Fréttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands
frá skólaárinu 2000-2001
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007
2. júní: Brautskráning og skólaslit
Í dag 2. júní var Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið og 57 nemendur brautskráðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Af þessum 57 nemendum luku 35 stúdentsprófi, 17 útskrifuðust af iðnbrautum skólans og 2 luku öðru námi. Auk þess kvöddu 3 skiptinemar skólann.
Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Birna Gunnlaugsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2001. Ólafur Ingi Guðmundsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útkskriftarnema. Pétur Ottesen, sem lauk námi frá skólanum fyrir 10 árum, tilkynnti um stofnun Nemendasambands Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nemendur sem útskrifuðust fyrir 20 árum færðu skólanum bókagjöf og eintök af 3 fyrstu árgöngum skólablaðsins.
Andrea Guðmundsdóttir nýstúdent söng við undirleik Flosa Einarssonar kennara. Fyrir athöfnina léku Oddný Björgvinsdóttir nemandi í Fjölbrautaskólanum og Kristín Sigurjónsdóttir nemandi í Heiðarskóla á harmóniku og fiðlu.
Tveir fyrrum starfsmenn skólans, Þórir Ólafsson og Inga Harðardóttir, voru kvaddir með formlegum hætti og þeim færðar gjafir frá skólanum. Þórir var skólameistari þar til í apríl er hann hóf störf við menntamálaráðuneytið. Inga kenndi íþróttir við skólann frá stofnun hans. Hún hefur verið í leyfi undanfarin ár en lætur nú formlega af störfum.
Margar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur voru veittar. Michal Tosik Warszawiak sem útskrifaðist af hagfræðibraut hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi. Michal fékk einnig verðlaun fyrir ágætan árangur í viðskiptagreinum. Aðrir sem hlutu viðurkenningu frá skólanum fyrir ágæta frammistöðu voru: Júlíus Sólberg Sigurðsson fyrir góðan árangur í fagbóklegum greinum í húsasmíði; Hrönn Ágústsdóttir í ensku; Bjarni Þór Hannesson í raungreinum; Bjarki Jóhannesson í sænsku. Bjarki hlaut einnig viðurkenningu úr sjóði Elínar Írisar Jónsdóttur fyrir íslenska ritgerð. Ólafur Ingi Guðmundsson fékk viðurkenningu fyrir skólasókn, en hann hefur mætt stundvíslega í hverja kennslustund frá því hann hóf nám við skólann haustið 1997.
Að þessu sinni hlaut Ásdís Halla Sigríðardóttir verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar á Sýruparti. Þau verðlaun eru veitt einum útskriftarnema í lok hvers skólaárs fyrir framúrskarandi árangur í námi. Ásdís lauk stúdentsprófi frá skólanum við lok haustannar.
Guðmundur Páll Jónsson forseti bæjarstjórnar á Akranesi afhenti námsstyrk Akraneskaupstaðar. Hann hlaut Bergrós Fríða Ólafsdóttir sem lauk stúdentsprófi frá skólanum við lok haustannar.
Hörður Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla, ræddi um gildi menntunar og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir kaffiveitingar í boði skólans.31. maí: Stofnfundur Nemendasambands Fjölbrautaskóla Vesturlands
Í Kvöld, 31. maí 2001, var stofnað Nemendasamband Fjölbrautaskóla Vesturlands. Stofnfundurinn var haldinn á sal skólans. Fundarmenn voru 30 talsins. Ólafur Ásgeirsson, fyrsti skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands flutti ávarp. Samþykkt voru lög fyrir félagið og kosin stjórn. Stjórnarmenn eru Eiríkur Jónsson, Jón Heiðar Allansson, Hrefna María Eiríksdóttir.31. maí: Einkunnir afhentar nemendur fara í sumarleyfi
Í dag 31. maí fengu nemendur Fjölbrautaskólans afhentar einkunnir og héldu í sumarleyfi. Útskriftarnemar fá skírteini sín við athöfn á sal skólans laugardaginn 2. júní.22. maí: Undirbúningur að stofnun nemendasambands
Fyrrverandi nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands ráðgera að stofna nemendasamband. Félagið mun beita sér fyrir því að fyrrum nemendur hittist og haldi sambandi við skólann. Það mun til dæmis kalla saman þá sem útkskrifðuðust fyrir 10 og 20 árum svo þeir geti gert sér dagamun og haldið upp á útskriftarafmælið.
