Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
skólaárið 2003-2004


Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2001-2002
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2002-2003

18. júní: Innritun fyrir haustönn 2004 lokið
Nú er lokið við að skrá umsóknir um skólavist við Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir haustönn 2003. Alls sækja 156 nemendur sem luku 10. bekk í vor um skólavist. Sambærileg tala frá fyrra ári er 152. Heildarfjöldi nýnema sem sækir um skólavist er 185. Nemendur sem voru í skólanum á vorönn og hyggjast halda áfram eru 384. Auk þess óska 64 nemendur sem áður hafa verið við skólann en voru ekki við nám á vorönninni efitir að vera endurinnritaðir. Alls liggja því fyrir umsóknir um skólavist frá 636 nemendum.

10. júní: Fjórða útgáfa skólanámskrár
Fjórða útgáfa skólanámskrár er komin á vef skólans. Breytingar frá þriðju útgáfu voru kynntar deildarstjórnum og kennurum í febrúar 2004.
   Síðan þriðja útgáfa Skólanámskrár Fjölbrautaskóla Vesturlands kom út hefur menntamálaráðuneytið kynnt breytingar á námi í bygginga- og mannvirkjagreinum. Í nýju útgáfunni eru því nýjar brautarlýsingar fyrir grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina og sérnám í húsasmíði. Einnig hefur verið kunngert að námskrá í rafsuðu verður ekki til í þeirri mynd sem verið hefur. Brautarlýsing fyrir rafsuðubraut hefur því verið tekin úr skólanámskránni.
   Í janúar 2004 sendi menntamálaráðuneytið frá sér endurskoðun á almennum hluta Aðalnámskrár og hér er ýmislegt fært til samræmis við það sem þar stendur, m.a. ákvæði um kjörsvið á bóknámsbrautum.
   Nokkrar breytingar hafa orðið á skólareglum, þær viðamestu varða frjálsa mætingu (þ.e. undanþágu frá skólasóknarreglu).
   Allmargar áfangalýsingar hafa breyst, má þar helst nefna undanfarakröfur fyrir fyrstu áfanga í dönsku, ensku, íslensku, náttúrufræði, samfélagsgreinum og stærðfræði. Einnig hafa verið settar inn áfangalýsingar þar sem breyting hefur orðið á Aðalnámskrá og þar sem áfangalýsingar vantaði í eldri gerð skólanámskrár.
   Til viðbótar við það sem hér er talið hafa verið gerðar ýmsar minniháttar lagfæringar og leiðréttingar.

25. maí: Vorferð starfsfólks Fjölbrautaskólans (Myndir ...)
Í gær, 24. maí, fór starfsfólk skólans í ferð um Hvalfjörð. Leiðsögumaður var Leó Jóhannesson sem sagði frá Harðar sögu og Hólmverja og rakti líka atburði úr seinni heimstyrjöld sem tengjast Hvalfirði. Í Hallgrímskirkju í Saurbæ flutti Steinunn Jóhannesdóttir erindi um Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur. Bjartviðri var og hlýtt, fögur fjallasýn, leiðsögn góð og ferðin vel heppnuð í alla staði. Henni lauk með borðhaldi í Hótel Glym.
   Undir borðum kvaddi Hörður Helgason skólameistari sér hljóðs og færði Brynju Einarsdóttur blómvönd, en Brynja lætur af störfum við skólann nú í vor. Einnig flutti Hörður framhaldsdeildinni í Stykkishólmi kveðjur og færði Gunnari Svanlaugssyni skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi mynd að gjöf með þökkum fyrir stamstarfið á liðnum árum, en Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur rekið framhaldsdeild í Stykkishólmi í samvinnu við grunnskólann þar og þeim rekstri lýkur nú þegar nýr framhaldsskóli tekur til starfa Í Grundarfirði. Gunnar þakkaði gjöfina og Eyþór Benediktsson færði Fjölbrautaskólanum Stykkishólmsbók að gjöf frá Grunnskólanum í Stykkishólmi.

25. maí: Gjöf frá Grundartangahöfn (Myndir ...)
Í gær, miðvikudag 24. maí, færðu Gunnar Sigurðsson og Gísli Gíslason skólanum 2 milljónir króna að gjöf frá Grundatangahöfn. Gjöfinni skal varið til kaupa á tækjum fyrir verknámsdeildir skólans. Að sögn þeirra Gunnar og Gísla er gjöf þessi færð skólanum vegna þess að uppbygging atvinnulífs á Grundartanga helst í hendur við eflingu verknáms við Fjölbrautaskólann.

25. maí: Skaga - Quilt færir Fjölbrautaskólanum mynd (Myndir ...)
Undanfarinn 10 ár hefur hópur áhugamanna um bútasaum komið saman einu sinni á mánuði og hefur Fjölbrautaskólinn lagt hópnum til húsnæði. Hópurinn kallar sig Skaga-Quilt og meðal félaga í honum eru 10 konur sem starfa við skólann. Sunnudaginn 23. maí hélt Skaga-Quilt sýningu á bútasaum á sal skólans. Við það tækifæri gaf hópurinn skólanum mynd sem verður hengd upp á bókasafninu.

21. maí 2004: Brautskráning og skólaslit (Myndir ...)
Í dag föstudaginn 21. maí 2004 var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 47 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Taflan sýnir hvernig þessir 47 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)  

 
Piltar/Karlar 
Stúlkur/Konur 
Alls 
Stúdentspróf 
8
16
24
Burtfararpróf af iðnbraut 
12
0
12
Stúdentspróf og burtfararpróf af iðnbraut 
1
0
1
Burtfararpróf af sjúkraliðabraut 
0
8
8
Burtfararpróf af starfsbraut 
1
0
1
Ársnám sem skiptinemi
0
1
1
Alls 
22
25
47

Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2004. Fyrir athöfnina léku nemendur Tónlistarskólans á Akranesi ásamt kennara sínum, Heiðrúnu Hámundardóttur. Aðrir listamenn sem komu fram voru:

Hrefna Dögg Gunnarsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
    Hörður Ó. Helgason skólameistari kvaddi Sjöfn Pálfríði Jónsdóttur sem lætur nú af störfum við skólann.
    Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi, Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri í Borgarbyggð og Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit afhentu námsstyrk Akranesskaupstaðar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Styrknum var að þessu sinni skipt milli tveggja nýstúdenta Birnu Björnsdóttur og Eyjólfs Ingva Bjarnasonar. (Sjá frétt hér að neðan.)
    Viskuklúbbur nemendafélagsins fékk framlag úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar.
    Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur eða störf að félagsmálum. Ef verðlaun eru gefin af fyrirtæki, félagi, stofnun eða sveitarfélagi er nafn gefanda innan sviga.

Aðrir sem tóku við verðlaunum og viðurkenningum voru:

Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.

