Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
skólaárið 2002-2003


Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2001-2002
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2002-2003


23. júní: Umsóknir um skólavist fleiri en undanfarin ár
Nú er lokið við að skrá umsóknir um skólavist við Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir haustönn 2003. Umsóknir eru talsvert fleiri en í fyrra. Alls sækja 152 nemendur sem luku 10. bekk í vor um skólavist. Sambærileg tala frá fyrra ári er 131. Ef allir sem hafa skilað umsókn þiggja skólavist verða 685 nemendur á Akranesi og 19 í Stykkishólmi. Sambærilegar tölur frá fyrra ári eru 640 og 14.

23. júní: Enn eru örfá pláss laus í grunndeild tréiðna og á fyrsta ári í málmiðnagreinum
Þótt umsóknarfrestur um skólavist sé útrunninn geta nemendur sem vilja hefja nám í grunndeild tréiðna (þ.e. í húsasmíði) eða í málmiðnagreinum enn sótt um. Örfá pláss eru laus á fyrsta ári. Þeir sem hafa áhuga geta skilað umsóknum á skrifstofu skólans til 27. júní eða hringt í skólameistara eða aðstoðarskólameistara í síma 431-2544.

2. júní 2003: Enn ein afmælisgjöf til skólans
Þegar Fjölbrautaskóli Vesturlands hélt upp á 25 ára afmæi sitt í september 2002 bárust skólanum fjölmargar gjafir. Enn ein gjöf bættist við nú í síðustu viku þegar Sveinafélag málmiðnaðarmanna á Akranesi og fyrirtæki í málmiðnaði færðu skólanum 240.000 krónur til kaupa á tækjum fyrir málmiðnadeild skólans.

31. maí 2003: Brautskráning og skólaslit - Myndir
Í dag 31. maí var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 49 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Taflan sýnir hvernig þessir 49 nemendur skiptast á námsbrautir. (Listi yfir útskrifaða nemendur er hér.)
 

Piltar/Karlar 
Stúlkur/Konur 
Alls 
Stúdentspróf 
17 
20 
37 
Burtfararpróf af iðnbraut 
Stúdentspróf og burtfararpróf af iðnbraut 
1
0
1
Burtfararpróf af sjúkraliðabraut 
Burtfararpróf af starfsbraut 
Verslunarpróf af viðskiptabraut 
Ársnám sem skiptinemi
0
2
2
Alls 
23 
26 
49 

Fyrir athöfnina lék Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi undir stjórn Ragnars Skúlasonar.
    Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2003.
    Listamenn úr hópi nemenda og fyrrverandi nemenda komu fram:
 


Skólameistari veitti nemendafélagi skólans styrk úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar fyrrum nemanda við skólann sem lést af slysförum árið 2001. Sjóður þessi var gefin skólanum af foreldrum Karls. Styrkinn mun nemendafélagið nota á næsta skólaári til að greiða kostnað við ræðunámskeið og styðja þátttakendur í tónlistarkeppni sem þurfa að greiða leigu fyrir æfingahúsnæði.
    Dagbjört Friðriksdóttir færði skólanum gjöf til minningar um dóttur sína Kristbjörgu Sigurðardóttur sem útskrifaðist með stúdentspróf frá skólanum í maí 1998 og lést skömmu síðar. Gjöfinni verður varið til kaupa á listaverki sem prýða mun húsakynni skólans og verða til minningar um Kristbjörgu. (Sjá frétt hér að neðan.)
    Elva Hrund Þórisdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
    Kristján Sveinsson afhenti námsstyrk Akranesskaupstaðar. Hann hlaut að þessu sinni Fríða Bjarnadóttir nýstúdent af hagfræði- og náttúrufræðibraut.
    Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur eða störf að félagsmálum:

 


Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.

31. maí 2003: Gjöf til minningar um Kristbjörgu Sigurðardóttur
Kristbjörg Sigurðardóttir útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 29. maí 1998. Hún var fædd 18. nóvember 1976. Allan tíman sem hún var við nám í skólanum átti hún við erfiðan sjúkdóm að stríða og hún lést 25. júní 1998, skömmu eftir að hún lauk stúdentsprófi.
    Fermingarsystkini Kristbjargar og nemendur sem útskrifuðust með henni í maí 1998 stofnuðu sjóð til minningar um hana. Í tilefni af því að 5 ár eru liðin frá því Kristbjörg lauk stúdentsprófi ákvað stjórn sjóðsins að gefa skólanum listaverk til minningar um hana. Listaverkinu verður komið fyrir á áberandi stað í skólanum.
    Við skólaslit í dag, 31. maí 2003, færði Dagbjört Friðriksdóttir, móðir Kristbjargar, skólameistara gjafabréf.

28. maí 2003: Skotlandsferð starfsmanna og undirritun samstarfsyfirlýsingar við Elmwood College
Dagana 23. maí til 27. maí fóru 39 stafsmenn Fjölbrautaskólans í ferð til Skotlands. Nokkrir tóku maka sína með svo alls voru 54 í ferðinni. Helginni var eytt í Glasgow en mánudaginn 26. maí var Elmwood College í Cupar heimsóttur, en bærinn Cupar er skammt frá St. Andrews í Fife.
    Elmwood College er verkmenntaskóli sem býður upp á framhaldsskólanám á fjölmörgum brautum, m.a. í upplýsingatækni, jarðrækt, snyrtingu, matreiðslu og umhirðu grasvalla. Starfsmenn Fjölbrautaskólans fengu kynningu á starfsemi og starfsháttum Elmwood College. Hátindur ferðarinnar var svo þegar Hörður Ó. Helgason skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands og Christina Potter skólameistari Elmwood College undirrituðu yfirlýsingu um samstarf skólanna. Samstarfið tekur til kennslu í grasvallarfræðum og umhirðu golfvalla (greenkeeping) en Elmwood College er einn af fremstu skólum í heimi á því sviði og hefur náin tengsl við golfklúbbinn Royal and Ancient Golfclub of St. Andrews og samtök golfvallarstarfsmanna á Bretlandseyjum. (Fyrir þá sem ekki vita má nefna að St. Andrews er helsta miðstöð golfíþróttarinnar í heiminum.)
    Fjölbrautaskóli Vesturlands mun hefja kennslu í þessum fræðum haustið 2003 í samstarfi við Garðyrkjuskóla Ríkisins og Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Um tilhögun kennslu, námsefni og námskröfur verður haft samráð við Golfsamband Íslands, SÍGÍ og fagmenn sem starfa hjá Elmwood College.
    Samstarfsyfirlýsing skólanna kveður meðal annars á um að kennsla í grasvallarfræðum við Fjölbrautaskóla Vesturlands uppfylli allar faglegar kröfur sem gerðar eru við Elmwood College og að Elmwood College verði Fjölbrautaskólanum til ráðuneytis og meti að fullu áfanga sem Fjölbrautaskólinn kennir svo nemendur sem ljúka námi í grasvallarfræðum á Akranesi geti farið beint í framhaldsnám við Elmwood College.
    (Texti yfirlýsingarinnar - Upplýsingar um grasvallanám - Myndir frá undirritun yfirlýsingarinnar.)

