveitinni Ypsilon.
Viðurkenningu fyrir bestu sviðsframkomu hlaut hljómsveitin Black Sheep og Hólmsteinn Valdimarsson sem spilaði á trompet með hljómsveitinni Ferlegheit var kjörinn besti aukahljóðfæraleikarinn.25. október: Samráðsfundur um málefni ungs fólks
Í gær klukkan 18 til 20:30 hélt Akraneskaupstaður samráðsfund um málefni ungs fólks. Fundurinn var haldinn á sal Fjölbrautaskólans og sátu hann rúmlega 30 manns frá skólunum í bænum, lögreglunni, íþróttafélögum, foreldrafélögum, bæjaryfirvöldum og ýmsum stofnunum.
Á fundinum var farið yfir gögn um heilsufar, líðan og áhættuþætti hjá unglingum á Akranesi og kynnt árangursríkt starf að forvarnamálum sem unnið hefur verið í Hafnarfirði.
Fram kom að staða mála hér á Akranesi er þokkaleg miðað við landsmeðaltal. T.d. er þátttaka unglinga í íþróttum meiri en að meðaltali yfir landið. Einnig benda kannanir til að líðan nemenda í efstu bekkjum gunnskóla og ánægja þeirra með eigið líf séu betri en landsmeðaltalið.
Neysla áfengis, tóbaks og hass meðal nemenda í unglingadeildum grunnskóla á Akranesi hefur verið minni en landsmeðaltal frá 2002 til 2005 en á þessu ári virðist síga á ógæfuhlið, samkvæmt könnunum sem kynntar voru á fundinum, og nú er neysla þessara eiturefna meðal ungmenna á Akranesi komin upp í landsmeðaltal.
Ákveðið hefur verið að bærinn ráði forvarnafulltrúa sem tekur til starfa um áramót og hefur meðal annars það verkefni að efla og samhæfa starf að forvarnamálum í bænum. Ráðgert er að forvarnafulltrúi bæjarins hafi náið samstarf við Fjölbrautaskólann.25. október: Fjar- og dreifnám í sérgreinum viðskiptabrautar
Á næstu önn verður boðið upp á fjar- og dreifnám í sérgreinum viðskiptabrautar. Við það er miðað að fullorðnir nemendur sem eru í vinnu á venjulegum skólatíma geti lokið öllum sérgreinum brautarinnar á 4 önnum. Áformað er að á vorönn 2007 fari kennsla í BÓK103, HAG103 og UTN103 fram í 6 staðbundnum lotum á laugardögum og þess á milli stundi nemendur verkefnavinnu og fjarnám í samráði við kennara.24. október: Fyrrum nemandi skólans hlýtur Fjöreggið
Föstudaginn 20. október afhenti Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra Fjöreggið, verðlaun Matvæla- og næringarfræðingafélags Íslands. Hingað til hafa þessi verðlaun verið veitt fyrritækjum en að þessu sinni hlaut þau einstaklingur, Guðrún Adólfsdóttir matvælafræðingur sem brautskráðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands vorið 1983.23. október: Tilkynning til nemenda á sjúkraliðabraut
Vegna forfalla Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur er óhjákvæmilegt að breyta skipulagi náms á sjúkraliðabraut. Keyrsla áfanganna LOL1036 og HBF1036 er þó óbreytt frá upphaflegri áætlun. Vinnustaðanám á Sjúkrahúsi Akraness og Landspítala fylgir einnig upphaflegri áætlun. Hins vegar þarf að færa staðbundnar lotur í HJÚ1036 og HJV1036 og fresta LÍB1012 fram á vorönn. (Meira ...)23. október: Forvarnafyrirlestur
Í dag hófst skóli á því að öllum nemendum var safnað saman á sal þar sem Magnús Stefánsson frá Maríta-fræðslunni spjallaði við nemendur og sýndi myndband um slæmar afleiðingar vímuefnaneyslu.20. október: Skammhlaup, tónlistarkeppni, ball
Þegar þetta er skrifað stendur skammhlaup sem hæst. Tímaþraut er næstum lokið og keppni á sal að hefjast.