21. maí 2004: Gjöf í minningarsjóð Elínar Írisar Jónasdóttur
Elín Íris Jónasdóttir lést þann 8. september 1962. Minningarsjóður um hana var stofnaður árið 1964 af bekkjarsystkinum hennar úr Gagnfræðaskólanum á Akranesi.
    Í gær, fimmtudaginn 20. maí, komu Auður M. Árnadóttir, Sigurlaug Árnadóttir og Ingibjörg Þorkelsdóttir á fund Harðar Ó. Helgasonar skólameistara og færðu honum ávísun að upphæð 50.000 krónur. Þetta fé er gjöf í minningarsjóð Elínar Írisar frá bekkjarsystkinum hennar sem bætt er í sjóðinn nú þegar fjörtíu ár eru liðin frá stofnun hans.
    Fyrir stofnun Fjölbrautaskólans var sjóðnum varið til að veita nemendum við Gagnfræðaskólann á Akranesi viðurkenningu fyrir íslenskan stíl. Fjölbrautaskólinn tók sjóðinn í arf eftir Gagnfræðaskólann og fram til þessa hefur viðurkenning úr honum verið veitt, við skólaslit á vori, nemanda við Fjölbrautaskólann sem hefur skarað fram úr í ritgerðasmíð á skólaárinu.

21. maí 2004: Námsstyrkur Akranesskaupstaðar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar
Frá árinu 1991 hefur Akraneskaupstaður veitt veglegan námsstyrk við brautskráningu að vori. Á hverju vori hafa allir nemendur, sem útskrifuðust úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á skólaárinu og hugðu á áframhaldandi nám, getað sótt um þennan styrk. Þegar umsóknarfrestur var útrunninn settust skólaráð Fjölbrautaskólans og bæjarstjóri Akraness á fund og völdu einn umsækjanda. Valið tók einkum mið af námsárangri en einnig var horft til dugnaðar og árangurs á öðrum sviðum, svo sem í félagsmálum.
   Nú á vorönn 2004 varð sú breyting að Borgarbyggð og Borgarfjarðarsveit gengu til samstarfs við Akraneskaupstað og heitir námsstyrkurinn héðan í frá Námsstyrkur Akranesskaupstaðar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Styrkupphæðin hefur verið hækkuð og er nú 600.000 krónur og nú er styrkurinn ekki veittur einum nemanda heldur tveim og er heimilt að skipta honum í hvaða hlutföllum sem er.
   Mánudaginn 17. maí komu Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi, Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri í Borgarbyggð, Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit og skólaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands saman til fundar og fóru yfir umsóknir sem borist höfðu um námsstyrk. Ákveðið var að skipta styrknum að þessu sinni milli Birnu Björnsdóttur og Eyjólfs Ingva Bjarnasonar þannig að Birna hlyti 2/3 og Eyjólfur 1/3 af styrkupphæðinni. Eyjólfur og Birna luku bæði stúdentsprófi af náttúrufræðibraut á vorönn 2004.

14. maí: Síðasti prófdagur
Prófum á vorönn 2004 lýkur í dag, föstudag 14. maí. Sjúkrapróf verða haldin mánudaginn 17. maí. Próftafla fyrir sjúkrapróf liggur frammi á vef skólans.

14. maí: Styrkur til þróunarverkefnis
Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu á árinu 2004. Alls var sótt um styrki til 95 verkefna. Að fengnum tillögum nefndar sem metur umsóknir og gerir tillögur um úthlutun ákvað ráðherra að veita 16.7 milljónum króna til 35 verkefna. Að þessu sinni sótti Fjölbrautaskóli Vesturlands um styrk vegna eins verkefnis sem er rannsókn á þörf fyrir starfsmenntun á Vesturlandi. Skólanum var úthlutað 300 þúsund krónum. Ráðgert er að vinnan við rannsóknina hefjist í sumar og henni ljúki í september. Niðurstöður verða notaðar til að endurskoða námsframboð skólans og vinna áætlun um stofnun nýrra námsbrauta.

3. maí: Lokað fyrir námsferil í Innu
Aðgangi nemenda að námsferli sínum í Innu hefur verið lokað. Opnað verður aftur daginn sem einkunnir verða afhentar, þ.e. 19. maí.

3. maí: Tilboð í seinni áfanga nýbyggingar
Föstudaginn 30. apríl voru opnuð tilboð í seinni áfanga nýbyggingar Fjölbrautaskólans sem rís af grunni við Vallholt. Eftirtalin fyrirtæki buðu í verkið:

Tölurnar innan sviga eru tilboðsupphæðir með virðisaukaskatti.

30. apríl: Dagsetningar við lok vorannar og upphaf haustannar 2004

Mán. 03.05.2004
 :  Fyrsti prófdagur.
Mán. 17.05.2004
 :  Sjúkrapróf.
Þri. 18.05.2004
 :  Viðtöl útkskriftarnema við skólameistara.
Mið. 19.05.2004
 :  Afhending einkunna og lokaval f. haustönn kl. 10. Prófsýning kl. 11 til 12.
Fös. 21.05.2004
 :  Brautskráning og skólaslit kl. 14.
 
Fim. 24.06.2004
 :  Skrifstofa skólans lokar vegna sumarleyfa starfsfólks.
Fim. 05.08.2004
 :  Skrifstofa skólans opnar aftur eftir sumarleyfi.
 
Mán. 23.08.2004
 :  Haustönn hefst.

26. apríl: Lokaball annarinnar, dimission, annarlok framundan
Föstudaginn 23. apríl buðu útskriftarnemar kennurum í morgunverð á sal skólans klukkan sjö. Slík morgunverðarboð eru orðin föst hefð og jafnan höfð sama dag og dimission en hátindur hennar er dagskrá á sal skólans í síðustu kennslustund fyrir hádegi. Þar stíga útskriftarnemar á svið og skemmta skólafélögum sínum og starfsfólki skólans.
    Á föstudagskvöldið var svo lokaball annarinnar sem er síðasti stórviðburðurinn sem nemendafélagið stendur fyrir á þessu skólaári. Ballið var fjölsótt og fór vel fram.
    Kennslu á vorönn 2004 lýkur föstudaginn 30. apríl og próf hefjast mánudaginn 3. maí.

26. apríl: Nemandi við Fjölbrautaskóla Vesturlands sigurvegari í Íslandsglímunni
Í Íslandsglímunni sem háð var í Víkinni laugardaginn 24. apríl var keppt um Grettisbeltið í karlaflokki og Freyjumenið í kvennaflokki. Sólveig Rós Jóhannsdóttir hlaut Freyjumenið. Sólveig er nemandi við Fjölbrautaskóla Vesturlands og keppir fyrir Glímufélag Dalamanna. Skólavefurinn óskar henni til hamingju með sigurinn.

26. apríl: Íslandsmót iðnnema (Myndir frá mótinu eru í myndaalbúmi skólans.)
Íslandsmót iðnnema var haldið miðvikudaginn 21. apríl við Iðnskólann í Hafnarfirði. Sex iðnnemar við Fjölbrautaskóla Vesturlands kepptu. Þeir eru: Axel Freyr Gíslason á vélvirkjabraut, Helgi Guðmundsson á rafvirkjabraut, Kjartan Guðjónsson á húsasmíðabraut, Samúel Þorsteinsson á vélvirkjabraut, Sindri Hlífar Guðmundsson á húsasmíðabraut og Svanur Þór Sigurðsson á rafvirkjabraut.
Svanur Þór Sigurðsson vann til verðlauna þar sem hann náði þriðja sæti í keppni rafvirkja.

