Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
skólaárið 2005-2006
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
26. júní: Sjötta útgáfa skólanámskrár
Sjötta útgáfa skólanámskrár er komin á vefinn. Helstu breytingar frá 5. útgáfu eru nýr markmiđskafli, breyting á reglum um skráningu fjarvista, viđurlög viđ ţeim og einkunn fyrir skólasókn sem og reglum um niđurfellingu fjarvista af öđrum ástćđum en veikindum. Til viđbótar viđ ţessar breytingar hafa fáeinar villur veriđ leiđréttar og lista yfir sveitarfélög sem ađild eiga ađ samningi um skólann veriđ breytt ţar sem sveitarfélög hafa sameinast.
Þann 4. maí á þessu ári samþykkti Alþingi breytingu á lögum um framhaldsskóla (nr. 80 frá 1996). Breytingin heimilar skólum að bjóða upp á hagfræðibraut til stúdentsprófs. Ákveðið hefur verið að Fjölbrautaskóli Vesturlands nýti sér þessa heimild og frá og með haustönn 2006 verði bóknámsbrautir við skólann fjórar: félagsfræðabraut, hagfræðibraut, náttúrufræðabraut og málabraut. Brautarlýsing fyrir hagfræðibraut er ekki kominn inn í aðalnámskrá ráðuneytisins og þar með ekki heldur í skólanámskrá. Brautarlýsingu fyrir hagfræðibraut verður bætt við skólanámskrána þegar ljóst verður hvernig hún mun skilgreind í aðalnámskrá.
Þegar þetta er ritað hefur menntamálaráðuneytið kunngert að ný aðalnámskrá í rafiðnagreinum taki gildi fyrir upphaf skólaársins 2006 til 2007. Nýjar brauta- og áfangalýsingar í rafiðngreinum verða settar í skólanámskrá þegar ný aðalnámskrá verður gefin út af menntamálaráðuneytinu.22. júní: Verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar
Síðan 1995 hefur Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti árlega veitt einum útskriftarnema frá Fjölbrautaskóla Vesturlands peningaverðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Verðlaunin hafa jafnan verið veitt við skólaslit að vori. Þegar skólanum var slitið þann 20. maí síðastliðinn var ekki ljóst hvernig verðlaunasjóðnum yrðir varið eftir andlát Guðmundar, en hann lést 23. febrúar á þessu ári, því var afhendingu verðlaunanna frestað þangað til í dag þegar þau voru afhent Sigurði Jónssyni sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut nú í vor.
Hörður Ó. Helgason skólameistari afhendir Sigurði Jónssyni
verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar21. júní: Fundur í fulltrúaráði
Í dag, 21. júní, var haldinn fundur í fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands en í því eiga sæti fulltrúar allra sveitarfélaga sem standa að skólanum. Á fundinum var farið yfir skólastarfið á vorönn 2006, innritun fyrir haustönn, endurskoðun á samningi sveitarfélaganna um skólann og byggingaframkvæmdir, bæði þær sem nýlokið er og þær sem framundan eru.
Þegar Fjölbrautaskólinn á Akranesi breyttist í Fjölbrautaskóla Vesturlands árið 1987 gerðu 32 sveitarfélög á Vesturlandi og menntamálaráðuneytið samning um rekstur hans. Síðan sveitarfélögin í fjórðungnum tóku sig saman um rekstur skólans hafa nokkur þeirra sameinast og sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi hafið samstarf um rekstur framhaldsskóla í Grundarfirði. Nú eru sveitarfélögin sem eiga aðild að samningi um Fjölbrautaskóla Vesturlands aðeins sex talsins. Þau eru: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Skorradalshreppur.19. júní: Einkunnir nýnema á samræmdum prófum
Af nýnemum sem skráðir eru í skólann tóku 159 samræmd próf í íslensku og stærðfræði við lok tíunda bekkjar nú í vor. Meðaleinkunn þeirra á samræmdu próf í stærðfræði var 5,3 og í íslensku 6,2. Meðaleinkunnir allra nemenda í kjördæminu sem tóku samræmd próf í stærðfræði og íslensku nú í vor voru 5,2 og 6,3.
Við lok tíunda bekkjar eru haldin samræmd próf í sex námsgreinum. Meðaleinkunn á öllum samræmdum prófum hjá nýnemum við Fjölbrautaskóla Vesturlands sem fæddir eru 1990 er sú sama og meðaleinkunn alls árgangsins í Norðvesturkjördæmi eða 5,8.16. júní: Húsasmíðanám með vinnu á haustönn 2006
Ef næg þátttaka fæst verður boðið upp á kennslu á námsbraut í húsasmíði fyrir þá sem vilja stunda námið samhliða vinnu. Um er að ræða áfangana TRÉ109I og VTS1036, sem eru fyrstu verklegu áfangarnir á brautinni. Gert er ráð fyrir að kennslan hefjist í ágúst. Upplýsingar eru veittar í símum 864 1711 og 821 2436 til 30. júní.15. júní: Fundur í skólanefnd
Í dag, 15. júní, var haldinn fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum var farið yfir skólastarf á vorönn 2006, innritun nemenda fyrir haustönn, kennararáðningar, breytingar á skólanámskrá, stöðu byggingaframkvæmda og áform um byggingu nýs kennsluhúsnæðis fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar. Samþykkt var breyting á gjaldskrá skólans.14. júní 2006: Innritun fyrir haustönn 2006
Umsóknarfrestur um nám á haustönn 2006 rann út að kvöldi mánudagsins 12. maí. Nú er lokið við að innrita alla umsækjendur. Þó geta nokkrir átt eftir að bætast við því rúmlega 40 nemendur sóttu um Fjölbrautaskóla Vesturlands sem varaskóla og sumir þeirra hafa enn ekki verið skráðir í þann skóla sem þeir settu í fyrsta sæti.
Alls eru 630 nemendur skráðir til náms á haustönn. Piltar eru 323 og stúlkur 307.
Nýnemar eru 186, þar af 155 sem luku grunnskóla nú í vor. Til samanburðar má geta þess að í júní á síðasta barst skólanum 141 umsókn frá nemendum sem voru nýútskrifaðir úr grunnskóla og sambærileg tala frá júní 2004 er 156.
Flestir nýnemanna eru á almennri námsbraut eða 60 og næstflestir á náttúrufræðibraut eða 36. Í þriðja sæti er svo félagsfræðabrautin með 25 nýnema.06. júní: Breytingar á stundatöflu
Á næstu önn verður kennt eftir öðru vísi stundatöflu en hingað til því dagleg kennsla hefst þá klukkan 8:30 en ekki klukkan 8:00. Kennt verður í þrisvar sinnum eina klukkustund fram að hádegi og hádegishlé verður frá 11:50 til 12:25.06. júní: Bráðabirgðahúsnæði fjarlægt
Á árunum kringum 1980 var sett upp bráðbirgðahúsnæði í fjórum skúrum Vallholtsmegin á lóð Fjölbrautaskólans. Með viðbyggingu sem byrjað var á 2004 og lokið við nú í vetur urðu skúrarnir óþarfir og var sá síðasti seldur nú í vor og fjarlægður af skólalóðinni föstudaginn 2. júní. Þar sem skúrarnir voru verða sett bílastæði og mun vinna við þau hefjast innan skamms.
30. maí: Útskrift af almennri braut og úr grunnnámi
Til viðbótar við þá 66 nemendur sem brautskráðir voru frá skólanum þann 20. maí luku 24 nemendur almennri námsbraut, 3 grunnnámi rafiðna og 1 grunnnámi málmiðna nú í lok vorannar. Að auki var 1 nemandi brautskráður af námsbraut í rafsuðu skömmu fyrir annarlok. Á vorönn 2006 hafa því alls 95 nemendur útskrifast frá skólanum, þar af eru 24 skráðir í áframhaldandi nám næsta haust.30. maí: Gögn um mat á starfi skólans
Ný matsgögn liggja nú frammi á innramatsvef skólans. Þessi gögn eru: Samantekt um mat á þjónustu skrifstofu, bóksafns, heimavistar, mötuneytis, tölvukerfis; Tölfræðilegt yfirlit yfir námsárangur, skólasókn og nemendafjölda á vorönn 2006; Tölfræðilegt yfirlit yfir nýtingu á kennslu og brottfall á vorönn 2006; Niðurstöður könnunar meðal útskriftarnema sem lögð er fyrir í lok hverrar annar.29. maí: Hollandsferð starfsfólks (Myndir ...)
Dagana 21. til 25. maí var hópur starfsmanna skólans á ferð í Hollandi. Hópurinn heimsótti framhaldsskólann St. Canisius sem er staðsettur í Almelo og Tubbergen en þeir bæir eru rúmlega 100 km austan við Amsterdam. Leiðsögumaður okkar í skólaheimsóknunum var Govert Werther sem er mörgum íslenskum skólamönnum að góðu kunnur því hann hefur alloft komið hingað í heimsóknir með hollenska nemendur, kennara og skólastjóra.
Í St. Canisius skólunum fékk hópurinn margháttaða fræðslu um hollenska framhaldsskóla og spjallaði við nemendur, kennara og stjórnendur.20. maí: Brautskráning og skólaslit (Myndir ...)
Í dag, laugardag 20. maí 2006, var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 66 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Taflan sýnir hvernig þessir 66 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
Piltar Stúlkur Alls Stúdentspróf 10 24 34 Burtfararpróf af iðnbraut 17 0 17 Stúdentspróf og burtfararpróf af iðnbraut 3 0 3 Burtfararpróf af sjúkraliðabraut 0 9 9 Stúdentspróf og burtfararpróf afsjúkraliðabraut 0 2 2 Ársnám sem skiptinemi 1 0 1 Alls 31 35 66Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2006. Bergþóra Þorgeirsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Watchsun Sookhawatako flutti ávarp skiptinema.
