Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
skólaárið 2004-2005
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
22. júní: Innritun fyrir haustönn 2005
Umsækjendur um skólavist á haustönn 2005 eru alls 650 (sambærileg tala frá júní 2004 er 636). Svör til umsækjenda sem ekki voru í skólanum á síðustu önn verða póstlögð í dag og á morgun.
Alls hafa 594 nemendur fengið skólavist á haustönn, þar af voru 396 í skólanum á síðustu önn. Á biðlista eru 56 nemendur og verður ekki ljóst fyrr en eftir 8. ágúst hverjir þeirra komast að.
Nýnemar sem luku grunnskóla nú í vor og hafa fengið inni í Fjölbrautaskólanum eru 141 talsins (sambærileg tala frá júní 2004 er 156). Þessir nemendur skiptast þannig að 33% eru innritaðir á almenna braut, 43% á bóknámsbrautir, 12% á iðnbrautir og 12% á aðrar brautir. Aðsókn að iðnnámi er nokkuð minni en undanfarin ár en aðsókn að náttúrufræðibraut hins vegar heldur meiri og eru 34 nýnemar skráðir á hana.Skipting nýnema sem útskrifuðust úr grunnskóla í vor á námsbrautir
Almenn braut fornám - 16
Almenn braut undirbúningsnám - 30
Félagsfræðabraut - 18
Málabraut - 8
Náttúrufræðibraut - 34
Listnámsbraut - 3
Félagsmála og tómstundabraut - 6
Tölvufræðibraut - 2
Viðskiptabraut - 2
Starfsbraut - 4Grunnnám bíliðna - 1
Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina - 6
Grunnnám rafiðna - 5
Grunnnám málmiðna - 414. júní: Skólanefndarfundur
Í dag, 14. júlí, var fundur haldinn í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum var farið yfir skólastarfið á vorönn 2005 og innritun fyrir haustönn. Formanni skólanefndar og skólameistara var falið að halda áfram að kanna kosti á að stækka húsnæði heimavistar. Nefndin samþykkti tillögu formanns um að í tengslum við byggingu fjölnota íþróttahúss á Akranesi verði skólastjórnendum falið að leita leiða til að gera knattspyrnuæfingar að hluta af námi við skólann.27. maí: Útskrift af almennri braut og grunnnámi
Við skólaslit þann 21. maí voru 50 nemendur brautskráðir frá skólanum. Í gær var 31 nemandi til viðbótar útskrifaður þar af 21 af almennri braut, 3 úr grunnnámi rafiðngreina, 1 úr grunnnámi málmiðngreina og 6 úr grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina. Þessir nemendur fá skírteini send í pósti.
Til viðbótar við þá sem hér hafa verið taldir hafa þrír nemendur útskrifast frá skólanum í maí, þar af luku tveir námsbraut í rafsuðu og einn meistaranámi í rafvirkjun. Útskrifaðir nemendur í vor eru því alls 50+31+3=84.26. maí: Ný gögn um mat á starfi skólans
Eftirtöldum gögnum um mat á starfi skólans hefur verið bætt á vefinn.
- Skýrsla um mat á stöðu, aðbúnaði, kennslu, námsmati og árangri í einstökum deildum og fögum.
- Tölfræðileg yfirlit yfir námsárangur, skólasókn og nemendafjölda á vorönn 2005.
- Tölfræðileg yfirlit yfir nýtingu á kennslu og brottfall á vorönn 2005.
Krækt er í öll þessi skjöl af vefsíðu um mat á starfi skólans sem hægt er að nálgast með því að smella hér eða með því að velja Skólinn —> Innra mat á valmyndinni hér til vinstri. (Til að opna skjölin sem hér voru talin er smellt á X í dálkinum fyrir V05).
Í yfirliti um námsárangur og skólasókn á vorönn 2005 kemur fram að fjarvistir nemenda úr kennslustundum eru vaxandi vandamál. Á önninni voru 31% nemenda með skólasóknareinkunn 6 eða lægri (þ.e. fjarverandi úr meira en 11% kennslustunda). Næstu fimm annir á undan var þetta hlutfall á bilinu 19% til 27%.
Á önninni hættu 26 nemendur í skólanum. Til viðbótar skráðu 66 nemendur sig úr einstökum áföngum. Þessar úrsagnir jafngilda því að 36 nemendaígildi eða 6,5% nemenda hafi hætt í skólanum á miðri önn.23. maí: Fyrrverandi nemandi hlýtur Frank-Boas styrk
Eiríkur Jónsson sem lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands vorið 1997 hefur hlotið Frank Boas styrk til framhaldsnáms í alþjóðalögum við Harvard háskóla. Eiríkur lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands haustið 2002 og hefur starfað sem lögfræðingur síðan. Hann var formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands frá 2000 til 2001.
Fulbright stofnanirnar í 9 löndum tilnefna hver um sig einn til tvo umsækjendur um þennan styrk og svo er einn úr öllum hópnum valinn úr til að hljóta styrkinn. Þessi 9 lönd eru: Austurríki, Belgía, Danmörk, Holland, Ísland, Lúxemburg, Noregur, Portúgal og Svíþjóð.23. maí: Gjöf frá Verkalýðsfélagi Akraness
Verkalýðsfélag Akraness hefur ákveðið að héðan í frá gefi félagið verðlaun þegar nemendur sem útskrifast af námsbraut í húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Vesturlands ná framúrskarandi árangri í verklegum greinum. Með þessari gjöf leggur félagið sitt af mörkum til að auka veg og virðingu handverks og verkmennta. Nú við skólaslit á vorönn 2005 þegar þessi verðlaun voru veitt í fyrsta sinn höfðu tveir útskriftarnemar náð framúrskarandi árangri í verklegum greinum í húsasmíði. Þeir eru Sindri Hlífar Guðmundsson og Vésteinn Sigmundsson og hlutu þeir báðir verðlaun Verkalýðsfélags Akraness.
Fyrir hönd skólans þakkar ritstjóri skólavefjar Verkalýðsfélagi Akraness þessa gjöf. Með henni sýnir félagið góðan hug til skólans og það er okkur sem hér störfum mikils virði.21. maí 2005: Brautskráning og skólaslit
Í dag, laugardag 21. maí 2005, var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 50 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Taflan sýnir hvernig þessir 50 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
| Piltar/Karlar |
Stúlkur/Konur |
Alls |
|
| Stúdentspróf |
10 |
18 |
28 |
| Burtfararpróf af iðnbraut |
17 |
0 |
17 |
| Stúdentspróf og burtfararpróf
af iðnbraut |
1 |
0 |
1 |
| Burtfararpróf af sjúkraliðabraut |
0 |
1 |
1 |
| Verslunarpróf af viðskiptabraut |
0 |
2 |
2 |
| Ársnám sem skiptinemi |
1 |
0 |
1 |
| Alls |
29 |
21 |
50 |
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2005. Máni Atlason nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og David Peter Denio flutti ávarp skiptinema.
Finnbogi Rögnvaldsson formaður bæjarráðs í Borgarbyggð, Guðmundur Páll Jónsson formaður bæjarráðs á Akranesi og Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit afhentu námsstyrk Akranesskaupstaðar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Styrkinn hlutu Anna Margrét Ólafsdóttir sem lauk stúdentsprófi af félagsfræðabraut og Einar Örn Arnarson sem lauk burtfararprófi af námsbraut í vélvirkjun og stúdentsprófi eftir nám í vélvirkjun.
Viskuklúbbur nemendafélagsins fékk framlag úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur eða störf að félagsmálum. Nafn þess sem gefur verðlaunin eru innan sviga.
Anna Margrét Ólafsdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2005. Hún hlaut einnig viðurkenningar fyrir ágætan árangur í íslensku (Edda útgáfa), í ensku og frönsku (Landsbankinn á Akranesi), í félagsfræði og sögu (Landmælingar Íslands) og í sálfræði og uppeldisfræði (Íslandsbanki á Akranesi). Einar Örn Arnarson hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í málmiðngreinum (Félag iðn- og tæknigreina). Elís Mar Einarsson hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í náttúruvísindum (Sparisjóður Mýrasýslu). Máni Atlason hlaut viðurkenningar fyrir ágætan árangur í íslensku (Edda útgáfa), stærðfræði (Íslenska stærðfræðafélagið), og samfélagsfræðum (Landmælingar Íslands). Einnig hlaut Máni viðurkenningu úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar fyrir störf að félagsmálum. Runólfur Óttar Kristjánsson hlaut viðurkenningu fyrir starf að forvörnum og félagsmálum nemenda (Rotary klúbbur Akraness). Sindri Hlífar Guðmundsson hlaut viðurkenningar fyrir ágætan árangur í verklegum greinum (Katla Hallsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir) og fyrir ágætan árangur í húsasmíði (Verkalýðsfélag Akraness). Vésteinn Sigmundsson hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í húsasmíði (Verkalýðsfélag Akraness). Þóra Hlín Þórisdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í líffræði og efnafræði (KB-banki á Akranesi).Magnús Ægisson sem lauk stúdentsprófi frá skólanum í desember 2004 fékk verðlaun fyrir góðan námsárangur úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar á Sýruparti.
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.
Eftirtaldir tónlistarmenn komu fram við athöfnina: Skúli Magnússon sem lék á flygil; Guðmundur Freyr Hallgrímsson sem lék á flygil; Kristín Sigurjónsdóttir og Anna Snæbjörnsdóttir sem léku saman á fiðlu og flygil.18. maí: Afhending einkunna og lok vorannar 2005
Í dag, 18. maí, eru sjúkrapróf. Opnað verður fyrir aðgang nemenda að einkunnum í Innu klukkan 13.