26. apríl: Gestir frá Finnlandi og Svíþjóð
Þann 15. mars komu 4 nemendur og 1 kennari frá verkmenntaskólanum í Kemi-Tornio í Finnlandi í heimsókn til Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nemendurnir dvöldu í tvær vikur. Nú í apríl heimsóttu okkur svo 2 nemendur og 1 kennari frá Palmcrantzskolan í Östersund í Varmalandi í Svíþjóð og dvöldu nemendurnir í tvær vikur en kennarinn í eina. Í báðum tilvikum var um að ræða nemendur í verknámi og báðar heimsóknirnar voru styrktar af norrænum sjóðum. Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur áður haft samskipti við þessa sömu skóla í Finnlandi og Svíþjóð og nemendur og kennarar á verknámsbrautum hér hafa heimsótt þá.
    Kristján Guðmundsson félagsfræðikennari hefur umsjón með erlendum samskiptum og sá hann um móttökur og skipulag þessara heimsókna. Þegar fréttamaður skólavefjar hafði sambandi við hann lét hann þess getið að Palmcrantzskolan í Svíþjóð sé á sömu slóðum og Egill Skallagrímsson fór um þegar hann var sendur til að innheimta skatt fyrir Noregskonung, spjó fram í gestgjafa sinn og þakkaði svo fyrir gestrisnina með því að krækja úr bónda annað
augað. Svo bætti Kristján við: „Vonandi eru Vermlendingar ekki komnir hingað til að hefna fyrir þessa sneypilegu meðferða á landa þeirra. Þess má til gamans geta að Vermlendingar hafa í gamni lýst sig sjálfstæða frá Svíþjóð og tekið upp eigin fána sem þeir færðu skólanum ásamt skúlptúr af skrímsli því sem lifir
í Stórsjön, en við það stendur Östersund, og ver það bæjarbúa. Þeir tjáðu mér að þeir hefðu sendiráð á Íslandi og mun það vera á stað í Reykjavík sem heitir
Gaukur á Stöng.“

15. apríl: Af skólaráði
Í lok haustannar hætti Vera Knútsdóttir sem fulltrúi nemenda í skólaráði. Í hennar stað var Elvar Árni Þrastarson kjörinn. Hann hætti námi við skólann í febrúar og þá var Sigurlaug Kjartansdóttir kjörin í hans stað. Fulltrúar nemenda í skólaráði eru því  Þórður Eiríksson og Sigurlaug Kjartansdóttir. Fulltrúar kennara eru Anna Bjarnadóttir (kosin haust 2002) og Hjördís Árnadóttir (kosin haust 2003). Varamaður úr hópi kennara er Þröstur Þór Ólafsson (kosinn haust 2002). Auk tveggja fulltrúa nemenda og tveggja fulltrúa kennara er skólaráð skipað skólameistara, aðstoðarskólameistara og áfangastjóra.
    Það sem af er skólárinu 2003 til 2004 hefur skólaráð komið saman sjö sinnum (8. okt., 20. nóv., 16. feb., 5. mars, 8. mars, 26. mars og 2. apríl). Meðal mála sem fjallað hefur verið um eru: Dagskrá nemendafélagsins, einingar fyrir þátttöku í leikriti, viðurlög við fjarvistum og brot einstakra nemenda á skólareglum.

15. apríl: Ný stjórn nemendafélagsins
Kosningar í stjórn og embætti innan nemendafélagsins fóru fram um síðustu mánaðamót og úrslit voru tilkynnt þann 1. apríl. Í kosningum til aðalstjórnar voru þrír listar í kjöri. Listi sem kallaði sig Svart og sykurlaust vann með 55,8% atkvæða. Listann skipuðu:

Sturlaugur, Þóra Geirlaug, Axel Már og Steinar mynda því aðalstjórn nemendafélagsins á næsta skólaári. Úrslit kosninga í önnur embætti voru sem hér segir:


15. mars: Leiklistarklúbbur nemendafélagsins frumsýnir Kardemommubæinn
Í gær, sunnudaginn 14. mars, frumsýndi Leiklistarklúbbur nemendafélagsins leikritið Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Sýningin var í Bíóhöllinni og var vel sótt og afar vel heppnuð.
    Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson (sá sami og leikstýrði sýningu leiklistarklúbbs á Hárinu í fyrra.) Rúmlega 30 leikarar koma fram í sýningunni og meira en 50 nemendur við skólann koma að verkefnum sem tengjst henni, svo sem tónlist, förðun, leikmynd, leikskrá, búningum, lýsingu, sviðsmynd og hárgreiðslu.
    Í stjórn leiklistarklúbbs eru Elsa J. Kiesel, Þór Bínó Friðriksson og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir og framkvæmdastjórar sýningarinnar eru Bjarki Þór Guðmundsson, Sturlaugur A. Gunnarsson og Þór Bínó Friðriksson.

15. mars: Úrslit í stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu b. grunnskóla (Myndir)
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla var haldin var hér við Fjölbrautaskólann á Akranesi þann 18. febrúar. Keppnin er uppruninn við Flensborgarskóla í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Sams konar keppni er haldin samtímis við allmarga framhaldsskóla.
    Laugardaginn 13. mars var 10 efstu nemendum í hverjum árgangi boðið til athafnar á sal skólans þar sem þeim voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í keppninni. Eins og undanfarin ár voru þeim þrem efstu í hverjum árgangi veitt peningaverðlaun: 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000 kr. fyrir annað sæti og 5.000 kr. fyrir það þriðja.
    Peningar til að greiða verðlaun og annan kostnað við keppnina eru gefnir af fyrirtækjum á Vesturlandi. Fyrirtæki sem styrkja keppnina að þessu sinni eru:
 

Akraneskaupstaður
Fiskiðjan Bylgja Ólafsvík
Guðmundur Runólfsson hf. Grundarfirði
Haraldur Böðvarsson hf. Akranesi 
KB banki Akranesi, 
KB banki Stykkishólmi, 
Landsbanki Íslands hf. Akranesi, 
Loftorka Borgarnesi ehf. 
Lyf og heilsa Akranesi 
Mjólkursamlagið Búðardal, 
Model sf. Akranesi, 
Orkuveita Reykjavíkur Akranesi, 
Sparisjóður Mýrasýslu.