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir söng við undirleik Sigurðar Bachmann. Watchsun Sookhawatako og Birna Björk Sigurgeirsdóttir léku á flygil. Fyrir athöfnina léku Patrycja Szalkowicz, Katrín Björk Þórhallsdóttir og Hildur Rúnarsdóttir á hljóðfæri.
Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri á Akranesi, Hólmfríður Sveinsdóttir fulltrúi Borgarbyggðar og Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit afhentu námsstyrk Akranesskaupstaðar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Styrkinn hlutu Sólveig Rós Jóhannsdóttir sem lauk stúdentsprófi af félagsfræðabraut og Sverrir Þór Guðmundsson sem lauk burtfararprófi af námsbraut í vélvirkjun.
Forvarnahópur nemenda fékk framlag úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur eða störf að félagsmálum. Nafn þess sem gefur verðlaunin eru innan sviga.
- Adolf Hannesson hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í byggingagreinum (Verkalýðsfélag Akraness).
- Birna Katrín Hallsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í sérgreinum á sjúkraliðabraut (Sparisjóður Mýrasýslu).
- Guðrún Einarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í sérgreinum á sjúkraliðabraut (Glitnir á Akranesi).
- Hjördís Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í sérgreinum á sjúkraliðabraut (Landsbankinn á Akranesi).
- Ingi Björgvin Sveinsson hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í iðnteikningu (Landsskrifstofa Leonardó).
- Sigurður Jónsson hlaut viðurkenningar fyrir ágætan árangur í dönsku (Danska sendiráðið), ensku (Sparisjóðurinn á Akranesi) og náttúrufræðigreinum (KB-banki á Akranesi).
- Sólveig Rós Jóhannsdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2006. Einnig hlaut hún viðurkenningar fyrir ágætan árangur í þýsku (Þýska sendiráðið), sálfræði og uppeldisfræði (Edda útgáfa) og íslensku (Edda útgáfa).
- Stefán Halldór Jónsson hlaut viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum (Rótarýklúbbur Akraness).
- Sverrir Þór Guðmundsson hlaut hlaut viðurkenningar fyrir ágætan árangur í verklegum greinum (Katla Hallsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir) og fyrir ágætan árangur í málmiðngreinum (Félag iðn- og tæknigreina).
- Valur Oddgeir Bjarnason hlaut viðurkenningar fyrir ágætan árangur í stærðfræði (Hið íslenska stærðfræðafélag) og náttúrufræðigreinum (Norðurál).
- Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Þórhildur Halla Jónsdóttir hlaut viðurkenningar fyrir ágætan árangur í sögu og heimspeki (Edda útgáfa) og í ensku og frönsku (Kanadíska sendiráðið).
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.
17. maí: Frambjóðendur í heimsókn
Í gær, þriðjudag 16. maí, heimsóttu fjórir efstu menn á lista Vinstri-Grænna fyrir bæjarstjórnarkosningar 2006 á Akranesi skólann ásamt Alþingismönnunum Jóni Bjarnasyni og Ögmundi Jónassyni. Gestirnir spjölluðu við skólastjórnendur og kynntu sér starfsemi skólans.
Tveir frambjóðendanna, Sigurður Mikael Jónsson og Hjördís Garðarsdóttir stunduðu hér nám fyrir ekki mjög löngu síðan, en Hjördís lauk stúdentsprófi í desember 2000 og Sigurður í maí 2004. Myndin er tekin af þeim þar sem þau virða fyrir sér breytingar á húsnæði skólans
11. maí: Ný aðalstjórn í nemendafélaginu
Nemendafélagið hefur kjörið aðalstjórn fyrir skólaárið 2006 til 2007. Kosningu hlutu Þór Birgisson formaður, Rúnar Ólason gjaldkeri, Ragnheiður Friðriksdóttir ritari og Steinunn Eik Egilsdóttir meðstjórnandi. Ritstjóri skólavefjar óskar nýkjörinni stjórn til hamingju.10. maí: Brottfall á vorönn 2006
Teknar hafa verið saman tölur um brottfall nemenda á vorönn 2006. Frá því töflubreytingum lauk og þar til próf byrjuðu hætti 31 nemandi í skólanum og til viðbótar skráði 51 nemandi sig úr einstökum áföngum. Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urðu til þess að námshópar minnkuðu að meðaltali um 7,6%. Þetta brottfall er með mesta móti og til samanburðar nefna að á vorönn 2005 var það 6,5% og á vorönn 2004 aðeins 5,3%.8. maí: Hagfræðibraut
Þann 4. maí samþykkti Alþingi breytingu á lögum um framhaldsskóla (nr. 80 frá 1996). Breytingin heimilar skólum að bjóða upp á hagfræðibraut til stúdentsprófs. Ákveðið hefur verið að Fjölbrautaskóli Vesturlands nýti sér þessa heimild og frá og með haustönn 2006 verði bóknámsbrautir við skólann fjórar: félagsfræðabraut, hagfræðibraut, náttúrufræðabraut og málabraut.8. maí: Hætt við samræmd stúdentspróf
Með breytingu á lögum um framhaldsskóla (nr. 80 frá 1996) sem Alþingi samþykkti þann 4. maí eru felld úr lögunum ákvæði þess efnis að halda skuli samræmd stúdentspróf.8. maí: Réttindanám fyrir sjúkraliða
Næsta haust verður nýr hópur tekinn inn á sjúkraliðabraut við Fjölbrautaskóla Vesturlands ef næg þátttaka fæst. Áformað er að á haustönn 2006 fari kennsla í áföngunum HJÚ103, HJV103, LÍB101, HBF103 og LOL103 fram í staðbundnum lotum og þess á milli stundi nemendur verkefnavinnu og fjarnám í samráði við kennara. Skipulag námsins verður miðað við þarfir nemenda sem búa fjarri Akranesi og stunda vinnu með skóla.
Við það er miðað að nemendur hafi annað hvort lokið a.m.k. 35 eininga námi á framhaldsskólastigi (þ.á.m. 3 einingum í hverri eftirtalinna greina: Dönsku, ensku, félagsfræði, íslensku, náttúrufræði, stærðfræði) eða aflað sér verulegrar starfsreynslu á sjúkrastofnun eða dvalarheimili.
Nemendur sem eru orðnir 23 ára, hafa starfað í 5 ár eða lengur við umönnun sjúkra og hafa meðmæli frá vinnuveitanda eiga þess kost að fá starfsreynslu metna sem hluta af námi á sjúkraliðabraut. Upplýsingar eru veittar í síma 433-2500.2. maí: Dimisjón
Föstudaginn 28. apríl héldu nemendur sem útskrifast frá skólanum í vor dimisjón og mættu í skólann klæddir sem fangar og lögregluþjónar. Í löngu frímínútunum klukkan 10:05 buðu þeir starfsfólki skólans í morgunkaffi. Að vanda var svo skemmtun á sal klukkan 11.30 þar sem nemendur léku ýmsa atburði úr skólalífinu. Eftir hádegi fór hópurinn í óvissuferð og um kvöldið bauð hann kennurum til teitis á Café Mörk. Á myndinni sjást útskriftarlöggur taka félaga sína í karphúsið. (Fleiri myndir eru hér ...)
26. apríl: Vinnustaðasamningar um kaup og kjör
Í dag undirrituðu fulltrúar kennarafélags skólans og skólastjórnendur samning um launakjör kennara. Samningurinn er gerður í samræmi við ákvæði í 11. kafla samkomulags fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Kennarasambands Íslands sem undirritað var 18. mars 2005. Hann gildir frá 1. maí til 31. desember 2006 og felur í sér um það bil 4,8% hækkun á kostnaði vegna launa fyrir kennslu og kennslutengd störf. Auk þess sem skólinn hefur samið við kennara hefur verið undirritaður samningur við starfsmenn í SFR.18. apríl: Heimsókn skiptinema
Skiptinemar setja jafnan nokkurn svip á skólalífið hér við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á yfirstandandi skólaári er hér t.d. einn piltur frá Taílandi og undanfarin ár hafa skipinemar verið frá ýmsum löndum Ameríku og Asíu. Skólaárið 1998 til 1999 var hér til dæmis stúlka frá Venesúela sem heitir Barbara Sanches. Nú rétt fyrir páska kom hún í heimsókn og heilsaði upp á nokkra af kennurum sínum frá því fyrir sjö árum síðan og þá var myndin hér fyrir neðan tekin.
10. apríl: Sigur í söngvakeppni
Laugardagskvöldin 8. apríl var söngvakeppni framhaldsskólanna sýnd í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. Sigurvegari keppninnar er Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir sem stundar nám á félagsfræðabraut hér við skólann. Hún flutti lagið Ruby Tuesday.
Ritstjóri skólavefjar óskar Helgu til hamingju með sigurinn.5. apríl: Námskeið starfsfólks
Eftir hádegi í gær var kennsla felld niður og skrifstofu skólans lokað frá klukkan 13 því starfsfólk var á námskeiði. Kennari á námskeiðinu var Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun ehf. og efni þess var samstarf og samskipti á vinnustað. Þetta var framhald af hálfsdags lotu sem Eyþór hafði með starfsfólki skólans þann 25. janúar.3. apríl: Forvarnavika
Nú á vorönn 2006 er unnið að forvörnum meðal nemenda skólans eins og gert verið hefur um árabil. Starfið miðar að því að vinna gegn óhollum lífsháttum og skaðlegri hegðun. Það er skipulagt af forvarnahópi nemenda í samvinnu við Steinunni Evu Þórðardóttur sem er forvarnafulltrúi skólans.
Síðasta vika var forvarnavika í samvinnu nemendafélags fjölbrautaskólans félagsheimila, tómstundahúss og unglingadeilda grunnskólanna á Akranesi og í Borganesi. Hluti af dagskrá forvarnavikunnar var að á fimmtudag hlýddu nemendur fjölbrautaskólans á tvo fyrirlestra. Þann fyrri flutti Dagbjört Ásbjörnsdóttir mannfræðingur. Hún fjallaði m.a. um kynlíf ungs fólks, sjálfsmynd og væntingar. Þann seinni flutti Sigurlaug Hauksdóttir félagsráðgjafi sem kom á vegum Landlæknis og ræddi um kynsjúkdóma, útbreiðslu þeirra bæði hér og á heimsvísu og hvernig ætti að varast smit.
