Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
skólaárið 2001-200220. júní 2002: Breytingar á kennaraliði
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
Nú í vor hafa 4 nýir kennarar verið ráðnir að Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þeir eru:
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir, kennir á starfsbraut.
Katrín Jónsdóttir, kennir frönsku
Kristján E. Guðmundsson, kennir félagsfræði
Ævar Buthmann, kennir ensku
Einnig koma Ólafur Haraldsson og Hannes Þorsteinsson úr leyfi.23. maí 2002: Ný stjórn nemendafélagsins
Í vor kaus nemendafélagið, NFFA, sér nýja stjórn. Í henni sitja:
Þorkell Steindal formaður
Guðgeir Guðmundsson gjaldkeri
Sylvía Hlynsdóttir ritari
Karítas Jónsdóttir meðstjórnandi
Runólfur Kristjánsson meðstjórnandi22. maí 2002: Brautskráning og skólaslit
Í dag 22. maí var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 60 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Taflan sýnir hvernig þessir 60 nemendur skiptast á námsbrautir.
| Piltar/Karlar |
Stúlkur/Konur |
Alls |
|
| Stúdentspróf |
16 |
21 |
37 |
| Burtfararpróf
af iðnbraut |
10 |
0 |
10 |
| Burtfararpróf
af sjúkraliðabraut |
0 |
5 |
5 |
| Fyrri
hluti náms í rafeindavirkjun |
6 |
0 |
6 |
| Verslunarpróf
af viðskiptabraut |
0 |
2 |
2 |
| Alls |
32 |
28 |
60 |
Fyrir athöfnina lék Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi undir stjórn Ragnars Skúlasonar.
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2002. Listamenn úr hópi nemenda komu fram: Rut Berg Guðmundsdóttir lék á harmóníku og Sindri Birgisson las ljóð.
Sólveig Jónsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema.
Gísli Gíslason bæjarstjóri afhenti námsstyrk Akranesskaupstaðar. Hann hlaut að þessu sinni Eyrún Sif Ólafsdóttir nýstúdent af eðlisfræði- og náttúrufræðibraut.
Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur eða störf að félagsmálum:
- Anna Guðrún Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu úr sjóði Elínar Írisar Jónsdóttur fyrir íslenskan stíl.
- Ásgeir Helgi Gylfason fyrir góðan árangur í viðskipa- og hagfræðigreinum. Hann fékk einnig viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum.
- Dagbjört Guðmundsdóttir hlaut viðurkenningu úr sjóði Elínar Írisar Jónsdóttur fyrir íslenskan stíl.
- Eyrún Sif Ólafsdóttir fyrir góðan árangur í dönsku, þýsku og líffræði. Hún fékk einnig viðurkenningu úr minningarsjóði Þorvaldar Þorvaldssonar fyrir góðan árangur stærðfræði og eðlisfræði. Eyrún fékk ennfremur viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2002 og námsstyrk Akraneskaupstaðar.
- Guðrún Kristófersdóttir fyrir góðan árangur í sálfræði og félagsfræði.
- Hörður Ægisson fyrir góðan árangur í viðskipa- og hagfræðigreinum.
- Jakob Guðmundur Rúnarsson fyrir góðan árangur í samfélagsgreinum og í ensku.
- Jón Heiðar Hannesson fyrir góðan árangur í málmiðnagreinum og viðurkenningu frá Landsskrifstofu Leonardo fyrir góðan árangur í verkmenntagreinum. Hann fékk einnig verðlaun sem gefin eru af Kötlu Hallsdóttur fyrir góðan árangur í verklegum greinum.
- Jón Oddur Halldórsson fyrir góðan árangur í stærðfræði og tölvufræði.
- Jónína Rakel Gísladóttir fyrir góðan árangur í hjúkrunargreinum.
- Monika Freysteinsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur stærðfræði og efnafræði. Hún fékk einnig viðurkenningu úr minningarsjóði Þorvaldar Þorvaldssonar fyrir góðan árangur stærðfræði og eðlisfræði og verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar á Sýruparti fyrir framúrskarandi árangur í námi.
- Ómar Freyr Sigurbjörnsson fyrir störf að félagsmálum.
- Sigurður Kjartan Gylfason fyrir góðan árangur í tréiðnagreinum og stærðfræði og viðurkenningu frá Landsskrifstofu Leonardo fyrir góðan árangur í verkmenntagreinum. Hann fékk einnig verðlaun sem gefin eru af Kötlu Hallsdóttur fyrir góðan árangur í verklegum greinum.
- Sigurður Þór Elísson fékk viðurkenningu úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar fyrir störf að félagsmálum.
- Sindri Birgisson fyrir störf að félagsmálum.
- Sólveig Jónsdóttir fyrir góðan árangur í ensku.
- Sævar Þór Jónasson fyrir góðan árangur í rafiðnagreinum.
Þeir sem gáfu verðlaun og viðurkenningar og ekki eru nefndir í upptalningunni hér að ofan eru: Efnafræðifélag Íslands, Landmælingar Íslands; Rótarýklúbbur Akraness; Sjúkraliðafélag Íslands, Vesturlandsdeild; Stærðfræðafélag Íslands; Sveinafélag málmiðnaðarins; Verkalýðsfélag Akraness, iðnsveinadeild; Verslunarmannafélag Akraness; þýska sendiráðið.
Hörður Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans.16. maí 2002: Nemendur komnir heim frá Danmörku
Þann 20 apríl hélt 21 nemandi af iðnbrautum skólans í námsferð til Danmerkur. Þeir komu heim þann 11. maí. Af þessum nemendum eru 5 við nám í rafvirkjun. Þeir dvöldu í Kaupmannahöfn. Hinir 16 eru eru á tré- og málmiðnabrautum skólans og þeir fóru til Viborg á Jótlandi. Sex kennarar úr tré- og málmiðnadeildum fóru einnig utan til Viborg, tveir og tveir saman og dvöldu í viku. Í ferðinni heimsóttu nemendur og kennarar skóla og fyrirtæki en notuðu líka tækifærið til að ferðast um og skemmta sér. Ferðir þessar voru kostaðar af Leonardó starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og skipulagðar af Hörpu Hreinsdóttir sem annast samskipti skólans við erlendar menntastofnanir.6. maí 2002: Gestir frá Muurame og Napoli
Dagana 2. til 6. maí fékk Fjölbrautaskóli Vesturlands góða gesti, sem voru 4 kennarar frá Napolí og 2 kennarar frá Muurame í Finnlandi. FVA hefur tekið þátt í Comenius-verkefninu Konur í sögnum og goðsögnum ásamt þessum
kennurum undanfarin tvö ár. Sjá má hluta þess efnis sem unnið hefur verið á http://www.fva.is/harpa/comenius/ en endanlegur afrakstur þess verður myndband með leiknum goðsögnum og sögnum frá löndunum þremur.
Auk fundahalda um verkefnið fóru gestirnir í skoðunarferð um Suðurland, eyddu degi í Reykjavík, skoðuðu Akranes og brugðu sér á hestbak í Tungu í Svínadal.
Að ári munu tveir kennarar frá FVA fara á samsvarandi fund til Napolí.24. apríl 2002: Fyrrverandi nemandi FVA hlýtur friðarstyrk Rotarý
Helga Bára Bragadóttir, sem útskrifaðist af Náttúrufræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 1993, er í hópi 70 fyrstu friðarstyrkþega Mannúðar- og menningarsjóðs Alþjóða Rótaýhreyfingarinnar. Syrkur þessi greiðir fyrir nám í alþjóðasamskiptum með áherslu á friðarmál. Í haust mun Helga Bára hefja tveggja ára meistaranám í þeim fræðum við Bradford-háskóla í Jórvíkurskíri á Englandi.
Ekki er nóg með að Helga Bára sé ein af 70 einstaklingum sem valdir voru úr hópi mörg þúsund umsækjenda. Hún er líka önnur tveggja úr hópi þessara 70 sem valdir hafa verið til að flytja erindi á allsherjarþingi Rótarýhreyfingarinnar sem haldið verður í Barcelona í júní n.k.