20. maí 2003: Afhending einkunna, prófsýning og val fyrir haustönn 2003
Í dag, 20. maí, fengu nemendur afhentar einkunnir fyrir vorönn 2003. Þeir sem ekki mættu í umsjónartíma klukkan 10 geta fundið einkunnir sínar í Innu (á http://nemendur.inna.is). Að lokinni einkunnaafhendingu gengu nemendur frá vali fyrir haustönn 2003. Klukkan 11 hófst svo prófsýning þar sem nemendur hittu kennara og skoðuðu prófúrlausnir sínar.
    Ritstjóri skólavefjar óskar nemendum ánægjulegs sumarleyfis.

19. maí 2003: Þýðingar á prófskírteinum
Á hverju ári fer nokkur hópur útskriftarnema og fyrrverandi nemenda skólans fram á að fá þýðingu á námsferli sínum eða útskriftarskírteini. Flestir sem þetta gera hyggja á nám í öðru landi. Fjöldi þýddra skírteina gefur því nokkra vísbendingu um hversu margir af fyrrum nemendum skólans sækja nám í útlöndum. Þeim fer heldur fjölgandi sem biðja um þýðingu á námsferli og prófskírteinum, einkum hefur þýðingum á dönsku farið fjölgað, sem bendir til þess að fleiri sæki nám til Norðurlanda. (Á árinu 2002 og því sem af er 2003 hafa alls 18 beðið um þýðingu á dönsku en á árunum 2000 og 2001 voru þeir samtals 9).
      Taflan hér fyrir neðan sýnir heildarfjölda þeirra sem hafa fengið þýðingu á námsferli eða prófskírteini undanfarin ár.
 

1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
1. jan - 19. maí 2003
30
31
29
20
33
22
21
24
37
24

19. maí 2003: Auknar fjarvistir nemenda
Þegar skólasóknareinkunnir voru reiknaðar fyrir vorönn 2003 kom í ljós að skólasókn er nokkru lakari en verið hefur undanfarin ár. Nú eru t.d. aðeins 19% nemenda með einkunnir 9 eða 10 í skólasókn (þ.e. 95% til 100% mætingu) en á vorönn 2002 voru 23% með einkunn 9 eða 10. Nú eru 27% nemenda með einkunn 6 eða lægri (þ.e. minna en 89% mætingu og mínuseiningar fyrir skólasókn) en á vorönn 2002 voru 23% með skólasóknareinkunn 6 eða lægri. Þessi óheillaþróun veldur skólastjórnendum töluverðum áhyggjum og til að sporna gegn henni hefur verið ákveðið að herða reglur um útreikning skólasóknareinkunnar og viðbrögð skólans við fjarvistum nemenda. Nýjar reglur um þetta efni verða væntanlega kynntar nemendum í upphafi haustannar 2003.

29. apríl: Ný stjórn í nemendafélaginu NFFA
Föstudaginn 25. maí voru kosningar í nemendafélagi skólans.
Í aðalstjórn voru kjörin:

Í stjórn leiklistarklúbbs voru kjörin:

Í ritstjórn skólablaðs voru kjörnir:

Í stjórn tónlistarklúbbs voru kjörnir:

Í útvarpsstjórn voru kjörnir:

Í vefnefnd voru kjörnir:

Í ljósmyndaklúbb voru kjörin:

Í stjórn listaklúbbs voru kjörin:

Í viðburðastjórn voru kjörnir:


11. apríl: Minnkandi neysla vímu- og fíkniefna meðal unglinga á Akranesi
Síðan 1992 hefur fyrirtækið Rannsóknir og greining ehf. kannað vímuefnaneyslu íslenskra ungmenna. Fyrir skömmu kom út skýrsla um vímuefnaneyslu nemenda í tíundu bekkjum á Akranesi sem fyrirtæki þetta vann fyrir Akraneskaupstað. Skýrslan er byggð á könnun sem var lögð fyrir nemendur í tíundu bekkjum um allt land á hverju ári frá 1997 til 2002. Vorið 2002 svöruðu 65 einstaklingar úr tíundu bekkjum við grunnskólana á Akranesi.
    Í inngangi skýrslunnar segir orðrétt: „Niðurstöður  ... frá 1999 sýndu að í fyrsta skipti síðan 1990 hafði dregið úr áfengisneyslu, reykingum og neyslu ólöglegra vímuefna meðal nemenda í efsta bekk grunnskóla. Nú á ár gefa niðurstöður vímuefnakönnunar meðal nemenda í 8. – 10. bekkjum grunnskóla á Íslandi vorið 2002 til kynna að sú þróun haldi í megindráttum áfram.“
    Samkvæmt skýrslunni var neysla vímu- og fíkniefna meðal tíundubekkinga á Akranesi talsvert yfir landsmeðaltali árið 2000. Síðan hefur ástand mála hér í bæ skánað að mun og neyslan minnkað. Árið 2002 var neysla áfengis og tóbaks meðal unglinga á Akranesi talsvert undir landsmeðaltali og hassneysla komin niður undir landsmeðaltalið
    Taflan hér að neðan sýnir tölur um neyslu á reyktóbaki, áfengi og hassi meðal tíundubekkinga á Akranesi og á landinu öllu árin 2000 og 2002.
 

Hlutfall nemenda í 10. bekk sem 
reykja daglega.
Hlutfall nemenda í 10. bekk sem 
hafa orðið ölvaðir  einhvern tíma 
sl. 30 daga þegar könnun var gerð.
  Hlutfall nemenda í 10. bekk sem 
hafa einhvern tíma notað hass.
Akranes
Allt landið
Akranes
Allt landið
Akranes
Allt landið
árið 2000
25%
16%
39%
32%
22%
12%
árið 2002
11%
14%
13%
26%
13%
11%

3. apríl: Styrkir til námsefnisgerðar
Í fréttatilkynningu sem birtist á vef menntamálaráðuneytisins þann 1. apríl segir „Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum af fjárlögum yfirstandandi árs til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum námsgreinum á framhaldsskólastigi. Alls bárust 139 umsóknir um styrkina að undangenginni auglýsingu. Samanlagðar fjárbeiðnir voru um 98 millj. … Að fengnum tillögum nefndar sem metur umsóknir og gerir tillögur um úthlutun var ákveðið að veita styrki til 75 verkefna, samtals kr. 18.2 millj.“
    Drjúgur hluti af þeim rúmu 18 milljónar sem eru til skipta renna til fyrirtækja og félaga sem vinna að námsefnisgerð. Meirihluti fjárins kemur þó í hlut kennara sem vinna að námsefnisgerð. Nú eins og endranær vinna kennara við Fjölbrautaskóla Vesturlands að þróunarstarfi og samningu kennsluefnis. Nokkrir þeirra sóttu um styrk til námsefnisgerðar og fjórir fengu að þessu sinni, samtals 750.000 kr. Þessir fjórmenningar eru:

Ritstjóri fréttavefjar óskar fjórmenningunum til hamingju og vonar að þeir og aðrir kennarar haldi áfram að sýna dugnað og taka frumkvæði í gerð námsgagna og fræðsluefnis fyrir nemendur framhaldsskóla.