Auk þessara fyrirlestra var nemendum boðið upp á hollar og mannbætandi skemmtanir á vegum nemendafélagsins. Á miðvikudaginn voru tónleikar í bíóhöllinni þar sem fram komu hljómsveitir úr fjölbrautaskólanum og grunnskólunum á Akranesi. Á fimmtudaginn var kaffihúsakvöld og að kvöldi föstudagsins var sundlaugarpartí í Jaðarsbakkalaug.28. mars: Fundur um stöðu iðngreina
Í gærkvöldi var haldinn fundur á sal skólans. Umræðuefnið var kennsla í bygginga-, rafiðna- og málmiðnagreinum. Til fundarins var boðið fulltrúum fyrirtækja og stéttarfélaga í þessum greinum auk deildarstjóra og kennara á iðnbrautum skólans. Fulltrúar frá 11 fyrirtækjum mættu auk fulltrúa frá Félagi iðn og tæknigreina.
Tilefni þess að skólameistari kallaði þetta fólk saman er að aðsókn nemenda að raf- og málmiðnadeildum skólans hefur minnkað. Síðasta haust byrjaði einfaldur hópur í grunnnámi í þessum deildum og var það annað árið í röð sem grunndeild rafiðna hefur einfaldan byrjendahóp. Einfaldur hópur er 12 nemendur og fram undir þetta hafa jafnan byrjað tveir hópar (eða um 24 nemendur) í hvorri þessara deilda. Í byggingagreinum hefur hins vegar oftast verið einföld grunndeild og aðsókn henni hefur heldur aukist undanfarin ár.
Fundarmenn skiptust á skoðunum og ræddu stöðu iðngreina við skólann. Í lok fundar voru fjórir fulltrúar atvinnulífsins valdir í starfshóp sem mun verða skólanum til ráðuneytis um kynningu á iðnnámi og leiðir til að auka aðsókn að því.27. mars: Gestir frá Nice
Fyrir viku síðan komu hingað í heimsókn 3 nemendur og 3 kennarar úr framhaldsskóla Í Nice í Frakklandi sem kallast Lycée Professionnel Régional du Bâtiment. Nemendurnir stunda nám í orkumálum og þeir dvelja eina viku við störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur, eina viku við Búrfellsvirkjun og í eina viku munu þeir kynna sér notkun vetnis sem orkugjafa.
Ferðin er kostuð af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og móttöku gestanna annast Kristján G. Guðmundsson sem hefur umsjón með samskiptum skólans við erlendar menntastofnanir.
Myndin sýnir nemendurna ásamt Kristjáni og tveim af frönsku kennurunum við Deildartunguhver.
18. mars: Úrslit í stærðfræðikeppni fyrir nemendur í 8., 9.og 10. b. grunnskóla (Myndir ...)
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla var haldin við Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 22. febrúar. Keppnin er upprunnin við Flensborgarskóla í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Sams konar keppni var haldin samtímis við níu framhaldsskóla: Flensborgarskóla, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Fjölbrautaskólann í Garðabæ, Menntaskólann á Akureyri, Menntaskólann við Sund, Menntaskólann í Kópavogi og Menntaskólann í Reykjvík og hafa þátttökuskólar aldrei verið fleiri.
Samtals 175 nemendur tóku þátt í keppninni sem haldin var hér á Akranesi. 74 eru í 8. bekk; 44 í 9. bekk; 57 í 10. bekk.
Mikil forföll voru í þetta sinn t.d. komust 50 keppendur úr Grundarfirði og Stykkishólmi ekki vegna óveðurs, (277 höfðu boðað þátttöku sína). Flestir þátttakenda komu úr Brekkubæjarskóla (34), Varmalandsskóla (28), Grunnskólanum í Borgarnesi (24), Grundaskóla (20), Grunnskólanum í Búðardal (20), Grunnskólanum í Hólmavík (13) og Laugargerðisskóla (11). Úr öðrum skólum voru færri en 10.
Í dag, laugardaginn 18. mars var 10 efstu nemendum í hverjum árgangi boðið til athafnar á sal skólans þar sem þeim voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í keppninni. Að þessu sinni vildi svo til að tveir eða fleiri voru jafnir að stigum í hverjum bekk svo 11 nemendur úr hverjum árgangi voru í 10 efstu sætum. Eins og undanfarin ár voru þeim þrem efstu í hverjum árgangi veitt peningaverðlaun: 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti; 10.000 kr. fyrir annað sæti; 5.000 kr. fyrir það þriðja.
Peningar til að greiða verðlaun og annan kostnað við keppnina eru gefnir af fyrirtækjum á Vesturlandi. Að þessu sinni bauð Landsbanki Íslands á Akranesi keppendum pizzu og gos að keppni lokinni. Aðrir styrktaraðilar eru: Norðurál hf. Grundartanga, Loftorka ehf. Borgarnesi, Íslenska járnblendifélagið hf. Grundartanga, Akraneskaupstaður, Kaupfélag Borgfirðinga, GT Tækni ehf. Grundartanga og Mjólkursamlagið Búðardal.
Hér á eftir eru taldir upp þeir sem voru í 10 efstu sætum í hverjum árgangi:8. bekkur
1. Sigurður Trausti Karvelsson, Grundaskóla
2. Guðrún Ingadóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
3. Jóhanna Stefánsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-11. Aðalbjörg Þorkelsdóttir, Brekkubæjarskóla
4.-11. Hanna Laufey Jónasdóttir, Laugargerðisskóla
4.-11. Hrefna Jónsdóttir, Reykhólaskóla
4.-11. Hrefna Karlsdóttir, Reykhólaskóla
4.-11. Jóhann Óli Eiðsson, Varmalandsskóla
4.-11. Lára Lárusdóttir, Kleppjárnsreykjaskóla
4.-11. Silja Ingólfsdóttir, Grunnskólanum á Hólmavík
4.-11. Þórdís Sif Arnarsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi9. bekkur
1. Kristinn Hlíðar Grétarsson, Grundaskóla
2. Eydís Rán Bergsteinsdóttir, Laugargerðisskóla
3. Aron Öfjörð Jóhannesson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Brynjar Sævarsson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Jón Axel Svavarsson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Jónas Bjartur Valdimarsson, Grundaskóla
4.-11. Klara Árný Harðardóttir, Brekkubæjarskóla
4.-11. Sigurður Páll Guttormsson, Laugargerðisskóla
4.-11. Þorleifur Gaukur Davíðsson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Þorleifur Halldórsson, Laugargerðisskóla
4.-11. Tinna Kristín Finnbogadóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi10. bekkur
1. Indriði Einar Reynisson, Grunnskólanum á Hólmavík
2. Ásdís Braga Guðjónsdóttir, Lýsuhólsskóla
3. Ragnar Þór Gunnarsson, Grundaskóla
4.-11. Ásbjörn Egilsson, Reykhólaskóla
4.-11. Helga Þórarinsdóttir, Brekkubæjarskóla
4.-11. Hörður Kári Harðarson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Kristjana Erla Björnsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-11. Ólafur Helgi Halldórsson, Grundaskóla
4.-11. Ragnar Harðarson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Sara Lísa Ævarsdóttir, Brekkubæjarskóla
4.-11. Sunna Dís Jensdóttir, Grundaskóla
16. mars: Guðmundur P. Bjarnason frá Sýruparti er látinn
Guðmundur P. Bjarnason frá Sýruparti lést þann 23. febrúar síðastliðin. Útför hans fór fram í kyrrþey og var hann jarðsettur í Akraneskirkjugarði 3. mars.
Guðmundur, sem var fæddur 23. febrúar 1909, starfaði lengst af sem netagerðarmaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess sem hann gerði út bátinn Bjarna Jóhannesson í félagi við bróður sinn. Hann var einn af stofnendum knattspyrnufélgsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness 1933. Hans er minnst hér í Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir sjóð sem hann gaf til að verðlauna nemendur fyrir góðan námsárangur. Verðlaun úr þeim sjóði eru veitt við skólaslit að vori. Guðmundur hefur einnig stofnað sjóði til að verðlauna góðan námsárangur í Brekkubæjarskóla og Grundarskóla og til að verðlauna efnilega útskriftarnemendur í eðlis- og efnafræði við Háskóla Íslands. Síðustu æviár sín bjó hann á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Bæ sinn, Neðri-Sýrupart, gaf hann byggðasafninu á Akranesi árið 1989.13. mars: Val fyrir haustönn 2006
Opnað hefur verið fyrir skráningu á vali í Innu. Allir nemendur sem ætla að vera í skólanum á næstu önn þurfa að velja áfanga og skrá val sitt í Innu fyrir lok skóladags 29. mars. Þeim sem ætla að skipta um námsbraut er bent á að hafa samband við áfangstjóra eða aðstoðarskólemistara áður en þeir velja áfanga. Allar upplýsingar sem nemendur þurfa að nota við námsáætlanagerð og val finnast með því að smella hér eða á krækjuna efst til hægri.8. mars: Rafvirkjanemar á ferð í Frakklandi og Mónacó
Á sunnudaginn var fóru fjórir nemendur í rafvirkjun í námsferð til Menton í Frakklandi og Mónacó ásamt kennurum sínum þeim Hafliða Páli Guðjónssyni og Hjálmi Geir Hjálmssyni. Nemendurnir munu dvelja þarna við strönd Miðjarðarhafsins í starfsþjálfun hjá fyrirtækjum í rafiðnagreinum í þrjár vikur. Kennararnir verða með þeim í eina viku. Ferðin er kostuð af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og undirbúning hennar annaðist Kristján E. Guðmundsson sem hefur umsjón með samskiptum skólans við erlendar menntastofnanir.7. mars: Árshátíð nemendafélagsins
Árshátíð nemendafélagsins var haldin fimmtudaginn 2. mars og hófst klukkan 18 á þriggja rétta máltíð frá veitingahúsinu Galito. Um það bil 235 mættu í matinn og um 400 á ballið sem haldið var seinna um kvöldið.