Tónlistarkeppnin, Námurokk, hefst klukkan 17 í Bíóhöllinni. Ballið er á sal skólans og byrjar klukkan 22:30. Húsið lokar klukkan 23:00. Hljómsveitin Spútnik leikur fyrir dansi.
Miðar á ballið eru aðeins seldir í forsölu. Miða á tónlistarkeppnina er bæði hægt að kaupa í forsölu og við innganginn í Bíóhöllina. Nanari upplýsingar eru á vef nemendafélagsins.28. september: Tveggja daga lífsleikniferð um Suðurland
Í dag og á morgun verða nemendur í lífsleikni (LKN103) á ferð um Suðurland. Hópurinn sem fer er 105 nýnemar ásamt 3 kennurum. Í dag verður ekið allt austur í Mýrdal og gengið í Þakgil. Í nótt verður gist að Heimalandi í Holtum í Rangárvallasýslu. Á morgun verður ekið aftur vestur á bóginn og komið við á Stokkseyri og Draugasetrið þar skoðað.27. september: Tveir nemendur á leið á Ólympíuleika
Íþróttasamband fatlaðra hefur valið tvo nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands til þátttöku í „Special Olympics“ Evrópuleikunum sem fram fara í Róm 30. september til 5. október. Þeir eru Andri Jónsson sem keppir í frjálsum íþróttum og Freyr Karlsson sem keppir í sundi.
Andri Jónsson (til vinstri) og Freyr Karlsson (til hægri)26. september: Heimsókn kennara frá Svíþjóð
Fyrri hluta þessarar viku eru hér í heimsókn fimm kennarar frá sérdeild fyrir fatlaða við Palmcrantzskolan Í Östersund í Svíþjóð. Þeir eru hér til að kynna sér kennslu á starfsbrautum við íslenska framhaldsskóla. Auk starfsbrautar Fjölbrautaskólans heimsækja þeir Fjöliðjuna við Dalbraut og skoða markverða staði á Akranesi. Sérdeildin sem gestirnir starfa við er nokkuð stór á okkar mælikvarða því við hana eru 109 nemendur. Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur áður fengið heimsóknir frá Palmcrantzskolan og einu sinni dvaldi hópur kennara og nemenda héðan austur þar og kynntist því hvernig húsasmíði er kennd í Svíþjóð.
Sænsku gestirnir20. september: Foreldrafundur
Hefðbundinn kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema var haldinn á sal skólans þriðjudagskvöldið 19. september klukkan 20. Á fundinum fengu foreldrar kynningu á skólanum og gafst tækifæri til að ræða við umsjónarkennara barna sinna.7. september: Sjúkraliðanám með vinnu
Þegar nemendur voru innritaðir í vor bauð skólinn upp á sjúkraliðanám fyrir fólk sem stundar vinnu með skóla. Námið er miðað við þarfir þeirra sem vinna við umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra og vilja afla sér rettinda til að starfa sem sjúkraliðar. Kennsla í sérgreinum sjúkraliðabrautar er að nokkru leyti fjarkennsla gegnum netið og að nokkru leyti fer hún fram í staðbundnum lotum á fimmtudögum og föstudögum. Áætlað er að nemendur geti lokið öllum sérgreinum brautarinnar á 2 árum.
Samkvæmt bréfi frá Menntamálaráðuneytinu, dagsettu 3. maí 2006, eiga einstaklingar sem orðnir eru 23 ára, hafa 5 ára starfsreynslu við umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra og meðmæli frá vinnuveitanda sínum kost á að fá reynslu sína metna sem hluta af námi á sjúkraliðabraut. Nemendur sem þetta á við um geta lokið sjúkraliðanámi að fullu með því að nýta sér fjarnám og lotukennslu sem skólinn mun bjóða upp á næstu tvö árin.