1. apríl: Sýningar á Hárinu
Laugardaginn 29. mars frumsýndi leiklistarklúbbur nemendafélagsins söngleikinn Hárið eftir G. Ragni, J. Rado og G. MacDermot í leikgerð Baltasars Kormáks og Davíðs Þórs Jónssonar.
    Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson, kórstjóri Elfa Margrét Ingvadóttir, hljómsveitarstjóri Pétur Sigurðsson og aðstoðarmaður leikstjóra Þórunn Kjartansdóttir. Framkvæmdastjóri sýningarinnar er Guðmundína Arndís Haraldsdóttir sem jafnframt er formaður leiklistarklúbbs.
    Um það bil 50 nemendur koma fram í sýningunni sem er mjög vel heppnuð og skemmtileg í alla staði.
    Sýningar eru:

    Sýningar eru í Bíóhöllinni á Akranesi.

19. mars: Sendiherra ESB heimsækir Fjölbrautaskólann
Í gær, 18. mars, var Gerhard Sabathil sendiherra Evrópusambandsins fyrir Noreg og Ísland á ferð hér á Akranesi ásamt Anju Ek, en hún sinnir málefnum Íslands í sendiráði ESB í Osló. Þau komu í Fjölbrautaskólann klukkan 11:30, hittu skólameistara og skoðuðu skólann. Klukkan 12 flutti Gerhard Sabathil sendiherra svo fyrirlestur um Evrópusambandið fyrir nemendur skólans. Stór hópur nemenda og allmargir aðrir gestir hlustuðu á mál sendiherrans. Að fyrirlestri loknum svaraði hann fyrirspurnum.
    Kristján E. Guðmundsson félagsfræðikennari átti frumkvæði að því að bjóða sendiherranum að koma í skólann og flytja erindi en á þessari önn kennir Kristján valáfanga í félagsfræði (FÉL373) sem fjallar um samvinnu Evrópulanda, ESB og EFTA.

19. mars: Heimsóknir nemenda og kennara frá Svíþjóð og Finnlandi
Miðvikudaginn 12. mars kom einn nemandi og einn kennari frá framhaldsskóla í Mynamaki í Finnlandi og skoðuðu Fjölbrautaskólann.
    Á sunnudag, 16. mars, kom einn framhaldsskólanemi frá Östersund í Svíþjóð í heimsókn í skólann og dvaldi til þriðjudags, hélt þá í stutta ferð um Suðurland og síðan til Reykjavíkur.
    Á mánudag, 17. mars, komu tveir kennarar og fjórir nemendur frá Kemi-Tornio í Finnlandi. Kennararnir dvelja í viku. Nemendurnir verða hér í mánuð, búa á heimavist skólans og sækja starfsþjálfun hjá fyrirtækjum á Akranesi og í nágrenni.

17. mars: Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands miðvikudaginn 26. febrúar sl. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Sams konar keppni var haldin á sama tíma við fleiri framhaldsskóla
    Laugardaginn 15. mars var 10 efstu nemendum í hverjum árgangi boðið til athafnar á sal skólans þar sem þeim voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í keppninni. Eins og undanfarin ár voru þeim þrem efstu í hverjum árgangi veitt peningaverðlaun: 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000 kr. fyrir annað sæti og 5.000 kr. fyrir það þriðja.
    Peningar til að greiða verðlaun og annan kostnað við keppnina eru gefnir af fyrirtækjum á Vesturlandi. Fyrirtæki sem styrkja keppnina að þessu sinni eru:

  • Akraneskaupstaður
  • Almenna verkfræðistofan hf
  • Endurskoðun Deloitte & Touche
  • Endurskoðunarskrifstofa Jóns Þórs Hallssonar
  • Gámaþjónusta Akraness
  • Hönnun hf
  • I Á Hönnun ehf
  • KB Borgarnesi ehf
  • Mjólkursamlagið Búðardal
  • Nettó - Samkaup hf
  • Nótastöðin hf
  • Olís Akranesi
  • Olíufélagið ehf ESSO
  • Prentverk Akraness hf
  • Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf
  • Viðskiptaþjónusta Akraness ehf
  • Vignir G. Jónsson hf

Alls tóku 204 nemendur þátt í keppninni hér á Akranesi, 59 úr áttundu bekkjum, 75 úr níundu bekkjum og 70 úr tíundu bekkjum. Keppendur hafa aldrei verið fleiri hjá okkur. Í fyrra voru þeir 162. Fjöldatölur fyrir einstaka skóla fara hér á eftir.

Úr Brekkubæjarskóla komu 39.
Úr Grunnskólanum í Borgarnesi komu 38.
Úr Grundaskóla komu 26.
Úr Grunnskólanum í Stykkishólmi komu 20.
Úr Varmalandsskóla komu 17.
Úr Grunnskólanum í Hólmavík komu 16.
Úr Grunnskólanum í Búðardal komu 14.
Úr öðrum skólum komu færri en 10.

Í 8. bekk var meðaltalið 25,94 stig miðgildi 27 og besta lausnin var upp á 62 stig af 100 mögulegum.
Í 9. bekk var meðaltalið 20,73 stig miðgildi 20 og besta lausnin var upp á 50 stig af 100 mögulegum.
Í 10. bekk var meðaltalið 12,61 stig miðgildi 13 og besta lausnin var upp á 41 stig af 100 mögulegum.
Þær úrlausnir sem voru með fæst stig voru með -8, -10, -15

Hér á eftir eru taldir upp þeir sem voru í 10 efstu sætum í hverjum árgangi

8. bekkur
1. Guðmundur Freyr Hallgrímsson, Grundaskóla
2. Birkir Guðmundarson, Brekkubæjarskóla
3. Þórður Björnsson, Grundaskóla
4.-10. Hildur Inga Einarsdóttir, Varmalandsskóla
4.-10. Jóhanna Gísladóttir, Grundaskóla
4.-10. Marianne Sigurðardóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Maríanna Sigurbjargardóttir, Grunnskólanum Hellissandi
4.-10. Páll Straumberg Guðsteinsson, Grundaskóla
4.-10. Regína Björk Sigurðardóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Sveinn Flóki Guðmundsson, Kleppjárnsreykjaskóla

9. bekkur
1. Hörður Kristján Nikulásson, Brekkubæjarskóla
2. Edda Bergsveinsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
3. Sigþrúður Dagný Fjeldsted, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Almar Gunnarsson, Brekkubæjarskóla
4.-10. Birgitta Ásbjörnsdóttir, Laugagerðisskóla, Snæfellsnesi
4.-10. Eva Dögg Davíðsdóttir, Varmalandsskóla
4.-10. Gísli Sveinn Gretarsson, Grunnskólanum í Stykkishólmi
4.-10. Lára Hólm Heimisdóttir, Grundaskóla
4.-10. Pawel Jerzy Swierczynski, Grunnskólanum Hellissandi
4.-10. Viðar Engilbertsson, Brekkubæjarskóla

10. bekkur
1. Sigurður Orri Kristjánsson, Grunnskólanum Hólmavík
2. Sólveig Rós Jóhannsdóttir, Grunnskólanum í Búðardal
3. Grétar Matthíasson, Grunnskólanum Hólmavík
4.-10. Andri Þór Sigþórsson, Grundaskóla
4.-10. Eydís Sigurðardóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Katrín Björg Hannesdóttir, Grunnskólanum í Búðardal
4.-10. Kristinn Bjarni Heimisson, Grunnskólanum í Stykkishólmi
4.-10. Nanna Einarsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Ólafur Ívar Baldvinsson, Grunnskólanum í Ólafsvík
4.-10. Þórarinn Ágúst Freysson, Grunnskóla Grundarfjarðar