Formleg afhending einkunna fer fram á morgun, 19. maí, klukkan 10. Þá mæta nemendur í umsjónarstofur, fá einkunnablöð og gefst kostur á að leiðrétta val fyrir haustönn ef þeir hafa fallið í undanfara eða áfangi sem þeir völdu verður ekki kenndur.
Strax að lokinni einkunnaafhendingu er prófsýning, þá gefst nemendum kostur á að skoða prófúrlausnir sínar í viðurvist kennara og fara fram á leiðréttingu ef þeir álíta að mistök hafi orðið við yfirferð prófa eða skráningu einkunna.
Brautskráning þeirra sem ljúka námi nú á vorönn fer fram á sal skólans klukkan 14 laugardaginn 21. maí.18. maí: Rafræn innritun nýnema
Á næstu dögum fá nemendur sem ljúka 10. bekk grunnskóla nú í vor sendan veflykil vegna rafrænnar innritunar í framhaldsskóla. Þetta er nýjung því hingað til hafa nemendur skilað umsóknum til framhaldsskóla á pappír um svipað leyti og þeir hafa lokið 10. bekk. Hægt verður að innrita sig á vefsvæðinu http://www.inna.is/umsokn/ frá því veflykill berst og til 14. júní.
Þetta á aðeins við um þá sem ljúka 10. bekk nú í vor. Allir aðrir sækja um skólavist með því að útfylla umsóknareyðublað sem liggur frammi á vef skólans (sjá þriðju neðstu krækjuna hér til hægri).
Nemendum og foreldrum sem óska eftir upplýsingum um innritun í skólann er velkomið að hafa samband í síma 433-2500.11. maí: Styrkur úr þróunarsjóði framhaldsskóla
Í febrúar síðastliðnum sótti Fjölbrautaskóli Vesturlands um styrk úr Þróunarsjóði framhaldsskóla til að endurskoða aðferðir og vinnubrögð við mat á starfi skólans. Nú hefur borist svar frá menntamálaráðuneytinu og skólinn fær 400.000 króna styrk eins og sótt var um.
Á vorönn 2003 var mótað kerfi til að vinna heildstætt innra mat (eða sjálfsmat) á starfi skólans. Eftir þessu kerfi hefur nú verið unnið í tvö ár og í ljós hafa komið ýmsir hnökrar á því. Styrkurinn verður notaður til að laga þá og bæta matskerfið sem unnið er eftir. Verkið verður unnið í sumar og haust undir leiðsögn dr. Sigurlínu Davíðsdóttur lektors í uppeldis- og menntunarfræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands en skólinn hefur samið við hana um að hún veiti sérfræðilega ráðgjöf.4. maí: Samræmd stúdentspróf
Nú í lok vorannar 2005 eru í fyrsta sinn haldin samræmd stúdentspróf í þrem námsgreinum, ensku, íslensku og stærðfræði. Nú er líka í fyrsta sinn óheimilt að útskrifa nemendur með stúdentspróf nema þeir hafi lokið samræmdu prófi í a.m.k. 2 greinum. Á árinu 2004 var haldið samræmt stúdentspróf í íslensku en nemendur sem úrskrifuðust á því ári höfðu val um hvort þeir tóku samræmda íslenskuprófið.
Fyrsta samræmda prófið í vor var íslenskupróf sem haldið var 2. maí. Í gær, 3. maí, var svo prófað í ensku og í dag, 4. maí, er samræmt stærðfræðipróf.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands voru 37 nemendur skráðir í samræmt stúdentspróf í íslensku, 61 í ensku og 15 í stærðfræði.
Prófin eru á vegum Námsmatsstofnunar þótt þau fari fram í húsakynnum Fjölbrautaskólans. Námsmatsstofnun mun senda nemendum einkunnir. Á stúdentsprófskírteinum sem gefin verða út af skólanum við brautskráningu 21. maí verður tekið fram hvaða samræmd próf nemandi tók en ekki hvaða einkunnir hann fékk á þeim.2. maí: Úrslit í stjórnarkjöri hjá nemendafélaginu
Föstudaginn 29. apríl kusu félagsmenn í nemendafélagi skólans nýja aðalstjórn. Þrír listar voru í framboði. Niðurstöður talningar voru kynntar á lokaballi annarinnar að kvöldi kjördags. Sigurvegarar kosninganna voru: Stefán Halldór Jónsson (formaður), Maren Lind Másdóttir (gjaldkeri), Jón Steinar Guðlaugsson (ritari) og Högni Haraldsson (meðstjórnandi). Þessir fjórmenningar munu því halda um stjórnartauma í nemendafélaginu á næsta skólaári. Ritstjóri skólavefjar óskar þeim til hamingju með sigurinn.29. apríl: Dimission
Í dag er dimission, kveðjuhátið útskriftarnema á vorönn 2005. Gleðskapurinn hófst í morgun klukkan 7 þegar kennurum og öðru starfsfólki var boðið til morgunverðar í mötuneyti skólans. Þegar leið á morguninn heimsóttu útskriftarnemar kennslustundir og klukkan 11:30 var nemendum og starfsmönnum svo boðið að horfa á skemmtidagskrá á sal skólans. Síðdegis fór útskriftarhópurinn í óvissuferð og í kvöld býður hann kennurum til teitis í húsakynnum Sjálfstæðisflokksins.25. apríl: Sólveig Rós hlaut Freyjumenið
Íslandsglíman, elsta íþróttamót landsins, fór fram í Borgarleikhúsinu laugardaginn 23. apríl. Þar kepptu karlar um Grettisbeltið og sæmdarheitið Glímukóngur Íslands en konur um Freyjumenið og sæmdarheitið Glímudrottning Íslands. Sólveig Rós Jóhannsdóttir sigraði í kvennaflokki annað árið í röð og systir hennar Svana Hrönn Jóhannsdóttir varð í öðru sæti. Ritstjóri skólavefjar óskar þeim systrum til hamingju með glæsilegan árangur, en þær stunda báðar nám hér við skólann.22. apríl: Verðlaunahafar á Íslandsmóti iðnnema
Íslandsmót iðnnema var haldið í Smáralind miðvikudaginn 20. apríl. Keppt var í sex greinum og hver skóli mátti senda tvo keppendur í hverri grein. Fjölbrautaskóli Vesturlands sendi keppendur í húsasmíði, málmsmíði og rafvirkjun, tvo í hverri grein.
Keppendur fyrir hönd skólans voru: Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson og Sturlaugur A. Gunnarsson í málmsuðu; Guðmundur Kristófer Georgsson og Sigurður Hjörtur Ólafsson í rafvirkjun; Brynjar Ægir Ottesen og Ingólfur Pétursson í trésmíði. Með keppendum skólans fóru kennararnir Eiríkur Guðmundsson, Garðar G. Norðdahl og Sigurgeir Sveinsson.
Okkar menn stóðu sig með mikilli prýði og hlutu tveir af sex fulltrúum skólans verðlaun. Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson náði öðrum besta árangri samanlagt í málmsuðu og hlaut silfurverðlaun og Sturlaugur A. Gunnarsson hlaut tvenn bronsverðlaun fyrir málmsuðu en keppni í þeirri grein var þrískipt og var Sturlaugur í þriðja sæti bæði í pinnasuðu og MIG/MAG suðu.
![]()
Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson og Sturlaugur A. Gunnarsson með verðlaunapeninga.19. apríl: Fundur með stjórnendum háskóla og framhaldsskóla á Vesturlandi
Í dag, 19. apríl, komu Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst og Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga í heimsókn í Fjölbrautaskóla Vesturlands og sátu fund með Herði Ó. Helgasyni skólameistara, Atla Harðarsyni aðstoðarskólameistara, Hannesi Þorsteinssyni deildarstjóra í raungreinum og Dröfn Viðarsdóttur deildarstjóra í viðskiptagreinum. Á fundinum var rætt um möguleika á samstarfi háskóla og framhaldsskóla á Vesturlandi og hvernig skólarnir geti haft gagn og stuðning hver af öðrum. Fundarmenn skiptust á hugmyndum og ákváðu að hittast aftur á haustönn, en þá mun Guðbjörg boða sömu aðila til fundar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.15. apríl: Árangur nemenda á haustönn 2004
Myndin hér að neðan sýnir tölfræðilegt yfirlit yfir hvað nemendur féllu í mörgum áföngum á haustönn 2004. Flestir nemendur voru skráðir í 7 áfanga og um helmingur nemenda féll í einhverjum áfanga eða áföngum. Af þeim sem eru fæddir 1988 féllu 42% í einhverjum áföngum (tæp 20% aðeins í einum, rúm 10% í tveimur og um 12% í þremur eða fleiri). Af þeim sem fæddir eru 1987 féllu 56% í einhverjum áfanga. Af árgangi 1986 féllu 53% í einum áfanga eða fleiri og af árgangi 1985 féllu 41% í einum áfanga eða fleiri.
Að meðaltali féllu nemendur skólans í 11,5% þeirra áfanga sem þeir voru skráðir í við upphaf haustannar 2004 og hættu í um 7%. Fall og brottfall var því alls um 18,5% sem jafngildir því að nemendur hafi að meðaltali lokið 81,5% þeirra áfanga sem þeir voru skráðir í við upphaf annar með fullnægjandi árgangri. Þetta eru svipaðar tölur og undanfarin ár.