Hér á eftir eru taldir upp þeir sem voru í 10 efstu sætum í hverjum árgangi:

8. bekkur
1. Ragnar Þór Gunnarsson, Grundaskóla
2. Ragnar Harðarson, Brekkubæjarskóla
3. Unnar Örn Jóhannesson, Grunnskólanum í Stykkishólmi
4.-10. Andrés Már Harðarson, Grundaskóla
4.-10. Indriði Einar Reynisson, Grunnskólanum Hólmavík
4.-10. Kamilla Rún Gísladóttir, Grunnskóla Grundarfjarðar
4.-10. Ólafur Helgi Halldórsson, Grundaskóla
4.-10. Stefanía Hallgrímsdóttir, Grundaskóla
4.-10. Sunna Dís Jensdóttir, Grundaskóla
4.-10. Þorbjörg Matthíasdóttir, Grunnskólanum Hólmavík

9. bekkur
1. Birkir Guðmundarson, Brekkubæjarskóla
2. Þórður Björnsson, Grundaskóla 3012892789
3. Leifur Finnbogason, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Gréta Sigríður Einarsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Haukur Páll Jónsson, Heiðarskóla
4.-10. Páll Straumberg Guðsteinsson, Grundaskóla
4.-10. Sigfús Helgi Kristinsson, Heiðarskóla
4.-10. Sveinn Flóki Guðmundsson, Kleppjárnsreykjaskóla
4.-10. Tómas Árnason, Brekkubæjarskóla
4.-10. Una Harðardóttir, Brekkubæjarskóla

10. bekkur
1. Rakel Guðjónsdóttir, Varmalandsskóla
2. Dagmar Ýr Wiium, Brekkubæjarskóla
3. Guðmundur Freyr Hallgrímsson, Grundaskóla
4.-10. Almar Gunnarsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Andri Gunnarsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Arnar Grétarsson, Varmalandsskóla
4.-10. Kristján Ingi Arnarsson, Grunnskólanum Tjarnarlundi
4.-10. Máni Elmarsson, Grundaskóla
4.-10. Pawel Jerzy Swierczynski, Grunnskólanum Hellissandi
4.-10. Sigurður Ástvaldur Hannesson, Brekkubæjarskóla

Keppendur hér á Akranesi voru 243 talsins og hafa aldrei verið fleiri. (Þeir voru 204 í fyrra og 162 árið það áður.) Flestir komu úr grunnskólanum í Borgarnesi eða 38. Úr grunnskólanum í Stykkishólmi komu 32, úr Heiðarskóla 28, úr Brekkubæjarskóla 25, úr Grundaskóla 24, úr Varmalandsskóla 22, úr grunnskólanum í Hólmavík 20, úr grunnskólanum Grundarfirði 19, úr grunnskólanum í Búðardal 14. Úr öðrum skólum komu færri en 10. Af keppendunum voru 79 úr áttundu bekkjum, 82 úr níundu bekkjum og 82 úr tíundu bekkjum.
    Fyrir úrlausn var hægt að fá í mesta lagi 100 stig.

    Þess má geta að þessar tölur eru lágar í 9 og 10. bekk og eru því til marks um að keppnin hafi verið frekar þung þetta árið fyrir þá bekki.

5. mars: Niðurstöður könnunar á viðhorfum nemenda til opinna daga.
Í umsjónartíma á miðvikudaginn, 3. mars, voru nemendur beðnir að svara nokkrum spurningum um opna daga. Þegar svörin voru skoðuð kom í ljós að flestir voru ánægðir með hvernig til tókst. Samatekt um svör nemenda er hér. Á spurningablöðunum sem lögð voru fyrir nemendur voru auk fjölvalsspurninga línur fyrir ábendingar um hvernig haga skuli opnum dögum á næsta ári. Rúmlega 160 nemendur skrifuðu ábendingar sem stjórnendur skólans munu hafa til hliðsjónar þegar opnir dagar verða skipulagðir á vorönn 2005.

2. mars: Fræðslufundur á Foreldrafélagsins
Í gærkvöldi, mánudagskvöld 1. mars, hélt Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands opin fræðslufund á sal skólans. Á fundinum flutti Marteinn Steinar Jónsson erindi um samskipti foreldra við börn og unglinga. Að erindinu loknu svaraði Marteinn Steinar fyrirspurnum fundarmanna. Fundurinn var vel sóttur og komu meira en 80 manns. Kostnaður við fundarboð og laun fyrirlesara er að hluta greiddur með styrk frá Þjónustuveri Símans á Akranesi.

27. febrúar: Söngvakeppni og árshátið nemendafélagsins
Miðvikudaginn 25. febrúar fór söngvakeppni nemendafélagsins fram á sal skólans. Keppendur voru tólf talsins. Í fyrsta sæti var Elsa Jóhanssdóttir Kiesel með lagið Aint got no. Í öðru sæti var Brynja Valdimarsóttir sem söng I will always love you og í þriðja sæti var Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir sem söng lagið Hand in my pocket. Undirleik önnuðust Flosi Einarsson (hljómborð), Erlingur á gítar, Sigurþór á bassa og Eiríkur Guðmundson á trommur. Dómnefndina skipuðu Diddú, Ellý, Pétur Óðins, Sigurður Sverrisson og Smári Vífilsson.  Keppnin var með miklum glæsibrag og mættu vel yfir 300 manns á hana.
    Kvöldið eftir, þ.e. fimmtudagskvöldið 26. febrúar, var svo árshátið nemendafélagsins. Hún hófst með veislukvöldverði á sal skólans. Meðan á borðhaldi stóð voru skemmtiatriði, m.a. flutti Elsa Jóhanssdóttir Kiesel lagið sem færði henni sigur í söngvakeppninni kvöldið áður og ýmsir aðrir listamenn komu fram bæði úr hópi nemenda og aðkeyptir skemmtikraftar. Seinna um kvöldið var svo ball þar sem Paparnir léku svo fyrir dansi við góðar undirtektir. Allt fór þetta vel fram.
    Í árshátiðarnefnd, sem annaðist undirbúning, voru Valgerður Valsdóttir, Ragnheiður Þórðardóttir, Unnur Jónsdóttir, Sigrún Guðnadóttir og Tinna Björg Kristinsdóttir.

27. febrúar: Opnir dagar
Dagarnir 25. til 27. febrúar eruopnir dagar í FVA. Þema opinna daga að þessu sinni er “sköpun” og  nemendur skólans vinna í 34 vinnuhópum að ýmiskonar skapandi verkefnum. Listi yfir viðfangsefni hópanna fer hér á eftir

Árshátíðarundirbúningur
Auglýsingar fjöldagjörningur
Blaðamennska og umbrot
Blómaskreytingar
Brúðuleikhús
Flugdrekasmíð og keppni
Gellunámskeið
Gifs skúlptúrar
Golfvallarhönnun
Hekl
Hljómsveit hússins
Jeppaferð
Kleinubakstur
Kökuskreytingar
Landslagsmyndir á tré
Leiklist
Línudans
Ljósmyndun
Myndlist
Plötusnúðanámskeið
Ruslskúlptúrar
Sandkastalabygging og keppni
Skapandi skrif
Skartgripagerð
Skrautskrift
Skúlptúrar úr málmi
Útilistaverk úr pappamassa
Útilistaverk úr steini
Útvarpsþáttagerð
Vefsíðugerð
Veggjakrot
Video og klippitækni
Vísnagerð
Öskupokagerð

Opnum dögum verður lýkur í dag, föstudaginn 27. febrúar, með opnu húsi í skólanum. Þá gefst gestum og gangandi tækifæri á að skoða, horfa eða hlusta á afrakstur vinnuhópanna. Húsið opnar klukkan 11.00 og verður opið fram eftir degi. Útvarp Blómið FM 95,0 fjallar um opna daga, ræðir við nemendur og útvarpar beint frá helstu viðburðum frá 11.00 til 16.00.
    Í undirbúningsnefnd vegna opinna daga eru:
Kennararnir Anna Bjarnadóttir, Anna Lára Steindal, Helena Valtýsdjóttir og Hjördís Árnadóttir.
Nemendurnir Auður Inga Ingimarsdóttir, Jónína Svavarsdóttir, Þorkell Steindal, Karítas Jónsdóttir, Sigurlaug Kjartansdóttir og Soffía Helgadóttir.