Myndin hér að neðan sýnir nokkra sjúkraliðanema í fimmtudagslotu ásamt kennara sínum, Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur sem er lengst til vinstri á myndinni.
1. september: Busavígsla
Í dag, 1. september, var kennslu hætt nokkru fyrir hádegi því nemendafélagið hafði venju samkvæmt fengið heimild til busavígslu. Nýnemar sem kusu að láta vígja sig í félagið með þessum hætti fóru í umsjónarstofur þangað sem eldri nemar sóttu þá. Eftir dálítil ræðuhöld og glens var þeim smalað á blettinn við vistina og baðaðir rækilega upp úr köldu vatni. Í kvöld verður svo busaball þar sem DJ Hermigervill leikur fyrir dansi. Húsið lokar klukkan 11:30. Rúta verður frá Borgarnesi.25. ágúst: Samstarf við grunnskólana á Akranesi
Í dag mættu nemendur í 10. bekk Brekkubæjarskóla í sinn fyrsta náttúrufræðitíma hér í Fjölbrautaskólanum. Þeir munu svo koma hingað þrisvar í viku til að læra náttúrufræði, því Fjölbrautaskólinn hefur tekið að sér kennslu í þeirri grein fyrir nemendur á lokaári í Brekkubæjarskóla.
Nemendum sem standa sig vel í faginu verður gefinn kostur á að ljúka fyrstu framhaldsskólaáföngum í náttúruvísindum samhliða náminu í 10. bekk. Um þetta er samráð við kennara og stjórnendur í Grundaskóla, svo nemendum þar bjóðast sömu tækifæri.
Samvinna skólanna er á fleiri sviðum en náttúrufræðikennslu því nokkrir nemendur grunnskólanna taka hér einstaka áfanga í öðrum greinum. Þegar stundatöflur skólanna eru unnar er þess gætt að grunnskólanemar, sem lokið hafa samræmdum prófum í dönsku, ensku eða stærðfræði í 9. bekk, eigi þess kost að sækja tíma í þessum fögum í Fjölbrautaskólanum jafnframt náminu í 10. bekk.23. ágúst: Fjöldi nemenda við upphaf haustannar
Nú í dag þegar skóli er settur er 601 nemandi innritaður, þar af 163 nýnemar sem luku grunnskóla í vor og 63 endurinnritaðir nemendur sem koma aftur í skólann eftir hlé. Eldri nýnemar eru 36, flestir á sjúkraliðabraut— en skólinn býður nú í fyrsta sinn upp á sjúkraliðanám sem er sniðið sérstaklega að þörfum fólks sem stundar vinnu með skóla.
Rúmlega tugur nemenda er á biðlista eftir skólavist, flestir þeirra hafa sótt um nám á sjúkraliðabraut þar sem umsækjendur eru fleiri en skólinn getur tekið við.21. ágúst: Breytingar á starfsliði
Á fyrsta starfsmannafundi skólaársins, sem haldinn var í morgun, gerði skólameistari grein fyrir eftirtöldum breytingum á starfsliði skólans:
- Þórólfur Ævar Sigurðsson íþróttakennari lét af störfum við skólann í vor. Í hans stað hefur Helgi Magnússon verið ráðinn til að kenna Íþróttir.
- Harpa Hreinsdóttir íslenskukennari verður í námsleyfi í vetur. Í stað hennar hefur Inga Sigurðardóttir verið ráðin til að kenna íslensku.
- Steingrímur Benediktsson hefur verið ráðinn í fullt starf við kennslu í raungreinum og tölvugreinum.
- Gísli Björnsson hefur verið ráðinn í fullt starf við kennslu í húsasmíði.
- Jónína Halla Víglundsdóttir hefur verið ráðinn í hlutastarf við kennslu í næringarfræði.
- Gísli Þráinsson hefur verið ráðinn í hlutastarf við kennslu í húsasmíði.
- Edda Einarsdóttir hefur verið ráðin í hlutastarf við kennslu á starfsbraut en á síðasta skólaári starfaði Edda á skrifstofu skólans.