Skólasókn á haustönn 2004 var að meðaltali 89,2%, sem jafngildir því að fjarvistir nemenda voru að jafnaði 10,8% eftir að leyfi og forföll vegna veikinda sem stóðu lengur en 2 daga höfðu verið dregin frá. Þessar miklu fjarvistir eru áhyggjuefni og á næstunni munu stjórnendur skólans leita leiða til að koma í veg fyrir að fjarvistir verði svo miklar á næsta skólaári.15. apríl: Markmið fyrir næstu ár
Á yfirstandandi skólaári (2004 til 2005) hefur verið rætt um það á fundum kennara og stjórnenda við Fjölbrautaskóla Vesturlands að setja skólanum markmið til næstu tveggja ára. Niðurstaða þessarar umræðu er að á skólaárunum 2005 til 2006 og 2006 til 2007 mun skólinn leggja sérstaka áherslu á eftirtalin þrjú markmið:
- Hver nemandi finni að hann skipti máli og kennurum og stjórnendum skólans þyki mikilvægt að hann vinni vel og nái árangri.
- Tengsl skólans við fyrirtæki, stofnanir og mannlíf á svæðinu verði styrkt og aukin.
- Hafin verði kennsla á tveim nýjum námsbrautum við skólann.
Á næsta skólaári verður deildum skólans falið að útfæra tvö fyrstnefndu markmiðin fyrir einstakar námsgreinar og greinaflokka.
14. apríl: Stæltu stóðhestarnir
Föstudaginn 8. apríl frumsýndi leiklistarklúbbur nemendafélagsins leikritið Stæltu stóðhestarnir eftir Nýsjálendingana Anthony McCarten og Stephen Sinclair. Síðustu sýningar verða klukkan 20 fimmtudaginn 14. apríl og klukkan 20. föstudaginn 15. apríl. Sýningar eru í sal skólans.
Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir og leikendur eru Björn Dan Karlsson, Elvar Árni Þrastarson, Guðmundur Ó. Kristjánsson, Jón Gunnar Garðarsson, Jón Gústi Jónsson, Jón Ingi Þrastarson, Viðar Freyr Viðarsson og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir.
Leikritið fjallar um sex atvinnulausa karla sem ákveða að gerast fatafellur.22. mars: Skólanefndarfundur
Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands var haldinn í dag, þriðjudag 22. mars. Á fundinum var ársskýrsla skólans fyrir árið 2004 lögð fram. Mál til umræðu voru: Uppgjör fyrir árin 2003 og 2004; Skólaakstur; Sala lausra kennslustofa á skólalóð. (Sjá fundargerð.)12. mars: Úrslit í stærðfræðikeppni fyrir nemendur í 8., 9.og 10. b. grunnskóla (Myndir)
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla var haldin við Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 23. febrúar. Keppnin er uppruninn við Flensborgarskóla í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Sams konar keppni er haldin samtímis við allmarga framhaldsskóla.
Í dag, laugardaginn 12. mars var 10 efstu nemendum í hverjum árgangi boðið til athafnar á sal skólans þar sem þeim voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í keppninni. Eins og undanfarin ár voru þeim þrem efstu í hverjum árgangi veitt peningaverðlaun: 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000 kr. fyrir annað sæti og 5.000 kr. fyrir það þriðja.
Peningar til að greiða verðlaun og annan kostnað við keppnina eru gefnir af fyrirtækjum á Vesturlandi. Fyrirtæki sem styrkja keppnina að þessu sinni eru:
| Landsbanki Íslands hf. Akranesi Íslandsbanki hf. Akranesi Olíufélagið ESSO ehf., Akranesi |
Verkalýðsfélag Akraness Akraneskaupstaður Norðurál, Grundartanga Smell-inn, Akranesi |
Sementsverksmiðjan hf. OLÍS, Akranesi Verkalýðsfélag Borgarness |
Hér á eftir eru taldir upp þeir sem voru í 10 efstu sætum í hverjum árgangi:
8. bekkur
1. Kristinn Hlíðar Grétarsson, Grundaskóla
2. Aron Öfjörð Jóhannesson, Brekkubæjarskóla
3.-4. Daisy Heimisdóttir, Grundaskóla
3.-4. Elín Sigurðardóttir, Grunnskóla Grundarfjarðar
5.-10. Eggert Örn Sigurðsson, Grunnskólanum í Borgarnesi
5.-10. Harpa Lind Gylfadóttir, Grundaskóla
5.-10. Jónas B. Kjartansson, Brekkubæjarskóla
5.-10. Lilja Margrét Riedel, Grunnskólanum í Stykkishólmi
5.-10. Sigurður Páll Guttormsson, Laugargerðisskóla
5.-10. Sigurður Þórarinsson, Grunnskólanum í Borgarnesi9. bekkur
1. Hörður Kári Harðarson, Brekkubæjarskóla
2. Indriði Einar Reynisson, Grunnskólanum á Hólmavík
3. Þorbjörg Matthíasdóttir, Grunnskólanum á Hólmavík
4-11. Ásdís Braga Guðjónsdóttir, Lýsuhólsskóla
4-11. Auðunn Haraldsson, Grunnskólanum í Búðardal
4-11. Elsa Þorbjarnardóttir, Varmalandsskóla
4-11. Hafdís Lilja Haraldsdóttir, Grunnskóla Grundarfjarðar
4-11. Hugrún Eva Valdimarsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4-11. Jónas Hauksson, Kleppjárnsreykjaskóla
4-11. Ólafur Helgi Halldórsson, Grundaskóla
4-11. Ragnar Harðarson, Brekkubæjarskóla10. bekkur
1. Ingólfur Eðvarðsson, Brekkubæjarskóla
2. Leifur Finnbogason, Grunnskólanum í Borgarnesi
3. Helgi Elí Hálfdánarson, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-11. Áslaug Katrín Hálfdánardóttir, Kleppjárnsreykjaskóla
4.-11. Birkir Guðmundarson, Brekkubæjarskóla
4.-11. Gyða Kristjánsdóttir, Lýsuhólsskóla
4.-11. Hildur Inga Einarsdóttir, Varmalandsskóla
4.-11. Jóhannes Fannar Einarsson, Grunnskóla Grundarfjarðar
4.-11. Páll Straumberg Guðsteinsson, Grundaskóla
4.-11. Sigríður Hrefna Jónsdóttir, Kleppjárnsreykjaskóla
4.-11. Una Harðardóttir, BrekkubæjarskólaÞátttakendur voru alls 224 úr 11 skólum (75 voru úr áttundu bekkjum, 76 úr níundu bekkjum og 73 úr tíundu bekkjum).
- Í áttundu bekkjum var meðalstigafjöldi 38,89 (af 100), miðgildið 38 og besta lausn upp á 83 stig.
- Í níundu bekkjum var meðalstigafjöldi 34,59 (af 100), miðgildið 32 og besta lausn upp á 82 stig.
- Í níundu bekkjum var meðalstigafjöldi 25,67 (af 100), miðgildið 22 og besta lausn upp á 73 stig.
Þegar viðurkenningarskjöl og verðlaun höfðu verið afhent var gestum boðið að þiggja veitingar og og hlýða á þjóðlagasveit Tónlistarsakóla Akraness sem lék á sal skólans.
11. mars: Keppni í flutningi franskra ljóða
Hin árlega franska ljóðakeppni framhaldsskólanema, var haldin í tengslum við verkefnið Le printemps des poètes, laugardaginn 5. mars s.l. í samvinnu FFÍ og Franska sendiráðsins á Íslandi. Alls tóku 13 nemendur frá 9 skólum þátt í keppninni. Fulltrúi Fjölbrautaskóla Vesturlands var Kristín Mist Sigurbjörnsdóttir, sem flutti ljóðið Pour toi, mon amour eftir Jacques Prévert. Hildur Guðbjörnsdóttir, nemandi í MR bar sigur úr býtum og hlaut Frakklandsferð að launum. Í dómnefnd sátu Olivier Tourneux, viðskipta- og menningarfulltrúi Franska sendiráðsins, Ásdís R. Magnúsdóttir, dósent í frönsku við HÍ og Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona.3. mars: Nýjar námsbrautir
Ráðgert er að frá og með haustönn 2005 verði boðin kennsla á tveim nýjum námsbrautum við skólann ef næg aðsókn verður. Þessar brautir eru annars vegar félagsmála- og tómstundabraut og hins vegar tölvubraut. Inntökuskilyrði á þessar brautir eru þau sömu og á aðrar starfsmenntabrautir, þ.e. að í námsgreinunum íslensku og stærðfræði sé meðaltal skólaeinkunnar og einkunnar á samræmdu prófi við lok tíunda bekkjar a.m.k. 5,0 og einkunn á samræmdu prófi a.m.k. 4,5. Uppfylli nemandi ekki þessi skilyrði getur hann áunnið sér rétt að hefja nám á þessum brautum (eins og öllum öðrum) með því að ljúka fyrst 26 eininga námi á almennri námsbraut.
Námstími á félagsmála- og tómstundabraut er fjórar annir og gert er ráð fyrir að hægt verði að ljúka brautinni við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Smelltu hér til að sjá drög að námsáætlun fyrir félagsmála- og tómstundabraut.
Námstími á tölvubraut er sex annir og gert er ráð fyrir að hægt verði að ljúka fjórum fyrstu önnunum við Fjölbrautaskóla Vesturlands og tveim þeim síðustu við Iðnskólann í Reykjavík. Smelltu hér til að sjá drög að námsáætlun fyrir tölvubraut.24. febrúar: Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema (Myndir ...)