Stofnfundur félagsins verður haldinn í húsakynnum skólans að Vogabraut 5 Akranesi fimmtudaginn 31. maí klukkan 20. Allir sem stundað hafa nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru hvattir til að mæta á fundinn og ganga í félagið.22. maí: Nýtt útlit heimasíðu
Heimasíða Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur fengið nýtt útlit sem er hannað af Íslenskri upplýsingatækni. Nú er hægt að nálgast flest efni sem finna má á vefjum skólans af valmyndum og krækjum á tiltilsíðunni (www.fva.is).2. maí, Svipmynd, ný kynningarsíða um FVA
Vakin er athygli á Svipmynd Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, á http://www.fva.is/svipmynd/. Þessi vefsíða sýnir svipmyndir úr skólastarfi og félagslífi nemenda skólaárið 2000 - 2001, í máli og myndum.Einnig er að finna myndbandsbúta af ýmsum viðburðum þessa skólaárs. Svipmyndin er íslenskuð útgáfa á svokölluðu "Schoolportrait" en FVA og MA vinna slíka svipmyndir af hálfu Íslands til þátttöku í eSchola-viðburði Evrópska skólanetsins og eru þar í hópi 20 evrópskra skóla. Schoolportrait FVA verður formlega opnað þriðjudaginn 8. maí, klukkan 14 - 15 að íslenskum tíma. Harpa Hreinsdóttir kennari við FVA vann þessa síðu. Nánari upplýsingar um eSchola má fá af http://eschola.eun.org og http://www.fva.is/harpa/enis/10. apríl, síðasti dagur Þóris í FVA á morgun
Þórir Ólafsson skólameistari lætur af störfum sem skólameistari FVA á morgun, 11. apríl. Þórir hefur störf á nýjum vettvangi eftir páska en þá tekur hann við starfi sérfræðings í framhaldsskóladeild menntamálaráðuneytisins. Þórir hefur átt langan og farsælan feril í FVA sem skólameistari, en þeirri stöðu hefur hann gengt í 16 ár. Áður hafði Þórir verið aðstoðarskólameistari, áfangastjóri, námsráðgjafi og kennari hér. Þórir hefur starfað við skólann frá upphafi. Starfsfólk og nemendur FVA mun sakna Þóris en óskar honum jafnframt alls hins besta á nýjum vettvangi. Staða skólameistara við FVA verður fljótlega auglýst laus til umsóknar og líklega ráðið í hana um miðjan júní n.k. Þar til ráðið hefur verið í stöðuna mun Hörður Helgason aðstoðarskólameistari gegna stöðu skólameistara og þau Birna Gunnlaugsdóttir og Atli Harðarson munu gegna stöðu aðstoðarskólameistara.3. apríl, Hafdís kjörin ungfrú Vesturland
Hafdís Bergsdóttir nemandi í FVA var kjörin ungfrú Vesturland í fegurðarsamkeppni Vesturlands sem haldin var um helgina. Þetta er þriðja árið í röð sem ungfrú Vesturland kemur úr röðum nemenda FVA. Áður höfðu Katrín Rós og Elín Málmfríður hlotið þennan titil. Þær voru síðan kjörnar fegurðardrottningar Íslands, hvor sitt árið. Við óskum Hafdísi til hamingju með kjörið og sendum henni bestu óskir um gott gengi í keppninni um titilinn ungfrú Ísland sem fram fer síðar í vor.2. apríl, Karen Líndal framhaldsskólameistari í hestaíþróttum
Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum var haldið s.l. laugardag. Einn nemandi úr FVA var þar á meðal keppenda, Karen Líndal Marteinsdóttir. Skemmst er frá því að segja að Karen Líndal stóð sig frábærlega vel á hesti sínum Manna. Hún keppti í 3 greinum, fékk 1. verðlaun í tölti og 1. verðlaun í fjórgangi. Þar með varð hún stigahæsti keppandinn í íslenskri tvíkeppni. Reiknuð voru út stig fyrir árangur í 3 greinum og var Karen Líndal stigahæsti knapinn og þar með Framhaldsskólameistari í hestaíþróttum árið 2001. Loks voru þau Karen og Manni kjörin glæsilegasta parið. Sannarlega frábær árangur þetta, til hamingju Karen Líndal og Manni.1. apríl, Frumsýning á "Gauragangi"
S.l. föstudagskvöld var frumsýnt hér í skólanum leikritið "Gauragangur" eftir Ólaf Hauk Símonarson. Það er leiklistarklúbbur NFFA sem stendur fyrir uppfærslunni. Leikstjóri er Ólafur Guðmundsson og tónlistarstjórn er í höndum Flosa Einarssonar. Húsfyllir var á frumsýningunni og skemmtu gestir sér mjög vel, enda stóðu leikarar sig með mikilli prýði. Það er ástæða til að óska leiklistarklúbbi NFFA til hamingju með skemmtilega sýningu sem án efa verður vel tekið af Akurnesingum og öðrum Vestlendingum. Næstu sýningar eru 2., 5., 6. og 9. apríl.ÚRSLIT Í STÆRÐFRÆÐIKEPPNI FYRIR UNGLINGADEILDIR GRUNNSKÓLA Á VESTURLANDI
Í dag, laugardag 17. mars árið 2001, voru afhent verðlaun og viðurkenningar fyrir góðan árgangur stærðfræðikeppni, sem haldin var við Fjölbrautaskólann á Akranesi, fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi. Keppnin fór fram þann 24. febrúar síðastliðinn.
Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og þar eru verkefnin búin til. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla á Reykjavíkursvæðinu, Suðurnesjum, Selfossi og á Akranesi. Þetta er í þriðja sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni.
Keppendur voru 101, 46 piltar og 55 stúlkur úr 9 grunnskólum í fjórðungnum.
Að þessu sinni var keppnin styrkt af eftirtöldum fyrirtækjum sem gáfu verðlaunafé og greiddu kostnað við prentun á keppnisgögnum: Íslenska Járnblendifélagið hf. Grundartanga, Loftorka hf. Borgarnesi, Penninn - Bókabúð Andrésar Akranesi, Vírnet - Garðastál hf. Borgarnesi
Fyrstu verðlaun í hverjum árgangi voru 15.000 kr., önnur verðlaun 10.000 kr. og þriðju verðlaun 5.000 kr.
Efstu menn voru:ÚR TÍUNDU BEKKJUM:
Máni Atlason, Grundaskóla, í 1. sæti með 68 stig.
Axel Björgvin Höskuldsson, Grunnskóla í Eyrarsveitar, í 2. sæti með 65 stig.
Jóhannes Guðbrandsson, Grunnskólanum í Borgarnesi, í 3. sæti með 62 stig.Aðrir nemenur úr tíundu bekkjum sem hlutu viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur eru, í stafrófsröð:
Birna Björnsdóttir, Grundaskóla, Björgvin Gauti Bæringsson, Grunnskólanum í Búðardal, Hildur Magnúsdóttir, Grundaskóla, Jónína Svavarsdóttir, Grunnskólanum í Staðarsveit, Karitas Jónsdóttir, Grundaskóla, Magnús Ægisson, Brekkubæjarskóla, Soffía Helgadóttir, Grunnskólanum Í BorgarnesiÚR NÍUNDU BEKKJUM:
Benedikt Magnússon, Brekkubæjarskóla, í 1. sæti með 67 stig.
Hans Pétursson, Brekkubæjarskóla, í 2. sæti með 65 stig.
Ólöf Erla Hauksdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi, í 3.-4. sæti með 56 stig.