18. febrúar: Stærðfræðikeppni fyrir nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja
Hin árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í dag, miðvikudaginn 18. febrúar klukkan 14:15 til 15:45. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla víða um land. Þetta er í sjötta sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni.
    Alls voru 285 unglingar úr 14 skólum skráðir til keppni og hafa aldrei verið fleiri (í fyrra voru þátttakendur 204). Að keppni lokinni fengu keppendur veitingar í boði skólans.
    Eins og fyrri ár eru fyrstu verðlaun í hverjum árgangi 15.000 kr., önnur verðlaun 10.000 kr. og þriðju verðlaun 5.000 kr. Upplýsingar um hvenær verðlaun verða afhent munu birtast á þessari fréttasíðu innan skamms.
    Eftirtaldir aðilar styrkja keppnina að þessu sinni:

Akraneskaupstaður
Fiskiðjan Bylgja Ólafsvík
Guðmundur Runólfsson hf. Grundarfirði
Haraldur Böðvarsson hf. Akranesi 
KB banki Akranesi, 
KB banki Stykkishólmi, 
Landsbanki Íslands hf. Akranesi, 
Loftorka Borgarnesi ehf. 
Lyf og heilsa Akranesi 
Mjólkursamlagið Búðardal, 
Model sf. Akranesi, 
Orkuveita Reykjavíkur Akranesi, 
Sparisjóður Mýrasýslu.

17. febrúar 2004: Nemandur við Fjölbrautaskólann sigurvegarar á Íslandsmeistaramótinu í glímu
Íslandsmeistaramótið í glímu var haldið í íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 14. febrúar. Bestum árangri í kvennflokki náðu systurnar Svana Hrönn Jóhannsdóttir og Sólveig Jóhannsdóttir frá Hlíð í Dalasýslu, en þær eru báðar nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Svana Hrönn Jóhannsdóttir vann sigur á mótinu og er Íslandsmeistari í +65 kg. flokki en Sólveig Jóhannsdóttir sigraði í opnum flokki kvenna.

11. febrúar 2004: Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
Í dag, 11. febrúar, var fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum gerði Hörður Helgason skólameistari grein fyrir skólastarfi og nemendafjölda á yfirstandandi skólaári og lagði fram bráðbirgðauppgjör fyrir árið 2003 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2004. Samkvæmt bráðabirgðauppgjörinu er um það bil fjögurra milljón króna halli á rekstri skólans árið 2003. Þessi tala gæti þó átt að breytast því enn er ekki ljóst hvort skólinn hefur fengið allt það rekstrarfé frá ríkinu sem hann átti að fá fyrir síðasta ár.
    Formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu við nýbyggingu og kom fram í máli hans að framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun.
    Fyrir fundinum lá bréf frá nokkrum nemendum við skólann þar sem þess er farið á leit að íbúar heimavistar fái frjálst val um hvort þeir kaupa mat í mötuneyti skólans. Í umræðum um bréfið gerði skólameistari grein fyrir því að samkvæmt áætlun um innra mat verði gerð úttekt á þjónustu mötuneytisins á þessari önn. Skólanefndin var sammála um að breyta í engu reglum um rekstur mötuneytisins fyrr en niðurstöður þessarar úttektar liggja fyrir.

11. febrúar 2004: Fundur í fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands
Í gær, 10. febrúar, var fundur í fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands en í fulltrúaráðinu eiga sæti fulltrúar sveitarfélaga sem eiga aðild að samning um skólann.
    Fyrsta mál á dagskrá fundarins var kynning á fyrirhugaðri endurskoðun á samningi menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Vesturlandi um Fjölbrautaskólann. Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi og Hörður Helgason skólameistari kynntu drög að endurskoðuðum samningi þar sem helstu breytingar frá eldri gerð (sem var undirrituð 29. maí 1998) eru þær að Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær og Stykkishólmur eru ekki lengur með í samstarfi um rekstur skólans og fulltrúaráðsmönnum fækkar úr 15 í 12. Fulltrúaráð gerði ekki athugasemdir við þau samningsdrög sem Gísli og Hörður lögðu fram til kynningar á fundinum.
    Annað mál á dagskrá var greinargerð skólameistara fyrir nemendafjölda og skólastarfi á skólaárinu 2003 til 2004.
    Þriðja efnið á dagskrá var framlag sveitarfélaga til tækjakaupa fyrir skólann. Skólameistari lagði til að sveitarfélög sem áfram eiga aðild að samningi um skólann greiði sömu upphæð í ár og á síðasta ári. Fundarmenn sem tóku til máls lýstu sig fylgjandi þeirri tillögu.
    Að fundi loknum skoðuðu fulltrúaráðsmenn byggingaframkvæmdir við Vallholt þar sem hafin er vinna við smíði nýs kennsluhúsnæðis.

2. febrúar 2004: Lið Fjölbrautarskóla Vesturlands vann sigur á liði Menntaskólans á Ísafirði í annarri umferð Gettu betur
Á föstudagskvöldið, 30. janúar, mætti lið Fjölbrautarskóla Vesturlands liði Menntaskólans á Ísafirði í annarri umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Okkar lið, sem er skipað þeim Heiðari Lind Hanssyni, Jóhannesi Guðbrandssyni og Þóru Geirlaugu Bjartmarsdóttur, vann með 19 stigum gegn 16. Nánari upplýsingar um keppnina eru á vef ríkisútvarpsins (www.ruv.is)

21. janúar 2004: Lið Fjölbrautarskóla Vesturlands vann sigur á liði Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra í fyrstu umferð Gettu betur
Í gærkvöldi mætti lið Fjölbrautarskóla Vesturlands til leiks í fyrstu umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Í þessari fyrstu umferð unnu okkar menn sigur á  liði Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra. Liðið er skipað þeim Heiðari Lind Hanssyni, Jóhannesi Guðbrandssyni og Þóru Geirlaugu Bjartmarsdóttur.

7. janúar 2004: Töfluafhending
Stundatöflugerð fyrir vorönn 2004 lauk í gær, 6. janúar. Töflur verða afhentar í dag. Alls voru gerðar stundatöflur fyrir 542 nemendur. 14 nemendur sem stunda nám í rafsuðu í kvöldskóla hafa sömu töflu og á haustönn. Nemendafjöldi í skólanum á Akranesi við upphaf vorannar 2004 er því 542 +14 = 556.
    Stundatöflur eru afhentar í skólanum í dag 7. janúar, klukkan 13 til 17 og regluleg kennsla samkvæmt stundaskrá hefst á morgun, 8. janúar, klukkan 8.