- Á haustönn verður kennari frá Þýskalandi sem heitir Antonia Jung gestkomandi við skólann. Hún mun aðstoða við þýskukennslu.
- Rúna Björk Gísladóttir kemur aftur til starfa á skrifstofu eftir barneignarleyfi.
- Kristbjörg Kjerúlf kemur aftur til starfa við ræstingar eftir ársleyfi.
21. ágúst: Aukin umsvif í bygginga- og mannvirkjagreinum
Þótt skólinn verði ekki settur fyrr en miðvikudaginn 23. ágúst hófst kennsla fyrir „öldunga“ í húsasmíði föstudaginn 18. ágúst. Þá mættu nemendur sem nýta sér dreifnám og helgarkennslu á verkstæði skólans og byrjuðu á aðalverkefni vetrarins, sem er smíði sumarhúss.
Undanfarin misseri hefur verið vaxandi aðsókn að námi í húsasmíði. Nú á haustönn verða 17 nemendur á öðru ári, þar af 8 sem stunda reglulegt nám í dagskóla og 9 eldri nemar sem stunda námið meðfram vinnu í byggingaiðnaði og fá mestan hluta af kennslu í verklegum greinum utan hefðbundins vinnutíma. Auk þeirra 9 eldri nema sem byrjuðu í fyrra og stunda nám með þessum hætti á öðru ári byrja nú 9 „öldungar“ á fyrsta ári í húsasmíði.
Vegna aukinnar kennslu í deildinni hefur verið ráðinn nýr húsasmíðameistari í fullt starf við kennslu. Hann heitir Gísli Björnsson og mun starfa við hlið meistaranna sem fyrir voru, Sigurgeirs Sveinssonar og Steins Helgasonar.
Undirstöður sumarhússins lagðar í réttar skorður.21. ágúst: Fulltrúar kennara í skólanefnd og skólaráði
Á kennarafundi í morgun var Sigurgeir Sveinsson endurkjörinn áheyrnarfulltrúi kennara í skólanefnd og Guðrún Jóna Gunnarsdóttir var endurkjörin varamaður hans. Í skólaráð var Þröstur Þór Ólafsson kjörinn til tveggja ára. Fyrir var Halla I. Guðmundsdóttir sem var kjörin í skólaráð til tveggja ára haustið 2005.21. ágúst: Fulltrúi kennara í fulltrúaráði
Á kennarafundi í morgun var Jón Gunnar Axelsson kjörinn fulltrú kennara í fulltrúaráð skólans og til vara Helgi Magnússon. Fulltrúaráð er samráðsvettvangur skólans og sveitarfélaganna sem eiga aðild að samningi um hann.
Þann 6. febrúar 1987 gerðu 32 sveitarfélög á Vesturlandi og menntamálaráðuneytið samning um að reka öflugan framhaldsskóla og bæta þannig aðstöðu Vestlendinga til að afla sér menntunar. Við þetta tækifæri, þegar skólinn var 10 ára, var nafni hans breytt úr „Fjölbrautaskólinn á Akranesi“ í „Fjölbrautaskóli Vesturlands.“
Síðan sveitarfélög í fjórðungnum undirrituðu fyrst samning um Fjölbrautaskóla Vesturlands hafa nokkur þeirra sameinast og sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi hafið samstarf um rekstur framhaldsskóla í Grundarfirði. Nú, um mitt ár 2006, eru sveitarfélögin sem eiga aðild að samningi um skólann sex talsins: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Skorradalshreppur.16. ágúst: Endurbætur á húsnæði og tölvukerfi
Í sumar hefur verið unnið að ýmsum endurbótum og lagfæringum á húsnæði skólans og nú er nær lokið við að þrífa allt hátt og lágt og bóna gólfin, enda ekki vanþörf á því þeim miklu framkvæmdum sem staðið hafa undanfarin ár fylgdi steinryk og önnur óhreinindi sem dreifðust um skólahúsið. Frágangi á nýbyggingu innanhúss og lagfæringum á eldra kennsluhúsnæði er að mestu lokið. Enn er unnið að frágangi utanhúss og undafarnar vikur hafa menn frá Skóflunni hf. undirbúið malbikun á bílastæðum.