Heiða Lind Heimisdóttir, Grunnskólanum í Stykkishólmi, í 3.-4. sæti með 56 stig.Aðrir nemendur úr níundu bekkjum sem hlutu viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur eru, í stafrófsröð:
Einar Ágúst Gylfason, Grunnskólanum Í Borgarnesi, Eiríkur Böðvar Rúnarsson, Brekkubæjarskóla, Hafdís Guðmundardóttir, Brekkubæjarskóla, Helga Helgadóttir, Grundaskóla, Snorri Þorsteinn Davíðsson, Varmalandsskóla, Valur Oddgeir Bjarnason, GrundaskólaÚR ÁTTUNDU BEKKJUM:
Elísa Guðrún Elísdóttir, Grundaskóla, í 1.-2. sæti með 58 stig.
Magnús Elvar Jónsson, Grunnskólanum í Borgarnesi, í 1.-2. sæti með 58 stig.
Ragnar Lárus Sigurðsson, Brekkubæjarskóla, í 3. sæti, með 53 stig.Aðrir nemendur úr áttundu bekkjum sem hlutu viðurkenningarskjöl fyrir góðan, árangur eru, í stafrófsröð:
Andri Þór Sigþórsson, Grundaskóla, Ásdís Sigtryggsdóttir, Brekkubæjarskóla, Birgitta Rán Ásgeirsdóttir, Brekkubæjarskóla, Engilbert Aron Kristjánsson, Varmalandsskóla, Íris Bjarnadóttir, Grundaskóla, Jakob Orri Jónsson, Grunnskólanum Í Borgarnesi, Sólveig Rós Jóhannsdóttir, Grunnskólanum í Búðardal17.3. Úrslit í stærðfræðikeppninni
Á morgun verða afhentar viðurkenningar fyrir bestan árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanna sem haldin var í FVA fyrir skömmu. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum aldursflokki, 15.000.- kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000.- kr. fyrir annað sæti og 5000.- kr. fyrir þriðja sæti. Um 120 grunnskólanemendur af Vesturlandi tóku þátt í keppninni. Við verðlaunaafhendinguna á morgun verður boðið upp á skemmtiatriði og veitingar. Veg og vanda af skipulagningu og framkvæmd keppninnar höfðu stærðfræðikennarar FVA. Eftirtalin fyrirtæki styrktu keppnina: Íslenska Járnblendifélagið Grundartanga, Loftorka hf Borgarnesi, Penninn -Bókabúð Andrésar Akranesi og Vírnet hf Borgarnesi. Nöfn verðlaunahafa verða birt hér á fréttasíðunni síðar.16.3. Heimsókn frá Ballerup
Næstkomandi fimmtudag koma hingað í skólann 25 kennarar frá Metalindustriens Fagskole í Ballerup í Danmörku. Hopurinn mun funda með kennurum FVA, skoða skólann og vera með í kennslustundum. Markmiðið með þessari heimsókn er að koma á samstarfsverkefnum skólanna í bóklegum og verklegum greinum. Metalindustriens Fagskole er mjög stór skóli og er mjög framarlega í upplýsingatækni í kennslu. Heimsóknin er tilkomin vegna þátttöku FVA í samnorræna verkefninu IDUN um upplýsingatækni í skólastarfi.7.3. Gestanemendur frá Þrándheimi
Í skólanum okkar eru nú tvær stúlkur frá Þrándheimi í Noregi. Þær eru hér á vegum "Nordplus junior" sem er norrænt samstarfsverkefni um nemendaskipti. Stúlkurnar, sem eru 19 ára gamlar, sækja kennslustundir í FVA næstu 4 vikurnar og síðan verða þær í 3 vikna vinnustaðaþjálfun á Sjúkrahúsinu og Höfða. Stúlkurnar, sem heita Kjersti og Linda, eru í sjúkraliðanámi í Noregi.6. 3. Menntamálaráðherra opnar nýjar vefsíður í FVA
Björn Bjarnason menntamálaráðherra heimsótti FVA í dag. Ráðherra opnaði tvær nýjar vefsíður sem unnar hafa verið undir stjórn Hörpu Hreinsdóttur kennara við FVA. Önnur vefsíðan heitir Vestur til Vínlands (www.fva.is/vinland/) og er unninn af rúmlega 50 nemendum í ÍSL313 á haustönn 2000. Markmið vinnunnar var að æfa nemendur í annars konar tjáningu en venjulegri ritgerðasmíð og einnig að vinna saman að einhverju ákveðnu, stóru verki, sem stæði eftir að önninni lyki. Grænlendingasaga og Eiríks saga rauða voru valdar sem viðfang, enda hefjast þessar sögur á Vesturlandi, og voru mjög í sviðsljósinu á síðasta ári vegna afmælis landafunda. Hin vefsíðan heitir kennari.is og er allt annars eðlis. Þetta er vefur með upplýsingum fyrir kennara, þótt auðvitað geti aðrir nýtt sér efni hans líka. Þarna er bent á ýmis verkfæri (einkum forrit) sem geta nýst kennurum til að leggja efni sitt fram á vef og síðar meir verður fjallað um aðra tölvuvinnu. Þetta byggir á þeirri vissu okkar hér við FVA að tölvustudd kennsla muni sækja mjög í sig veðrið á næstu misserum, sem er reyndar í samræmi við stefnu ráðherra. Á kennari.is er komið talsvert efni um vefinn, t.d. um vefsíðugerð, um prófagerð á vef, um leitarvélar og lýsigögn (sem tengist hugmyndum um Menntagátt menntamálaráðuneytisins) o.fl. Margs konar annað efni er á þessum vef og er rík ástæða til að hvetja fólk til að skoða hann rækilega. Tilgangur þessa síðarnefnda vefs er að styðja við og vera upplýsingabrunnur fyrir kennara. Harpa Hreinsdóttir er umsjónarmaður þessa verkefnis, en það var styrkt af Þróunarsjóði framhaldsskóla. Við athöfnina, sem var á sal skólans, bauð Þórir Ólafsson skólameistari ráðherrann velkominn svo og aðra gesti. Þórir fjallaði í stuttu máli um tilefni heimsóknarinnar og ræddi um þátt upplýsingatækni í skólastarfi FVA. Nemendurnir Petrína Sigurðardóttir og Jóhann Pétur Pétursson fluttu ávörp og greindu frá því hvernig vinnan við Vínlandsvefinn hefði verið, lýstu þau yfir mikilli ánægju með þá vinnu. Harpa Hreinsdóttir sagði síðan frá vefnum kennari.is og ætluðu hlutverki hans. Menntamálaráðherra opnaði síðan vefina með aðstoð nemendanna og Hörpu. Þetta var ánægjuleg stund og mikill heiður fyrir skólann að fá menntamálaráðherra í heimsókn.28.2. Margir fulltrúar frá FVA á ráðstefnunni UT2001