5. mars: Samningur um byggingu nýs kennsluhúsnæðis undirritaður
Í dag, miðvikudag 5. mars, var samkoma á sal skólans þar sem Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi undirrituðu samning um byggingu nýs kennsluhúsnæðis við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Gísli undirritaði fyrir hönd sveitarfélaga á Vesturlandi.
    Ráðgert er að hönnun hússins ljúki á þessu ári og bygging þess hefjist í byrjun árs 2004.
    Byggingarkostnaður skiptist milli ríkis og sveitarfélaga þannig að ríkið greiðir 60% og sveitarfélög 40%. Sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi munu taka þátt í hönnunarkostnaði á yfirstandandi ári en óljóst er hvern þátt þau taka í byggingarkostnaði á næstu árum og veltur það einkum á því hvað verður úr hugmyndum um stofnun framhaldsskóla í Grundarfirði.
    Hin nýja bygging mun tengjast eldri húsum skólans Vallholtsmegin á skólalóðinni. Jafnframt nýbyggingunni verður kennsluhúsnæði á efri hæð gamla skólans endurnýjað (stofur C201 til C205). Með þessum framkvæmdum verður kennslurými aukið og aðstaða til kennslu í raungreinum bætt verulega þar sem innréttaðar verða rúmgóðar sérstofur til verklegrar kennslu. Timburhúsin við Vallholt munu hverfa af lóðinni og þar sem þau eru nú verða sett bílastæði.
    Lýsing á ráðgerðum nýbyggingum liggur hér frammi.

27. febrúar: Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema
Hin árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í gær, miðvikudaginn 26. febrúar klukkan 14:00. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla víða um land. Þetta er í fimmta sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni.
    Alls tóku 204 unglingar þátt í keppninni og hafa aldrei verið fleiri (í fyrra voru þátttakendur 180). Að keppni lokinni fengu keppendur veitingar í boði skólans.
    Eins og fyrri ár eru fyrstu verðlaun í hverjum árgangi 15.000 kr., önnur verðlaun 10.000 kr. og þriðju verðlaun 5.000 kr. Upplýsingar um hvenær verðlaun verða afhent munu birtast á þessari fréttasíðu innan skamms.
    Eftirtaldir aðilar styrkja keppnina að þessu sinni:
 

  • Akraneskaupstaður
  • Almenna verkfræðistofan hf
  • Endurskoðun Deloitte & Touche
  • Endurskoðunarskrifstofa Jóns Þórs Hallssonar
  • Gámaþjónusta Akraness
  • Hönnun hf
  • I Á Hönnun ehf
  • KB Borgarnesi ehf
  • Mjólkursamlagið Búðardal
  • Nettó - Samkaup hf
  • Nótastöðin hf
  • Olís Akranesi
  • Olíufélagið ehf ESSO
  • Prentverk Akraness hf
  • Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf
  • Viðskiptaþjónusta Akraness ehf
  • Vignir G. Jónsson hf

27. febrúar: Opnir dagar, árshátíð
Dagana 26., 27. og 28. febrúar (þ.e. frá miðvikudegi til föstudags) er ekki kennt eftir venjulegri stundatöflu. Þess í stað gefst nemendum kostur á að taka námskeið í ýmsum greinum og fara í náms og kynnisferðir.
    Í gær miðvikudag fóru um 300 nemendur í námsferðir, t.d. fóru um 50 nemendur í ferð á söguslóðir Laxdæla sögu, um 120 heimsóttu nemendaleikhúsið og sáu uppfærslu þess á nýju leikriti Sigurðar Pálssonar, Tattú, og ræddu við höfundinn eftir sýninguna. Stór hópur heimsótti fjölmiðla. Nokkrir nemendur í erfðafræði skoðuðu fyrirtæki sem vinna rannsóknir á því sviði og nemendur í tréiðnadeild heimsóttu fyrirtæki í byggingariðnaði. Einnig var farið á söfn. Þeir sem voru eftir í skólanum sóttu námskeið í myndbandaklippingum, skrautskrift og fleiri greinum.
    Í dag fimmtudag er þorri nemenda á námskeiðum í skólanum. Viðfangsefnin eru fjölmörg: skák, bridge, söngur, matreiðsla, hljómtæki, trúmál o.fl. o.fl.
    Eftir hádegi í dag mæta fulltrúar stjórnmálaflokka sem bjóða fram í alþingiskosningum í vor á fund á sal skólans. Þar kynna þeir stefnu sinna flokka og svara spurningum nemenda. Þarna mæta: Guðni Ágústsson frá Framsóknarflokki, Einar Oddur Kristjánsson frá Sjálfstæðisflokki, Anna Kristín Gunnarsdóttir frá Samfylkingunni, Árni Steinar Jóhannsson frá Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og Guðjón A. Kristjánsson frá Frjálslynda flokknum.
    Á morgun föstudag verður megináhersla lögð á íþróttir - kynntar verða fjölmargar íþróttagreinar og keppt í þeim.

19. febrúar: Heimsókn til Avannaani ilinniarnertuunngorniarfik á Grænlandi
Þann 12. febrúar héldu sjö nemendur á íþróttabraut Fjölbrautaskóla Vesturlands, ásamt Önnu Bjarnadóttur íþróttakennara, í heimsókn í Grænlenskan framhaldsskóla sem heitir Avannaani ilinniarnertuunngorniarfik. Nemendurnir sem fóru eru: Benedikt Steinar Benonýsson, Belinda Eir Engilbertsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Halldór Bjarkar Jóhannesson, Róbert Árni Jörgensen, Berglind Magnúsdóttir, Halldór Jón Sigurðsson.
   Avannaani ilinniarnertuunngorniarfik er vel búinn heimavistarskóli með um það bil 250 nemendum. Hann er í bænum Aasiaat við Diskóflóa á vesturströnd Grænlands og þjónar öllu Norðvestur-Grænlandi frá Sisimiut til Qaanaaq ásamt Ittoqqortoormiit-byggðinni sem er á miðri austurströnd landsins. (Upplýsingar um skólann á dönsku má finna á http://www.gu-aasiaat.gl/.)
    Aasiaat er um það bil 3000 manna bær. Þar er m.a. fiskvinnsla, sjúkrahús og ýmis þjónusta fyrir ferðamenn. (Upplýsingar um Aasiaat á dönsku má finna á http://www.greenland-guide.gl/aasiaat-tourist/dk/maps.htm.)
    Ferðakostnaður er að mestu greiddur með styrk frá Nordplus junior. Gert er ráð fyrir að Grænlandsfararnir komi aftur heim að kvöldi 25. febrúar.

19. febrúar: Erlend samskipti á vorönn 2003
Líkt og undanfarnar annir eru ýmislegt á döfinni í samskiptum Fjölbrautaskóla Vesturlands við menntastofnanir í öðrum löndum:

14. febrúar: Fartölvuvæðing og FS net
Fartölvuvæðing skólans heldur áfram. Nýlega voru keyptar 10 IBM-ThinkPad R31 fartölvur til viðbótar við þann vélakost sem fyrir var og nú á skólinn alls 31 fartölvu. Af 45 kennurum hafa 28 fartölvu í eigu skólans til ráðstöfunar. Aðrar fréttir af tölvumálum stofnunarinnar eru þær helstar að í janúar var lagður ljósleiðari inn í skólann og staðarnet hans tengt svokölluðu FS-neti. Þetta net tengir alla framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar á landinu saman og sér þeim fyrir aðgangi að Interneti og ýmssi þjónustu sem IP-net bjóða upp á. Bandvídd þess er 100 Mb/sek.