Helga Bára hefur áður lokið B.A. prófi í mannfræði og kennsluréttindaprófi frá Háskóla Íslands. Hún hefur undanfarin tvö ár starfað sem kennari við Menntaskólann á Ísafirði. Hún hefur frá unga aldri verið virk í félagsstörfum, einkum sem sjálfboðaliði Rauða krossins. Hún var m.a. formaður Ungmennahreyfingar RKÍ og situr nú í stjórn Rauða krossins. Þá var hún skiptinemi í Bólivíu eitt ár, vann hálft ár í Mósambík við þróunaraðstoð, tók hluta af háskólanámi sínu í Manchester í Englandi og var við nám og störf í Danmörku í eitt ár.
Fréttaritari skólavefjar óskar Helgu Báru til hamingju með styrkinn og þann heiður sem Rótarýhreyfingin sýnir henni.22. apríl 2002: Keppni í málmsuðu
Föstudaginn 19. apríl. s.l. var haldin málmsuðukeppni framhaldsskóla. Keppt var í þremur mismunandi greinum: MIG - suðu, pinnasuðu og logsuðu. Tíu framhaldsskólar tóku þátt í keppninni og voru 2 keppendur frá hverjum skóla.
Keppendur Fjölbrautaskóla Vesturlands voru þeir Bjarni Tryggvason og Jón Heiðar Hannesson. Það er skemmst frá því að segja að þeir stóðu sig frábærlega. Jón Heiðar var í 1. sæti í MIG - suðu og Bjarni var í 2. sæti í pinnasuðu. Í samanlagðri stigakeppni skólanna lentu þeir félagar í 2. sæti og munaði aðeins 7 stigum á þeim og sigurliðinu. Þeir
fengu samtals 619 stig en lið Iðnskólans í Reykajvík fékk 626 stig, jafnara gat það varla verið.
Keppnin var haldin að frumkvæði Iðnmenntar / IÐNÚ og var hún hugsuð sem einn liður í kynningu iðn- og starfsmenntunar í því skyni að auka veg þeirra greina í menntakerfinu.10. apríl 2002: Nemendur og kennari frá Muurame í heimsókn
Í dag komu níu nemendur og einn kennari frá Muurame í Finnlandi í heimsókn í skólann. Þeir verða hér þangað til á laugardagsmorgunn og sitja kennslustundir, skoða Akranes og fara í dagsferð um Suðurland. Gestirnir búa í heimahúsum hjá nokkrum af kennurum og nemendum skólans.2. apríl 2002: Bókasafn skólans flutt í nýtt húsnæði
Í fyrri hluta dymbilviku voru settar upp hillur í nýbyggingu bókasafnsins og bækur og önnur gögn flutt þangað úr eldra húsnæði sem nú verður breytt í les- og tölvustofu fyrir nemendur. Þegar starfsfólk fór í páskaleyfi, miðvikudaginn 27. mars, var þessum flutningum lokið og ekkert því til fyrirstöðu að opna bókasafnið í nýju húsnæði strax eftir páska.23. mars: Úrslit í stærðfræðikeppni fyrir nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 27. febrúar. Þátttakendur voru rúmlega 160 talsins. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla víða um land. Þetta er í fjórða sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni.
Í dag, 23. mars 2002, var samkoma á sal Fjölbrautaskóla Vesturlands. Til hennar var boðið þeim 10 efstu úr hverjum árgangi og þeim afhent viðurkenningarskjöl. Þeir sem voru í þrem efstu sætum í hverjum árgangi fengu að auki peningaverðlaun. Eins og fyrri ár eru fyrstu verðlaun í hverjum árgangi 15.000 kr., önnur verðlaun 10.000 kr. og þriðju verðlaun 5.000 kr.
Eftirtaldir aðilar gáfu verðlaunafé að þessu sinni:Hraðfrystihús Hellissands
Norðurál, Grundartanga
Soffanías Cecilsson, Grundarfirði
Sæfell hf. - Grettir SH104, Stykkishólmi
Trésmiðja Þráins Gíslasonar, Akranesi
Trésmiðjan Akur, Akranesi
Trésmiðjan Kjölur, Akranesi
Þorgeir og Helgi, AkranesiAuk þessara fyrirtækja styrktu sveitarfélögin Akraneskaupstaður, Borgarbyggð og Stykkishólmsbær keppnina.
* Nemendur áttundu bekkja sem lentu í þrem efstu sætum og hlutu peningaverðlaun eru:
Jón Óskar Óskarsson Grunnskólanum í Borgarnesi í 1. sæti;
Pawel Jerzy Swierczynski Grunnskólanum Hellissandi í 2. sæti;
Almar Gunnarsson Brekkubæjarskóla í 3. sæti.
Aðrir nemendur úr áttundu bekkjum sem hlutu viðurkenningu eru (taldir upp í stafrófsröð): Edda Bergsveinsdóttir Grunnskólanum í Borgarnesi; Guðbjartur Þór Stefánsson Heiðarskóla; Hörður Kristján Nikulásson Brekkubæjarskóla; Ingólfur Þórðarson Grunnskólanum í Borgarnesi; Ragnar Gauti Hauksson Grunnskólanum í Borgarnesi; Sigríður Guðbjartsdóttir Laugagerðisskóla Snæfellsnesi; Sigríður Th. Sigbjörnsdóttir Varmalandsskóla.
Nemendur níundu bekkja sem lentu í þrem efstu sætum og hlutu peningaverðlaun eru:
Elísa Guðrún Elísdóttir Grundaskóla í 1. sæti;
Eyrún Jóna Reynisdóttir Grundaskóla í 2. sæti;
Brynja Sif Hjaltadóttir Heiðarskóla í 3.-5. sæti;
Ólafur Hrafn Magnússon Grunnskóla Eyrarsveitar í 3.-5. sæti;
Silja Ósk Þórðardóttir Grunnskólanum Hellissandi í 3.-5. sæti.
Aðrir nemendur úr níundu bekkjum sem hlutu viðurkenningu eru (taldir upp í stafrófsröð): Guðrún S. Sveinbjörnsdóttir Brekkubæjarskóla; Heiður Sif Heiðarsdóttir Grundaskóla; Nanna Einarsdóttir Grunnskólanum í Borgarnesi; Sólveig Rós Jóhannsdóttir Grunnskólanum í Búðardal; Úrsúla Guðmundsdóttir Grundaskóla.
Nemendur tíundu bekkja sem lentu í þrem efstu sætum og hlutu peningaverðlaun eru:
Ólöf Erla Hauksdóttir Grunnskólanum í Borgarnesi í 1. sæti;
Hans Pétursson Brekkubæjarskóla í 2. sæti;
Heiða Lind Heimisdóttir Grunnskólanum í Stykkishólmi í 3. sæti.
Aðrir nemendur úr tíundu bekkjum sem hlutu viðurkenningu eru (taldir upp í stafrófsröð): Benedikt Magnússon Brekkubæjarskóla; Daði Hjálmarsson Grunnskólanum Hellissandi; Gísli Laxdal Sturlaugsson Brekkubæjarskóla; Kristbjörg Bjarnadóttir Grunnskólanum í Staðarsveit; Rósa Guðjónsdóttir Grunnskólanum í Staðarsveit; Valur Oddgeir Bjarnason Grundaskóla; Þórarinn Helgi Agnarsson Grunnskólanum í Staðarsveit.
21. mars: Söngvakeppni NFFA
Mánudaginn 18. mars hélt nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands söngvakeppni. Keppendur voru 9 og sigurvegari var Hrefna Dögg Gunnarsdóttir. Hún keppir fyrir hönd skólans í söngvakeppni framhaldsskólanna sem haldin verður í íþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum, næstkomandi laugardag 23. mars klukkan 21. Keppninni verður sjónvarpað beint í ríkissjónvarpinu.21. mars: En kulturrejse til Reykjavík
Torsdag d. 14. 03. kørte vi (elever i DAN 303) fra FVA til Reykjavík klokken 13. Vi begyndte med at besøge Nordens hus, hvor en sprogkonsulent, Kristín, tog imod os. Hun viste os huset og vi lavede en opgave fra de nordiske aviser. Da det var færdigt havde vi to timer til at gøre hvad vi ville, vi tog alle til Kringlan. Klokken halv fem tog vi til "Háskólabíó" med en taxa. Der så vi filmen "Elling", den var norsk og meget sjov:)
Da filmen var slut gik vi til Nordens hus, men vi var der lidt tidligt så vi satte os ned og snakkede lidt sammen indtil programmet begyndte. Vi så mange sjove og flotte numre, lyttede til digte, så flere film og spiste flot nordisk mad, og meget, meget flere. På kulturaftenen vandt to af os en pris for at svare nogle spørgsmål om de Nordiske lande. Omkring 22 kørte vi tilbage fra Reykjavík, alle meget lykkelige og tilfreds med den fantastiske rejse.