Menntamálaráðuneytið hefur auglýst mikla ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi - UT2001. Ráðstefnan verður 9. og 10. mars. Þar verða haldnir margir áhugaverðir fyrirlestrar. Fyrirlesarar eru u.þ.b. 100 talsins bæði íslenskir og erlendir. Þeir koma frá framhaldsskólum, háskólum og ýmsum öðrum aðilum. Fimm kennarar úr FVA eru meðal fyrirlesara. Það eru þau Harpa Hreinsdóttir sem fjallar um evrópska skóla í fararbroddi, ENIS-skóla, en FVA er í þeim hópi. Harpa er tengiliður ENIS á Íslandi. Helena Valtýsdóttir, Kristján Elís Jónasson, Ólöf H. Samúelsdóttir og Steinunn Eva Þórðardóttir flytja fyrirlestur um reynslu sína af tölvustuddri kennslu í áfanganum Lífsleiki 103 (LKN103) sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Til viðbótar fyrirlesurunum á FVA einn fulltrúa enn sem tekur þátt í dagskrá ráðstefnunnar með formlegum hætti. Það er Atli Harðarson kennari við FVA sem er einn af þeim sem eru á pallborði og tekur þátt í pallborðsumræðum um upplýsingatækni í skólastarfi. Þá er ótalinn sá hópur héðan sem tekur þátt í ráðstefnunni sem almennir þátttakendur. Við í FVA erum mjög stolt af því að eiga svo stóran hóp fólks á UT2001, það sýnir það enn og aftur hve framarlega margir úr okkar hópi eru á þessu sviði og hve áhugi er hér mikill á upplýsingatækni í skólastarfi.26.2. Stærðfræðikeppni grunnskólanna
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk grunnskólanna á Vesturlandi var haldin í FVA s.l. laugardag. Þetta er í þriðja sinn sem slík keppni er haldin hér. 120 nemendur úr flestum grunnskólum á Vesturlandi tóku þátt í keppninni. Keppnin hófst kl. 10 um morguninn og stóð í eina og hálfa klukkustund. Að keppni lokinnþáðu keppendur og fararstjórar veitingar í boði FVA. Stærðfræðikennarar FVA eru þessa dagana að fara yfir úrlausnir keppenda og verða úrslit kunn innan skamms. Verðlaunaafhending fer fram í FVA laugardaginn 17 . mars. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum aldursflokki, 15.000.- kr. fyrir fyrsta sæti, 10.000.- kr. fyrir annað sæti og 5000.- kr. fyrir þriðja sæti. Veg og vanda af skipulagningu og framkvæmd keppninnar hafa stærðfræðikennarar FVA. Eftirtalin fyrirtæki styrkja keppnina: Íslenska Járnblendifélagið Grundartanga, Loftorka hf Borgarnesi, Penninn -Bókabúð Andrésar Akranesi og Vírnet hf Borgarnesi.15.2. Samningur við Nýherja hf undiritaður
Í dag var undirritaður hér í skólanum samningur á milli FVA og Nýherja hf. Í samningnum skuldbindur Nýherji hf sig til að koma upp þráðlausu tölvuneti í skólanum sem gerir það m.a. kleift að nota fartölvur hvar sem er í byggingum skólans og á heimavistinni. Uppsentning senda er þegar hafin. Nýherji býður nemendum FVA einnig upp á góð kjör ef þeir kaupa eða leigja fartölvur af fyrirtækinu. Til að geta tengst tölvunetinu þarf að hafa sérstakt netkort í tölvunum. N.k. haust verður boðið upp á í tilraunaskyni nokkra námsáfanga þar sem miðað verður við að nemendur hafi tölvur í kennslustundum. Hópur kennara við skólann mun taka þátt í þessari tilraun og undirbúa hana nú á vorönninni.10.2. Brautskráning nemenda á haustönn 2000
Í dag voru brautskráðir frá FjölbrautaskólaVesturlands þeir nemendur sem luku námi sínu við skólann á haustönn 2000. Fjölmenni var við athöfnina sem fór fram á sal skólans. Að þessu sinni brautskráðust 49 nemendur frá skólanum, 33 með stúdentspróf, 14 iðnnemar og 2 nemendur af styttri starfsbrautum. Flestir voru stúdentarnir af félagsfræðabraut, 11 talsins, 6 luku námi af hagfræðibraut, 5 af málabraut, 5 af náttúrufræðibraut, 4 af eðlisfræðibraut og 2 af íþróttabraut. 5 nemendur luku burtfararprófi í vélsmíði, 4 í rafvirkjun, 4 í húsasmíði og einn nemandi í netagerð sem útskrifaðist í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Einn nemandi lauk almennu verslunarprófi á viðskiptabraut og einn lauk burtfararprófi á uppeldisbraut. Þórir Ólafsson skólameistari setti athöfnina og síðan flutti Hörður Ó. Helgason aðstoðarskólameistari yfirlit yfir skólastarfið á haustönn. Í máli Harðar kom m.a. fram að s.l. haust kom út Skólanámskrá FVA þar sem m.a. er lýst námsframboði, sérkennum og sérstöðu skólans og þeim starfsháttum og verklagsreglum sem þar gilda. Hörður fjallaði einnig um þátt upplýsingatækninnar í námi og kennslu í FVA en sá þáttur verður stöðugt umfangsmeiri og FVA er famarlega á því sviði. Það kom fram í máli Harðar að nú er unnið að því í samvinnu við Nýherja hf að koma upp þráðlausu tölvuneti í skólanum sem gerir það m.a. kleift að nota fartölvur hvar sem er í skólanum. N.k. haust verður boðið upp á í tilraunaskyni nokkra námsáfanga þar sem miðað verður við að nemendur hafi tölvur í kennslustundum. Hópur kennara við skólann mun taka þátt í þessari tilraun og undirbúa hana nú á vorönninni. Í yfirliti sínu nefndi Hörður að framkvæmdir við nýtt bókasafn muni hefjast í vor og stefnt að því að þeim ljúki næsta haust. Þá mun verða til glæsilegt bóka- og gagnasafn í hjarta skólans með góðri vinnuaðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk. Hörður ræddi einnig um verkfall framhaldsskóla - kennara, afleiðingar þess og þá kraftmiklu og góðu vinnu sem nemendur og kennarar lögðu af mörkum