Meðan á borðhaldi stóð var Gísli Einarsson veislustjóri. Aðrir skemmtikraftar voru: Steinn Ármann Magnússon með uppistand; Rakel Pálsdóttir nemandi sem söng; Björn Jörundur Friðbjörnsson og Eyjólfur Kristjánsson sem voru leynigestir og sungu nokkur lög. Á ballinu sá Páll Óskar um fjörið, söng og diskaði.6. mars: Kvikmynd af opnum dögum
Upptaka af nokkrum atburðum opinna daga er komin á vefinn (6:09 mínútur í 23 MB wmv skrá). Smelltu hér til að skoða.6. mars: Söngleikurinn Vegas
Leiklistarklúbbur nemendafélagsins frumsýndi söngleikinn Vegas laugardaginn 4. mars. Húsfylli var á frumsýningunni sem tókst afar vel og ritstjóri skólavefjar, sem sat í miðjum sal, skemmti sér hið besta.
Texti söngleiksins er eftir Ólaf Sk. Þorvaldz sem jafnframt er leikstjóri en tónlistin er vel þekkt lög eftir meistara á borð við Deep Purple, Rolling Stones og Pearl Jam. Sýningar fara fram í Bíóhöllinni á Akranesi.
Miðasalan í Bíóhöllinni opnar 2 tímum fyrir sýningar. Hægt er að panta miða í síma 698-8740 og 846-6626. Næstu sýningar eru sem hér segir: Mánudaginn 6. mars kl. 20:00; Þriðjudaginn 7. mars kl 20:00; Fimmtudaginn 9.mars kl 20:00.2. mars: Samráðsfundur matshópa
Á þessu skólaári hefur hópur sjö kennara unnið með aðstoðarskólameistara að endurbótum á aðferðum við gæðamat í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Í gær komu hópar sem hafa hliðstæð verkefni við MH, MA og Flensborgarskólann í heimsókn hingað í Fjölbrautaskóla Vesturlands og hittu matshópinn hér á samráðsfundi. Auk kennara og stjórnenda úr þessum fjórum skólum komu dr. Sigurlína Davíðsdóttir og dr. Penelope Lisi á fundinn, en þær eru báðar sérfræðingar í mati á kennslu og skólastarfi og eru allmörgum skólum hér á landi til ráðuneytis um þau efni.28. feb.: Mælingar á blóðþrýstingi, sykri og kólestróli
Á opnum dögum, föstudaginn 3. mars, munu nemendur á sjúkraliðabraut bjóða upp á blóðþrýstingsmælingar og mælingar sykri og kólesteróli frá klukkan 10.30 til 13.00. Hver mæling kostar 100 krónur (sem fara upp í kostnað vegna kaupa á strimlum til mælinganna). Nemendurnir verða staðsettir á tengigangi á fyrstu hæð.28. feb.: Hætt við samræmd stúdentspróf
Menntamálaráðherra hefur tilkynnt að hætt sé við að halda samræmd stúdentspróf. Þeir sem ætla að ljúka stúdentsnámi nú í vor þurfa því ekki að skrá sig í samræmd próf.27. feb.: „Öldungadeild“ í húsasmíði
Á þessu skólaári er aðsókn að húsasmíði með meira móti. Nokkrir nemendanna sem hófu nám í greininni eru menn í fullri vinnu. Til að koma til móts við þarfir þeirra eru tveir verklegir áfangar (TRÉ109I og VTS1036) kenndir á helgarnámskeiðum nú á vorönn 2006. Á myndinni eru 8 af 9 nemendum sem nýta sér helgarkennslu í trésmíði ásamt Steini Mar Helgasyni kennara.
22. feb.: Stærðfræðikeppni
Árleg stærðfræðikeppni fyrir nemendur úr áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands í dag, miðvikudag 22. febrúar. Næstum þrjúhundruð nemendur höfðu skráð sig til keppni en vegna óveðurs á Snæfellsnesi komust keppendur úr Stykkishólmi og Grundarfirði ekki á Akranes svo þátttakendur urðu nokkru færri en gert var ráð fyrir.
Eins og undanfarin ár fá þeir tíu nemendur úr hverjum árgangi sem skila bestu lausnum viðurkenningarskjal og þeir þrír bestu úr hverjum árgangi peningaverðlaun að auki. Tilkynning um hvenær viðurkenningar verða afhentar birtist á þessum vef innan skamms.
Kostnaður við keppnina er greiddur af fyrirtækjum sem starfa á Vesturlandi. Að þessu sinni bauð Landsbanki Íslands á Akranesi keppendum pizzu og gos að keppni lokinni. Aðrir styrktaraðilar eru: Norðurál hf. Grundartanga, Loftorka ehf. Borgarnesi, Íslenska járnblendifélagið hf. Grundartanga, Akraneskaupstaður, Kaupfélag Borgfirðinga, GT Tækni ehf. Grundartanga og Mjólkursamlagið Búðardal.20. feb.: Nemendahópurinn á vorönn 2006
Áfangastjóri hefur tekið saman gögn um nemendahópinn á vorönn 2006. Þann 15. febrúar voru 530 nemendur í skólanum, þar af eiga 344 (eða 65%) lögheimili á Akranesi, 153 (eða 29%) á öðrum stöðum á Vesturlandi og 33 (eða 6%) utan Vesturlands.
Kynjaskipting er nokkuð jöfn þar sem 271 nemandi (eða 51%) er piltur að karl og 259 (eða 49%) eru stúlkur eða konur.
Af nemendum eru 406 (eða 77%) sem eru fæddir 1986 eða seinna og luku því grunnskóla fyrir minna en fjórum árum. Nemendur sem fæddir eru 1985 eða fyrr eru 124 (eða 23%).
Nemendur skiptast þannig á námsbrautir að 270 (eða 51%) eru á stúdentsbrautum; 106 (eða 20%) eru á iðnbrautum; 56 (eða 11%) eru á öðrum starfsmenntabrautum eða á listnámsbraut; 91 (eða 17%) er á almennri námsbraut; 7 (eða 1%) eru á starfsbraut fyrir fatlaða.
Kynjaskipting er nokkuð misjöfn eftir námsbrautum þar sem 64% nemenda á bóknámsbrautum eru konur eða stúlkur og 96% nemenda á iðnbrautum eru piltar eða karlar.15. feb.: Samantekt um stærðfræðinám útskrifaðra stúdenta
Tekin hafa verið saman gögn um hvað stúdentar sem útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á árabilinu 2000 til 2005 luku mörgum einingum í stærðfræði. Á fyrsta árinu (2000) útskrifuðust nemendur sem fylgt höfðu eldri námskrá. Á því síðasta (2005) fylgdu allir nýju námskránni. Á árabilinu þar á milli fóru sumir eftir eldri námskrá en vaxandi hlutfall eftir þeirri nýju.
Með nýrri námskrá sem byrjað var að kenna eftir á haustönn 2000 fækkaði einingum í stærðfræði á brautarkjarna bóknámsbrauta nokkuð (t.d. úr 15 í 6 á félagsfræðibraut og úr 21 í 15 á náttúrufræðibraut). Á móti kom að nemendur á bóknámsbrautum gátu valið að taka stærðfræði sem hluta af kjörsviði. Um leið og skyldunám í stærðfræði var minnkað var nemendum þannig gefinn kostur á að taka enn meiri stærðfræði en áður.
Eins og myndin hér að neðan sýnir hefur breytingin á námskránni haft þau áhrif að meðalfjöldi eininga í stærðfræði hjá útskrifuðum stúdentum hefur lækkað úr 18 í 13. Nemendur á raungreinabrautum útskrifast þó með jafnmargar einingar í stærðfræði nú og áður, þ.e. 23 einingar að meðaltali. (Raungreinabrautir fyrir námskrárbreytingu voru eðlisfræðibraut og náttúrufræðibraut en eftir breytingu er náttúrufræðibraut eina raungreinabrautin.)
8. feb.: Skautaferð nemenda í ÍÞR3U1
Nú á vorönn 2006 er í fyrsta sinn kenndur nýr íþróttáfangi sem kallast útivist. Nemendur í þessum áfanga fóru saman á skauta í Egilshöllinni síðasta föstudag ásamt kennara sínum, Önnu Bjarnadóttur. Áður höfðu þeir farið á skíði og fram undan er m.a. hestaferð og fjallganga.
Nemendur í ÍÞR3U1 í skautaferðFlestir nemendur skólans taka einn íþróttaáfanga á hverri önn og til að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga er nú boðið upp á fjóra mismunandi áfanga eftir að nemendur hafa lokið fyrsta árs námsefninu í ÍÞR102 og ÍÞR202. Þetta er áfangarnir:
- ÍÞR301: hefðbundnar skólaíþróttir í íþróttasal;
- ÍÞR3J1 : jóga;
- ÍÞR3U1 : útivist;
- ÍÞR3Þ1 : þolfimi.31. jan.: Fundur í skólanefnd
Í dag var haldinn fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum kynnti Hörður Ó. Helgason skólameistari niðurstöður rekstarreiknings fyrir árið 2005 og rekstraráætlun fyrir árið 2006. Samkvæmt gögnum um tekjur og gjöld sem lögð voru fram á fundinum er rekstur skólans í jafnvægi.
Önnur gögn sem voru lögð fram og kynnt eru: 5. útgáfa skólanámskrár; Skóladagatal fyrir veturinn 2005 til 2006; Drög að skólasamningi milli skólans og menntamálaráðuneytisins fyrir árin 2006 til 2008.