Hin árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands í gær miðvikudaginn 23. febrúar klukkan 14:00 til 15:30. Þegar þetta er skrifað sitja stærðfræðikennarar skólans við að yfirfara úrlausnir keppenda. Dagsetning verðlaunaafhendingar verður auglýst hér á vefnum í næstu viku.
Auk grunnskóla á Vesturlandi var Klébergsskóla á Kjalarnesi og Grunnskólanum Hólmavík boðið að taka þátt í keppninni. Þátttakendur voru alls 224 úr 11 skólum (75 voru úr áttundu bekkjum, 76 úr níundu bekkjum og 73 úr tíundu bekkjum). Að keppni lokinni var öllum boðið að snæða pissu í mötuneyti skólans.
![]()
Tilhögun keppninnar var svipuð og undanfarin ár. Þó var sú breyting að keppendum var ekki heimilt að yfirgefa keppnisstað fyrr en þeir höfðu reynt við verkefnin í a.m.k. hálfa klukkustund. Tíu efstu í hverjum árgangi fá viðurkenningarskjal og þrír efstu í hverjum árgangi fá að auki peningaverðlaun sem eru 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000 kr. fyrir annað sæti og 5.000 kr. fyrir þriðja sæti.
Eftirtaldir aðilar gefa verðlaunafé og greiða annan kostnað vegna keppninnar:
| Límtré -
Vírnet, Borgarnesi. Landsbanki Íslands hf. Akranesi Íslandsbanki hf. Akranesi Olíufélagið ESSO ehf., Akranesi Landbúnaðarháskóli Íslands Verkalýðsfélag Akraness Akraneskaupstaður |
Norðurál, Grundartanga Smell-inn, Akranesi Prentverk Akraness hf. Sementsverksmiðjan hf. OLÍS, Akranesi Verkalýðsfélag Borgarness |
Stærðfræðikeppnin er upprunnin í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Keppnin var haldin samtímis við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Flensborgarskóla, Menntaskólann í Kópavogi og Menntaskólann í Reykjavík.
24. febrúar: Opnir dagar (Myndir ...)
23. til 25. febrúar eru opnir dagar við skólann sem þýðir að vikið erfrá venjulegri stundaskrá og boðið upp á námskeið, fyrirlestra, ferðir og þátttöku í íþróttum af ýmsu tagi. Skipulagið er á þá leið að miðvikudaginn 23. febrúar eru flestir nemendur á námskeiðum eða fyrirlestrum, fimmtudag 24. febrúar er boðið upp á fjölda náms- og kynnisferða til viðbótar við námskeið og fyrirlestra, föstudag 25. verður megináherslan á íþróttir.
Námskeið sem nemendur geta valið um eru: AFS; Box; Bridge; Bútasaumur; Daður og deit; Dans; Fjölmiðlanámskeið; Flugdrekasmíði; Gítarnámskeið; Golf; Heimilisviðhald; Hljómsveit hússins; Hvernig tengjast Bob Dylan, Jóhannes Birkiland og Megas; Jóga; Keila; PHP- forritun; Psycedelic Music; Skvísunámskeið; Spilagerð; Stálskúlptúragerð; Taka og klipping myndbanda; Trémálun; Trúarbrögð; Þungarokk; Þæfingarnámskeið.
Ferðir sem boðið er upp á eru: Ferð í Orkuveitu; Háskólar á Vesturlandi; Leikhúsferð í Versló; Safnaferð; Stjörnuskoðunarferð; Sveitaferð; Uppeldis- og Sálfræðiferð.
Íþróttaviðburðir sem nemendur taka þátt í á föstudeginum eru: Fjallganga; Íþróttamót; Skautaferð; Skákmót.
Framkvæmdastjóri opinna daga er Dröfn Viðarsdóttir kennari. Með henni í undibúningsnefnd eru kennararnir Linda Dröfn Jóhannesdóttir og Gunnar Magnússon og nemendurnir Eyrún Eva Haraldsdóttir, Friðmey Jónsdóttir, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Vala María Ingólfsdóttir og Vera Líndal Guðnadóttir.
Dagskrá opinna daga liggur hér frammi.24. febrúar: Heimsókn menntamálaráðherra
Þriðjudaginn 22. febrúar heimsótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skólann og hélt fund með kennurum. Fundarefni var stytting námstíma til stúdentsprófs og breytingar á framhaldsskólum í tengslum við hana.
Í fylgd með ráðherra voru Karl Kristjánsson deildarstjóri í skóla- og símenntunardeild ráðuneytisins, Oddný Hafberg verkefnisstjóri og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir ráðgjafi menntamálaráðherra.
Fundurinn þótti takast vel, umræður voru miklar og málaefnalegar og ráðherra og ráðuneytismenn svöruðu spurningum kennara.23. febrúar: Skipting nemenda eftir brautum og búsetu
Um miðjan febrúar voru nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands 550 talsins, 286 karlar og 264 konur. Tæpur helmingur, eða 47% nemenda eru á stúdentsbrautum, 23% eru á iðnbrautum og 18% á almennri námsbraut. Um 97% nemenda eiga lögheimili á Vesturlandi þar af um tveir þriðju á Akranesi. Eftirfarandi töflur sýna hvernig þeir skiptust á brautir og hvaðan þeir koma:
Fjöldi nemenda
eftir tegundum náms |
|||
| Námsbrautir | Karlar | Konur | Alls |
| Stúdentsbrautir | 92 | 170 | 262 = 047% |
| Iðnbrautir | 122 | 3 | 125 = 023% |
| Listnám og starfsnám á öðrum brautum en iðnbrautum | 14 | 43 | 57 = 010% |
| Starfsbraut fyrir fatlaða | 4 | 1 | 5 = 001% |
| Almenn námsbraut | 54 | 47 | 101 = 018% |
| Samtals í skólanum | 286 | 264 | 550 = 100% |
Fjöldi nemenda
á námsbrautum |
|||
| Námsbrautir | Karlar | Konur | Alls |
| Félagsfræðabraut | 44 |
106 | 150 |
| Málabraut | 2 | 26 | 28 |
| Náttúrufræðibraut | 44 | 34 | 78 |
| Viðbótarnám til stúdentsprófs | 2 | 4 | 6 |
| Málmiðnabrautir | 48 | 1 | 49 |
| Rafiðnabrautir | 41 | 1 | 42 |
| Bygginga- og mannvirkjagreinar | 33 | 1 | 34 |
| Lisnámsbraut | 1 | 1 | 2 |
| Sjúkraliðabraut | 0 | 19 | 19 |
| Viðskiptabraut | 12 | 12 | 24 |
| Uppeldisbraut | 1 | 11 | 12 |
| Starfsbraut fyrir fatlaða | 4 | 1 | 5 |
| Almenn námsbraut | 54 | 47 | 101 |
| Samtals í skólanum | 286 | 264 | 550 |
Fjöldi
nemenda eftir búsetu |
||
| Lögheimili | Fjöldi | Hlutfall |
| Akranes, póstnúmer 300 | 357 | 65% |
| Borgarfjarðarsýsla sunnan Skarðsheiðar, póstnúmer 301 | 32 | 6% |
| Borgarnes, póstnúmer 310 | 48 | 9% |
| Borgarfjarðar og Mýrasýsla, póstnúmer 311 og 320 | 53 | 10% |
| Snæfellsnes, póstnúmer 340 til 360 | 26 | 5% |
| Dalasýsla, póstnúmer 370 og 371 | 15 | 3% |
| Utan Vesturlands | 19 | 3% |
| Samtals í skólanum | 550 | |
14. febrúar: Tilkynning um stærðfræðikeppni
Hin árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja verður haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands miðvikudaginn 23. febrúar klukkan 14:00 til 15:30. Auk grunnskóla á Vesturlandi er Klébergsskóla á Kjalarnesi og Grunnskólanum Hólmavík boðin þátttaka. Skráningu í keppnina lýkur föstudaginn 18. febrúar.
Tilhögun keppninnar er svipuð og undanfarin ár, þó er sú breyting að keppendum er ekki heimilt að yfirgefa keppnisstað fyrr en þeir hafa reynt við verkefnin í a.m.k. hálfa klukkustund. Tíu efstu í hverjum árgangi fá viðurkenningarskjal og þrír efstu í hverjum árgangi fá að auki peningaverðlaun sem eru 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000 kr. fyrir annað sæti og 5.000 kr. fyrir þriðja sæti.
Eftirtaldir aðilar gefa verðlaunafé og greiða annan kostnað vegna keppninnar:
| Límtré
- Vírnet, Borgarnesi. Landsbanki Íslands hf. Akranesi Íslandsbanki hf. Akranesi Olíufélagið ESSO ehf., Akranesi Landbúnaðarháskóli Íslands Verkalýðsfélag Akraness Akraneskaupstaður |
Norðurál,
Grundartanga Smell-inn, Akranesi Prentverk Akraness hf. Sementsverksmiðjan hf. OLÍS, Akranesi Verkalýðsfélag Borgarness |
Nánari upplýsingar veitir Bjarnþór G. Kolbeins deildarstjóri í stærðfræði. Hægt er að ná sambandi við hann með því að senda tölvupóst á póstfangið bgk@fva.is.