eftir að verkfalli lauk. Að síðustu óskaði Hörður útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn og þakkaði þeim samveruna. Við athöfnina lék Anna Þóra Þorgilsdóttir nýstúdent á flautu Andante eftir Mozart við undirleik Önnu Snæbjörnsdóttur. Þrír úr hópi nýstúdenta lásu gamla og nýja texta sem allir fjölluðu um skólalíf. Nemendur sem brautskráðust frá FVA á haustönn 1980 fluttu skólanum kveðju og færðu honum veglega bókagjöf í tilefni tímamótanna. Þá var komið að hápunkti athafnarinnar sjálfri brautskráningunni sem Þórir Ólafsson skólameistari stýrði. Margir nemendur fengu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, bókagjafir sem Penninn - Bókabúð Andrésar leggur skólanum til Verslunarmannafélag Akraness veitir viðurkenningar fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum. Katla Hallsdóttir hárgreiðslumeistari gaf að venju verðlaun fyrir góðan árangur í verklegum greinum og Rótarýklúbbur Akraness veitti viðurkenningu fyrir lofsvert framlag til félagsstarfa nemenda. Eftirtaldir nemendur fengu viðurkenningu: Ármann Veigar Guðgeirsson fyrir ágætan árangur í sögu, Ásdís Halla Sigríðardóttir fyrir ágætan árangur í stærðfræði og raungreinum, Áslaug Guðmundsdóttir fyrir félagsstörf, Bergrós Fríða Ólafsdóttir fyrir ágætan árangur í þýsku og ensku, hún fékk einnig viðurkenningu fyrir bestan námsárangur stúdenta. Björn Helgi Guðmundsson fékk viðurkenningu fyrir ágætan árangur í vélfræði, Davíð Rósenkrans Hauksson fékk viðurkenningu fyrir ágætan árangur í eðlisfræði, efnafræði og stærðfræði, Elín Málmfríður Magnúsdóttir fyrir ágætan árangur í viðskiptagreinum, Harpa Hlín Haraldsdóttir fyrir ágætan árangur í dönsku, Harpa Hlín hlaut einnig viðurkenninguna frá Rótarýklúbbnum fyrir félagsstörf, Hjördís Garðarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir ágætan árangur í dönsku og ensku, Sigurbjörn Guðmundsson fyrir ágætan árangur í efnafræði og líffræði, Snorri Guðmundsson fyrir ágætan árangur í verklegum greinum í húsasmíði og Svandís Halldórsdóttir fyrir ágætan árangur í viðskiptagreinum. Verðlaun Kötlu Hallsdóttur hlaut að þessu sinni Kristín B. Birna Fossdal sem lauk burtfararprófi í rafvirkjun. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema, hún rifjaði upp veruna í skólanum og þakkaði kennurum og starfsfólki öllu fyrir samveruna. Þórir Ólafsson skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, ræddi um gildi menntunar og minnti á að það hefur ekki alltaf verið sjálfsagt mál að geta aflað sér menntunar, en það eru dýrmæt réttindi sem verður að varðveita að og meta að verðleikum. Að lokum óskaði Þórir nemendum velfarnaðar og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir kaffiveitingar í boði skólans.7. 2. Skólastarf á vorönn hafið
S.l. mánudagsmorgunn voru nemendum á vorönn afhentar stundatöflur, kennsla hófst síðan eftir hádegi þann dag. Hér á eftir er pistill Þóris Ólafssonar skólameistara sem birtur er í Brautargengi sem nemendur fengu í hendur með stundatöflum sínum:Í byrjun vorannar 2001
Vorönn er nú að hefjast hér í FVA á óvenjulegum tíma. Tveggja mánaða röskun varð á skólastarfi vegna verkfalls kennara í framhaldsskólum. Þegar verkfalli lauk var nemendum og starfsmönnum skólanna fengið það snúna verkefni að ljúka haustannarverkum á 4 vikum. Þeim er nú lokið og ég þakka nemendum, kennurum og öðrum starfsmönnum þessa skóla hve rösklega þeir tókust á við verkefnið. Með því móti tókst að mestu að rétta skóalstarfið af og framundan er vorönn sem ekki er mikið frábrugðin þeirri sem ráðgerð hafði verið. Við þurfum reyndar að starfa nokkuð lengur fram á vorið og taka 5 hefðbundna leyfisdaga undir kennslu og brautskráning haustannar verður ekki fyrr en 10. febrúar. Næsta haust verður fyrir vikið komin regla á dagskrá skólaársins á ný þó vænta mega einhverra hliðarverkana verkfallsins lengur. Það er mikilvægt að mínu mati að horfa nú fram á við og nýta þau sóknarfæri sem felast í nýjum kjarasamningi við kennara. Samningurinn byggir um margt á nýrri hugsun sem á að geta nýst á jákvæðan hátt í skólastarfinu og ættu nemendur þar með að uppskera betri menntun. Verkefnin framundan eru í það minnsta næg. Viðhorf til náms og kennslu breytast stöðugt og við stöndum á þröskuldi mikilla breytinga sem aukin hagnýting upplýsingatækninnar mun til að mynda færa okkur. Byrjað er að setja upp þráðlaust tölvusamband hér í skólanum og í vikunni hefst markviss kynning á næstu skrefum þessarar byltingar. Innleiðing fartölva í námi mun breyta skólastarfi mikið á næstu árum og í henni felast mörg sóknarfæri. Menntunin mun þó að sjálfsögðu fyrst og síðast snúast áfram um inntak, tæknin og aðferðirnar eru aðeins leiðir til að nálgast inntakið. Fartölva leysir okkur ekki undan því að árangur námsins er undir okkur kominn, engin lærir fyrir okkur. Námið verður áfram vinna og árangurinn ræðst fyrst og fremst af því hvað nemendur eru tilbúnir að leggja á sig. Fartölvan getur hins vegar aukið afköst okkar í námi, gert námið fjölbreytilegra og vonandi skemmtilegra líka. Ég býð nemendur, kennara og aðra starfsmenn Fjölbrautaskóla Vesturlands velkomna til starfa á þessum óvenjulega upphafsdegi fyrstu annar okkar á nýrri öld.