14. febrúar: Aðgangur nemenda að Innu
Fyrir nokkrum dögum fengu nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja aðgang að upplýsingakerfinu Innu (www.inna.is) en nemendur annarra framhaldsskóla bætast við nú á næstu dögum og vikum. Nemendur fá m.a. aðgang að viðverumerkingum sínum svo og upplýsingum um námsferil og námsferilsáætlun. Stefnt er að því að nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands fái aðgangs- og lykilorð í þessum mánuði.

31. janúar: Dagskrá nemendafélagsins á vorönn 2003
Á skólaráðsfundi í dag, 31. janúar 2003, var eftirfarandi dagskrá fyrir félagslíf á vegum nemendafélagsins samþykkt:

Sefnt er að uppfærslu leikrits í mars.

31. janúar: Breytt skipan skólaráðs
Eva Björk Axelsdóttir sem var annar tveggja fulltrúa nemenda í skólaráði útskrifaðist úr skólanum í desember 2002. Í hennar stað hafa nemendur kjörið Veru Knútsdóttur. Skólaráð er því skipað Önnu Bjarnadóttur kennara, Ólöfu Húnfjörð Samúelsdóttur kennara, Eyjólfi Bjarnasyni nemanda, Veru Knútsdóttur nemanda, Herði Ó. Helgasyni skólameistara og Atla Harðarsyni aðstoðarskólameistara.

27. janúar: Ný tæki í tréiðnadeild - myndir
Í síðustu viku voru teknar í notkun nýjar vélar í tækjasal tréiðndeildar. Vélarnar eru Ítalskar: Steton þykktarhefill og fræsari. Þær voru keyptar frá Hegas ehf. Fimmtudaginn 23. janúar afhenti Axel Eyjólfsson framkvæmdastjóri Hegas Herði skólameistara tækin að viðstöddum nemendum, kennurum, og gestum.
    Í tilefni 25 ára afmælis skólans gaf Hegas ehf. skólanum línuborvél ásamt fræsitannasetti fyrir nýja fræsaran. Af sama tilefni afhenti formaður iðnsveinadeildar Verkalýðsfélags Akranes, Björn Guðmundsson, skólanum peningagjöf frá Verkalýðfélaginu og fimm fyrirtækjum í byggingariðnaði á Akranesi til tækjakaupa fyrir tréiðndeild skólans. Fyrirtækin fimm eru: Trésmiðjan Akur; Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar; Trésmiðjan Kjölur; Trésmiðja Akraness; Þorgeir og Helgi.
Sigurgeir deildarstjóri tréiðnadeildar þakkaði gjafir til deildarinnar.
    Nemendur í tréiðnaðardeild (grunn- og framhaldsdeild) eru núna 21 og hafa ekki verið fleiri í mörg ár .

7. janúar: Upphaf vorannar 2003
Í dag 7. janúar 2003 verða stundatöflur afhentar milli klukkan 13 og 17. Alls voru gerðar töflur fyrir rúmlega 560 nemendur. Töflugerð gekk mun greiðlegar en í byrjun haustannar enda hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum tölvukerfisins (Innu) sem notað er við töflugerð og skráningu og úrvinnslu hvers kyns upplýsinga um nemendur.
    Tekið verður á móti nýnemum klukkan 13 í dag en alls hefja 20 nýir nemendur nám í skólanum nú í byrjun vorannar og eru þá ekki taldir þeir sem hafa verið í skólanum áður og koma inn eftir hlé.
    Fyrsti starfsmannafundur annarinnar var í gær 6. janúar og þá fengu kennarar töflur sínar. Eftir starfsmannafundinn voru fagkennarafundir þar sem kennarar unnu að undirbúningi fyrir kennslu á vorönn.

7. janúar: Uppgjör haustannar 2002
Teknar hafa verið saman tölulegar upplýsingar um rekstur skólans og árangur nemenda á haustönn 2002. Slík samantekt er unnin í lok hverrar annar og er hluti af sjálfsmatskerfi skólans. Við skólann á Akranesi var 591 nemandi, þar af 517 í fullu námi (þ.e. með 24 tíma eða meira í stundatöflu) og 74 utanskóla eða í minna en fullu námi. Við framhaldsdeildina í Stykkishólmi voru 13 nemendur. Í töflunni hér að neðan er yfirlit yfir árangur nemenda.
 

  Fjöldi eininga sem nemandi var skráður í við lok annar (meðaltal) Fjöldi staðinna eininga (meðaltal) Fall (í prósentum)
Nemendur í fullu námi á Akranesi
17,9
15,0
16,8%
Allir nemendur á Akranesi
16,6
13,8
17,3%
Nemendur í Stykkishólmi
15,9
14,5
9,1%
Allir nemendur
16,5
13,8
17,3%


 

Á önninni hættu alls 32 nemendur í skólanum og 23 nemendur féllu á önn, þ.e. voru innritaðir í fullt nám og luku minna en 9 einingum. Fall á önn þýðir að nemandi verður að endurtaka alla áfanga þar sem hann nær lægri einkunn en 7. (Þegar talið er hverjir ná minna en 9 einingum eru hægferðaráfangar [nr. 102, 122, 202 og 212] sem kenndir eru í 6 kennslustundir í viku taldir eins og þeir gæfu 3 einingar.) 
     Eins og áður er mjög sterk fylgni milli námsárangurs og skólasóknar. Taflan hér til hægri sýnir t.d. að þeir sem fengu 10 í skólasóknareinkunn náðu að jafnaði um 99% þeirra eininga sem þeir reyndu við en þeir sem fengu 4 í skólasókn náðu aðeins um 28% (þ.e. féllu í um 72%) þeirra námseininga sem þeir reyndu við.
Skólasóknareinkunn
Hlutfall staðinna eininga
10
99%
9
92%
8
91%
7
78%
6
63%
5
66%
4
28%

20. desember: Brautskráning
Í dag, 20. desember, voru 39 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nemendurnir eru af  13 mismunandi námsbrautum, 19 stúlkur og 20 piltar. Af þessum 39 nemendum luku 23 stúdentsprófi, 11 luku iðnámi, 4 nemendur luku verslunarprófi af viðskiptabraut og 1 nemandi útskrifaðist með burtfararpróf af sjúkraliðabraut.
    Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 14. Fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoðarskólameistari annál haustannar 2002.
    Eftirtaldir listamenn komu fram:

    Skólameistari kvaddi Björn Inga Finsen og Gunnar Gunnarsson en þeir létu báðir af störfum á önni eftir að hafa kennt lengi við skólann.
    Erla Björk Gísladóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
    Nokkrum útskriftarnemum voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur:

Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Jólakvæði eftir séra Einar Sigurðsson við lag Sigvalda Kaldalóns. Kristján Elís Jónasson var forsöngvari og Leifur Jónsson lék undir á píanó.