11. febrúar: Veikindaforföll kennara
Undanfarnar vikur hefur skæð inflúensa herjað á starfsmenn skólans eins og aðra landsmenn og hafa allmargir kennarar verið frá vinnu vegna veikinda. Þess er að jafnaði enginn kostur að fá menn til að hlaupa í skarðið í stað kennara sem eru frá vegna veikinda. Nemendur verða því varir við veikindi þeirra í ríkari mæli en viðskiptavinir flestra annarra fyrirtækja verða varir við veikindi hjá starfsfólki.
Öll forföll starfsmanna eru skráð á skrifstofu skólans. Undanfarin skólaár (þ.e. 2002-3 og 2003-4) hafa kennarar að jafnaði verið frá vegna veikinda í um það bil 3,6% allra vinnudaga. Samkvæmt gögnum sem birt voru í ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir árin 2001 til 2002 voru meðalveikindaforföll á Íslandi árið 2000 um 3,6% af vinnutíma. (Á öðrum Norðurlöndum voru tölurnar hærri eða 7% í Noregi, 5,2% í Svíþjóð og 3,9% í Danmörku.) Veikindaforföll meðal kennara skólans virðast því hvorki meiri né minni en almennt gerist á íslenskum vinnumarkaði.9. febrúar: Vefmæling
Vefmæling síðustu fjórar vikur (þ.e. 9. janúar til 5. febrúar) leiddi í ljós að hvern virkan dag er titilsíða skólavefjarins sótt að meðaltali 980 sinnum á 590 tölvur. Á laugardögum og sunnudögum er titilsíða vefjarins sótt að meðaltali 310 sinnum á 200 tölvur.3. febrúar: Sjálfshjálpar- og stuðningshópar
Steinunna Eva Þórðardóttir forvarnafulltrúi og námsráðgjafarnir Hjördís Árnadóttir og Ólafur Haraldsson hafa átt frumkvæði að stofnun sjálfshjálpar- og stuðningshópa fyrir nemendur með geðraskanir og fyrir stúlkur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Þetta er þriðja önnin sem sjálfshjálpar- og stuðningshópur fyrir nemendur með geðraskanir (svo sem þunglyndi og kvíða) starfar. Hópurinn hittist einu sinni á viku á fundi með sálfræðingi. Hópurinn hefur eingöngu verið skipaður stúlkum en í ráði er að stofna annan hóp fyrir pilta. Hópur fyrir fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis er nýstofnaður og ráðgert er að hann hittist með ráðgjafa einu sinni í viku.
Þeim sem vilja fá upplýsingar um starf þessara hópa er bent á að snúa sér til námsráðgjafa eða forvarnafulltrúa.1. febrúar: Sveinspróf í húsasmíði
Dagana 28. til 30. janúar þreyttu 7 nemendur sem lokið hafa námsbraut í húsasmíði við Fjölbrautaskóla Vesturlands sveinspróf. Allir náðu góðum árangri stóðust prófið með prýði. Sveinspróf í húsasmíði eru haldin af Menntafélagi byggingariðnaðarins í janúar og júní ár hvert. Þau eru að jafnaði aðeins haldin í Reykjavík og á Akureyri, þó er heimilt að halda þau annars staðar, en til þess þurfa að lágmarki að vera 5 umsækjendur á hverjum stað. Prófið sem nemendurnir héðan úr Fjölbrautaskóla Vesturlands tóku var haldið í Reykjavík og stóð yfir í 3 daga. Eins og í öðrum iðngreinum er sveinspróf í húsasmíði samræmt lokapróf til réttinda í greininni og tekur bæði til bóklegrar og verklegrar kunnáttu.26. janúar: Samræmd stúdentspróf
Frá og með vorönn 2005 þurfa allir sem ljúka stúdentsprófi að taka a.m.k. 2 samræmd próf. Borðið er upp á próf í þrem greinum: ensku, íslensku og stærðfræði. Öll prófin miðast við námsefni áfanga númer 103, 203, 303, 403 og 503.
Í vor verða samræmd stúdentspróf haldin sem hér segir:
- Íslenska mánudag 2. maí kl. 09:00 - 12:00.
- Enska þriðjudag 3. maí kl. 09:00 - 12:00.
- Stærðfræði miðvikudag 4. maí kl. 09:00 - 12:00.
Tilkynningar um hvenær opnað verður fyrir skráningu í samræmd próf í Innu verða birtar á þessum vef og lesnar í umsjónartímum.
Nemendum sem ætla að útskrifast með stúdentspróf í lok haustannar 2005 er bent á að það getur verið heppilegt að taka annað tveggja samræmdra prófa nú í vor. Nemendur sem ætla að útskrifast í vor og hafa ekki þegar tekið samræmt próf verða að taka 2 slík próf í maí.
Upplýsingar um samræmd próf liggja frammi á vef Námsmatsstofnunar.19. janúar: Skólanefndarfundur
Í gær, þriðjudaginn 18. janúar, var fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum gerði skólameistari grein fyrir skólastarfi á haustönn 2004 og sagði frá innritun fyrir vorönn 2005 og nemendafjölda í upphafi annar. Einnig lagði skólameistari fram bráðabirgðayfirlit um rekstur skólans á árinu 2004 og rekstraráætlun fyrir árið 2005. Í yfirlitinu kom fram að ef skólinn fær greitt fyrir alla nemendur á árinu 2004 þá duga tekjur fyrir gjöldum. Áætlun fyrir árið 2005 gerir ráð fyrir að útgjöld verði jöfn tekjum svo þau gögn sem fyrir liggja benda til að reksturinn sé í jafnvægi. (Sjá fundargerð.)18. janúar: Gögn um mat á skólastarfi
Öll gögn um mat á skólastarfi sem unnin voru á árinu 2004 eru nú komin á vef skólans. Þau gögn sem um ræðir eru:
Innra mat við skólann er kerfisbundið með þeim hætti að matinu er skipt í nokkra þætti og miðað við að á hverju fimm anna tímabili séu þeir allir teknir til skoðunar, sem þýðir að hver þáttur er tekinn fyrir tvisvar á hverju fimm ára tímabili. Í lok haustannar 2004 höfðu allir þættir nema einn verið teknir fyrir a.m.k. einu sinni. Sá eini þáttur sem á eftir að fjalla um er Mat á stöðu, aðbúnaði, kennslu, námsmati og árangri í einstökum deildum og fögum.
Skýrslan sem er vísað til í efstu línu listans hér að ofan gefur yfirlit yfir það starf sem hefur verið unnið við mat á starfi skólans frá því núverandi matskerfi var tekið í notkun veturinn 2002 til 2003. Heildaryfirlit yfir innra mat á starfi skólans er hægt að finna með því að smella á Skólinn á valmyndinni hér til vinstri.
Í ráði er að matskerfið verði endurskoðað nú á vorönn 2005.5. janúar 2005: Töflugerð fyrir vorönn lokið
Stundatöflur fyrir vorönn 2005 eru tilbúnar. Gerðar voru töflur fyrir alls 542 nemendur, þar af eru 479 sem voru í skólanum á haustönn, 48 endurinnritaðir og 15 nýnemar. Nemendafjöldi í skólanum nú í upphafi vorannar 2005 er sá sami og í upphafi vorannar 2004 en þá voru einnig gerðar 542 stundatöflur.
5. janúar 2005: Fimm nýjar kennslustofur
Verið er að leggja lokahönd á frágang fimm nýrra kennlustofa á neðri hæð í nýbyggingu skólans. Þessar stofur heita D101, D102, D103, D104 og D105. Þær tvær fyrsttöldu verða einkum notaðar fyrir kennslu í íslensku, sú í miðið fyrir stærðfræði og tvær þær síðasttöldu fyrir ensku. Stofa C101, sem var enskustofa, verður notuð fyrir verklega kennslu í rafiðngreinum. Stofa C109 verður ekki notuð framar því hún breytist í gangveg inn í nýbygginguna. (Flatarmyndir af skólahúsi...)29. des. 2004: Upphaf vorannar 2005
Stundatöflur fyrir vorönn 2005 verða afhentar klukkan 13 til 16 miðvikudaginn 5. janúar og kennsla hefst klukkan 8 fimmtudaginn 6. janúar.
Miðvikudaginn 5. janúar fer skólabíll frá Borgarnesi klukkan 12:15 og til baka frá Akranesi klukkan 15:00. Fimmtudaginn 6. janúar fer skólabíll frá Borgarnesi klukkan 7:15 og til baka frá Akranesi klukkan 14.20 og 15:30.29. des. 2004: Töflugerð hafin
Vinna fyrir stundatöflur fyrir vorönn er komin í fullan gang. Alls eru 535 nemendur skráðir í skólann, þar af eru 478 sem voru líka á haustönninni, 43 endurinnritaðir og 14 nemendur sem ekki hafa verið í skólanum áður. Nemendur sem ekki hafa greitt innritunargjöld hafa verið teknir af skrá.28. des. 2004: Auglýsing um starfsmanna- og kennarafund
Fyrsti starfsmannafundur vorannar 2005 verður klukkan 10 þriðjudaginn 4. janúar. Að loknum starfsmannafundinum verður kennarafundur.18. desember 2004: Brautskráning
Í dag, 18. desember, voru 43 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Taflan sýnir hvernig þessir 43 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
| Piltar/Karlar |
Stúlkur/Konur |
Alls |
|
| Stúdentspróf af félagsfræðabraut |
5 |
11 |
16 |
Stúdentspróf af málabraut
og af listnámsbraut |
0 |
1 |
1 |
Stúdentspróf af náttúrufræðibraut |
5 |
8 |
13 |
Stúdentspróf eftir nám
á viðskipta- eða uppeldisbraut |
0 |
4 |
4 |
| Burtfararpróf í húsasmíði |
2 |
0 |
2 |
| Burtfararpróf í rafvirkjun |
3 |
0 |
3 |
Burtfararpróf í vélvirkjun
|
1 |
0 |
1 |
| Burtfararpróf af sjúkraliðabraut |
0 |
2 |
2 |
| Burtfararpróf af íþróttabraut |
1 |
0 |
1 |
| Alls |
17 |
26 |
43 |
Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 14. Fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoðarskólameistari annál haustannar 2004. Söngsveit Tónlistarskólans á Akranesi og Fjölbrautaskóla Vesturlands söng undir stjórn Elvu M. Ingvadóttur og fyrir athöfnina léku félagar úr Skólahljómsveit Akraness undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur. Aðrir listamenn sem komu fram voru: Birna Sigurgeirsdóttir, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir og Ragnheiður Björnsdóttir sem léku á píanó; Rut Berg Guðmundsdóttir og Timothy Andrew Knappet sem léku saman á þverflautu og píanó.