PS. Gyða og hendes gode mand kørte Anna og Kristín hjem til Borgarnes - tak skal du ha':)Anna Þ., Líney, Ingibjörg, Kristín Lára, Axel Freyr, Haukur Árni19. mars: Flutningur franskra ljóða
Hin árlega keppni í flutningi franskra ljóða fyrir framhaldsskólanema var haldin laugardaginn 16. mars s.l. í Verslunarskóla Íslands. Keppni þessi er haldin í samvinnu Félags frönskukennara á Íslandi (FFÍ) og Franska sendiráðsins. Keppendur voru 14 talsins, frá 9 skólum.
Fulltrúar FVA voru Erla Björk Gísladóttir og Kristín Edda Búadóttir nemendur í FRA 513. Þær stóðu sig mjög vel.
Sigurvegarar að þessu sinni voru Alexandra Kjeld úr MR og Sólrún Hafþórsdóttir úr MH. Hlaut hvor þeirra ferð til Frakklands í verðlaun.
Auk þeirra fengu 2 nemendur frá FSU og nemandi úr FB orðabækur. Að venju fengu allir keppendur bókagjöf í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna. Þessi keppni var hin sjötta sinnar tegundar og hefur FVA alltaf tekið þátt í henni nema árið 2001.12 . mars: Fundur forvarnafulltrúa
Í gær, 11. mars, komu forvarnafulltrúar úr framhaldsskólum saman til fundar hér í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Fundur þeirra hófst klukkan 10:30 með erindum frá Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur fræðslufulltrúa Geðræktar og Sóleyju S. Bender sem fjallaði um kynfræðsluefni fyrir framhaldsskóla. Eftir hádegi voru svo umræður um forvarnaverkefni í framhaldsskólum.
Nokkrir nemendur skólans voru með tvö erindi: kynningu á jafningjafræðslu og kynning á rannsókn á tengslum raftónlistar við neyslu eiturlyfja. Fundinum lauk rúmlega fjögur eftir að skólameistari hafði sýnt gestum skólann.11. mars: Frumsýning á Grænjöxlum
Laugardagskvöldið 9. mars frumsýndi leiklistarklúbbur nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands Grænjaxla eftir Pétur Gunnarsson. Leikstjóri er Sigríður Árnadóttir. Orri Harðarson stjórnaði tónlisarflutningi og samdi hluta af tónlistinni sem flutt er í leikritinu. Lögin sem Orri samdi ekki eru eftir liðsmenn úr Spilverki þjóðanna. Framkvæmdastjóri sýningarinnar er Guðmundína Arndís Harldsdóttir formaður leiklistarklúbbs.
Með aðalhlutverk fara Sindri Birgisson (sem leikur Kára), Tryggvi Dór Gíslason (leikur Dóra), Vera Knútsdóttir (leikur Grétu) og Hrafnhildur Ýr Árnadóttir (leikur Láru). Hljómsveitin gegnir miklu hlutverki í sýningunni. Hún er skipuð þeim Hrefnu Dögg Gunnarsdóttur, Karli Hallgrímssyni, Gunnari Sturlu Hervarssyni, Guðmuni Claxton, Ingþóri B. Þórhallssyni og Orra Harðarsyni.
Sýningin tókst með mestu ágætum og í lok hennar voru leikarar, tónlistarmenn og leikstjóri klappaðir upp og hylltir með miklu lófataki.11. mars: Jafningjafræðslan
Þann 5. mars var jafningjafræsludagur og gekkst jafningjafræðslan fyrir tónleikum og fyrirlestri á sal skólans. Þessi dagskrá var vel sótt af nemendum. Um kvöldið fór svo um tuttugu manna hópur á hiphopp dansskemmtun sem haldin var í undirheimum hjá Breiðholtsskóla. Þorkell Steindal og Benedikt Sævars stjórnuðu þessum uppákomum.
Jafningjafræðslan er nú að safna styrkjum fyrir stóra vorferð (Jöklaferð) sem farin verður strax eftir próf.8. mars: Axel kominn á eftirlaun, Inna hefur störf
Undanfarnar vikur hafa stjórnendur og skrifstofufólk Fjölbrautaskólans verið að læra á nýtt skráningarkerfi sem tekið hefur við af Axel, gamla nemendabókhaldinu. Nýja kerfið kallast Inna og er ólíkt Axel m.a. að því leyti að gögn fyrir alla framhaldsskóla eru vistuð miðlægt hjá Skýrr hf. og aðgangur að þeim er í gegnum vefinn. Í ráði er að úthluta aðgangsorðum til nemenda næsta vetur þannig að þeir geti sjálfir heimsótt vefinn www.inna.is og skoðað gögn um sjáfa sig (námsferla, fjarvistir, einkunnir).
Flutingur gagna í Innu gekk heldur hægar en til stóð og fyrir vikið voru nemendum ekki birtar upplýsingar um fjarvistir í heilan mánuð eða frá 6. febrúar til 6. mars.27. febrúar: Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum
Hin árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í dag, miðvikudaginn 27. febrúar klukkan 15:00. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla víða um land. Þetta er í fjórða sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni.
Alls voru rúmlega 180 unglingar skráðir til keppni sem er talsvert fleira en undanfarin ár. Að keppni lokinni fengu keppendur flatböku, franskar og kók í mötuneyti skólans.
Eins og fyrri ár eru fyrstu verðlaun í hverjum árgangi voru 15.000 kr., önnur verðlaun 10.000 kr. og þriðju verðlaun 5.000 kr.
Eftirtaldir aðilar styrkja keppnina að þessu sinni:
- Akraneskaupstaður
- Borgarbyggð
- Hraðfrystihús Hellissands
- Norðurál, Grundartanga
- Soffanías Cecilsson, Grundarfirði
- Stykkishólmsbær
- Sæfell hf. - Grettir SH104, Stykkishólmi
- Trésmiðja Þráins Gíslasonar, Akranesi
- Trésmiðjan Akur, Akranesi
- Trésmiðjan Kjölur, Akranesi
- Þorgeir og Helgi, Akranesi
25. febrúar 2002: Árshátíð og spilakvöld jafningjafræðslunnar
Síðasta föstudag, þann 22. febrúar, hélt nemendafélagið árshátíð. Borðhald hófst klukkan 19 og var setið undir boðrum til klukkan rúmlega 21. Veislustjóri var Gísli Einarsson ritstjóri Skessuhorns og Gísli Bæjarstjóri var leynigestur. Nemendur skólans sáu sjálfir um tónlistaratriði. Samkoman tókst hið besta á allan hátt. Henni lauk með því að stjórn NFFA færði stúlkunum í árshátíðarnefnd, þeim Belindu, Eddu og Hrefnu Maríu, blóm og þakkaði þeim fyrir vel unnin störf. Seinna um kvöldið var svo dansleikur sem einnig fór hið besta fram. Hljómsveitin Milljónamæringarnir lék fyrir dansi.