Í lok fundarins voru umræður um íþróttatengt nám við skólann og möguleika sem skapast þegar lokið verður við byggingu fjölnota íþróttahúss á Jaðarsbökkum. (Sjá fundargerð ...)17. jan.: Nemendafjöldi í upphafi annar
Nú þegar frestur til að skrá sig úr áföngum og breyta stundatöflum er útrunninn eru 542 nemendur skráðir í skólann. Þetta er nákvæmlega sami nemendafjöldi og í upphafi vorannar 2005.
Að meðaltali eru nemendur í námi sem svarar til 34,64 kennslustunda í viku. Þar sem 35 kennslustundir í viku eru skilgreindar sem fullt nám eru þessir 542 nemendur ígildi 536,46 nemenda í fullu námi. (Til samaburðar má nefna að í upphafi vorannar 2005 voru nemendaígildi 552.)4. jan.: Nemendafjöldi á árinu 2005 - pláss fyrir fleiri
Á fjárlögum fyrir árið 2005 fékk skólinn framlag til að kenna allt að 540 ársnemum (þar sem ársnemi er skilgreindur sem nemandi í 35 kennslustundum í viku allt skólaárið). Alls urðu ársnemar 545. Skólinn hefur rúm fyrir talsvert fleiri og hefði getað tekið við nokkrum tugum í viðbót ef fjárveitingar hefðu fengist til að greiða fyrir meiri kennslu. Í fjárlögum fyrir árið 2006 er gert ráð fyrir 560 ársnemum svo hægt verður að taka við fleiri nemendum á þessu ári en því síðasta.4. jan.: Bætt aðstaða til kennslu í raungreinum
Nú í upphafi vorannar verða teknar í notkun tvær nýjar kennslustofur (D206 og D207) sem eru sérstaklega útbúnar til kennslu í efnafræði og eðlisfræði. Enn er unnið að frágangi á tveim kennslustofum í viðbót (D207 og D208) þar sem verður aðstaða til verklegrar kennslu í efnafræði og líffræði. (Meira ... )
Í upphafi haustannar var byrjað að kenna í nýjum kennslustofum (þ.e. stofum D201, til D205) á eftir hæð Norðurbyggingar (nýbyggingarinnar Vallholtsmegin á skólalóðinni) en unnið var að breytingum á stofum í þeim hluta eldra húsnæðis sem tengist nýbyggingunni og þar sem áður voru stofur C201 til C204 verða nú stofur D206 til D209. Þessar stofur verða nýttar til raungreinakennslu og tvær þeirra (D206 og D207) verður byrjað að nota fyrir kennslu í eðlisfræði og efnafræði í næstu viku. Í hinar tvær (D208 og D209) vantar enn innréttingar og búnað til verklegrar kennslu en úr því verður bætt á önninni. Með þessum breytingum batnar mjög aðstaða til kennslu í líffræði, efnafræði og eðlisfræði.4. jan.: Breytingar á starfsliði
Á fyrsta starfsmannafundi vorannar sem haldinn var í morgun tilkynnti skólameistari eftirtaldar breytingar á starfsliði skólans. Þröstur Þór Ólafsson verður í leyfi til vors. Í stað hans hefur Jóhann Þóroddsson verið ráðinn til að kenna málmiðnagreinar. Ráðnir hafa verið þrír stundakennarar: Anna Leif Elídóttir sem kennir á starfsbraut, Anna Lára Steindal sem kennir siðfræði á sjúkraliðabraut og Ólöf Sverrisdóttir sem kennir leiklist. Ísabella Lárusdóttir lætur af störfum í mötuneyti skólans og í stað hennar hefur Helga Guðmundsdóttir verið ráðin.4. jan.: Breytt skipan skólaráðs
Þar sem Þröstur Þór Ólafsson verður í leyfi til vors tekur varamaður hans, sem er Ólöf H. Samúelsdóttir, sæti í skólaráði. (Nánari upplýsingar á vefsíðu um stjórn skólans ...)22. des.: Skólasókn og námsárangur
Í lok annar tekur áfangstjóri saman tölur um námsárangur nemenda, skólasókn o.fl. sem varðar skólastarfið á önninni. Á haustönn 2005 voru alls 609 nemendur í skólanum. Þeir voru að meðaltali skráðir í 16,7 einingar hver og stóðust að meðaltali námskröfur í 13,4 einingum. Þetta jafngildir því að nemendur hafi að meðaltali fallið í um það bil 20% af þeim einingum sem þeir reyndu að ljúka.
Meðal þess sem jafnan er skoðað í annarlok er sambandið milli skólasóknar og námsárangurs. Niðurstaðan er alltaf sú sama, þeir sem mæta vel ná góðum árangri og þeir sem mæta illa ná litlum árangri. Línuritið hér að neðan sýnir skólasóknareinkunn á lárétta ásnum og hvað nemendur náðu stórum hluta eininga sem þeir voru skráðir í á haustönn 2005 á lóðrétta ásnum. Þeir sem fengu einkunnina 1 fyrir skólasókn náðu að meðaltali 42% eininga og féllu í 58% eininga sem þeir voru innritaðir í á önninni. Námsárangur batnar svo með aukinni skólasókn og þeir sem náðu 10 í skólasóknareinkunn stóðust að meðaltali námskröfur í 97% eininga og féllu að meðaltali í 3%. (Skýringar á hvernig skólasóknareinkunn er reiknuð eru í skólasóknarreglum sem liggja hér frammi.)
Myndin sýnir tengsl námsárangurs og skólasóknar
við Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 200521. des.: Brautskráning (Myndir frá athöfninni ...)
Í dag, 21. desember, voru 45 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Taflan sýnir hvernig þessir 45 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
Piltar/Karlar
Stúlkur/Konur
Alls
Stúdentspróf af félagsfræðabraut
4
11
15
Stúdentspróf af náttúrufræðibraut
6
5
11
Stúdentspróf eftir iðnnám
3
0
3
Burtfararpróf í húsasmíði
5
0
5
Burtfararpróf í rafvirkjun
9
1
10
Verslunarpróf af viðskiptabraut
0
1
1
Alls
27
18
45
Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 14. Fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoðarskólameistari annál haustannar 2005. Fyrir athöfnina lék flautuhópur Skólahljómsveitar Akraness. Aðrir listamenn sem komu fram voru: Elín Carstensdóttir og Guðmundur Freyr Hallgrímsson sem léku fjórhent á píanó; Kristín Sigurjónsdóttir og Bryndís Bragadóttir sem léku saman á fiðlu og píanó.
Maren Lind Másdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar:
- Anna Þóra Jóhannsdóttir fyrir ágætan árangur í líffræði (verðlaun gefin af Landsbanka Íslands á Akranesi).
- Árni Gunnarsson fyrir ágætan árangur í efnafræði og líffræði (verðlaun gefin af Íslandasbanka á Akranesi).
- Eiríkur Böðvar Rúnarsson fyrir ágætan árangur í dönsku (verðlaun gefin af danska sendiráðinu).
- Einar Ágúst Gylfason hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2005.
- Gísli Laxdal Sturlaugsson fyrir ágætan árangur í eðlisfræði og efnafræði (verðlaun gefin af KB banka á Akranesi).
- Gunnar Þóroddsson fyrir ágætan árangur í verklegum greinum (verðlaun gefin af Kötlu Hallsdóttur og Ínu Dóru Ástríðardóttur).
- Tinna Björg Kristinsdóttir fyrir störf að forvarnamálum í Fjölbrautaskóla Vesturlands (verðlaun gefin af Rótarýklúbbi Akraness).
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Bráðum koma blessuð jólin eftir Jóhannes úr Kötlum við lag W. B. Bradbury. Kristján Elís Jónasson var forsöngvari, Bryndís Bragadóttir lék undir á píanó. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.
21. des.: Námstími til stúdentsprófs
Í opinberum gögnum um íslenska skólakerfið er látið heita að námstími til stúdentsprófs sé 4 ár eða 8 annir. En mannlífið fellur misvel að forskriftum sem því eru gefnar. Af þeim 29 stúdentum sem brautskráðir voru frá Fjölbrautaskóla Vesturlands nú í dag voru aðeins 4 sem voru sléttar 8 annir að ljúka námi sínu til stúdentsprófs. Rúmur helmingur eða 15 voru skemmri tíma en 8 annir og meðalnámstíminn var 8,4 annir.
Á árinu 2005 hafa alls 57 nemendur lokið stúdentsprófi frjá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Meðalnámstími þeirra er 8,3 annir og:
- 4 luku námi á 5 til 6 önnum.
- 14 luku námi á 7 önnum.
- 22 luku námi á 8 önnum.
- 8 luku námi á 9 önnum.
- 9 luku námi á lengri tíma en 9 önnum.
Nemendur sem voru lengri tíma en 9 annir að ljúka stúdentsprófi gerðu flestir hlé á námi sínu eða voru hluta námstímans utan skóla eða í námi með fullri vinnu. Þegar Hagstofa Íslands hefur reynt að meta brottfall úr framhaldsskólum hafa þessi nemendur stundum verið taldir með og sumir jafnvel tví- eða þrítaldir, því þeir hafa á einhverjum tímabilum hvorki verið útskrifaðir né skráðir í skóla. (Þess má geta að í skýrslu sem Hagstofan sendi frá sér í ágúst 2004 segir að brottfall framhaldsskólanemenda á landinu öllu frá hausti 2002 til hausts 2003 hafi verið 19,3%, sem jafngildir því að 4.100 nemendur hafi hætt eða tekið sér hlé frá námi.)