20. desember: Lok haustannar 2002 - upphaf vorannar 2003
Síðustu próf á haustönn voru haldin mánudaginn 16. desember. Einkunnir voru afhentar 18. desember og nemendur brautskráðir frá skólanum þann 20. desember.
    Vorönn 2002 hefst formlega með starfsmannafundi mánudaginn 6. janúar klukkan 10. Stundatöflur verða afhentar þriðjudaginn 7. janúar klukkan 13 til 17. Nýnemar (sem eru að byrja í skólanum nú um áramótin) eiga að mæta 7. janúar klukkan 13. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 8. janúar klukkan 8.

22. nóvember: Ég býð þér dús mín elskulega þjóð
Í gærkvöldi var samkoma á sal Fjölbrautaskólans þar sem leikhópurinn Á senunni flutti dagskrá sem byggð er á ljóðum Halldórs Laxness. Dagskráin nefnist Ég býð þér dús mín elskulega þjóð. Í leikhópnum eru: Felix Bergsson leikari, Jakob Þór Einarsson leikari og Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður.
    Aðgangur var ókeypis og öllum opinn. Samkoman var í boði Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, Starfsmannafélags Akraness og Fjölbrautaskóla Vesturlands, en allar þessar stofnanir eiga merkisafmæli á þessu ári. Sjúkrahúsið og heilsugæslan eru 50 ára, starfsmannafélagið er líka 50 ára og Fjölbrautaskólinn er 25 ára og þessi menningarviðburður var liður í hátíðahöldum af því tilefni.

11. nóvember: Ferð þriggja kennara á SpecialneedsIT í London
Þrír kennarar af starfsbraut skólans, þær Edda Einarsdóttir, Linda Jóhannesdóttir og Hafdís Ásgeirsdóttir, gerðu sér um daginn ferð til London á sýninguna SpecialneedsIT sem haldin var þar dagana 31.10 – 02.11.  Þar var hægt að skoða allt það nýjasta varðandi sérkennslu s.s. bækur, tækjabúnað, sérkennsluforrit og fleira. Einnig sóttu þær fyrirlestra um valin efni. Á næstunni munu þær fara yfir gögn frá sýningunni og velja og meta hvað unnið verður með í framhaldinu.

6. nóvember: Ferð tveggja kennara á ráðstefnu í Gautaborg.
Dagana 24. til 26. október var haldin í Gautaborg ráðstefna um lestrar- og skriftarörðugleika nemenda, undir yfirskriftinni: Frå teori til praksis. Á þessa ráðstefnu fóru tveir kennarar skólans, þær Hjördís Árnadóttir og Ólöf H. Samúelsdóttir. Þátttakendur voru frá Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Danmörku og fyrirlesarar sömuleiðis. Að sögn Ólafar var ráðstefnan mjög gagnleg enda aðrar Norðurlandaþjóðir nokkuð langt á undan okkur í þessum málum. Það starf sem unnið er hér við skólann er þó á svipuðum nótum og rætt var um á rástefnunni en leiðirnar kannski ekki eins skýrar. Til stendur að vinna betur úr þeim upplýsingum sem aflað var á ráðstefnunni og reyna að nýta þær hér.

5. nóvember: Fyrrum nemendur FVA hljóta verðlaun fyrir góðan námsárangur í Florida
Þann 4. október síðastliðinn útskrifuðust Erling Ormar Vignisson, Sigurður Ari Ómarsson, Páll Þór Pálsson frá Full Sail Real World Education í Winter Park, Flórída. Þeir luku tveggja ára námi þarna úti, Páll og Sigurður í hönnun tölvuleikja (Computer Game Design & Development) og Erling í vefhönnun og gerð margmiðlunarefnis (Digital media). Útskrift þeirra félaga er fréttnæm fyrir þær sakir að samtals hlutu þeir 13 verðlaun. M.a. fékk Sigurður viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn á sinni námsbraut og Páll fyrir næst hæstu meðaleinkunn á sömu braut. Einnig fékk Erling viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á sinni braut.

4. nóvember: Skammhlaup, hæfileikakeppni, ball
Hið árlega skammhlaup var haldið með tilheyrandi ærslum og gauragangi föstudaginn 1. nóvember. Öll venjuleg kennsla samkvæmt stundaskrá var felld niður þann dag og nemendum skipt í 9 lið sem kepptu í reikningi, reiptogi, dönsku og "dragshow-i" og öllu þar á milli. Seinna um daginn var svo tónlistarkeppnin Hetjurokk á vegum nemendafélagsins og um kvöldið var slegið upp balli með hljómsveitinni Jet black Joe.
    (Viðbót við frétt skrifuð 6. nóvember.) Fjöldi efnilegra tónlistarmanna kom fram á Hetjurokkinu í Bíóhöllinni. Að mat dómnefndar var Fóður besta hljómsveit kvöldins en sú hljómsveit er skipuð þeim Sturlu Birgissyni söngvara, Ólafi Pétri Péturssyni gítarleikara, Samúel Þorsteinssyni á bassa og Valgeiri Sigurðssyni sem spilar á trommur. "Fuck it" með Fóðri var valið besta lagið og söngvari hljómsveitarinnar, Sturla Birgisson, var valinn besti söngvarinn og hlaut auk þess viðurkenningu fyrir bestu sviðsframkomu. Aðrir sem lentu í fyrsta sæti voru Hallur Heiðar Jónsson sem var valinn besti hljómborðsleikari; Bjarki Þór Guðmundsson besti trommuleikari; Einar Þröstur Reynissson bestur á gítar; Axel Freyr Gíslason sem var fremstur í hópi bassaleikara.

4. nóvember: Fyrrverandi nemandi FVA fær bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Föstudaginn 1. nóvember afhenti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Reykjavíkur bókmenntaverðlaun borgarinnar, sem kennd eru við Tómas Guðmundsson. Afhendingin fór fram við athöfn í Höfða. Að þessu sinni hlaut Sigurbjörg Þrastardóttir verðlaunin fyrir skáldsöguna Sólar sögu sem kemur út hjá JPV-útgáfunni innan skamms. Sólar saga er fyrsta skáldsaga Sigurbjargar en hún hefur áður sent frá sér ljóðbækurnar Blálogaland og Hnattflug. Sigurbjörg er borin og barnfæddur Skagamaður og tók stúdetnspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands árið 1993.

28. október: Nemandi við FVA nær góðum árangri í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema var haldin þriðjudaginn 15. október s.l. Keppt var í tveim flokkum eins og venja hefur verið, yngri flokki og eldri flokki. Í gær, sunnudag 27. október, var kunngert hverjir eru í 20 efstu sætum í hvorum flokki og þeim afhent viðurkenningarskjöl. Athöfnin fór fram í Skólabæ við Suðurgötu í Reykjavík. Að þessu sinni hlaut einn nemandi úr Fjölbrautaskóla Vesturlands viðurkenningu. Það var Máni Atlason sem var í 9. sæti í yngri flokki.

28. október: Forritunarkeppni framhaldsskólanna
Síðasta laugardag, 26. október, hélt Háskólinn í Reykjavík keppni í forritun fyrir framhaldsskólanemendur. Keppendur komu saman klukkan 8 að morgni og dagskránni lauk klukkan 23. Hvert lið var þriggja manna. Sigurvegari var lið sem nefnist "sirarnir" og kom frá Iðnskólanum í Reykjavík. Fjölbrautaskóli Vesturlands sendi eitt lið í keppnina. Það var skipað þeim Einar Braga Haukssyni, Jóni Orra Kristjánssyni og Stefáni Fróðasyni. Þeir stóðu sig með ágætum þótt þeir kæmust ekki á verðlaunapall. Upplýsingar um keppnina er að finna á http://www.forritun.is/ (Viðbót við frétt skrifuð 5. nóvember.) Af 27 liðum sem tóku þátt í keppninni var lið FVA í 8. sæti.