Fleira hefur verið að gerast í félagslífi nemenda því fyrsta samkoma jafningjafræðslunnar á þessu skólaári var haldin 20.02.2002 klukkan 20.02. Það var spilakvöld. Aðalforsprakkar jafningafræðslunnar meðal nemenda eru þau Sigríður Hrund og Þorkell Steindal. Stjórnendur skólans færa þeim sínar bestu þakkir fyrir það ágæta framtak að endurvekja jafningjafræðsluna hér í bæ.25. febrúar 2002: Stóriðjubraut
Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur nú fengið heimild frá menntamálaráðuneytinu til að stofna og reka stóriðjubraut í samvinnu við Norðurál og íslenska Járnblendifélagið. Ráðgert er að fyrstu nemendurnir hefji nám á brautinni á haustönn 2002. Hún verður 2 ár (4 annir) og fyrsta árið (fyrstu 2 annirnar) verða eins og í bíl- og málmiðnagreinum.18. febrúar 2002: Gjöf til minningar um Karl Kristin Kristjánsson
Karl Kristinn Kristjánsson fæddist 17. febrúar árið 1979. Hann hóf nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 1995 og lauk stúdentsprófi af hagfræðibraut. Karl lést af slysförum þann 10. apríl árið 2000. Í gær, á afmælisdegi Karls, færðu foreldrar hans, þau Sigrún Halla Karlsdóttir og Kristján Sveinsson, skólanum milljón krónur að gjöf til minningar um son sinn.
Gjöfinni fylgja þau skilyrði að féð skuli geymt á bestu vöxtum, höfuðstól og verðbætur megi ekki skerða í 25 ár en fyrir andvirði vaxta af fjárhæðinni skulu skólastjórnendur í samráði við skólaráð ár hvert, við skólaslit að vori, veita þeim nemanda viðurkenningu sem skarað hefur fram úr í félagslífi nemenda eða veita fjárhæðinni til verkefnis innan skólans sem kemur félagslífi nemenda til góða. Gefendum skal árlega gerð grein fyrir ákvörðun skólastjórnenda. Við úthlutun styrks eða viðurkenningar skal koma fram í bréfi skólastjórnenda eða með áletrun á þann grip sem afhentur er, að úthlutunin sé til minningar um Karl Kristin Kristjánsson, sem var nemandi við skólann á árunum 1995 - 1999.
Stjórnendur Fjölbrautaskóla Vesturlands færa Sigrúnu Höllu Karlsdóttur og Kristjáni Sveinssyni hugheilar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf og þann sóma sem þau sýna skólanum með því að fela honum að minnast þess góða drengs sem Karl heitinn var.8. febrúar: Afmæli skólans
Í gær fimmtudaginn 7. febrúar var samkoma á sal skólans vegna þess að daginn áður voru 15 ár liðin síðan sveitarfélög á Vesturlandi og menntamálaráðnuneytið gerðu samning um rekstur skólans og nafni hans var breytt úr Fjölbrautaskólinn á Akranesi í Fjölbrautaskóli Vesturlands.
Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur og fyrrverandi kennari við skólann, las úr nýútkominni bók sinni Ýmislegt um risafurur og tímann. Yuri Fodorow harmonikuleikari og Jón Páll Stefánsson gítarleikari léku nokkur lög.
Á þessu ári á skólinn raunar tvöfalt afmæli því í haust verða liðin 25 ár frá stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi sem breyttist í Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 6. febrúar 1987.18. janúar: Breytingar á stjórn nemendafélagsins
Á fundi sem haldinn var í gær á sal skólans var kjörinn nýr stjórnarmaður í nemendafélagið í staðinn fyrir Heiðar Mar Björnsson sem er hættur námi við skólann. Nýi stjórnarmaðurinn er Erla Björk Gísladóttir. Fyrir í stjórninni voru Sigurður Ingvar Þorvaldsson og Ragnar Baldvin Sæmundsson.17. janúar: Fundur í skólaráði
Skólaráð hélt fyrsta fund sinn á önninni í dag 17. janúar. Fyrir fundinum lá eftirfarandi tillaga frá nemendafélaginu, um dagskrá félagslífs og skemmtanir á önninni. Tillagan var samþykkt með þeim fyrirvara að athugað skyldi hvort ekki væri betra að hafa árshátíð á laugardegi. Einnig var gerð sú athugasemd að ráðið hefði ekki vald til að samþykkja eða hafna tillögu um dansleik á Breiðinni 18. janúar.
Tillaga nemendafélags um dagskrá vorannar 2002:
17.01. : Málfundur klukkan 9:40.
18.01. : Dansleikur á Breiðinni.
31.01. : Kaffihúsakvöld kl. 20 - 22:30.
05.02. : Málfundur í 2. tíma.
15.02. : Árshátið.
28.02. : Kaffihúsakvöld kl. 20 - 22:30.
06.03. : Málfundur í 3. tíma.
15.03. : Dansleikur í skólanum.
08.04. : Málfundur í 3. tíma.
11.04. : Kaffihúsakvöld kl. 20 - 22:30.
19.04. : Dansleikur í skólanum.
14. janúar: Fundur um nám fyrir umsjónarmenn grasvalla
Fimmtudaginn 10. janúar var haldinn fundur í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem rætt var um möguleika á samstarfi milli Fjölbrautaskóla Vesturlands og Garðyrkjuskóla ríkisins og hvernig þessir tveir skólar geta sameinast um að bjóða upp á nám í umhirðu grasvalla, einkum golf- og knattspyrnuvalla.
Fundinn sátu:
- Atli Harðarson aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands;
- Brynjar Sæmundsson stjórnarmaður í Samtökum íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi (skst. SÍGÍS).
- Sveinn Aðalsteinsson skólameistari Garðyrkjuskóla Ríkisins;
- Hannes Þorsteinnson kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands og formaður Golfklúbbsins Leynis á Akranesi;
- Hörður Ó. Helgason skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands;
- Inga Sigurðardóttir forstöðum. Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands;
- Magnús Hlynur Hreiðarsson endurmenntunarstjóri Garðyrkjuskóla Ríkisins;
- Ólafur Melsted aðstoðarskólameistari Garðyrkjuskóla Ríkisins;
Fyrir fundinum lá lýsing á grasvallarbraut sem Hannes hafði unnið fyrir Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þar er gert ráð fyrir að sérgreinar brautar séu alls 49 einingar og almennt nám (íslenska, íþróttir, raungreinar, stærðfræði, tungumál, tölvunotkun) sé um 30 einingar. Hannes gerði grein fyrir því að Elmwood College í Cupar í Skotlandi tæki nemendur sem lokið hefðu þessari braut beint inn á annað ár.
Fundarmenn voru sammála um að fólk úr eftirtöldum hópum væri líklegt til að sækjast eftir námi í umhirðu og umsjón grasvalla.
- Skrúðgarðyrkjumenn sem vilja viðbótamenntun í skipulagi, gerð og umhirðu íþróttavalla s.s. knattspyrnu og golfvalla.
- Starfandi umsjónarmenn golfvalla sem hafa lokið ársnámi eða meira frá Elmwood College í Cupar í Skotlandi.
- Starfsmenn íþróttafélaga og sveitarfélaga sem annast umsjón og umhirðu íþróttavalla þótt þeir hafi ekki fagmenntun á því sviði.
- Unglingar sem ekki eru komnir út á vinnumarkað.
- Fullorðið fólk sem hefur hug á að hefja störf á þessu sviði, er t.d. að hugsa um að skipta um starf eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði.