2. janúar 2004: Undirbúningur vorannar og töflugerð langt komin
Meðan nemendur hafa verið í jólaleyfi hafa skrifstofufólk og skólastjórnendur notað hvern virkan dag til að undirbúa vorönn 2004. Stundatöflugerð er nú langt komin og hefur sjaldan gengið betur, enda hafa margvíslegar endurbætur verið gerðar á töflugerðarforritunum sem fylgja Innu (þ.e. nemendabókhaldi framhaldsskólanna). Kennslumagn á vorönn 2004 verður milli 1150 og 1160 kennslustundir í viku. Þetta er nánast það sama og á vorönn 2003 að viðbættum faggreinum á þriðja ári í vélsmíði (48 kennslust. í viku) og á öðru ári í rafeindavirkjun (24 kennslust. í viku). Kennsla á þriðja ári í vélsmíði og á öðru ári í rafeindavirkjun féll niður á skólárinu 2002 til 2003 og heildarkennslumagn á vorönn 2003 var því aðeins um 1080 kennslustundir í viku.

2. janúar 2004: Sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi segja upp samningi um Fjölbrautaskóla Vesturlands
Þegar samningur um Fjölbrautaskóla Vesturlands var endurnýjaður 29. maí árið 1998 skrifuðu fulltrúar 20 sveitarfélaga undir hann. Nú hafa Eyrarsveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær sagt samningnum upp enda mun nýr framhaldsskóli á norðanverðu Snæfellsnesi hefja störf næsta haust.
    Síðan samningurinn var undirritaður hafa Andakílshreppur, Hálsahreppur, Lundarreykjadalshreppur og Reykholtsdalshreppur sameinast í eitt sveitarfélag sem heitir Borgarfjarðarsveit. Þau sveitarfélög sem áfram eiga aðild að Fjölbrautaskóla Vesturlands eru því 14 talsins. Þau heita Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Hvalfjarðarstrandarhreppur, Hvítársíðuhreppur, Innri-Akraneshreppur, Kolbeinsstaðahreppur, Leirár- og Melahreppur, Saurbæjarhreppur, Skilmannahreppur, Skorradalshreppur.

2. janúar 2004: Breyting á skólanefnd
Á haustönn 2003 óskaði Sigríður Finsen frá Grundarfirði eftir lausn frá störfum í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Sigríður var skipuð af menntamálaráðherra án tilnefningar. Ráðherra hefur nú skipað Odd Pétur Ottesen frá Akranesi í hennar stað. Oddur Pétur tekur sæti í skólanefnd frá og með upphafi árs 2004.
    Í skólanefndinni eru nú Þorgeir Jósefsson Akranesi formaður, Bergþóra Jónsdóttir Hrútsstöðum, Oddur Pétur Ottesen Hamri, Borghildur Jósúadóttir Akranesi, Guðrún Jónsdóttir Borgarnesi. Þorgeir, Bergþóra og Oddur Pétur eru skipuð af menntamálaráðherra án tilnefningar. Borghildur og Guðrún eru tilnefndar af sveitarfélögum. Áheyrnarfulltrúi kennara er Sigurgeir Sveinsson og til vara Guðrún Jóhannesdóttir. Áheyrnarfulltrúi nemenda er Þorkell Steindal.

19. desember 2003: Brautskráning
Í dag, 19. desember, voru 40 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Taflan sýnir hvernig þessir 40 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
 

Piltar/Karlar 
Stúlkur/Konur 
Alls 
Stúdentspróf 
16 
25
Burtfararpróf í húsasmíði
4
Burtfararpróf í rafvirkjun
Burtfararpróf af uppeldisbraut
 1 
Verslunarpróf af viðskiptabraut 
Alls 
21
19
40

Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 14. Fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoðarskólameistari annál haustannar 2003. Skólakór Fjölbrautaskóla Vesturlands söng undir stjórn Elvu M. Ingvadóttur við undirleik Viðars Guðmundssonar og fyrir athöfnina léku félagar úr Skólahljómsveit Akraness undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur. Aðrir listamenn sem komu fram voru: Birna Sigurgeirsdóttir, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir og Ragnheiður Björnsdóttir sem léku á píanó; Kristín Sigurjónsdóttir og Timothy Andrew Knappet sem léku saman á fiðlu og píanó.
    Eggert Sólberg Jónsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
    Nokkrum útskriftarnemum voru veittar viðurkenningar:
 

Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Bráðum koma blessuð jólin eftir Jóhannes úr Kötlum við lag W. B. Bradbury. Kristján Elís Jónasson var forsöngvari, Timothy Andrew Knappet og Kristín Sigurjónsdóttir léku undir á píanó og fiðlu. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.

16. desember 2003: Framkvæmdir við nýbyggingu hafnar
Í síðustu viku hófust framkvæmdir Vallholtsmegin á skólalóðinni þar sem ný viðbygging mun rísa á næstu mánuðum. Hún mun hýsa 10 kennslustofur. Verktaki er Loftorka hf. Borgarnesi. Vegna þessara framkvæmda hefur inngangi við Vallholt (útdyrunum hjá gamla sal) verið lokað.

10. desember 2003: Val fyrir vorönn 2004
Nú hafa alls 562 nemendur valið áfanga fyrir vorönn 2004 við skólann á Akranesi. (Inni í þessari tölu eru hvorki nemendur við framhaldsdeildina í Stykkishólmi né þeir sem stunda rafsuðunám í kvöldskóla.) Alls hafa um það bil 50 nemendur sem ekki eru í skólanum nú á haustönn 2003 sótt um skólavist á vorönn 2004. Um það bil 70 nemendur sem eru í skólanum nú við lok haustannar verða ekki á vorönn, þar af munu um 40 útskrifast frá skólanum þann 19. desember.

10. desember 2003: Nokkrar dagsetningar við lok haustannar 2003 og upphaf vorannar 2004

Mán. 15. des. 2003
 :  Sjúkrapróf.
Mið. 17. des. 2003
 :  Einkunnaafhending kl. 10 og prófsýning kl. 11 til 12.
Fös. 19. des. 2003
 :  Brautskráning kl. 14.
Mið. 7. jan. 2004
 :  Nýnemar mæti kl. 13 og eldri nemar fá stundatöflur afhentar kl. 13 til 17.
Fim. 8. jan. 2004
 :  Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu.

17. nóvember 2003: Reglur um frjálsa mætingu
Í skólanámskrá sem liggur frammi á vef skólans vantar reglur um frjálsa mætingu. Á deildarstjórafundi 14. nóvember 2003 var ákveðið að setja skýrar reglur um þetta efni. Þær öðlast gildi við upphaf vorannar 2004. (Smelltu hér til að sjá reglurnar.)