![]()
Njáll Vikar Smárason nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Nokkrum útskriftarnemum voru veittar viðurkenningar:
Anna Jóna Kjartansdóttir fyrir ágætan árangur í raungreinum (gefandi Landmælingar Íslands) og fyrir ágætan árangur í stærðfræði (gefandi Hönnun hf.). Flosi Hrafn Sigurðsson fyrir ágætan árangur í ensku (gefandi Landsbankinn á Akranesi). Helga Sjöfn Jóhannesdóttir fyrir ágætan árangur í líffræði (gefandi HB-Grandi) og fyrir ágætan árangur í þýsku (gefandi þýska sendiráðið). Jóhannes Guðbrandsson hlaut viðurkenningu úr minningarsjóði Þorvaldar Þorvaldssonar fyrir ágætan árangur í stærðfræði og eðlisfræði. Hann hlaut einnig viðurkenningar fyrir ágætan árangur í líffræði og náttúrufræðigreinum (gefandi Sparisjóður Mýrasýslu), stærðfræði (gefandi KB-banki Akranesi) og íslensku (gefandi Edda útgáfa hf.). Magnús Ægisson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2004. Hann hlaut einnig viðurkenningar fyrir ágætan árangur í sögu og félagsfræði (gefandi Kaupfélag Borgfirðinga) og stærðfræði og viðskiptagreinum (gefandi Sjóvá Almennar á Akranesi). Njáll Vikar Smárason fyrir ágætan árangur í líffræði (gefandi Landmælingar Íslands). Ragnheiður Björnsdóttir fyrir ágætan árangur í ensku og frönsku (gefandi Landsbankinn á Akranesi). Rut Berg Guðmundsdóttir fyrir ágætan árangur í frönsku (gefandi íslandsbanki á Akranesi) og í þýsku (gefandi þýska sendiráðið). Vera Knútsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir forvarnastarf í Fjölbrautaskóla Vesturlands sem gefin var af Rótaryklúbbi Akraness.Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Bráðum koma blessuð jólin eftir Jóhannes úr Kötlum við lag W. B. Bradbury. Kristján Elís Jónasson var forsöngvari, Timothy Andrew Knappet lék undir á píanó. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.
1. desember: Vefmæling
Talning heimsókna á vef skólans í eina viku (frá kl. 14 þann 24. nóv. til kl. 14 í dag 1. des.) leiðir í ljós að á þessu tímabili var heimasíðan opnuð um það bil 5900 sinnum eða rúmlega 1000 sinnum á dag virka daga og 300 til 400 sinnum á dag um helgina. Á virkum degi er síðan opnuð í um það bil 400 mismunandi tölvum svo hver vél sem sækir síðuna virðist að jafnaði opna hana 2 til 3 sinnum sama daginn.
Um 96% þeirra sem opna vefsíðu skólans nota vafrann Internet Explorer, þar af nota 89% útgáfu 6. Um 4% skiptast á milli vafranna Safari og Opera. Um 97% nota Windows stýrikerfið, þar af 41% Windows XP og 47% Windows 2000. Um 3% tölva sem opna heimasíðu skólans keyra Macintosh stýrikerfi. 72% notenda hafa skjáupplausn 1024x768, 24% hafa betri upplausn og 4% eru með skjáupplausn 800x600.26. nóvember: Dimission og ball
Í dag halda útskriftarnemar dimission. þeir buðu kennurum í morgunverð klukkan 7 í mötuneyti skólans. Klukkan 11:30 bjóða þeir nemendum og kennurum á skemmtidagskrá á sal skólans. Gleðskapnum lýkur svo með samkomu sem hefst klukkan 8 í kvöld þar sem kennurum skólans er boðið. Í kvöld heldur nemendafélagið einnig síðasta dansleik annarinnar. Hann fer fram á sal skólans og stendur til klukkan 2 eftir miðnætti.
Útskriftarnemar syngja á kennarastofu í frímínútum.25. nóvember: Birting einkunna
Birting einkunna. Aðgangur nemenda að námsferlum og einkunnum í Innu er lokaður frá morgni 3. desember þar til eftir hádegi 15. desember. Eftir hádegi miðvikudaginn 15. desember geta nemendur séð einkunnir sem þá verður búið að skrá í Innu. Formleg einkunnaafhending er þó ekki fyrr en 17. desember og ekki er við því að búast að allar einkunnir verði komnar inn fyrr en að morgni 17. desember. Þótt einkunn hafi verið skráð í Innu og birt nemendum áskilur skólinn sér rétt til að leiðrétta mistök við útreikning eða skráningu einkunna.18. nóvember: Umsóknir um skólavist á vorönn
Frestur til að sækja um skólavist á vorönn 2005 rann út mánudaginn 15. nóvember. Alls bárust 59 umsóknir frá nemendum sem ekki voru í skólanum á haustönn. Nú þegar allar umsóknir hafa verið skráðar sem og val allra nemenda sem eru í skólanum og ætla að halda áfram eru alls 576 nemendur skráðir í áfanga á vorönn 2005. Af þeim sem nú eru í skólanum ætla 45 að útskrifast í desember.12. nóvember: Nýbygging
Framkvæmdir við nýbyggingu ganga samkvæmt áætlun. Fimm kennslustofur á neðri hæð verða teknar í notkun í byrjun vorannar 2005. Um leið verður hætt að kenna í stofum C109 og C110.
Áætlun um framhaldið er á þessa leið:
Byrjun haustannar 2005: Fimm stofur á efri hæð nýbyggingar teknar í notkun. Hætt að nota C205 (sem breytist í gangveg eins og C109). Nýtt anddyri fullbúið sem og lyfta og gangvegur úr efri hæð B-byggingar í efri hæð C-byggingar. Framkvæmdir við breytingar á stofum C201 til C204 hafnar.
Byrjun vorannar 2006: Byrjað að kenna aftur í stofunum sem nú heita C201, C203 og C204.
Byrjun haustannar 2006: Lokið við frágang á lóð og ný bílastæði Vallholtsmegin við skólann.1. nóvember: Góður árangur í forritunarkeppni
Forritunarkeppni framhaldsskólanna, sem haldin er af Háskólanum í Reykjavík, var háð laugardaginn 30. október. Að þessu sinni tóku tveir nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands, Sólberg Valdimarsson og Stefán Vignir Skarphéðinsson, þátt í keppninni. Þeir Sólberg og Stefán voru í liði sem gekk undir nafninu Þeta og keppti í beta-deild. Þriðji maður í því liði var Arnar Mar Sigurðarson nemandi við Iðnskólann í Reykjavík. Þeta náði bestum árangri allra liða í beta-deild í fyrri hluta keppninnar (og var í efsta sæti í hálfleik). Liðinu gekk heldur miður í seinni hlutanum og komst því ekki á verðlaunapall.1. nóvember: Góður árangur í stærðfræðikeppni
Þann 12. október sl. var stærðfræðikeppni framhaldsskólanna háð við framhaldsskóla allt í kringum landið. Keppnin er haldin í samvinnu Íslenska stærðfræðafélagsins og Félags raungreinakennara. Úrslit hafa nú verið kunngerð. Einn nemandi við Fjölbrautaskóla Vesturlands kemst áfram í úrslitakeppni en það er Jóhannes Guðbrandsson sem var í 9. sæti í keppninni fyrir efra stig (þ.e. keppni fyrir nemendur sem hafa verið meira en 2 ár í framhaldsskóla).29. október: Skammhlaup - hljómsveitakeppni - ball
Í dag, föstudag 29. október, er hið árlega skammhlaup. Það hófst klukkan 8:30 með því að liðin tíu gengu frá skólanum niður í íþróttahúsið við Vesturgötu þar sem keppt var í reiptogi, limbó og fleiri greinum. Að því loknu fluttist keppnin á skólalóðina þar sem liðin keppa í tugum greina: almennri vitnesku, bindishnútum, borðskreytingum, bókfærslu, o.fl. o.fl. (Myndir ...)
Klukkan 17, að skammhlaupi loknu, heldur nemendafélagið sína árlegu hljómsveitakeppni í Bíóhöllinni. Að þessu sinni kallast hún Tæfurokk. Deginum lýkur svo á balli á Breiðinni þar sem Vinir vors og blóma leika fyrir dansi til klukkan 3 eftir miðnætti.29. október: Heimsókn menntamálaráðherra
Í gær, fimmtudaginn 28. október, heimsótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skólann. Í för með henni voru aðstoðarmenn hennar þau Steingrímur Sigurgeirsson og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Heimsóknin hófst klukkan 9:30 með samkomu á sal skólans þar sem ráðherra spjallaði við nemendur og svaraði fyrirspurnum frá þeim. Í frímínútum upp úr klukkan 10 hitti hún kennara á kennarastofu.