Stefnt er að því að fyrstu námskeið fari af stað á haustönn 2002 og að nemendur geti stundað námið samhliða fullri vinnu.14. janúar 2002: Breytingar á starfsliði
Við upphaf vorannar 2002 urðu eftirtaldar braytingar á starfsliði Fjölbrautaskóla Vesturlands. Birna Gunnlaugsdóttir félagsfræðikennari lét af störfum við skólann. Í hennar stað var Magnús Einarsson ráðinn. Anna Lára Steindal, sem leysti Birnu af á seinni hluta haustannar, er nú stundakennari í siðfræði. Roberta Ostroff sem kenndi ensku á haustönn kennir ekki við skólann á vorönn. Arnfríður Árnadóttir og Inga Helgadóttir, sem starfað hafa við ræstingu, hættu um áramót vegna aldurs. Í þeirra stað hafa verið ráðnar Erla Óskarsdóttir og Kolbrún Leifsdóttir.21. desember 2001: Góð skólasókn skilar árangri
Nú liggja fyrir tölur um námsárangur nemenda við Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 2001. Eins og jafnan áður er sterk fylgni milli skólasóknar og námsárangurs. Þeir sem fengu 10 í skólasókn náðu að jafnaði tæplega 18 einingum og féllu í rúmum 5% af þeim einingum sem þeir reyndu við á önninni. Þeir sem féllu í skólasókn (með einkunnina 4) náðu að jafnaði um 4 einingum og féllu í 75% af þeim einingum sem þeir reyndu við. Smelltu hér til að sjá nánari greinargerð.21. desember: Nemendur og kennarar í jólaleyfi - stjórnendur og skrifstofufólk undirbúa vorönn
Það er kyrrlátt í skólanum núna þegar nemendur og kennarar eru í jólaleyfi. Stjórnendur og skrifstofufólk nota tímann til að búa til stundatöflur og sinna öðrum undirbúningi fyrir næstu önn. Búið er að slá val nemenda inn í tölvukerfi skólans og vinna við að raða saman stundatöflum kennara er komin vel á veg. Bókalisti fyrir vorönn er á heimasíðu skólans (undir valmyndinni "Í dagsins önn").20. desember: Brautskráning
Í dag, 20. desember, voru 25 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Af þessum 25 nemendum höfðu: 19 lokið stúdentsprófi; 3 lokið burtfararprófi í húsasmíði; 1 lokið burtfararprófi í málaraiðn; 1 lokið burtfararprófi í vélsmíði; 1 lokið verslunarprófi af viðskiptabraut.
Athöfnin fór fram á sal skólans og hófst klukkan 14. Fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoðarskólameistari annál haustannar 2001.
Nokkrir nemendur komu fram. Rut Berg Guðmundsdóttir lék ungverska dansinn Czardas á harmóníku. Fríða Bjarnadóttir og Sindri Birgisson lásu ljóð eftir Vestlendingana Stein Steinarr, Snorra Hjartarson og Þorstein frá Hamri. Dóra Erna Ármannsdóttir nýstúdent og kennari hennar, Jónína Erna Arnardóttir, léku fjórhent á píanó norskan dans eftir Grieg. Anna Lára Ármannsdóttir nýstúdent flutti ávarp. Hörður Ó. Helgason afhenti útskriftarnemum prófskírteini sín og ávarpaði þá. Í ávarpi sínu hvatti hann nemendur til að halda áfram að afla sér menntunar og leitast við að láta gott af sér leiða.
Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Kvæðið af stallinum Kristí eftir séra Einar Sigurðsson við lag Sigvalda Kaldalóns. Kristján Elís Jónasson var forsöngvari.
Nokkrum útskriftarnemum voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur: Daníel Sigurðsson og Eydís Rut Gunnarsdóttir fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í samfélagsgreinum; Haraldur Garðarsson í dönsku; Ingibjörg Björnsdóttir í ensku og þýsku; Súsanna Pétursdóttir í ensku og raungreinum. Súsanna fékk einnig viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur á stúdentsprófi á haustönn 2001.20. desember: Lok haustannar - upphaf vorannar
Síðustu próf á haustönn voru haldin mánudaginn 17. desember. Einkunnir voru afhentar daginn eftir og nemendur brautskráðir frá skólanum þann 20. desember.
Vorönn 2002 hefst formlega með starfsmannafundi 4. janúar klukkan 10. Stundatöflur verða afhentar 7. janúar, klukkan 13 til 17. Nýnemar (sem eru að byrja í skólanum nú um áramótin) eiga að mæta klukkan 13. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 8. janúar klukkan 8. 30. nóvember: Skemmtun útskriftarnema
Í dag 30. nóvember er síðasti kennsludagur. Af því tilefni héldu útskriftarnemar skemmtun fyrir sjálfa sig, skólafélaga sína og kennara. Dagurinn hófst á því að þeir ræstu kennara og buðu þeim í morgunverð í mötuneyti skólans klukkan 7:15. Er kennsla hófst fóru þeir um skólann með sprelli og voru klæddir í nunnubúninga. Þótti sá búningur fara þeim vel. Klukkan 11:30 héldu þeir skemmtun á sal skólans. Þar hermdu þeir eftir kennurum sínum og skólafélögum. Allt fór þetta vel fram eins og vænta mátti.30. nóvember: Samið við verktaka um seinni áfanga í byggingu bókasafns
Nokkuð er síðan fyrri áfanga bókasafnsbyggingar var skilað. (Fyrir þá sem ekki vita má nefna að það er verið að byggja nýtt bókasafn við skólann og það tengist eldri byggingum þar sem áður var stofa TV, gegnt núverandi bókasafni.) Eftir á að ganga frá lögnum, ljúka pússningu, mála og leggja dúka á gólf, smíða loft og hurðir. Þegar tilboð í þessa verkþætti voru opnuð lá fyrir að lægsta tilboð í tréverk var frá Sigurjóni Hannessyni og Trésmiðjunni Bakka. Lægsta tilboð í raf- og tölvulagnir átti Raftækjavinnustofa Ármanns og hagstæðasta tilboð í dúklagnir og málningu átti Híbýlamálun Garðars Jónssonar. Í dag var skrifað undir samninga við þessa aðila. Munu þeir væntanlega hefjast handa þegar í byrjun desember.27. nóvember: Foreldrafélagið heldur fræðslufund um vímuefnavanda og forvarnir
Í gærkvöldi, 26. nóv., hélt Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands opinn fund um vímuefnavanda og forvarnir. Steinunn Eva Þórðardóttir forvarnafulltrú skólans flutti erindi um starf sitt og forvarnir í skólanum. Jónas H. Ottósson frá lögreglunni fjallaði um notkun ólöglegra fíkniefna á Akranesi. Á eftir erindum þeirra Steinunnar og Jónasar voru almennar umræður.23. nóvember: Námsmaraþon útskriftarnema
Námsmaraþon útskriftarnema á haustönn 2001 var sett miðvikudaginn 14. nóvember klukkan 10. Það stóð í 3 sólarhringa og á þeim tíma grúfði hver nemi sig ofan bækurnar í 55 klukkustundir. Allur hópurinn nam sleitulaust til klukkan 18 á daginn. Um kvöld og nætur voru vaktaskipti svo þessa þrjá sólarhringa var numið af kappi hverja stund. Nemendur gerðu þetta bæði til að búa sig undir próf og til að safna í ferðasjóð enda urðu fjölmargir til að styrkja þetta uppátæki.23. nóvember: Útvarp blómið
Eins og undanfarin ár reka nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands útvarpsstöð. Hún er til húsa í skólanum og sendir út frá klukkan 17 til 23 á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum á FM 95.0. Útsendingin næst á Akranesi og eitthvað út fyrir bæinn. Útvarpsstjórar eru þeir Þorvaldur Sveinsson og Grétar Njáll Jónsson. Á annan tug nemenda við skólann eru dagskrárgerðarmenn og stjórnendur þátta. Yfirleitt eru þættir 2 klukkutímar (frá 17-19, 19-21 og 21-23) og mestur hluti efnis er tónlist um umfjöllun um hana. Fréttamaður skólavefjar hvetur Akurnesinga til að stilla á FM 95.0 og heyra hvað sent er úr hljóðveri skólans.16. nóvember: Dagur íslenskrar tungu
Í dag, 16. nóvember, gerðu nemendur og kennarar Fjölbrautaskóla Vesturlands sér dagamun í tilefni af afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar sem einnig er dagur íslenskrar tungu. Í annarri kennslustund var samkoma á sal skólans. Jón Árni Friðjónsson íslenskukennari sagði frá Jónasi og afrekum hans á sviði skáldskapar, náttúruvísinda og nýyrðasmíða. Fjórir nemendur stigu í pontu:
- Haraldur Garðarsson las brot úr frumsaminni sögu;
- Sindri Birgisson kynnti skáldskap Védísar Leifsdóttur;
- Guðmundína Arndís Haraldsdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir lásu ljóð eftir Jónas.
Á undan upplestri Guðmundínu og Sigríðar fjallaði Steingrímur Bragason íslenskukennari um ljóðin sem lesin voru.