Þórir Ólafsson, skólameistari
29.1. Upplýsingatækni í FVA
Eins og margoft hefur komið fram hér á fréttasíðunni þá fer þáttur upplýsingatækni í kennslu og öðru skólastarfi við FVA sífellt vaxandi. Margir starfsmenn FVA hafa mikla þekkingu og mikinn áhuga á upplýsingatækni og nýta þessa tækni vel í starfi. FVA er í hópi evrópskra skóla (ENIS - skólar) og í hópi norrænna skóla (ODIN - skólar) sem eru framarlega á þessu sviði. Á vefsíðu þróunarskóla í upplýsingatækni eru m.a. birtar helstu fréttir um upplýsingatækni í íslenskum skólum. Í þessum fréttum kemur FVA töluvert við sögu. Greint er frá notkun tölva í stærðfræðikennslu í FVA, vinnu í áfanganum UTN 103 er lýst, sagt er frá tilraunum með notkun kennsluumhverfisins Blackboard í áfanganum LKN 103 (lífsleikni), einnig er sagt frá þátttöku FVA í gerð útvarpsþáttar fyrir BBC. Loks er frétt um hvernig möguleikar upplýsingatækninnar eru nýttir á Bókasafni FVA, en á bókasafni okkar er mjög grannt fylgst með þessum málum.
Það er full ástæða hvetja fólk til að lesa meira um þetta og skoða fréttayfirlitið á slóðinni http://www.utskolar.is/
Próf verða haldin föstudaginn 26. og laugardaginn 27. janúar. Prófin hefjast kl. 8.15, 10.30 og 13. Nemendur eru hvattir til að athuga vel á próftöflu hvort og þá hvenær þeir eiga að vera í prófum þessa daga. Einnig skulu nemendur kynna sér prófreglur FVA. Forföll verður að tilkynna fyrir próf og skila síðan vottorði. Sjúkrapróf fara fram mánudaginn 29. janúar. Prófdagana fer skólabíll úr Borgarnesi kl. 7.15, 9.30 og 12 og til baka kl. 10, 12.30 og 14.45. Fregnmiði FVA 24. janúar 2001
Einkunnaafhending og val. Einkunnir verða afhentar hjá umsjónarkennurum þriðjudaginn 30. janúar kl. 13. Staðfesting á vali fer fram við sama tækifæri. Ath kl. 13. Skólabíllinn fer úr Borgarnesi kl. 12.15 og til baka kl. 15.30.
Prófsýning. Kennarar sýna próf og sitja fyrir svörum um námsmat þriðjudaginn 30. janúar kl. 14-15.30.
Upphaf vorannar 2001. Skólastarf hefst mánudaginn 5. febrúar kl. 10. Nánari upplýsingar eru í bréfi sem sent hefur verið til allra sem eru skráðir til náms á þeirri önn. Skólabíll fer úr Borgarnesi þann dag kl. 9.15.
Brautskráning á haustönn verður á sal skólans laugardaginn 10. febrúar kl. 14.
Fartölvuvæðing FVA. Unnið er að því að koma upp þráðlausu tölvuneti í skólanum. Í tengslum við það verður nemendum boðið að kaupa eða leigja fartölvur á góðum kjörum. Mál þetta fer í nánari kynningu fljótlega. Þeir sem eru að hugsa um að kaupa tölvu bráðlega ættu að kynna sér þennan kost áður en kaup eru ákveðin.
17.1. FVA sigur í "Gettu betur"
Spurningakeppni framhaldsskólanna "Gettu betur" er hafin. Spurningalið FVA er skipað þeim Ómari Sigurbjörnssyni, Ragnari Björnssyni og Sigurbirni Gíslasyni. Varamenn í liðinu eru Harald Björnsson og Þórður Eiríksson. Þessi hópur æfir stíft undir stjórn liðsstjóra síns Geirs Guðjónssonar. Þeir hófu þátttöku í gær og kepptu við lið Verkmenntaskólans á Akureyri. Leikar fóru þannig að lið FVA vann öruggan sigur, 19 - 14, og eru þar með komnir í 2. umferð.8.1. 2001 Skólastarf hafið á ný eftir langt vekfall
Í gærkvöldi var undirritaður nýr kjarasamningur framhaldsskólakennara og fjármálaráðuneytisins. Tveggja mánaða verkfalli framhaldsskóla kennara er þar með lokið. Í morgun mættu kennarar til starfa og funduðu um hvernig ljúka megi haustönninni og hvernig vorönnin verður skipulögð. Kennarar nýta síðan daginn til að skipuleggja næstu vikur og gera tillögur um hvernig námsmati haustannar verður hagað.