Brautskráðir nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands á árinu 2005 eru miklu fleiri en þeir 57 sem luku stúdentsprófi eða alls 126, þar af 37 af iðn- og starfsmenntabrautum, 10 úr grunnnámi iðnbrauta og 22 af almennri námsbraut.12. des.: Ný gögn um innra mat
Ný gögn um mat á starfi skólans eru komin á vefinn. Hægt er að nálgast þau með því að smella á Skólinn og svo Innra mat á valmyndinni hér til vinstri. Í töflunni sem þá birtist eru krækjur í nýjustu skjöl í dálkinum fyrir önnina sem nú er að ljúka, en hann er merktur H05. (Meiri upplýsingar á vefsíðum um innra mat.)7. des.: Brotfall nemenda á haustönn 2005
Frá því töflubreytingum lauk og þar til próf byrjuðu hættu 22 nemendur í skólanum. Þessir 22 nemendur voru í samtals 313 einingum við upphaf annar. Til viðbótar við þetta skráðu 58 nemendur sig úr samtals 211 einingum. Þessar úrsagnir jafngilda því að um það bil 30 nemendaígildi (þ.e. nemendur í 17,5 eininga námi á önn) hafi hætt í skólanum. Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urðu til þess að námshópar minnkuðu að meðaltali um 4,97%. Brottfall á haustönn stefnir því á að vera með minna móti, eða um 5%, en undanfarin ár hefur það verið milli 5% og 7% á önn. (Meiri upplýsingar á vefsíðum um innra mat.)5. des.: Nýir áfangar á haustönn 2005
Þótt það fari ekki allt mjög hátt er á hverri önn unnið að margvíslegri nýbreytni og skólaþróun hér við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nú á haustönn 2005 voru til dæmis kenndir 17 áfangar við skólann sem aldrei hafa verið kenndir áður, þar af eru 6 sem eru að öllu leyti skapaðir og skipulagðir af kennurum hér. Þetta eru áfangarnir:
- Bridge 173 sem Gunnar Magnússon hefur kennt og mótað.
- CAD 183 sem er áfangi í tölvuteikningu, kenndur og búinn til af Garðari Norðdahl.
- Félagsfræði 193 sem þær Ólöf Samúelsdóttir og Steinunn Eva Þórðardóttir hafa mótað fyrir nemendur á almennri námsbraut.
- Íslenska 683 sem fjallar um kvikmyndagerð á Íslandi og tengsl hennar við bókmenntir. Þessi áfangi var búinn til og kenndur af Bjarnveigu Ingvarsdóttur.
- Saga 383 sem er áfangi um norræna miðaldasögu sem Jón Árni Friðjónsson á veg og vanda að.
- Upplýsingatækni 203 sem Dröfn Viðardóttir hefur kennt og mótað.
Aðrir nýir áfangar á haustönninni eru:
- Frítímafræði 103 og skapandi starf 102 en þessir áfangar eru báðir á félagsmála- og tómstundabraut en kennsla á henni hófst í fyrsta sinn nú í haust. Fyrrnefnda áfangann kennir Ingibjörg Haraldsdóttir og þann síðarnefnda Elínborg Halldórsdóttir.
- Heimasíðugerð 103 sem er á tölvufræðibraut en kennsla henni hófst í fyrsta sinn nú í haust. Kennari er Dröfn Viðarsdóttir.
- Gluggar og útihurðir 104, inniklæðningar 102, innréttingar 106 og teikningar og verklýsingar í húsasmíði 103 en allir þessir áfangar eru í nýrri og breyttri námskrá í húsasmíði sem byrjað var að vinna eftir haustið 2004. Kennarar eru Sigurgeir Sveinsson og Steinn Mar Helgason.
- Hjúkrunarfræði 403, sjúkdómafræði 203, sýklafræði 103 og vinnustaðanám 205 en þessir fjórir áfangar eru í nýrri og breyttri námskrá fyrir sjúkraliðabraut sem byrjað var að vinna eftir haustið 2004. Þeir eru allir kenndir af Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur.
Útlit er fyrir að á vorönn 2006 verði kenndur 21 nýr áfangi við skólann.
Auk þess sem nýir áfangar bætast við á hverri önn og gamlir detta úr er allmörgum áföngum breytt verulega enda skólastarfið sífellt lagað að breytilegum þörfum, aukinni tækni og nýjum kröfum.24. nóv.: Gestir frá Finnlandi og Frakklandi
Þessa viku eru tveir finnskir kennarar frá Kemi-Tornio í heimsókn hér í skólanum. Fyrri hluta vikunnar var hér einnig franskur kennari frá Nice. Þessir þremenningar vinna ásamt Kristjáni E. Guðmundssyni kennara að verkefnum sem styrkt eru af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Kristján hefur annast móttöku þeirra en hann stýrir samskiptum skólans við menntastofnanir í öðrum löndum.
Gestur okkar frá Nice, Laurent Pratier, kom til þess að undirbúa heimsókn franskra nemenda sem koma hingað í mars á næsta ári og munu kynna sér vistvæna orku. Um svipað leyti er ráðgert að nemendur í rafvirkjun við fjölbrautaskólann fari til Frakklands og kynnist þar starfi í fyrirtækjum á sviði rafiðngreina.
Gestirnir frá Kemi-Tornio, Risto Kangas og Kyllikki Alajärvi, eru hér til að finna fyrirtæki sem geta tekið finnska nemendur í iðn- og tæknigreinum, viðskiptagreinum og ferðamálafræðum í fjögurra vikna starfsþjálfun á næsta skólaári. Þeim hefur þegar orðið vel ágengt og munu nokkur fyrirtæki sem starfa á Vesturlandi taka á móti nemendum frá verkmenntaskólanum í Kemi-Tornio.22. nóv.: Dimisjón - lokaball
Útskriftarnemar á haustönn 2005 hafa fengið heimild skólameistara til að halda dimisjón föstudaginn 25. nóvember. Af því tilefni verður skemmtun fyrir nemendur og kennara á sal skólans klukkan 11:30 til 12:30 þann dag. Um kvöldið verður svo síðasti dansleikur nemendafélagsins á þessari önn. Hann fer fram á Breiðinni og stendur til klukkan 2 eftir miðnætti.4. nóv.: Rabb um inntökupróf í læknadeild
Í gær kom Njáll Vikar Smárason læknanemi í heimsókn í skólann og hélt fund með nemendum þar sem hann ræddi við þá um inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands og hvernig hann álítur best að haga námi sínu framhaldsskóla til að ná góðum árangri á inntökuprófinu. Milli 20 og 30 nemendur mættu á fundinn.
Njáll Vikar lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands síðasta vetur og var í hópi þeirra sem náðu góðum árangri á inntökuprófi í læknadeild síðasta sumar. Þess má geta að af stúdentum frá Fjölbrautaskóla Vesturlands sem þreyttu prófið komst helmingur inn sem hlýtur að teljast nokkuð gott, því aðeins fjórði hluti alls hópsins sem þreytti inntökupróf síðasta sumar komst áfram í lækna- eða sjúkraþjálfaranám.4. nóv.: Fyrsti fundur starfshóps um innra mat
Á yfirstandandi skólaári er unnið að endurskoðun á innra mati við skólann. Aðferðir við mat á kennslu hafa verið til umræðu bæði á almennum kennarafundum og á fundum í einstökum deildum nú á haustönn. Í framhaldi af þessum umræðum hefur verið skipaður starfshópur sem mun móta tillögur um breytt fyrirkomulag við mat á störfum kennara.
Í hópnum eru: Anna Bjarnadóttir fyrir íþróttir og viðskiptagreinar; Bjarnveig Ingvarsdóttir fyrir íslensku; Garðar Norðdahl fyrir málm- og tréiðnagreinar; Guðrún Jóna Gunnarsdóttir fyrir raungreinar og heilbrigðisgreinar; Hjálmur Geir Hjálmsson fyrir rafiðnagreinar; Kristján E. Guðmundsson fyrir samfélagsgreinar og Ursula Irena Karlsdóttir fyrir erlend tungumál.
Hópurinn hittist á sínum fyrsta fundi í gær og ræddi um vinnuna fram undan. Næsti fundur verður 24. nóvember og fyrir þann tíma mun hver og einn í starfshópnum afla nánari upplýsinga um sjónarmið, hugmyndir og viðhorf kennara í sinni deild eða sínum deildum.3. nóv.: Úrslit í tónlistarkeppni
Að vanda var árleg tónlistarkeppni Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands haldin kvöldið eftir skammhlaup sem var síðasta föstudag, 28. október. Að þessu sinni kallaðist keppnin Partýrokk. Something beyond var valin besta hljómsveit keppninnar en hana skipa: Jóhann Aðalsteinn Árnason trommuleikari; Sigurður Bachmann Sigurðsson gítarleikari; Bergur Líndal Guðnason söngvari og gítarleikari; Björn Breiðfjörð Gíslason bassaleikari. Þeir fjórmenningar eru allir fæddir 1989 og luku því grunnskóla síðasta vor.
Björn stundar nám við Borgarholtsskóla en hinir þrír hljómsveitarmeðlimirnir eru allir nýnemar við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Auk þess sem Something beyond var valin besta hljómsveitin voru þrír af meðlimum hennar heiðraðir sérstaklega því Jóhann Aðalsteinn var kjörinn besti trommuleikarinn, Sigurður Bachmann besti gítarleikarinn og Björn Breiðfjörð besti bassaleikarinn.
Ylfa Flosadóttir var valin besti söngvari keppninnar.28. okt.: Skammhlaup
Árlegt skammhlaup Fjölbrautaskóla Vesturlands var haldið með pompi og pragt í morgun. Stjórnendur skólans færa öllum sem störfuðu að undirbúningi og framkvæmd þess bestu þakkir. Að þessu sinni vann gula liðið og ritstjóri skólavefjar óskar liðsmönnum þess til hamingju.
Fleiri myndir af skammhlaupinu eru hér.27. okt.: Forvarnastarf í skólanum
Á þessari önn er forvaranstarf við Fjölbrautaskóla Vesturlands með svipuðu sniði og undafarin misseri. Forystu í þessu starfi hefur forvaranfulltrúi skólans, Steinunn Eva Þórðardóttir kennari en með henni starfar forvarnahópur nemenda undir forystu Gunnars Smára Jónbjörnssonar, Sylvíu Heru Skúladóttur og Tinnu Kristinsdóttur.