Undirbúning og skipulag unnu íslenskukennararnir Bjarnveig Ingvarsdóttir, Harpa Hreinsdóttir, Jón Árni Friðjónsson og Steingrímur Bragason.16. nóvember: Stofnun stóriðjubrautar undirbúin
Undanfarin misseri hafa staðið viðræður milli Fjölbrautaskóla Vesturlands, Íslenska Járnblendifélagsins og Norðuráls um menntun fyrir starfsfólk í stóriðjuverum. Þessar umræður eru nú komnar á það stig að fyrir liggja fullbúnar tillögur um tveggja ára stóriðjubraut við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Í gær, 15. nóvember, gengu stjórnendur fjölbrautaskólans á fund í menntamálaráðuneytinu og kynntu þessar hugmyndir fyrir embættismönnum ráðuneytisins. Á þeim fundi var ákveðið að skólinn sæki formlega um heimild til að starfrækja stóriðjubraut frá og með haustönn 2002.
Gert er ráð fyrir að um helmingur náms á stóriðjubraut (eða um eitt námsár) verði sameiginlegur með fyrstu námsárum í málmiðnaði og bílgreinum og drjúgur hluti af hinum helmingnum verði skipulagður í náinni samvinnu við Norðurál og Íslenska Járnblendifélagið.13. nóvember: Tilkynning um umsóknarfrest vegna skólavistar á vorönn 2002
Umsóknarfrestur um nám á vorönn 2002 er til 30. nóvember. (Dagsetningin 25. nóvember sem er gefin upp á umsóknareyðublaði er röng.) Umsóknareyðublað er hægt að fá á skrifstofu skólans eða með því að smella hér.
Innritunargjald í dagskóla og utanskólanám er 4.250 krónur. Nemendafélagsgjald er 3.000 kr. á önn. (Þessar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um að tillaga fjármálaráðherra um innritunargjald, sem liggur fyrir Alþingi, verði samþykkt.)
Allar upplýsingar um nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru veittar í síma 431-2544.9. nóvember: Málþing um hlutverk menntunar í búsetuskilyrðum á landsbyggðinni
Í dag, 9. nóvember, var haldið málþing í tengslum við aðalfund Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi. Umræðuefnið var hlutverk menntunar í búsetuskilyrðum á landsbyggðinni. Þarna var saman kominn fjöldi fólks úr sveitarstjórnum, atvinnulífi og menntastofnunum fjórðungsins auk gesta úr öðrum landshlutum.
Þingið hófst á ávarpi menntamálaráðherra sem nefndi meðal annars áform um að stofna framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi. Einnig lýsti ráðherra yfir að reiknilíkan það sem notað hefur verið til að skipta fé milli framhaldsskóla skammtaði framlög til iðnnáms of naumt.
Sigríður Finsen, oddviti sveitarstjórnar í Grundarfirði, flutti erindi þar sem hún gerði grein fyrir hugmyndum manna á Snæfellsnesi um stofnun sjálfstæðs framhaldsskóla sem byði upp á fjögurra ára nám. Fram kom í máli hennar að þessar hugmyndir eru hvergi nærri fullmótaðar, t.d. hefur hvorki verið ákveðið hvaða námsbrautir verður boðið upp á né hvenær skólinn verður stofnaður. Verði af stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi mun það væntanlega hafa nokkur áhrif á starf Fjölbrautaskóla Vesturlands því þá verður varla þörf fyrir framhaldsdeildirnar sem reknar hafa verið í Stykkishólmi og Ólafsvík.
Margt fleira kom fram á þinginu sem varðar Fjölbrautaskóla Vesturlands. Til dæmis talaði Magnús B. Jónsson rektor á Hvanneyri um möguleika á að kennarar við Fjölbrautaskólann taki þátt í rannsóknarvinnu sem fram fer á vegum Landbúnaðarháskólans. Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Norðuráls, fór nokkrum orðum um viðræður sem farið hafa fram milli Fjölbrautaskólans og stóriðjuveranna á Grundartanga um stofnun stóriðjubrautar við skólann. Hörður Helgason skólameistari flutti erindi um hlutverk fjölbrautaskólans, þau sóknarfæri sem skólinn hefur um þessar mundir og vandamál sem hann stendur frammi fyrir. Einnig flutti Þórunn Kjartansdóttir, nemandi við skólann, athyglisverða hugvekju um hvernig það er fyrir ungling af Snæfellsnesi að fara að heiman 16 ára að aldri og setjast í skóla hér á Akranesi.7. nóvember: Fjölbrautaskólinn fær styrki frá Leonardo
Í nýlegri úthlutun vegna Leonardó starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins fékk Fjölbrautaskóli Vesturlands styrki til nemendaheimsókna og kennaraheimsókna. Um er að ræða:
5. nóvember: Nýtt gæðamatskerfi
tekið í notkun
Snemma á þessu ári tók
til starfa nefnd við Fjölbrautaskóla Vesturlands sem hafði
það hlutverk að móta aðferðir við gæðamat.
Í nefndinni sátu Atli Harðarson, Birna Gunnlaugsdóttir,
Finnbogi Rögnvaldsson og Hörður Helgason. Nefndin skilaði
áliti í apríl þar sem fram komu ítarlegar
tillögur um skipulegt mat á störfum kennara. Þegar
skóli hófst nú í haust voru tillögurnar
kynntar innan húss og ræddar á fundum kennara og deildarstjóra.
Er óhætt að segja að þær hafi mælst
vel fyrir.
Þessar tillögur gera
ráð fyrir að hver kennari gangist undir mat á tveggja
ára fresti og þá sé safnað gögnum með
viðtölum, úrvinnslu tölfræðilegra upplýsinga
og spurningalistum sem lagðir eru fyrir fyrrverandi og núverandi
nemendur sem notið hafa handleiðslu hjá viðkomandi. Kennari
sem gengst undir mat skilar einnig skýrslu um 12 mismunandi atriði
sem varða gæði þeirra starfa sem hann innir af hendi.
Þessi atriði snúast meðal annars um samskipti við
nemendur og vinnufélaga, námsmat, þróunarstarf,
skipulag og verkstjórn.
Tilgangur gæðamatsins
er einkum að:
Í síðustu viku voru valdir 4 kennarar til að prufukeyra kerfið og gert er ráð fyrir að mat á störfum þeirra verði unnið nú í nóvember. Frá og með næstu áramótum er svo gert ráð fyrir að um það bil fjórðungur kennaraliðsins gangist undir mat á hverri önn.
4. nóvember: Skammhlaup, tónlistarkeppni
og ball
Það var mikið um að vera í
félags- og skemmtanalífi nemenda nú á föstudaginn.
Dagurinn hófst með skammhlaupi. En undanfarin ár
hefur verið vikið frá stundatöflu í einn dag
og í stað venjulegrar kennslu haldin keppni í fjölmörgum
íþróttum, listum og vísindum. Fylgja þessu
stuð og spenna og því er keppnin kölluð skammhlaup.
Nemendur skólans skiptust í 8 lið sem hvert sendi menn
til keppni í pokahlaupi, stafsetningu, dansi, hugarreikningi, söng
og teikningu svo örfáar greinar séu nefndar. Skammhlaupið
var skipulagt og því stjórnað af kennurunum: Eddu
Einarsdóttur, Finnboga Rögnvaldssyni, Mörtu Dögg Pálmadóttur
og Steini Mar Helgasyni. Felstir kennarar skólans bjuggu til verkefni
og sáu um dómgæslu og stigatalningu.
Seinna um daginn, klukkan 17, hófst
árleg hljómsveitakeppni í Bíóhöllinni.
Það er nemendafélag skólans sem stendur að þessari
keppni og eins og undanfarin ár komu margar efnilegar hljómsveitir
fram. Á undan sjálfri keppninni lék Hemra eitt
lag en sú hljómsveit bar sigur úr býtum í
fyrra. Kynnir var Óli Páll rokklendingur og fyrrum nemandi
skólans. Eitt sinn var hann sigurvegari í þessari sömu
keppni og áheyrendur fengu að kynnast hæfileikum hans ofurlítið
því hann hafði með sér kassagítar og
tók lagið auk þess sem hann kynnti þær 8 hljómveitir
sem kepptu að þessu sinni.