Þórir Ólafsson skólameistari hélt fund með nemendum kl. 11. Nemendur mættu vel á fundinn og voru greinilega fegnir að vera komnir aftur í skólann. Þórir gerði nemendum grein fyrir þeim möguleikum sem fyrir hendi eru til að ljúka haustönninni og hvernig vorönnin kemur til með að vera. Einhverjar breytingar á námsmati eru óhjákvæmilegar og verða þær ákveðnar í dag. Eftir kennarafund sem haldinn verður síðar í dag verður ljóst hvernig námsmati verður hagað í einstökum áföngum og munu kennarar gera nemendum grein fyrir því þegar kennsla hefst að nýju á morgun.3.11. Skammhlaup haust 2000
Í dag fer fram "Skammhlaup H2000". Skammhlaupið er þrautakeppni í boðhlaupsformi sem allir nemendur skólans taka þátt í. Keppt er í hinum ýmsu þrautum, íþróttum, verklegum greinum og bóklegum greinum. Skammhlaupið hófst í íþróttahúsinu við Vesturgötu á körfuboltaleik á milli nemenda og kennara. Reglur voru mjög óhefðbundndar og þóttu dómarar hlutdrægir, enda fór það svo að kennaraliðið sigraði 4 - 0. Keppni í þrautunum fór fram í íþróttahúsinu, í Jaðarsbakkalaug og víðsvegar um skólann. Skammhlaupinu lýkur síðan á sal þar sem fara fram þrautir eins og leiklist, söngur, dans og dragkeppni. Útvarp NFFA fylgist grannt með og kynnir á sal er hinn eldhressi þingmaður Gísli Einarsson. Sigurliðið fær að launum pizzuveislu á Hróa Hetti. Deginum lýkur síðan með tónlistarkeppni NFFA í Bíóhöllinni og í kvöld er stórdansleikur í skólanum þar sem Sálin hans Jóns míns leikur fyrir dansi.1.11. Nemendur í Lífsleikni í sjálfboðavinnu
Einn þáttur í námi þeirra nemenda sem eru í Lífsleikni áfanganum (LKN103) er þátttaka í sjálfboðavinnu. Sjálfboðavinnan stendur yfir nú í vikunni. Verkefnin sem nemendurnir taka að sér eru margs konar. Nokkrir nemendur tóku þátt í verkefninu "Gengið til góðs" s.l. laugardag. Aðrir eru í störfum á eftirtöldum vinnustöðum: Fjöliðjunni, Sambýlinu við Laugarbraut og Dvalarheimilinu Höfða. Enn aðrir taka þátt í heimilishjálp og nokkrir eru við gangbrautarvörslu. Hér er um eftirtektarverða nýbreyni að ræða og vafalaust mun þetta vera til mikils gagns bæði fyrir nemendurna sem leggja fram vinnu sína og fyrir þá sem hennar njóta.25.10. Lífsleikniferð til Reykjavíkur
Í gær fóru nemendur í lífsleikni (LKN103) í námsferð til Reykajvíkur ásamt kennurum sínum, samtals 75 manns. Í Reykjavík var hópnum skipt upp og farið var í heimsókn í Alþingi, Hæstarétt, Ráðhúsið, Þjóðmenningarhúsið og Hitt húsið. Á öllum þessum stöðum var vel tekið á móti hópnum og fengu nemendurnir leiðsögn og fræðslu um hvern stað fyrir sig. Í Hinu húsinu voru læknanemar úr Háskóla Íslands með mjög áhugaverða og fræðandi dagskrá fyrir hópinn um kynlíf. Ferðin tókst í alla staði mjög vel, hún var vel skipulögð og fræðandi, og það var ánægður hópur kom til baka eftir skemmtilegan dag.23.10. Einar Trausti í 5. sæti
Eins og komið hefur fram á fréttasíðunni er einn af nemendum okkar, hann Einar Trausti Sveinsson, þátttakandi í Ólympíuleikum fatlaðra sem nú fara fram í Sydney. Hann keppti í spjótkast nú í morgun og lenti í 5. sæti. Þetta er glæsilegur árangur og við sendum Einari Trausta bestu hamingjuóskir frá FVA.23.10. Upptaka fyrir BBC í FVA
Á morgun verður dálítið sérstakur og spennandi atburður hér í skólanum. Þá munu þrír nemendur og einn kennari verða í hljóðveri skólans við að taka upp lestur á nokkrum textum. Upptakan er unnin fyrir útvarpsþátt sem BBC er að gera um víkinga. Þátturinn verður sendur út í desember og jafnframt verður sett upp vefsíða í tengslum við þennan þátt þar sem FVA verður sérstaklega getið. Í þættinum verða lesin tvö erindi úr Hávamálum, einn texti sem lýsir því að víkingar hafi tekið sér bólfestu í nafngreindum héruðum á Bretlandi og auk þess kynningartexti á nútímaíslensku. Tildrög þessa eru þau að leitað var til Hörpu Hreinsdóttur kennara við FVA um aðstoð við að fá íslenskan upplestur í umræddan þátt, en íslenskan er það nútímatungumál sem mest líkist máli víkinga á 10. öld. Harpa er stjórnandi í grasrótarsamtökum áhugamanna um víkinga, The Viking Network. Þeir sem lesa eru nemendurnir Fríða Bjarnadóttir, Guðmundína Arndís Haraldsdóttir og Jóhann Pétursson, og Ásdís Kristinsdóttir kennari. Tæknimaður er Helgi Þór Hreiðarsson nemandi í FVA. Það er gaman fyrir skólann og nemendur hans að fá þetta tækifæri og gott til þess að vita að hér er aðstaða til að taka upp útvarpsþátt sem fullnægir kröfum BBC.20.10. Skólastjórnendur grunnskólanna í heimsókn
Í vikunni komu skólastjórnendur grunnskólanna á Vesturlandi í árlega heimsókn til okkar og funduðu með skólameistara og aðstoðarskólameistara FVA. Á fundinum var rædd tilraun sem gerð var á síðustu önn þar sem nemendur í 10. bekk áttu þess kost að taka áfanga við FVA. Lagt var mat á tilraunina og hugsanlegt framhald rætt. Inntökuskilyrði í FVA fyrir næsta skólaár voru kynnt og rædd ítarlega. Einnig var rætt um samstarf skólanna eins og það er í dag og hvernig megi þróa það áfram. Fundurinn tókst mjög vel og var ánægjulegur fyrir alla sem hann sátu.18.10. Einar Trausti keppir á Ólympíuleikum fatlaðra í Sydney