14. október: Afmælistónleikar Fjölbrautaskólans
Frá því Fjölbrautaskólinn á Akranesi tók til starfa fyrir 25 árum hefur öflugt tónlistarlíf, mikil söngur, rokk og jass sett svip á félagslíf nemenda. Laugardaginn 12. október voru haldnir tónleikar á sal skólans og nokkrir kaflar úr litríkri tónlistarsögu skólans rifjaðir upp í tilefni af 25 ára afmælis hans. Fram komu tónlistarmenn úr hópi fyrrverandi og núverandi nemenda:  Tíbrá, Orri Harðar, Abbababb, Halli Melló, Sigríður Hrund, Hrefna Dögg, Valgerður Jónsdóttir og Crez. Kynnir var Ólafur Páll Gunnarsson. Undirbúning önnuðust Eiríkur Guðmundsson, Guðgeir Guðmundsson o. fl.

9. október: Foreldrafundur -aðalfundur foreldrafélags
Í gær, 8. október, var haldinn aðalfundur foreldrafélags Fjölbrautaskólans. Á fundinum var kosin ný stjórn. Hana skipa: Sigurveig Stefánsdóttir formaður,
Elín Sigurbjörnsdóttir, Ólöf Sumarliðadóttir. Sigurveig og Elín eru Akurnesingar en Ólöf er úr Borgarbyggð. Sigurveig var fyrir í stjórn félagsins ásamt Sigurði Guðna Sigurðssyni og Sóleyju Sigurþórsdóttur.
    Að loknum aðalfundi hittu foreldrar nýnema (þ.e. nema sem fæddir eru 1986) umsjónarkennara sinna barna.

1. október: Frjálsíþróttamót framhaldsskólanna
Föstudaginn 27. september fóru nokkrir nemendur úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Laugarvatn og tóku þar þátt í frjálsíþróttamóti framhaldsskólanna. Okkar menn stóðu sig með sóma og fjórir þeirra komust á verðlaunapall:

Sá skóli sem náði bestum heildarárangri á mótinu var Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra á Sauðárkróki.

26. september: Dagskrá nemendafélagsins
Nemendafélag skólans hefur tímasett helstu atburði haustannar 2002. Eftirtaldir viðburðir eru ráðgerðir eða hafa farið fram:

24. september: Afmælisrit Fjölbrautaskóla Vesturlands
Laugardaginn 21. september kom út afmælisrit í tilefni af 25 ára afmæli Fjölbrautaskóla á Akranesi. Ritstjórar eru þeir Jón Árni Friðjónsson kennari og Kristján Kristjánssson rithöfundur. Ritið er 48 bls. í A5 broti. Því verður dreift á öll heimili á Vesturlandi.
    Í tilefni útgáfunnar var móttaka á sal skólans á laugardaginn klukkan 16:30. Til hennar var boðið fulltrúum fyrirtækja og stofnana sem hafa gefið skólanum gjafir í tilefni afmælisins og höfundar efnis og aðrir sem unnu að útgáfu afmælisritsins.

24. september: Íslenskukennsla fyrir útlendinga
Hér við Fjölbrautaskóla Vesturlands hafa gegnum tíðina verið allmargir nemendur sem hafa átt annað móðurnmál en íslensku. Flestir hafa þeir búið hér á landi um árabil áður en þeir hófu nám við skólann og því getað fylgst með í tímum þótt kennslan væri öll á íslensku. Nú í haust gerðist það svo í fyrsta sinn að þrír unglingar (einn frá Rússlandi og tveir frá Póllandi) sem eru nýfluttir til landsins hófu hér nám. Brugðist var skjótt við að útvega þeim kennslu í íslensku og
nú í þessari viku hófst kennsla í áfanganum ÍSA103 (íslenska sem annað mál 103). Kennari er Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir.

20. september: Ítalskir nemendur í heimsókn - Myndir
Nú í september eru 8 ítalskir unglingar í heimsókn við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þeir eru nemendur við framhaldsskóla í Mílanó sem heitir ITIS Giorgi. Nokkrir nemendur héðan heimsóttu þennan sama skóla síðasta vor. Heimsóknir þessar eru styrktar af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.
    Ítalirnir komu til landsins þann 7. september. Þeir dvelja á heimilum í Borgarnesi og á Akranesi. Fyrstu vikuna sóttu þeir skóla og skruppu í Landmannalaugar. Nú í annarri viku heimsækja þeir fyrirtæki á Vesturlandi og taka þátt í atvinnulífinu, hafa m.a. farið í réttir og hjálpað bændum að draga fé í dilka. Í þriðju og síðustu viku heimsóknarinnar er ráðgert að þeir sæki kennslustundir við skólann og skreppi í dagsferð á Þingvelli og að Gullfossi og Geysi.
    Auk nemendanna komu tveir kennarar frá ITIS Giorgi. Þeir kynna sér skólahald hér á Skaga og eru nemendunum til halds og trausts. Annar fylgdi hópnum hingað 7. september og fór af landi brott þegar hinn kom þann 17.

20. september: Fartölvuvæðing heldur áfram
Þriðjudaginn 17. september var fartölvum úthlutað til 5 kennara við skólann. Alls hefur skólinn nú keypt fartölvur fyrir 19 kennara. Vélarnar eru eign skólans en til afnota fyrir kennarana. Stefnt er að því að halda áfram að kaupa fartölvur fyrir kennara þar til allir sem á þurfa að halda hafa slík verkfæri til umráða.

14. september: Afmæli skólans - heimsókn menntamálaráðherra
Fimmtudaginn 12 september voru 25 ár liðin frá stofnun fjölbrautaskóla á Akranesi. Í tilefni afmælisins komu nemendur og kennarar saman á sal skólans í þriðju kennslustund, klukkan 10:20. Samkoman hófst á ávarpi Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra. Því næst lék Rut Berg Guðmundsdóttir tvö lög á harmóníku og Hrefna Gunnarsdóttir og Elsa Jóhannsdóttir Kiesel sungu við undirleik Leifs Jónssonar. Rut; Hrefna, Elsa og Leifur eru öll nemendur við skólann. Að síðustu sté Helga Braga Jónsdóttir, leikkona og fyrrum nemandi við skólann, á svið og skemmti viðstöddum með glensi og gríni eins og henni einni er lagið. Kynnir var Gyða Bentsdóttir.
    Að lokinni vel heppnaðri samkomu á sal skoðaði menntamálaráðherra skólann og snæddi hádegisverð ásamt Herði Helgasyni skólameistara, Atla Harðarsyni aðstoðarskólameistara, Gísla Gísasyni bæjarstjóra, Þorgeiri Jósefssyni formanni skólanefndar, Guðjóni Guðmundssyni alþingismanni og Karli Kristjánssyni deildarstjóra í Framhaldsskóla- og fullorðinsfræðsludeild menntamálaráðuneytisins. Undir borðum gerðu skólameistari og formaður skólanefndar grein fyrir stöðu skólans og hvað helst þarf að gera til að starf hans eflist á næstu árum.