Gömlu efnafræðistofurnar (B201 og B202) hafa verið lagaðar og þar verða sérgreinar sjúkraliðabrautar. Starfsbrautin hefur fengið rýmri aðstöðu í B104 og þýskan sem þar var er flutt í C103. Innréttaðar hafa verið tvær skrifstofur þar sem áður var aðsetur kerfisstjóra og fær nemendafélagið aðra þeirra til umráða. Nýtt aðsetur fyrir kerfisstjóra hefur verið innréttað við hliðina á skrifstofu húsvarðar þar sem áður var geymsla. Geymslurými í kjallara nýbyggingar hefur verið tekið í notkun.
Miklar lagfæringar hafa verið gerðar á tölvulögnum og tengibúnaði í herbergi sem hýsir netþjóna og hefur Eiríkur Guðmundsson annast þá vinnu. Myndin hér að neðan til vinstri sýnir hvernig umhorfs var í herberginu áður en Eiríkur hófst handa og sú til hægri var tekin í dag. Innfelldu myndirnar sýna inn í lagnaskáp. Sá gamli var lítill og svo yfirfullur að ekki var hægt að loka honum en sá nýi er stór og rúmgóður. Loftræstibúnaður fyrir tölvumistöðina er í smíðum og verður settur upp fljótlega.
![]()
14. ágúst: Upphaf haustannar 2006
Skólinn verður settur miðvikudaginn 23. ágúst klukkan 10. Ætlast er til að nýnemar mæti á skólasetningu. Nemendur sem hafa verið í skólanum áður geta sótt stundatöflur sínar milli klukkan 13 og 16. miðvikudaginn 23. ágúst. Kennsla samkvæmt stundatöflu hefst fimmtudaginn 24. ágúst klukkan 8:30.
Miðannarfrí verður föstudaginn 27. október og mánudaginn 30. október.14. ágúst: Ferðir skólabíls
Skólabíll fyrir nýnema og aðra sem ætla að koma á skólasetninguna fer frá Borgarnesi miðvikudaginn 23. ágúst kl. 9:15 og til baka kl. 14. Skólabíll fyrir eldri nemendur fer frá Borgarnesi miðvikudaginn 23. ágúst kl. 12:15 og til baka kl. 15:30. Reglulegur skólaakstur frá Borgarnesi hefst fimmtudaginn 24. ágúst kl. 7:45.14. ágúst: Breytt stundatafla
Á næstu önn verður kennt eftir öðru vísi stundatöflu en hingað til því dagleg kennsla hefst klukkan 8:30 en ekki klukkan 8:00. Kennt verður í þrisvar sinnum eina klukkustund fram að hádegi og hádegishlé verður frá 11:50 til 12:25.3. ágúst: Sjötta útgáfa skólanámskrár
Sjötta útgáfa skólanámskrár er komin á vefinn. Helstu breytingar frá 5. útgáfu eru: Nýr markmiðskafli; breyting á reglum um skráningu fjarvista, viðurlög við þeim og einkunn fyrir skólasókn sem og reglum um niðurfellingu fjarvista af öðrum ástæðum en veikindum. Brautalýsingum í rafiðngreinum hefur verið breytt til samræmis við breytingu á aðalnámskrá; Fjórðu bóknámsbrautinni, viðskipta- og hagfræðibraut, verið bætt við, en maí á þessu ári samþykkti Alþingi breytingu á lögum um framhaldsskóla (nr. 80 frá 1996) sem heimilar skólum að bjóða upp á viðskipta- og hagfræðibraut til stúdentsprófs; Fáeinar villur hafa verið leiðréttar og lista yfir sveitarfélög sem aðild eiga að samningi um skólann verið breytt þar sem sveitarfélög hafa sameinast.
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007