Eftir að hafa spjallað við nemendur og kennara sátu ráðherra og aðstoðarmenn hennar fund með formanni skólanefndar, skólameistara, aðstoðarskólameistara, Páli S. Brynjarssyni bæjarstjóra í Borgarbyggð og bæjarfulltrúunum Guðmundi Páli Jónssyni frá Akranesi og Helgu Halldórsdóttur úr Borgarbyggð. Á fundinum var farið yfir stöðu skólans. Skólameistari gerði m.a. grein fyrir þörf skólans á betra húsnæði fyrir tréiðnadeild og stærri heimavist. Einnig var fjallað um áætlaðan nemendafjölda en í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2005 er gert ráð fyrir færri nemendum er fyrirsjáanlegt er að muni óska eftir skólavist.
Heimsókninni lauk með því að skólameistari sýndi Þorgerði Katrínu, Steingrími og Þorbjörgu skólann. Myndin hér fyrir neðan er tekinn í málmiðnadeild. (Fleiri myndir eru hér ...)
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Þráinn Sigurðsson kennari,
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir aðstoðarmaður ráðherra, Hörður Ó. Helgason skólameistari,
Steingrímur Sigurgeirsson aðstoðarmaður ráðherra.26. október: Samstarf við Iðnskólann í Reykjavík
Á föstudag og laugardag í síðustu viku (22. til 23. október) sóttu nemendur í grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina námskeið í múrsmíði við Iðnskólann í Reykjavík. Kennari á námskeiðinu var Snæbjörn Þ. Snæbjörnsson. Ný námskrá í bygginga- og mannvirkjagreinum gerir ráð fyrir að á fyrstu önn kynnist nemendur öllum iðngreinum í þessum greinaflokki. Ekki er aðstaða til kennslu í múrsmíði á Akranesi og því hefur Fjölbrautaskóli Vesturlands samið við Iðnskólann í Reykjavík um að nemendur á fyrstu önn sæki 30 kennslustundir við Iðnskólann.
20. október: Skólanefndarfundur
Í dag, 20. október, hélt nýskipuð skólanefnd sinn fyrsta fund. Á fundinum var Þorgeir Jósefsson endurkjörinn formaður nefndarinnar. Hörður Helgason gerði grein fyrir skólastarfinu á haustönn 2004 og nemendafjölda við skólann. Fram kom að útlit er fyrir að fjöldi ársnemenda 2004 verði sem næst 565 en fjárveitingar til skólans gera aðeins ráð fyrir 540 ársnemendum og ef skólinn fær ekki framlag á fjáraukalögum stefnir í rekstrarhalla á árinu. Rætt var um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2005. Þar er gert ráð fyrir að ársnemendur við skólann verði aðeins 540 en skólastjórnendur spá meiri aðsókn og áætla að þörf sé á kennslu fyrir a.m.k. 555 ársnemendur. Fram kom að skólameistari hefur ritað menntamálaráðherra bréf vegna þessa. (Fundargerð.)
Skólameistari og skólanefnd. Frá vinstri: Hörður Helgason skólameistari; Jón Ingi Þrastarson áheyrnarfulltrúi
nemenda, Borghildur Jósúadóttir, Þorgeir Jósefsson, Bergþór Ólason, Bergþóra Jónsdóttir, Hólmfríður
Sveinsdóttir, Sigurgeir Sveinsson áheyrnarfulltrúi kennara.20. október: Nýr fulltrúi nemenda í skólanefnd
Nemendafélag skólans hefur valið Jón Inga Þrastarson til að vera áheyrnarfulltrúi nemenda í skólanefnd.12. október: Foreldrafundur og aðalfundur foreldrafélags
Aðalfundur foreldrafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands var haldinn klukkan 20 þriðjudagskvöldið 12. október. Í upphafi fundar ávarpaði Hörður Helgason skólameistari fundargesti og sagði frá skólanum og starfi hans og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir kynnti starf nemendafélagsins, en hún er gjaldkeri þess. Síðan var dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum foreldrafélagsins. Elín Sigurbjörnsdóttir fráfarandi formaður las skýrslu stjórnar. Því næst var kjörin ný stjórn. Hana skipa Margrét Þorvaldsdóttir, Gunnar Ringsted og Elísabet Steingrímsdóttir. Margrét og og Elísabet eru Akurnesingar en Gunnar er úr Borgarbyggð. Endurskoðendur voru kjörnir Sigurður Sverrisson og Skúli Garðarsson.
Að loknum aðalfundarstörfum gafst foreldrum kostur á að spyrja um skólastarfið og þeir sem eiga börn fædd 1988 hittu umsjónarkennara þeirra.11. október 2004: Ný skólanefnd
Menntamálaráðherra hefur nú skipað nýja skólanefnd til næstu fjögurra ára.
Aðalmenn án tilnefningar eru: Bergþór Ólason, Bergþóra Jónsdóttir og Þorgeir Jósefsson.
Aðalmenn tilnefndir af fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: Borghildur Jósúadóttir og Hólmfríður Sveinsdóttir.
Varamenn án tilnefningar eru: Guðrún B. Halldórsdóttir, Ingþór Þórhallsson og Lárus Ársælsson.
Varamenn tilnefndir af fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: Björn Bjarki Þorsteinsson og Halla Guðmundsdóttir.
Áheyrnafulltrúi kennara sem kjörinn var á kennarafundi 19. ágúst 2004 er Sigurgeir Sveinsson og varamaður hans er Guðrún Jóhannesdóttir. Nemendafélagið á eftir að tilnefna áheyrnarfulltrúa nemenda.8. október: Stærðfræðikeppni
Í gær, fimmtudag 7. október, var haldin stærðfræðikeppni í samvinnu viskuklúbbs NFFA og stærðfræðideildar skólans. Keppnin var eins konar upphitun eða æfing fyrir stærðfræðikeppni framhaldsskólanna sem haldin verður 12. október. Verðlaun fyrir bestu lausnir (10.000 kr. fyrir fyrsta sæti og 5.000 kr. fyrir annað sæti) voru gefin af Landsbanka Íslands. Úrslit verða kunngerð og verðlaun afhent í næstu viku. Verkefnin úr keppninni liggja hér frammi í PDF-skrá.
| |
27. september: Tungumáladagurinn
|
20. september: Námsferð til Gotlands
Hópur 15 nemenda og tveggja kennara við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hélt til Gotlandseyjar utan suðausturströnd Svíþjóðar föstudaginn 17. september. Förin er farin til að endurgjalda heimsókn nemendahóps frá Donnergymnasiet í Klintehamn sem dvöldu á Akranesi s.l. haust. Heim kemur hópurinn svo sunnudaginn 26. september.
Hópurinn mun í ferðinni vinna að rannsóknarverkefnum tengdum námsáföngum í dýra- og plöntufræði (LÍF 223 og LÍF 233) sem þeir eru skráðir í nú á haustönn við FVA. Borin verður saman fjölbreytileiki dýra- og plantna á Íslandi og Gotlandi, hvað er líkt og hvað er ólíkt, og leitað skýringa þar á. Nemendur vinna ýmist tveir eða sem einstaklingar að ákveðnum verkefnum, s.s. farfuglum, staðfuglum, spendýrum og skriðdýrum/froskum, smádýrum s.s. skordýrum, fiskum í fersku vatni og í hafinu umhverfis, trjám og runnum, nytjaplöntum, lífríki í fjörum o.fl. Þá verða bornir saman landfræðilegir þættir eins og veður og veðurfar, jarðfræði, jarðvegur og gróðurfar almennt o.fl. í þeim dúr.
Samhliða rannsóknarverkefnunum mun hópurinn kynna sér menningu og sögu Gotlands og fara víða í skoðunarferðir um eyjuna. Þátttaka í skólalífinu í Donnergymnasium er einnig á dagskrá s.s. heimsókn í kennslustundir, þátttaka í kvöldvöku o.fl.
FVA fékk styrk til fararinnar úr Nordplus junior sjóðnum sem greiðir mestan hluta fargjalda hópsins. Auk þess greiðir FVA gistikostnað en nemendum er ætlað að kosta sjálfir fæði og önnur tilfallandi útgjöld. Þá lagði Landsbankinn á Akranesi fram myndarlegt framlag sem fer í að niðurgreiða persónulegan kostnað nemenda og gaf hverjum þátttakanda í ferðinni bol og húfu merkt bankanum.
Kennarar í förinni eru Hannes Þorsteinsson líffærðikennari og Kristján E. Guðmundsson umsjónarmaður erlendra samskipta.
6. september: Busavígsla og busaball
Eftir hádegi föstudaginn 3. september gekkst nemendafélagið fyrir busavígslu. Af því tilefni féll kennsla niður frá klukkan 11:20. Nýnemar sem vildu taka þátt í þessum leik mættu í stofur með umsjónarkennurum sínum klukkan 12. Þeir sem ekki vildu vera með gátu farið úr skólanum klukkan 11:20. Að venju voru nýnemar sem kusu að gangast undir busavígslu baðaðir upp úr köldu vatni. Um kvöldið stóð nemendafélagið svo fyrir balli á sal skólans.