Á önninni hafa verið tveir almennir fyrirlestrar á sal skólans að frumkvæði nemenda í forvarnahópnum. Sá fyrri var um sjálfsmat, sjálfsmynd og hve mikilvægt það er að standa með sjálfum sér eða vera sinn eigin besti vinur eins og fyrirlesarinn Gunnar Hrafn Birgisson orðaði það. Hinn fyrirlesarinn heitir Svava Björnsdóttir og er verkefnastjóri Blátt áfram. Hún talaði um hvað felst í hugtakinu kynferðislegt ofbeldi og hvernig forvarnir gegn því væru. Það versta sem við gerum er að þegja sagði Svava, bæði þau sem hafa orðið fyrir ofbeldi og ekkert sagt og eins þau sem grunar eitthvað en segja ekki frá og ekki síst þeir sem hafa þessar tilhneigingar en gera ekkert í því.
Forvarnahópurinn hefur skipulagt spennandi ferð sem hugsuð er sem val fyrir nemendur að gera eitthvað skemmtilegt án vímuefna. Þetta er vélsleðaferð á Langjökul sem farin verður 3. nóvember. Svona ferð er afar dýr en nemendur eru að ganga í fyrirtæki núna og safna fé til að greiða hana niður. Foreldrar eru einnig hvattir til að reyna að styðja krakkana sína til að komast.
Í gangi eru þrír stuðningshópar eða sjálfshjálparhópar fyrir nemendur með ýmis vandamál. Einn sérstaklega fyrir stráka sem er búinn að vera í gangi í meira en ár, einn stelpuhópur sem hittist og fer í ákveðið prógram í 5 til 6 skipti og loks hópur fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis. Forvarnafulltrúi og námsráðgjafar hafa milligöngu ef krakkar hafa áhuga á að komast í þessa hópa.24. okt.: Valþór Ásgrímsson - styrkir til rannsókna
Það er ætíð fagnaðarefni fyrir starfsmenn skólans þegar fyrrverandi nemendur skara fram úr í námi eða starfi og sem betur fer gefast æði oft tilefni til að gleðjast yfir velgengi þeirra sem útskrifast hafa frá skólanum. Einn þeirra sem lauk hér stúdentsprófi í desember 1999 var Valþór Ásgrímsson. Hann hefur síðan stundað nám á sviði líf- og læknavísinda og nýlega hefur hann m.a. hlotið styrk frá Actavis vegna rannsókna á áhrifum sýklalyfs á þekjuvef í lungum. Valþór hefur einnig tekið þátt í stofnfrumurannsóknum undir stjórn Þórarins Guðjónssonar, en það verkefni hefur bæði hlotið styrki frá Rannís og Evrópsku vísindastofnuninni. Ritstjóri skólavefjar óskar Valþóri til hamingju með þá viðurkenningu sem hann hefur hlotið fyrir rannsóknir sínar og vísindastörf.21. okt.: Afmæli kvennafrídags
Í vikunni gekk undirskriftalisti meðal nemenda skólans þar sem þess var krafist að kennsla félli niður frá klukkan 14:08 mánudaginn 24. október. Meirihluti nemenda lýsti stuðningi við þessa kröfu með undirskrift sinni. Tilefnið er 30 ára afmæli kvennafrídagsins 24. október 1975 þegar mikill fjöldi kvenna kom saman í Reykjavík og krafðist jafnréttis. Ákveðið hefur verið að verða við kröfu nemenda. Kennsla fellur því niður eftir klukkan 14:08 næsta mánudag.21. okt.: Óperetta eftir fyrrum nemendur skóla frumsýnd í Iðnó
Tónlistarfólk úr Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur víða gert garðinn frægan og yrði of langt að telja það allt. Á morgun bætist við listann því þá verður söngfarsinn Gestur – Síðasta máltíðin frumsýnd í Iðnó við tjörnina í Reykjavík. Verk þetta er eftir þá Gaut G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson, en þeir útskrifuðust báðir með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands vorið 1990.
Í kynningu á vef leikhússins segir um sýninguna: „Gestur – Síðasta máltíðin er ný íslensk hinsegin óperetta/leikverk með söngvum. Verkið fjallar um þá Lauga og Óliver sem eru samkynhneigð hjón í Grafarholtinu og nýja nágrannann þeirra, atvinnuflugmanninn og sjarmatröllið Gest. Laugi er heimavinnandi en Óli vinnur í banka og þeir una nokkuð glaðir við sitt þar til gesturinn Gestur setur líf þeirra úr skorðum. ... Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt verk af þessu tagi er frumsýnt hérlendis og því stórmerkilegur viðburður í íslensku menningarlífi.“
Ritstjóri skólavefjar óskar þeim Gunnari og Gauti til hamingju með sýninguna.12. okt.: Söguferð til Kalmar og Kaupmannahafnar
Í byrjun október fóru 13 nemendur í Norðurlandasögu (SAG383) í vikuferð með kennurum um söguslóðir. Heimsóttu þeir m.a. hina fornu höfuðborg landsins, Kaupmannahöfn, en héldu þaðan til Svíþjóðar, skoðuðu m.a. háskólabæinn Lund og heimsóttu framhaldsskólann í Älmhult en luku ferðinni í Kalmar, þar sem þeir skoðuðu m.a. Kalmarkastala. Ferðin var styrkt af Nordplus-áætluninni og Landsbankanum. Á myndinni má sjá hópinn úti fyrir danska Þjóðminjasafninu eftir ítarlega skoðunarferð um safnið. (Nánari upplýsingar á vef áfangans ...)11. okt.: Endurnýjun á tækjakosti tréiðnadeildar
Undanfarin ár hefur tækjakostur tréiðnadeildar verið endurnýjaður að verulegu leyti. Nú í dag bættist ný vél við á verkstæði deildarinnar. Þetta er Vitap dílavél til að díla saman skápa og aðrar innréttingar. Hún er, eins og fleiri trésmíðavélar í skólanum, keypt af fyrirtækinu Hegas. Á myndinni standa kennarar deildarinnar, Sigurgeir Sveinsson og Steinn Mar Helgason bak við vélina og tæknimaður frá Hegas við hlið hennar.
3. okt.: Nemandi hlýtur námsstyrk Orkuveitu Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur styrkir konur til náms í iðn- og verkfræðigreinum. Styrkveitingar þessar eru liður í jafnréttisáætlun Orkuveitunnar. Nú í ár fengu fjórar námskonur styrk af 27 sem sóttu um. Ein þessara fjögurra er Oddný Ágústa Hávarðardóttir sem stundar nám í rafvirkjun við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Ritstjóri skólavefjar óskar henni til hamingju.3. okt.: Gagnasöfn skólans
Flestar upplýsingar um nemendur sem skólinn heldur til haga eru skráðar í Innu. Inna geymir þó ekki öll gögn. Í henni eru til dæmis ekki námsferlar nemenda sem luku námi við skólann vorið 1989 eða fyrr og ekki heldur öll gögn sem þarf að halda til haga í sambandi við fjarvistir og innheimtu gjalda (efnisgjalda og greiðslna fyrir mötuneyti og heimavist o. fl.). Fram til þessa hafa námsferlar frá fyrstu árum skólans aðeins verið aðgengilegir á pappír. Öðrum gögnum sem ekki eru í Innu hefur verið haldið til haga í Paradox gagnagrunni. Blekið á pappírnum dofnar með hverju ári sem líður og af ýmsum ástæðum dugar Paradox gagnagrunnurinn ekki lengur nógu vel.
Frá því á vorönn 2005 hafa stjórnendur skólans unnið að því að koma mikilvægum gögnum fyrir í Microsoft Access gagnagrunni. Sú vinna er komin vel á veg. Flestir námsferlar frá því fyrir 1990 eru þegar aðgengilegir í Access sem og gögn, skýrslur og útreikningar í sambandi við fjarvistir.
Paradox kerfið sem í notkun hefur verið á skrifstofu skólans kallast Snorri. Stungið hefur verið upp á að nýja Access gagnakerfið verði kallað Gissur því líkur eru á að það gangi af Snorra dauðum.23. sept.: Egluferð
Í dag fóru nemendur í íslensku 303, ásamt kennara sínum, í ferð á söguslóðir Egils sögu. Ferðin tókst með miklum ágætum. Á myndinni hér að neðan má sjá hópinn í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. (Fleiri myndir ... ).
19. sept.: Foreldrafundur
Almennur foreldrafundur verður haldinn á sal skólans í kvöld klukkan 20. Foreldrar nýnema eru sérstaklega hvattir til að mæta en í lok fundar gefst þeim kostur á að hitta umsjónarkennara barna sinna.15. sept.: Skráning í samræmd stúdentspróf hafin
Skráning í samræmd stúdentspróf er hafin og henni lýkur 15. október. Nemendur skrá sig í Innu og hver nemandi ber sjálfur ábyrgð á að hann sé rétt skráður í tæka tíð.
Minnt er á að ekki er heimilt að brautskrá nemanda með stúdentspróf nema hann hafi þreytt a.m.k. tvö samræmd próf.
Nemendum sem ætla að þreyta samræmd stúdentspróf í lok haustannar er bent á að skrá sig sem fyrst. Þeir geta breytt skráningu sinni hvenær sem er til 15. október. Frá 15. október til 31. október getur skólameistari breytt skráningu einstakra nemenda. Frá og með 1. nóvember er ekki hægt að breyta skráningu í samræmd próf, hvorki hætta við skráningu né skrá nýja nemendur. Nemendur geta öllum stundum séð hvernig skráningu þeirra er háttað með því að fara í Innu.14. sept.: Styrkur til miðlunar á menningarefni
Fjölbrautaskóli Vesturlands og bókaútgáfan Bjartur vinna saman að verkefninu Hjálmaklettur, sem er vefur um Egils sögu þar sem nýir möguleikar í upplýsingatækni eru kannaðir og hagnýttir við kennslu og miðlun íslenskra fornbókmennta. Verkefnisstjórar eru Harpa Hreinsdóttir, f.h. Fjölbrautaskóla Vesturlands, og Jón Karl Helgason, f.h. bókaútgáfunnar Bjarts en þau hafa bæði langa og fjölþætta reynslu á sviði stafrænnar miðlunar.