Hljómsveitin sem best stóð
sig að mati dómnefndar er Raw material sem skipuð
er þeim Guðjóni Þór Grétarssyni á
trommur, gítarleikurunum Reyni Þór Sigmundssyni og Guðlaugi
Kristinssyni, Sigurði Ingvari Þorvaldssyni bassaleikara og söngvaranum
Grétari Jónssyni. Raw material flutti 3 frumsamin lög:
Omega, Þú ert ágætur, og Finest
herbs.
Um kvöldið hélt
nemendafélagið dansleik á sal skólans. Þar
mættu vel yfir 500 manns og skemmtu sér við undileik hljómsveitarinnar
Land og synir. Ballið stóð til klukkan 3 og þótti
fara vel fram.
29. október: Tveir nemendur FVA ná
góðum árangri í stærðfræðikeppni
framhaldsskólanna
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
var haldin þann 16. október síðastliðinn. Þessi
keppni er árviss og að henni standa Íslenska stærðfræðafélagið
og Félag raungreinakennara. Keppt er í tveim flokkum: Yngra
stigi fyrir þá sem hafa verið skemur en tvö ár
í framhaldsskóla og eldra stigi fyrir þá sem
eiga tveggja ára framhaldsskólanám, eða langra,
að baki. Að þessu sinni voru tveir nemendur hér við
skólann í hópi 20 efstu í sínum flokki.
Harald Björnsson var í hópi með 20 efstu á
yngra stigi og Fríða Bjarnadóttir var ein af 20 efstu
á eldra stigi. Við óskum Fríðu og Harald til
hamingju með þennan árangur.
29. október: Netþing barna
Um þessar mundir taka 4 nemendur við skólann
þátt í netþingi sem haldið er af umboðsmanni
barna. Þeir eru: Haukur Ármannsson; Karl Sigtryggsson; Máni
Atlason; Ólafur N. Sigurðsson.
Fyrsti þingfundur var haldinn
á netinu þann 8. október. Síðan hefur verið
fundað í hverri viku og þinginu lýkur með samkomu
þann 5. nóvember. Þá munu þingmenn af öllu
landinu hittast augliti til auglitis en hingað til hafa þeir aðeins
komið saman á netinu.
25. október: Dagsverk í þágu
indverskra jafnaldra
Heldur fámennt var í mörgum kennslustundum
í gær því fjöldi nemenda við skólann
hélt út á vinnumarkaðinn og lagði af mörkum
eitt dagsverk í þágu indverksra jafnaldra sinna. Öll
laun sem nemendur unnu sér inn þennan dag renna í stuðning
við skólahald fyrir unglinga sem tilheyra lægri stéttum
samfélagsins á Indlandi.
25. október: Fundur með stjórn
nýstofnaðs foreldrafélags
Í gær, 24. október, hitti stjórn
Foreldrafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands skólastjórnendur,
námsráðgjafa, forvarnafulltrúa og félagsmálastjóra
á fundi í skólanum. Rætt var um tengsl foreldra
við skólann og hvernig þau yrðu best efld og aukin.
Ýmsar hugmyndir komu fram, m.a. um fræðslufundi fyrir foreldra,
opinn dag í skólanum og möguleika á að að
foreldrafélagið hefði áheyrnarfulltrúa á
fundum í skólanum (t.d. í skólaráði)
þar sem fjallað er um þau mál sem mikilvægast
er fyrir foreldra og forráðamenn nemenda að fylgjast með.
11. október: Samningur milli kennara og
Fjölbrautaskóla Vesturlands undirritaður
Í dag var undirritaður samningur milli
stéttarfélags kennara og skólans. Fulltrúar
kennara, þau Þorbjörg Ragnarsdóttir og Finnbogi
Rögnvaldsson höfðu áður setið á fundum
með Herði Helgasyni skólameistara og Atla Harðarsyni
aðstoðarskólameistara. Þessi fjögurra manna hópur
myndar svokallaða samstarfsnefnd. Hlutverk þeirrar nefndar
er að fjalla um kjör félagsmanna í Félagi
framhaldsskólakennara sem starfa við Fjölbrautskóla
Vesturlands. Texti samningsins var unnin á fundum nefndarinnar í
september. Samningurinn fjallar um ýmis störf sem kennurum eru
falin til viðbótar við kennslu.
5. október: Leikhúsferð
Fimmtudagskvöldið 4. október fóru
103 nemendur úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi að sjá leikritið Kristnihald undir Jökli
í Borgarleikhúsinu. Þangað komu einnig
22 nemendur úr framhaldsdeildinni í Stykkishólmi.
Þessum stóra hópi fylgdu alls 6 kennarar. Að
lokinni leiksýningu gafst nemendum kostur á viðræðum
við helstu aðstandendur sýningarinnar. Þeir nýttu
tækifærið vel og spurðu leikarana í þaula
um allt milli himins og jarðar, frá því hvaða
hljóðkerfi væri notað við sýninguna til
þess hvort ekki væri erfitt að standa undir væntingum
áhorfenda þegar leikgerðin væri unnin upp úr
svo víðfrægri skáldsögu.
3. október: Vefur um Kristnihald undir
Jökli
Nýlega var opnaður vefur um skáldsögu
Halldórs Laxness Kristnihald undir Jökli. Harpa Hreinsdóttir
íslenskukennari við skólann sá um útlit,
hönnun, verkstjórn og vefsíðugerð. Efnið
sem birt er á vefnum er unnið af nemendum í ÍSL103
og ÍSL203 við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nemendur
í þessum áföngum lásu Kristnihaldið
í upphafi haustannar og fara að sjá leikgerð sögunnar
í Borgarleikhúsinu nú á morgunn (fimmtudaginn
4. október).
Alls tóku um 70 nemendur
á Akranesi og 7 í framhaldsdeildinni Stykkishólmi þátt
í að vinna efni á vefinn.
Slóðin er: http://www.fva.is/harpa/kristnihald/
26. september: Foreldrafélag Fjölbrautaskóla
Vesturlands stofnað
Í gærkvöldi, þriðjudaginn
25. september, var stofnað foreldrafélag
við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Stofnfundurinn var
á sal skólans og hófst klukkan 20 á ávarpi
Harðar Ó. Helgasonar skólameistara. Því næst
sté Katrín Leifsdóttir í pontu og ræddi
um hlutverk foreldrafélaga. Á eftir ávarpi Katrínar
var tillaga að lögum fyrir félagið lesin upp og og samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum. Því næst
var kosin stjórn og tveir endurskoðendur. Í stjórn
voru kosin:
Sigurður Guðni Sigurðsson, formaður
Sóley Sigurþórsdóttir
Sigurveig Stefánsdóttir.
Sigurður og Sigurveig eru Akurnesingar en Sóley
er úr Borgarbyggð. Endurskoðendur voru kjörnir: Hallveig
Skúladóttir og Björn Gunnarsson.
Að loknum stofnfundi fengu
fundargestir sér kaffisopa. Foreldrum nýnema gafst þá
kostur á að hitta umsjónarkennara barna sinna. Einnig
voru skólastjórnendur, námsráðgjafi og vímuvarnafulltrúi
til viðtals við foreldra og forráðamenn.
14. september: Tréiðnadeild fær
gjafir frá Merkúr hf.
Merkúr hf. er fyrirtæki í Reykjavík
sem hefur m.a. söluumboð fyrir PERI GmbH í Þýskalandi,
en það fyrirtæki framleiðir steypumót og vinnupalla.
Þriðjudaginn 11. september komu menn frá Merkúr
í heimsókn í Fjölbrautaskóla Vesturlands
og færðu tréiðnadeild skólans steypumót
að gjöf ásamt nýjustu útgáfu af ELPOS
hugbúnaðinum frá PERI. Sá hugbúnaður
er til að skipuleggja mótauppslátt, reikna út efnisþörf
og fleira. Þetta eru verðmætar gjafir sem væntanlega
munu koma að góðum notum.
10. september: Fundur í skólaráði
Fyrsti fundur skólaráðs Fjölbrautaskóla
Vesturlands var haldinn mánudaginn 10. september. Á fundinn
mættu:
Hörður Helgason skólameistari
Atli Harðarson aðstoðarskólameistari
Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir fulltrúi kennara
Jón Gunnar Axelsson fulltrúi kennara
Freyr Theódórsson fulltrúi nemenda
Ásgeir Helgi Gylfason fulltrúi nemenda.