Busavígsla fór fram með nokkuð öðru sniði nú en undanfarin ár þar sem skólinn gaf frí í tveim kennslustundum (síðasta tíma fyrir hádegi og fyrsta tíma eftir hádegi) en undanfarin ár var kennt fram að hádegi daginn sem busavígsla fór fram. Á móti kom að stjórn nemendafélagsins beitti sér fyrir því að nýnemar væru lausir við áreitni og hrekki fram til klukkan 12. Þetta tókst vel og tryggði að þeir sem ekki kærðu sig um að láta hrekkja sig gátu farið áður en hamagangurinn byrjaði.25. ágúst: Töflubreytingar, árekstrar, P-heimild, „frjáls“ mæting
Frestur til að sækja um töflubreytingar, árekstrarheimild, P-heimild og frjálsa mætingu rann út í dag, miðvikudag 25. ágúst.
Umsóknir um P-heimild og árekstrarheimild verða teknar fyrir á deildarstjórafundi föstudaginn 27. ágúst. Nemendur geta vitjað um afgreiðslu mánudaginn 30. ágúst. Umsóknir um frjálsa mætingu verða afgreiddar um eða eftir miðja næstu viku.25. ágúst: Nýtt símanúmer - 433-2500
Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur fengið nýtt símanúmer. Nýja númerið er 433-2500. Skólinn hefur einnig samið við Símann um uppsetningu á Centrex símakerfi. Það var tengt um leið og nýja númerið.24. ágúst: Kennsla hafin
Kennsla samkvæmt stundaskrá hófst í morgun. 612 nemendur eru innritaðir í skólann.
![]() |
Samningur við listasetur |
|
19. ágúst: Fyrsti kennarafundur skólaársins - kosning fulltrúa í skólanefnd, skólaráð og fulltrúaráð
Fyrsti kennarafundur skólaársins var haldinn í dag, 19. ágúst klukkan 11. Á fundinum völdu kennarar fulltrúa úr sínum hópi í skólanefnd, skólaráð og fulltrúaráð (en fulltrúaráð er samráðsvettvangur Fjölbrautaskólans og sveitarfélaga sem eiga aðild að samningi um rekstur skólans).
- Í skólanefnd var Sigurgeir Sveinsson var endurkjörinn sem aðalfulltrúi kennara og Guðrún Jóhannesdóttir endurkjörin sem varamaður.
- Í skólaráð voru kjörin Hjördís Árnadóttir og Þröstur Þór Ólafsson. Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir var kjörin sem varamaður. Hjördís var fyrir í skólaráði ásamt Önnu Bjarnadóttur sem hætti þar eftir tveggja ára setu, en vani er að fulltrúar kennara í skólaráði sitji í tvö ár.
- Í fulltrúaráð var Þröstur Þór Ólafsson kjörinn sem aðalmaður og Dröfn Viðarsdóttir sem varamaður.
19. ágúst: Fyrsti starfsmannafundur skólaársins - breytingar á starfsliði
Fyrsti starfsmannafundur skólaársins var haldinn í dag, 19. ágúst klukkan 10. Hörður Helgason skólameistari bauð starfsmenn velkomna til starfa. Hann gerði því næst grein fyrir breytingum á starfsliði skólans. Helstu breytingar eru:
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til að kenna sérgreinar á sjúkraliðabraut.
- Ingunn Anna Jónasdóttir hefur verið ráðin til að kenna dönsku.
- Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir kennari kemur aftur til starfa eftir eins árs námsorlof.
- Jón Árni Friðjónsson kennari kemur aftur til starfa eftir eins árs námsorlof.
- Marta Dögg Pálmadóttir kennari kemur aftur til starfa eftir barneignaleyfi.
- Brynja Einarsdóttir kennari lét af stöfum í vor.
- Sjöfn Pálfríður Jónsdóttir sem hafði starfað lengi við skólann, síðast sem kennari í fatasaumi, lét af störfum í vor.
- Gyða Bentsdóttir kennari verður í leyfi á haustönn 2004.
- Sigtryggur Karlsson kennari verður í námsorlofi á skólaárinu.
- Leó Jóhannesson kennari, sem var ráðinn til eins árs veturinn 2003 til 2004, er horfinn til annarra starfa.
- Tómas Ísleifsson kennari, sem var ráðinn til eins árs veturinn 2003 til 2004, er horfinn til annarra starfa.
- Egill Ragnarsson forstöðumaður mötuneytis verður í leyfi á skólaárinu og Kristbjörg Kjerúlf gegnir starfi hans á meðan. Aðrir starfsmenn í mötuneyti bæta við sig vinnu.
- Inga Lilja Guðjónsdóttir lætur af störfum við ræstingar. Guðríður Árnadóttir hefur verið ráðin í hennar stað.
11. ágúst: Mikil aðsókn að skólanum
Nú þegar forsendur fyrir töflugerð hafa verið færðar í nemendabókhaldið (Innu) eru 627 nemendur skráðir í skólann. Nýnemar eru 171. Nemendur sem voru í skólanum á síðustu önn og halda áfram eru 391. Endurinnritaðir nemendur (þ.e. þeir sem koma aftur í skólann eftir hlé) eru 65.
Af 171 nýnema eru 150 sem luku 10. bekk nú í vor. Þetta er nokkurn veginn sami fjöldi og síðastliðið haust.
Nú þegar eru skráðir nemendur nokkru fleiri en fjárveitingar til skólans gera ráð fyrir. Vegna þessa eru umsækjendur um skólavist nú í ágúst (þ.e. þeir sem ekki skiluðu umsókn og greiddu innritunargjöld áður en frestur til þess rann út) settir á biðlista. Þeim verður svarað í upphafi annar þegar ljóst er orðið hvar hægt er að fjölga í námshópum.11. ágúst: Tveir nýir kennarar ráðnir að skólanum
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til að kenna sérgreinar á sjúkraliðabraut. Guðrún Jóna tekur við að Brynju Einarsdóttur sem lét af störfum við skólann í vor. Ingunn Anna Jónasdóttir hefur verið ráðin til að kenna dönsku á haustönninni í forföllum Gyðu Bentsdóttur.5. ágúst: Tilkynning um upphaf haustannar 2004
Skólastarf á haustönn 2004 hefst mánudaginn 23. ágúst. Skóli verður settur klukkan 10 að morgni. Þess er vænst að allir nýnemar mæti á skólasetningu. Strax að henni lokinni fá þeir stundatöflur afhentar og hitta umsjónarkennara sína. Stundatöflur fyrir eldri nema verða afhentar klukkan 13 til 15. Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst þriðjudaginn 24. ágúst.5. ágúst: Vinna við töflugerð hafin
Í dag, 5. ágúst, komu stjórnendur, skrifstofufólk og fleiri starfsmenn skólans aftur til vinnu að afloknu sumarleyfi. Vinna við töflugerð fyrir haustönn er þagar hafin.22. júní: Fundargerð skólanefndarfundar
Á fundi sínum þann 15. júní ákvað skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands að fundargerðir skólanefndarfunda skuli liggja frammi á vef skólans. Þær verða settar undir Skólinn —> Rit og skjöl. (Lesa fundargerð ...)18. júní: Innritun fyrir haustönn 2004 lokið
Nú er lokið við að skrá umsóknir um skólavist við Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir haustönn 2003. Alls sækja 156 nemendur sem luku 10. bekk í vor um skólavist. Sambærileg tala frá fyrra ári er 152. Heildarfjöldi nýnema sem sækir um skólavist er 185. Nemendur sem voru í skólanum á vorönn og hyggjast halda áfram eru 384. Auk þess óska 64 nemendur sem áður hafa verið við skólann en voru ekki við nám á vorönninni efitir að vera endurinnritaðir. Alls liggja því fyrir umsóknir um skólavist frá 636 nemendum.10. júní: Fjórða útgáfa skólanámskrár
Fjórða útgáfa skólanámskrár er komin á vef skólans. Breytingar frá þriðju útgáfu voru kynntar deildarstjórnum og kennurum í febrúar 2004.
Síðan þriðja útgáfa Skólanámskrár Fjölbrautaskóla Vesturlands kom út hefur menntamálaráðuneytið kynnt breytingar á námi í bygginga- og mannvirkjagreinum. Í nýju útgáfunni eru því nýjar brautarlýsingar fyrir grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina og sérnám í húsasmíði. Einnig hefur verið kunngert að námskrá í rafsuðu verður ekki til í þeirri mynd sem verið hefur. Brautarlýsing fyrir rafsuðubraut hefur því verið tekin úr skólanámskránni.
Í janúar 2004 sendi menntamálaráðuneytið frá sér endurskoðun á almennum hluta Aðalnámskrár og hér er ýmislegt fært til samræmis við það sem þar stendur, m.a. ákvæði um kjörsvið á bóknámsbrautum.
Nokkrar breytingar hafa orðið á skólareglum, þær viðamestu varða frjálsa mætingu (þ.e. undanþágu frá skólasóknarreglu).
Allmargar áfangalýsingar hafa breyst, má þar helst nefna undanfarakröfur fyrir fyrstu áfanga í dönsku, ensku, íslensku, náttúrufræði, samfélagsgreinum og stærðfræði. Einnig hafa verið settar inn áfangalýsingar þar sem breyting hefur orðið á Aðalnámskrá og þar sem áfangalýsingar vantaði í eldri gerð skólanámskrár.
Til viðbótar við það sem hér er talið hafa verið gerðar ýmsar minniháttar lagfæringar og leiðréttingar.
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007