Verkefni þetta hefur hlotið styrk að upphæð 700 þúsund frá þróunarsviði menntamálaráðuneytisins. Styrkurinn er veittur í samráði við iðnaðarráðuneytið og er hluti af áætlun sem kallast Átak um menntun og menningu á landsbyggðinni. Fjölbrautaskóli Vesturlands er eini framhaldsskólinn sem fær styrk til að taka þátt í þessu átaki, en alls bárust 54 umsóknir til ráðuneytisins og þar af hlutu 16 verkefni brautargengi.13. sept.: Viðurkenning fyrir rannsóknarstörf
Apparatprisen er verðlaun sem kostuð eru af Radiometer AS í Danmörku og veitt einu sinni á ári fyrir framúrskarandi rannsóknir í verkfræði. Nú í haust hljóta tveir nemendur við háskólann í Álaborg þessi verðlaun. Annar þeirra er Ágúst Örn Einarsson sem útskrifaðist með burtararpróf í vélvirkjun frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 1999 og stúdentspróf af tæknibraut vorið 2000.
Ágúst hóf nám í vélaverkfræði við háskólann í Álaborg haustið 2001. Verkefnið sem hann hlýtur verðlaun fyrir ásamt félaga sínum, Flemming Freese Bjerre, er hönnun og smíði á gervitungli. Við rannsóknarvinnuna hafði Ágúst meðal annars samstarf við Evrópsku geimvísindastofnunina og er eftir því sem ritstjóri skólavefjar kemst næst eini Íslendingurinn sem unnið hefur við tilraunir í þyngdarleysi á hennar vegum.12. sept.: Fundur í skólanefnd
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands hittist á fundi þann 6. september. Á fundinum var fjallað um Innritun og fjölda nemenda á haustönn 2005, rekstrarstöðu skólans, byggingamál, samstarfsnefnd vegna kjarasamninga og breytingar á starfsliði. Fundargerð liggur hér frammi.23. ágúst: Skólasetning
Í dag klukkan 10 var Fjölbrautaskóli Vesturlands settur. Skólameistari bauð nýnema velkomna og þeir hittu umsjónarkennara sína. Eldri nemendur fá stundatöflu, bókalista, lykilorð og önnur gögn afhent klukkan 13 til 17 í dag. Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst klukkan 8 á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst.22. ágúst: Breytingar á starfsliði
Á fyrsta starfsmannafundi skólaársins sem haldinn var í morgun tilkynnti Hörður Ó. Helgason skólameistari eftirtaldar breytingar á starfsliði:
Kennararnir Gunnar Haukur Kristinsson, Hörður Ragnarsson og Sigtryggur Karlsson hætta störfum. Aðrir sem unnu við skólann á síðasta skólaári en verða ekki hér áfram eru: Atli Rafn Kristinsson og Ingunn Jónasardóttir sem önnuðust forfallakennslu; Fjóla Bjarnadóttir og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir sem unnu í mötuneytinu.
Eftirtaldir starfsmenn verða í leyfi á skólaárinu: Kristbjörg Kjerúlf starfmaður í mötuneyti; Rúna Björk Gísladóttir starfsmaður á skrifstofu; Þórólfur Ævar Sigurðsson íþróttakennari.
Kennarar sem koma nýir til starfa eru: Ásdís Sigurðardóttir íþróttakennari sem leysir Þórólf Ævar af; Elínborg Halldórsdóttir stundakennari sem kennir skapandi starf á félagsmála- og tómstundabraut; Eydís Aðalbjörnsdóttir kennari í landafræði; Ingibjörg Haraldsdóttir stundakennari sem kennir frístundafræði á félagsmála- og tómstundabraut.
Aðrir starfsmenn sem voru ekki á síðasta skólaári eru: Edda Einarsdóttir sem leysir Rúnu af á skrifstofu; Guðmundur Egill Ragnarsson sem kemur aftur til starfa sem forstöðumaður mötuneytis eftir árs leyfi.22. ágúst: Fulltrúar kennara í skólanefnd og skólaráði
Á fyrsta kennarafundi skólaársins sem haldinn var í morgun völdu kennarar fulltrúa sína í skólnefnd og skólaráð. Eftirtaldir voru kjörnir:
- Sigurgeir Sveinsson fulltrúi kennara í skólanefnd;
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir varafulltrúi kennara í skólanefnd;
- Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir fulltrúi kennara í skólaráði;
- Þröstur Þór Ólafsson fulltrúi kennara í skólaráði;
- Finnbogi Rögnvaldsson varafulltrúi kennara í skólaráði;
- Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir varafulltrúi kennara í skólaráði;
Sigurgeir og Þröstur voru endurkjörnir. Aðrir koma nýir inn.
16. ágúst: Vinna við töflugerð - fjöldi nemenda
Vinna við stundatöflur fyrir haustönn 2005 er komin í fullan gang. Alls eru 618 nemendur innritaðir í skólann, þar af eru 142 nýnemar sem luku grunnskóla í vor. Á sama tíma í fyrra var heildarfjöldi innritaðra nemenda 627, þar af 150 nýnemar sem luku tíunda bekk vorið áður.
Þótt aðsókn að skólanum sé svipuð og undanfarin ár eru umsóknir um nám á iðnbrautum með færra móti og því verða aðeins einfaldar (12 manna) grunndeildir í bygginga-, málm- og rafiðnagreinum, en hafa oft verið tvöfaldar (24 manna) í málm- og rafiðnagreinum.16. ágúst: Listaverk frá Kirkjuhvoli
Sumarið 2004 sömdu Listasetrið Kirkjuhvoll og Fjölbrautaskóli Vesturlands um að skólinn fengi lánaðar myndir hjá Listasetrinu. Veturinn 2004 til 5 prýddu tvær myndir eftir Sossu sem eru í eigu Listasetursins veggi kennarastofunnar. Þeim hefur nú verið skilað og tvær nýjar myndir fengnar í þeirra stað. Þetta eru vatnslitamyndir eftir Friðrik Jónsson og Erlu Sigurðardóttur.8. ágúst: Nýjar skólasóknarreglur
Í lok vorannar samþykkti skólaráð nýjar reglur um skráningu fjarvista, viðurlög við þeim og einkunn fyrir skólasókn. Reglurnar liggja hér frammi og gilda frá og með upphafi haustannar 2005.4. júlí: Uppfærsla á póst- og vefþjóni
Póst- og vefþjónn skólans hefur verið uppfærður. Um leið og það var gert breyttust öll lykilorð. Þeir sem nota tölvupóst á fva.is geta fengið ný lykilorð með því að hringja í Önnu Margréti (s. 863-3698) eða Atla (s. 431-4190).23. júní: Ný útgáfa skólanámskrár
Fimmta útgáfa skólanámskrár er komin á vef skólans. Hún gildir frá og með upphafi haustannar 2005. Helstu breytingar frá fjórðu útgáfu eru að: Bætt hefur verið við tveim námsbrautum sem eru félagsmála- og tómstundabraut og tölvufræðibraut og ein námsbraut, uppeldisbraut, hefur verið lögð niður; Skilgreind hafa verið viðskiptakjörsvið á félagsfræðabraut og eðlisfræði- og lífvísindakjörsvið á náttúrufræðibraut; Reglum um skráningu fjarvista, viðurlög við þeim og útreikning skólasóknareinkunnar hefur verið breytt; Bætt hefur verið inn köflum um mat á ýmsu námi, um skráningu og meðferð upplýsinga og um aðgang nemenda og forráðamanna þeirra að upplýsingum.22. júní: Innritun fyrir haustönn 2005
Umsækjendur um skólavist á haustönn 2005 eru alls 650 (sambærileg tala frá júní 2004 er 636). Svör til umsækjenda sem ekki voru í skólanum á síðustu önn verða póstlögð í dag og á morgun.
Alls hafa 594 nemendur fengið skólavist á haustönn, þar af voru 396 í skólanum á síðustu önn. Á biðlista eru 56 nemendur og verður ekki ljóst fyrr en eftir 8. ágúst hverjir þeirra komast að.
Nýnemar sem luku grunnskóla nú í vor og hafa fengið inni í Fjölbrautaskólanum eru 141 talsins (sambærileg tala frá júní 2004 er 156). Þessir nemendur skiptast þannig að 33% eru innritaðir á almenna braut, 43% á bóknámsbrautir, 12% á iðnbrautir og 12% á aðrar brautir. Aðsókn að iðnnámi er nokkuð minni en undanfarin ár en aðsókn að náttúrufræðibraut hins vegar heldur meiri og eru 34 nýnemar skráðir á hana.Skipting nýnema sem útskrifuðust úr grunnskóla í vor á námsbrautir
Almenn braut fornám - 16
Almenn braut undirbúningsnám - 30
Félagsfræðabraut - 18
Málabraut - 8
Náttúrufræðibraut - 34
Listnámsbraut - 3
Félagsmála og tómstundabraut - 6
Tölvufræðibraut - 2
Viðskiptabraut - 2
Starfsbraut - 4Grunnnám bíliðna - 1
Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina - 6
Grunnnám rafiðna - 5
Grunnnám málmiðna - 414. júní: Skólanefndarfundur
Í dag, 14. júlí, var fundur haldinn í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum var farið yfir skólastarfið á vorönn 2005 og innritun fyrir haustönn. Formanni skólanefndar og skólameistara var falið að halda áfram að kanna kosti á að stækka húsnæði heimavistar. Nefndin samþykkti tillögu formanns um að í tengslum við byggingu fjölnota íþróttahúss á Akranesi verði skólastjórnendum falið að leita leiða til að gera knattspyrnuæfingar að hluta af námi við skólann.
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007