11. nóvember 2003: Félagslíf, skammhlaup, tónlistarkeppni og ball
Undanfarið hefur mikið verið um að vera í félagslífi nemenda. Lið nemendafélagsins varð í 3. sæti á framhaldsskólamótinu í knattspyrnu sem lauk 1. nóvember. Einnig hafa nemendur héðan tekið þátt í ýmsum mótum og eins og t.d. frjálsíþróttamóti framhaldsskólanna sem fram fór á Laugarvatni 26. september (þar varð Sigurkarl Gústafsson í 1. sæti í 100m hlaupi) og Forritunarkeppni framhaldsskólanna sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík um síðustu helgi.
    Hápunkturinn í félagslífi nemenda nú á haustönn var síðasta föstudag. Dagurinn hófst á skammhlaupi. Um kvöldið var svo tónlistakeppni og ball með Milljónamæringunum. Allt fór þetta vel fram og að sögn kunnugra var tónlistarkeppnin sérlega glæsileg að þessu sinni. Átta hljómsveitir kepptu. Dómnefnd úrskurðaði að besta hljómsveitin væri The boy and his Blob. Í örðu sæti varð hljómsveitin Sítrónudroparnir og Skaðrót í því þriðja.

23. október 2003: Sænskir nemendur í heimsókn og samskipti við Ítali
Sunnudaginn 12. október komu 15 sænskir nemendur ásamt 3 kennurum í heimsókn hingað í skólann. Nemendurnir stunda nám á náttúrufræðibraut framhaldsskóla sem heitir Donnergymnasiet og er í Klintehamn á Gotlandi. Nemendurnir dvelja hér til 24. október þeir heimsækja kennslustundir í skólanum og fara í fyrirtæki og orkuver og kynnast virkjun jarðvarma og vatnasorku og fræðast um náttúrufar Íslands og sögu. Upplýsingar um ferð þeirra er að vinna á vefsíðunni http://mail.donnergymnasiet.se/~island/dagboken/.
    Þann 18. október fóru 10 nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands til Mílanó þar sem þeir dvelja til 8. nóvember. Ferð þeirra er styrkt af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Skólinn sem tekur á móti þeim er ITIS Giorgi.  Í vikunni áður en nemendurnir fóru voru 4 kennarar héðan í heimsókn í ITIS Giorgi og fyrr í haust voru nemendur og kennarar þaðan í heimsókn hér hjá okkur. Þetta er annað árið í röð sem Fjölbrautaskóli Vesturlands og ITIS Giorgi skiptast á nemendum og kennurum. Samskipti okkar við Ítalíu hafa verið allmikil á undanförnum árum því auk mannaskipta við ITIS Giorgi hafa kennarar hér tekið þátt í smastarfi við kennara í Napólí. Þess má og geta að nú á skólaárinu 2003 til 2004 er ítalskur skiptinemi hér við skólann sem heitir Anna Rita.

15. október: Fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands
Í dag 15. október var haldinn fundur í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. Á fundinum var m.a. rætt um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2004. Nefndarmenn lýstu miklum áhyggjum vegna lækkunar á fjárveitingum til skólans, en í forsendum frumvarpsins er gert ráð fyrir að ársnemendur árið 2004 verði aðeins 510 og tillaga um fjárveitingu til skólans miðast við þá nemendatölu. Samkvæmt áætlunum skólameistara munu ársnemendur á árinu 2004 verða a.m.k. 540 en líklega nokkuð fleiri en það. Í áætlun skólameistara er gert ráð fyrir fækkun nemenda af Snæfellsnesi á haustönn 2004 þegar framhaldsskóli tekur til starfa í Grundarfirði. Til samanburðar má geta þess að árið 2002 voru ársnemendur 552 og gert er ráð fyrir að þeir verði 555 á þessu ári. (Ársnemandi jafngildir 35 eininga námi.) Skólanefnd fól Þorgeiri Jósefssyni skólanefndarformanni og Herði Helgasyni skólameistara að rita menntamálaráðuneytinu bréf þar sem gerð er grein fyrir því að áðurnefndar forsendur fjárlagafrumvarps standist ekki nema allstórum hópi væntanlegra umsækjenda um skólavist á haustönn 2004 verði hafnað. Afrit af bréfinu verður sent þingmönnum kjördæmisins.
    Á fundinum kynnti skólameistari fjárhagsstöðu skólans. Fram kom að stefnt sé að hallalausum rekstri á árinu 2003.
    Formaður skólanefndar gerði grein fyrir því að þrjú tilboð bárust í fyrsta áfanga nýbyggingar (þ.e. að gera nýtt kennsluhúsnæði fokhelt í september 2004). Lægsta tilboðið er frá fyrirtækinu Loftorku í Borgarnesi og hefur Bygginganefnd ákveðið að ganga til samninga við það fyrirtæki.

1. október: Aðalfundur foreldrafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands
Aðalfundur foreldrafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands var haldinn í gærkvöldi, 30. september klukkan 20 til 22. Í upphafi fundar ávarpaði aðstoðarskólameistari fundargesti og hvatti foreldra til að sýna skólagöngu unglinganna áhuga og fylgjast með því sem þeir eru að gera í skólanum. Síðan var gengið til dagskrár samkvæmt lögum félagsins. Í stjórn þess voru kjörin Elín Sigurbjörnsdóttir, Rakel Jóhannsdóttir og Guðjón Brjánsson.
    Að loknum aðalfundarstörfum gafst foreldrum kostur á að spyrja um skólastarfið og þeir sem eiga börn fædd 1987 hittu umsjónarkennara þeirra.

15. september: Samantekt áfangastjóra um nemendafjölda í byrjun haustannar 2003
Áfangastjóri hefur tekið saman tölur um fjölda nemenda við upphaf haustannar 2003. Nokkrar af þessum tölum eru í töflunum sem hér fara á eftir. Samantektin var gerð 9. september:

Tafla 1

Hvaðan koma nemendur
    Fjöldi
Hlutfall
Akranes
371
59%
Borgarbyggð
85
13%
Aðrir staðir í Borgarfjarðar- og Mýrasýlsu
50
8%
Snæfellsnes (26 nemendur í framhaldsdeildinni í Stykkishólmi meðtaldir) 
79
12%
Dalasýsla
15
2%
Utan Vesturlands
34
5%
Samtals
634
 

Tafla 2

Hvaða nám stunda nemendur
   Piltar
Stúlkur
    Alls
Nám á stúdentsbrautum
91
159
250
Iðnnám
144
3
147
Nám á almennri braut
 40
44
 84
Nám á öðrum brautum
 60
 93
 153
Samtals
 335
 299
 634

Tafla 3

Fæðingarár nemenda
  Fjöldi
Hlutfall
1982 og fyrr
128
20%
1983
39
6%
1984
81
13%
1985
107
17%
1986
130
21%
1987
149
24%
Samals
634

12. september: Skammhlaupsnefnd kosin
Á almennum kennarafundi í gær 11. september var ákveðið að árlegt skammhlaup verði 7. nóvember. Í undirbúningsnefnd voru kjörnir kennararnir: Linda Dröfn Jóhannesdóttir, Ólöf H. Samúelsdóttir, Sigtryggur Karlsson og Steinn Mar Helgason.