Eitt mál lá fyrir fundinum sem var tillaga
stjórnar NFFA um dagskrá félagslífs nemenda
á haustönn 2001. Eftirfarandi dagskrárliðir voru
samþykktir af skólaráði:
06.09. Kaffihúsakvöld
12.09. Málfundur
21.09. Ball
04.10. Kaffihúsakvöld
12.10. Ball
25.10. Málfundur
01.11. Kaffihúnsakvöld
02.11. Tónlistarkeppni
20.11. Málfundur
29.11. Kaffihúsakvöld
30.11. Ball
Ákveðið var að ráðið haldi fundi einu sinni í mánuði á skólaárinu.
24. ágúst: Kennsla hafin á
haustönn 2001
Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur
klukkan 10 þann 23. ágúst. Eftir hádegi þann
sama dag hófst regluleg kennsla samkvæmt stundaskrá.
Nemendur í skólanum á Akranesi eru rúmlega 600
og í framhaldsdeildunum á Snæfellsnesi eru þeir
nálægt 40 talsins.
Busavígsla fór fram
eftir hádegi í dag, föstudag, og í kvöld
heldur nemendafélagið dansleik á sal skólans.
20. ágúst: Breytingar á starfsliði
Ásdís Kristinsdóttir, Hannes
Þorsteinnson og Ólafur Haraldsson verða í leyfi
frá skólanum skólárið 2001-2.
Sex nýir kennarar koma til starfa nú
í upphafi skólaársins 2001 - 2002. Þeir eru:
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir forstöðumaður
bókasafns fór í leyfi nú í lok sumars
og Erls S. Olgeirsdóttir hefur verið ráðin bókavörður
frá og með 20. ágúst.
Þrír starfsmenn hafa
verið ráðnir við mötuneyti skólans. Þeir
eru: Hrönn Ásgeirsdóttir, Fjóla Bjarnadóttir
og Kolbrún Diego.
7. ágúst: Atli Harðarson ráðinn
aðstoðarskólameistari
Atli Harðarson hefur verið ráðinn
í stöðu aðstoðarskólameistara við FVA
frá 1. ágúst. Hann hefur kennt við skólann
frá haustinu 1986 (með tveggja ára hléi frá
1996 til 1998).
25. júní: Hörður Ó.
Helgason skipaður skólameistari við Fjölbrautaskóla
Vesturlands
Þann 22. júní skipaði Björn
Bjarnason, menntamálaráðherra, Hörð Ó.
Helgason, aðstoðarskólameistara í embætti skólameistara
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi til fimm ára
frá 15. júní 2001 að telja. Tvær umsóknir
bárust um embættið sem sendar voru skólanefnd skólans
til umsagnar og tillögugerðar skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla
nr. 80/1996. Skólanefndin mælti í umsögn sinni
til menntamálaráðherra einróma með því
að Herði Ó. Helgasyni yrði veitt embættið.
25. júní: Nemendum býðst
að leigja fartölvur
Þann 18. júní síðastliðinn
var öllum nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands sent bréf
þar sem þeim er boðið að leigja fartölvu. Í
bréfinu segir m.a.
Menntamálaráðuneytið
hefur kynnt verkefnaáætlun um rafræna menntun 2001-2003.
Þessi áætlun felur í sér að hlutur
upplýsingatækni og rafrænna samskipta í skólastarfi
mun aukast hröðum skrefum á næstu árum.
Fjölbrautaskóli
Vesturlands hefur um árabil verið í fremstu röð
meðal íslenskra framhaldsskóla í notkun upplýsingatækni.
Stefna ráðuneytisins gefur skólanum tilefni og tækifæri
til að sækja enn lengra fram á þessu sviði.
Á haustönn
2001 munu nokkrir áfangar við skólann verða kenndir
með nýju sniði þar sem verkefni verða í
stórauknum mæli unnin á tölvu og samskipti nemenda
sín á milli og við kennara verða að hluta til
um tölvunet. Þessi áfangar eru:
Bókfærsla 103, enska 303, íslenska 303 (hét áður íslenska 313), sálfræði 103, sálfræði 213, sjúkdómafræði 202.
Nemendur sem stunda nám í
þessum áföngum á haustönn 2001 þurfa
að hafa aðgang að tölvu og internetsambandi til að
vinna verkefni og heimavinnu. Þeir sem stunda nám í
þessum áföngum án þess að hafa eigin
tölvu til umráða þurfa að vinna stóran
hluta heima-vinnu sinnar í tölvustofum skólans. Þeir
geta því þurft að dvelja í skólanum
nokkra stund eftir lok kennslu á daginn.
Tölvu- og upplýsingatækni
er notuð í vaxandi mæli við kennslu ýmissa námsgreina
auk þeirra áfanga sem hér voru taldir.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
hefur gert samning við Nýherja hf. um að auðvelda nemendum
að leigja eða eignast fartölvu til nota í náminu.
Nemendum við skólann býðst að leigja fartölvu
á sérstökum kjörum þar sem þráðlaust
netsamband í skólanum og kaskótrygging og ábyrgð
á vélinni fylgja.
Nemendur sem hyggjast
nýta sér þetta tilboð þurfa að útfylla
pöntun á fartölvu sem fylgir þessu bréfi og
senda skólanum fyrir 10. júlí. Þeir þurfa
einnig að greiða fyrstu mánaðarleigu fyrirfram fyrir
10. júlí. ...
Í boði
eru tvenns konar vélar IBM Thinkpad 1300i og IBM Thinkpad 1200i.
Lýsing á þeim fylgir á sérstöku blaði.
Leiguverð á IBM Thinkpad
1300i er
9.829 kr. á mánuði
ef vélin er leigð í 24 mánuði.
7.247 kr. á mánuði
ef vélin er leigð í 36 mánuði.
Leiguverð á IBM Thinkpad
1200i er
7.934 kr. á mánuði
ef vélin er leigð í 24 mánuði.
5.892 kr. á mánuði
ef vélin er leigð í 36 mánuði.
Innifalið í leigunni er:
Vélarnar eins og þeim er lýst á meðfylgjandi blaði ásamt minnisstækkun (upp í 128 MB) og þráðlausu netkorti;
Framlengd ábyrgð (sem þýðir að vélarnar eru í ábyrgð allan leigutímann);
Kaskó-trygging með 10.000 kr. eigin ábyrgð, sem bætir tjón á vélunum vegna slysa eða óhappa.
Í lok leigutímans geta
nemendur valið milli þess að kaupa tölvuna fyrir lítið
verð (milli 12.000 og 22.000 kr., misjafnt eftir leigutíma og
gerð tölvu) eða skila henni.
Vélarnar eru
keyptar hjá IMB í Danmörku og það leiguverð
sem hér er gefið upp miðast við gengi á danskri
krónu í júní 2001. Ef gengi íslensku
krónunnar breytist miðað við þá dönsku
breytist leiguverðið til samræmis.
Vélarnar verða
afhentar í byrjun skólaárs, eftir að nemandi (eða
forráðamaður ef nemandi er yngri en 18 ára) hefur
undirritað leigusamning. ...
Nemendur eru ekki
á nokkurn hátt skyldugir til að eiga fartölvur og
á næsta skólaári verður, eins og fyrri ár,
hægt að stunda nám í öllum áföngum
við Fjölbrautaskóla Vesturlands án þess að
hafa eigin tölvu. Þetta tilboð er sent nemendum til þess
að gefa þeim kost á að leigja tölvu, ekki til
að skylda þá eða neyða til eins eða neins.
25. júní: Nýbygging og viðhald
á eldra húsnæði
Í sumar verður hafist handa við að
byggja yfir bókasafn Fjölbrautaskólans. Nýbyggingin
tengist eldri húsum þar sem nú er stofa TV og tengigangur
í sal. Í sumar verður einnig unnið að viðhaldi
og viðgerðum á byggingum skólans og útveggir
málaðir þar sem málning er farin að láta
á sjá.