5. september: Sveit Fjölbrautaskóla Vesturlands í 2. sæti á golfmóti framhaldsskólastarfsmanna
Golfmót framhaldsskólastarfsmanna var haldið á Garðavelli á Akranesi þann 31. ágúst sl. Sveit Verzlunarskóla Íslands var í fyrsta sæti með 96 stig. Í öðru sæti var sveit Fjölbrautaskóla Vesturlands með 94 stig og í því þriðja var sveit Fjölbrautaskólans í Breiðholti með 83 stig.
    Í sveit Fjölbrautaskóla Vesturlands eru: Guðmundur Egill Ragnarsson; Hafliði Páll Guðjónsson; Hannes Þorsteinsson; Steinn Mar Helgason; Þórólfur Ævar Sigurðsson.

5. september: Busavígsla o.fl.
Skóli er nú kominn í fullan gang fyrir nokkru. Eins og venjulega voru nýnemar vígðir inn í skólann með vatnsaustri og niðurdýfingum sem fram fóru eftir hádegi föstudaginn 30. ágúst. Um kvöldið hélt nemendafélag skólans svo sitt árlega busaball. Þótti það fara vel fram.

5. september: Fjöldi nemenda
Nemendur í Fjölbrautaskólanum á Akranesi eru 607 talsins nú við upphaf haustannar 2002. Þar af eru:

  1 fæddur árið 1987;   101 fæddur árið 1984;   31 fæddur árið 1981;
127 fæddir árið 1986;    81 fæddur árið 1983;   17 fæddir árið 1980;
128 fæddir árið 1985;    42 fæddir árið 1982;   79 eru fæddir fyrir 1980.

383 nemendur eiga lögheimili á Akranesi (póstn. 300).
 57 nemendur eiga lögheimili í Borgarnesi (póstn. 310).
 70 nemendur eiga lögheimili í sveitum Borgarfjarðar- og Mýrasýslu (póstn. 301, 311 og 320).
 52 nemendur eiga lögheimili á Snæfellsnesi (póstn. milli 340 og 360).
 19 nemendur eiga lögheimili í Dalasýslu (póstn. 370 og 371).
 26 nemendur eiga lögheimili utan Vesturlands.

27. ágúst: Önnur útgáfa skólanámskrár Fjölbrautaskóla Vesturlands
Sumarið 2000 kom fyrsta útgáfa af skólanámskrá fyrir Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hún var sniðin að aðalnámskrá Menntamálaráðuneytisins frá 1999 og tók við af námsvísi sem sniðinn var að eldri námskrá frá ráðuneytinu. Síðan þessi fyrsta útgáfa skólanámskrár leit dagsins ljós hefur ráðuneytið kunngjört allmargar breytingar á aðalnámskrá. Önnur útgáfa skólanámskrár, sem kom úr prentun 20. ágúst síðstliðinn, hefur verið löguð að þessum breytingum.

19. ágúst 2002: Upphaf skólaársins
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi verður settur við athöfn á sal skólans miðvikudaginn 21. ágúst klukkan 10. Að lokinni skólasetningu hitta nýnemar umsjónarkennara sína. Stundatöflur eldri nemenda verða afhentar klukkan 13 til 17 sama dag. Regluleg kennsla samkvæmt stundaskrá hefst fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 8.

19. ágúst 2002: Fyrstu starfsmannafundir - upphaf skólaársins
Í dag, mánudaginn 19. ágúst, var fyrsti starfsmannafundur skólaársins haldinn klukkan 10 og kennarafundur í beinu framhaldi af honum.
    Á starfsmannafundi tilkynnti skólameistari eftirtaldar breytingar á starfsliði skólans:
    Kennararnir Ásdís Kristinsdóttir, Björn Ingi Finsen, Gunnar Gunnarsson, Magnús Einarsson, María Elísabeth Wechner og Snjólaugur Þorkelsson láta af störfum við skólann. (Ásdís og Gunnar voru í leyfi á síðasta skólaári.) Stundakennararnir Anna Lára Steindal, Enrique Llorens Izaguirre, Ingibjörg Þorkelsdóttir og Kristinn Hallur Sveinsson sem kenndu við skólann á vorönn 2002 verða ekki við kennslu á haustönn. Kolbrún Diego lætur af störfum við mötuneyti skólans.
    Jóhanna Hálfdánsdóttir verður í leyfi frá skólanum skólárið 2002-2003.
    Hannes Þorsteinsson og Ólafur Haraldsson sem voru í leyfi á síðasta skólaári koma aftur til starfa.
    Sex nýir kennarar hefja störf við skólann. Þeir eru: Gunnar H. Kristinsson (landafræði), Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir (kennsla á starfsbraut), Katrín Jónsdóttir (franska), Kristján E. Guðmundsson (félagsfræði), Theódór Óskarsson (málmiðngreinar), Ævar Buthmann (enska)
Hulda Sigurðardóttir hefur verið ráðin umsjónarmaður heimavistar og Guðríður Árnadóttir hefur verið ráðin að mötuneyti skólans.

*
Á kennarafundi var skóladagatal fyrir skólaárið 2002-2003 samþykkt. Vakin er athygli á eftiröldum dagsetningum á haustönn:
 

Miðvikudagur 21.8. 
Skólasetning kl. 10, Stundatöflur eldri nema afhentar kl. 13 - 17
Fimmtudagur 22.8.
Kennsla hefst kl. 8:00
Föstudagur 18.10.
Miðannarfrí
Mánudagur 21.10.
Miðannarfrí
Mánudagur 2.12. 
Próf hefjast
Mánudagur 16.12.
Sjúkrapróf
Miðvikudagur 18.12.
Einkunnaafhending og val fyrir vorönn
Föstudagur 20.12.
Brautskráning

Á fundinum var Sigurgeir Sveinsson endurkjörinn sem áheyrnarfulltrúi kennara í skólanefnd og Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir var kjörin varamaður. Jón Gunnar Axelsson gekk úr skólaráði eftir tveggja ára setu. Í stað hans var Anna Bjarnadóttir kjörin og Þröstur Þór Ólafsson til vara. Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir situr áfram í skólaráði enda aðeins ár liðið síðan hún var kjörin.

20. ágúst 2002: Sameiginlegir fagkennarafundir Fjölbrautaskólanna á Akranesi, Selfossi og Suðurnesjum
Árum saman hefur verið samstarf milli Fjölbrautskóla Vesturlands, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þessir skólar eiga um margt samleið og stjórnendur þeirra hittast reglulega á samráðsfundum. Nokkur ár eru liðin frá því síðast voru haldnir formlegir fundir með kennurum þessara þriggja skóla. Nú í upphafi skólaárs er öllu liðinu stefnt á Selfoss þar sem kennarar sem kenna sömu greinar bera saman bækur sínar. Fyrir hádegi í dag verður rætt um kennsluáætlanir, námsmat og fyrirkomulag kennslu í einstökum fögum. Eftir hádegi fjalla kennarar svo um dreifkennslu og notkun upplýsingatækni og skiptast á skoðunum og reynslusögum um þau efni.
 


Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2001-2002
Skýrsla um erlent samstarf á skólaárinu 2002-2003