9. september: Skólastarf komið í fullan gang
Nú í 9. september 2003 eru 608 nemendur skráðir í skólann á Akranesi. Nýnemar á Akranesi eru alls 161, þar af 129 fæddir árið 1987. Nemendur í Stykkishólmi eru alls 26, þar af eru 20 fæddir árið 1987. Alls eru 634 nemendur í skólanum á Akranesi og í Stykkishólmi.
    Haustönn fór af stað með hefðbundnum hætti. Nýnemar á Akranesi gengust undir busavígslu föstudaginn 29. ágúst. Að kvöldi þess sama dags hélt nemendafélagið fyrsta dansleik vetrarins. Hann var fjölsóttur og fór vel fram.
    Af nýnemum á Akranesi eru 44 á bóknámsbrautum til stúdentsprófs, 30 á iðnbrautum, 70 á almennri braut og 17 á öðrum brautum.

9. september: Sveit Fjölbrautaskóla Vesturlands í 1. sæti á golfmóti framhaldsskólastarfsmanna
Golfmót framhaldsskólastarfsmanna var haldið á golfvellinum á Korpúlfsstöðum um síðustu helgi. Okkar menn fóru með sigur af hólmi með 110 stig. Í öðru sæti var sveit Verzlunarskólans. Í sveit Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: Guðmundur Egill Ragnarsson, Hafliði Páll Guðjónsson, Steinn Mar Helgason og Þórólfur Ævar Sigurðsson. Ritstjóri skólavefjar óskar þeim til hamingju með þennan góða árangur.

9. september: Gestir frá Milano
Nú í september eru 10 ítalskir unglingar í þriggja vikna heimsókn við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þeir eru nemendur við framhaldsskóla í Milano sem heitir ITIS Giorgi. Nokkrir nemendur þessa sama skóla heimsóttu okkur síðasta haust og nemendur og kennarar héðan dvöldu þar á vorönn 2002 svo samband skólanna er orðið allmikið. Heimsóknir þessar eru styrktar af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.
    Ítalirnir dvelja á heimilum í Borgarnesi og á Akranesi. Fyrstu vikuna verða þeir að mestu í skólanum auk þess sem þeir fara í dagsferð um Snæfellsnes. Í annarri og þriðju viku dvalar sinnar hér verða þeir í fyrirtækjum á Vesturlandi en fara líka í réttir og í ferðalag um hálendið og heimsækja orkuverið að Nesjavöllum og fyrirtækið Marel í Reykjavík.
    Auk nemendanna koma tveir kennarar frá ITIS Giorgi og dvelja í vikutíma hvor. Þeir kynna sér skólahald hér á Skaga og eru nemendunum til halds og trausts.
    Í október munu 10 nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands endurgjalda heimsókn Ítalanna og dvelja í þrjár vikur í Milano.
    Kristján E. Guðmundsson félagsfræðikennari hefur annast skipulags- og undirbúningsvinnu vegna þessara heimsókna.

19. ágúst: Fyrstu starfsmanna- og kennarafundir skólaársins
Í dag 19. ágúst mættu starfsmenn skólans á Akranesi og kennarar við framhaldsdeildina í Stykkishólmi til fundarhalda og undirbúningsvinnu.
    Á almennum kennarafundi var dagatal skólaársins samþykkt. Kosnir voru fulltrúar kennara í skólanefnd og skólaráð. Í skólanefnd var Sigurgeir Sveinsson kjörinn aðalmaður og Guðrún Jóhannesdóttir til vara. Sigurgeir var endurkjörin en Guðrún tekur við af Höllu I. Guðmundsdóttur sem er í leyfi á þessu skólaári. Í skólaráð var Hjördís Árnadóttir kjörin aðalmaður. Hjördís tekur við af Ólöfu H. Samúelsdóttur sem setið hefur í tvö ár. Hinn aðalfulltrúi kennara er Anna Bjarnadóttir sem setið hefur í ár og á því eitt ár eftir af kjörtímabili sínu. Varamaður kennara í skólaráði er Þröstur Þór Ólafsson.

19. ágúst: Breytingar á starfsliði við upphaf skólárs 2003 til 2004
Jón Árni Friðjónsson sögu- og íslenskukennari og Halla I. Guðmundsdóttir sögu- og stærðfræðikennari verða í námsleyfi og kenna ekki við skólann í vetur. Í þeirra stað hafa verið ráðnir Leó Jóhannesson og Tómas Ísleifsson. Leó mun kenna sögu og Tómas mun kenna stærðfræði og heilbrigðisfræði.
    Edda Einarsdóttir kennari á starfsbraut hefur látið af störfum við skólann og annar kennari á starfsbrautinni, Marta Dögg Pálmadóttir, verður í barneignarleyfi fram á vorönn 2004. Einn nemandi á starfsbraut skólans verður við nám í Ólafsvík og hefur Hrönn Þórisdóttir verið ráðin til að kenna honum.
    Jóhanna Hálfdánsdóttir frönskukennari kemur úr leyfi og Katrín Jónsdóttir sem ráðin var tímabundið í stað Jóhönnu er farin frá skólanum.
    Þráinn Sigurðsson kennari á málmiðnagreinum kemur aftur til starfa eftir árshlé.
    Harpa Hreinsdóttir íslenskukennari hefur látið af störfum sem umsjónarmaður erlendra samskipta, en verður áfram í fullu starfi sem kennari. Kristján E. Guðmundsson félagsfræðikennari hefur tekið við erlendu samskiptunum.
    Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir sem verið hefur í leyfi undanfarin ár kemur aftur til starfa sem forstöðumaður skólabókasafns. Erla Sigurfljóð Olgeirsdóttir lætur af störfum á bókasafni en verður í hlutastarfi við kennslu í jóga.
    Sjöfn Jónsdóttir hefur látið af störfum við heimavist skólans en hún mun áfram kenna fatasaum. Bára K. Guðmundsdóttir tekur við af Sjöfn á heimavistinni og sér um þvotta og þrif þar.

13. ágúst: Upphaf haustannar 2003
Undirbúningur haustannar 2003 er nú í fullum gangi. Skólastjórnendur og skrifstofufólk vinna að töflugerð og skipulagningu skólastarfsins. Allir starfsmenn koma til starfa 19. ágúst en þann dag er boðaður almennur starfsmannafundur klukkan 10.
    Skólasetning verður 21. ágúst klukkan 10. Strax að athöfn lokinni hitta nýnemar umsjónarkennara sína og fá afhentar stundatöflur. Eldri nemendur fá stundatöflur afhentar kl. 13 til 15 sama dag. Kennsla hefst föstudaginn 22. ágúst klukkan 8.

13. ágúst: Enn eru örfá pláss laus í grunndeild tréiðna og á fyrsta ári í málmiðnagreinum
Þótt umsóknarfrestur um skólavist sé útrunninn geta nemendur sem vilja hefja nám í grunndeild tréiðna (þ.e. í húsasmíði) eða í málmiðnagreinum enn sótt um. Örfá pláss eru laus á fyrsta ári. Þeir sem hafa áhuga geta hringt í skólameistara eða aðstoðarskólameistara í síma 431-2544.  


Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2001-2002
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2002-2003