Ólympíuleikar fatlaðra verða settir í Sydney í dag. Meðal keppenda er Einar Trausti Sveinsson nemandi í FVA. Einar Trausti keppir í kringlukasti og spjótkasti. Það er heiður fyrir skólann að eiga fulltrúa á þessum leikum. Einari Trausta fylgja bestu óskir héðan og við vitum að hann mun standa sig með sóma.17.10. Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
Í dag er haldin Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna í öllum framhaldsskólum landsins. Keppt er í tveimur flokkum, annar flokkurinn er fyrir þá sem eru á öðru námsári og hinn flokkurinn er fyrir þá sem lengra eru komnir. Efstu 20 í hvorum flokki komast áfram í úrslitakeppnina, en keppnin í dag er forkeppni. 20 nemendur í FVA taka þátt í keppninni, en hún hófst kl. 8 og henni lýkur á hádegi.16.10. Ný skólanefnd FVA
Í september s.l. rann út skipunartími skólanefndar FVA og hefur menntamálaráðherra því skipað nýja skólanefnd til næstu fjögurra ára. Þrír fulltrúar eru skipaðir án tilnefningar en það eru þau Bergþóra Jónsdóttir Hrútsstöðum, Sigríður Finsen Grundarfirði og Þorgeir Jósefsson Akranesi. Tveir fulltrúar í nefndinni eru tilnefndir af sveitarfélögum þeim sem aðild eiga að skólunum, en það eru þær Borghildur Jósúadóttir Akranesi og Guðrún Jónsdóttir Borgarnesi. Auk þeirra eiga sæti sem áheyrnarfulltrúar þau Steinunn Eva Þórðardóttir tilnefnd af kennurum og Leifur Jónsson tilnefndur af NFFA. Áheyrnarfulltrúarnir eru tilnefndir til eins árs í senn. Fyrsti fundur hinnar nýskipuðu nefndar verður haldinn á morgun.12.10. FVA á heimasíðu ENIS
Eins og áður hefur komið fram á fréttasíðunni er FVA ENIS skóli. ENIS skólar eru þeir skólar í Evrópu sem eru í fararbroddi í upplýsingatækni. Samtals eru 400 skólar í Evrópu ENIS - skólar, þar af 8 íslenskir, 5 framhaldsskólar og 3 grunnskólar. Á heimasíðu ENIS (www.en.eun.org/enis/enis-main.html) er vísað í heimasíðu íslensku ENIS - skólanna og er merki FVA notað sem einkenni. Tengiliður ENIS á Íslandi er Harpa Hreinsdóttir kennari við FVA.9.10. Námfúsir kennarar
S.l. laugardag hófst hér í skólanum námskeið í upplýsingatækni. 26 kennarar í FVA taka þátt í námskeiðinu sem verður næstu 4 laugardaga. Kennarar á námskeiðinu eru Atli Harðarson, Harpa Hreinsdóttir og Hafdís D. Hafsteinsdóttir. Aðal viðfangsefni námskeiðsins er vefsíðugerð og hvernig hægt er að nýta vefi samhliða hefðbundinni kennslu. Mikill áhugi hefur verið á notkun upplýsingatækni í kennslu meðal kennara skólans þessi áhugi fer vaxandi og er námskeiðið liður í því að efla þennan þátt skólastarfsins. Hér er um gott framtak að ræða sem á eflaust eftir að nýtast skólanum og nemendum hans vel.28.9. Dagur stærðfræðinnar
Í dag er dagur stærðfræðinnar. Af því tilefni bjóða stærðfræðideild FVA og verslunin Hljómsýn nemendum skólans að taka þátt í leik sem fram fer á vef stærðfræðideildar (http://www.fva.is/kennsla/staerdfr/). Í dag og næstu 3 miðvikudaga birtist þraut eða spurning á vef deildarinnar. Nemendur sem ráða þrautirnar geta sent lausnir til Atla Harðarsonar deildarstjóra FVA í stærðfræði. Viku eftir að fjórða og síðasta þrautin kemur á vefinn verða lausnir metnar og þeim einstaklingi eða því pari sem á bestu svörin veitt viðurkenningarskjal og 10.000.- kr. vöruúttekt í Hljómsýn.27.9. Foreldrafundur í FVA
Í gærkvöldi var haldinn fundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í FVA. U.þ.b. 80 manns komu á fundinn. Fundurinn hófst með því að Þórir Ólafsson skólameistari bauð fólk velkomið og fór síðan nokkrum orðum um skólastarfið almennt og gat sérstaklega um mikilvægi þess að gott samband væri á milli skólans og foreldra og forráðamanna nemenda hans. Hörður Ó. Helgason aðstoðarskólameistari hélt stutt erindi um Aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla sem kom út á s.l. ári. Hörður kynnti einnig Skólanámskrá FVA sem út kom í ágúst s.l. en í Skólanámskránni er að finna allar helstu upplýsingar um skólastarfið í FVA. Stjórn nemendafélagsins, NFFA, kynnti starfsemi félagsins. Að þessu loknu fóru fundarmenn með umsjónarkennurum barna sinna í umsjónarstofur þar sem þau fengu fræðslu um umsjónarkerfi FVA og sitthvað annað um skólastarfið. Þar gafst foreldrum einnig kostur á að ræða við umsjónarkennarana um allt það sem snertir skólagöngu barna þeirra. Námsráðgjafar voru til viðtals, svo og stjórnendur skólans. N.k. þriðjudagskvöld verður opið hús í skólanum ætlað fyrir foreldra og forráðamenn nemenda FVA sem fæddir eru árið 1983 og eru á öðru námsári í skólanum. Þá verða umsjónarkennarar þeirra nemenda til viðtals ásamt námsráðgjöfum og stjórnendum.26.9. Heimsókn frá Snæfellsnesi
Í morgun komu í heimsókn til okkar nemendur FVA í Stykkishólmi. Tilgangur heimsóknarinnar var að gefa krökkunum kost á að fá örlitla innsýn í venjulegan skóladag í móðurskólanum á Akranesi. Nú eru 30 nemendur í deild FVA í Stykkishólmi og komu þau hingað í fylgd kennara síns Hrafnhildi Hallvarðsdóttur. Hópurinn kom laust fyrir kl.10 í morgun og tók Þórir Ólafsson á móti honum. Krakkarnir blönduðu síðan geði við aðra nemendur skólans í frímínútum og í hádegisverðarhléi. Ólafur Haraldsson einn af námsgráðgjöfum FVA ræddi við hópinn, gekk með þeim um skólann og kynnti hann fyrir nemendum, m.a. var litið inn í kennslustundir. Þetta var mjög ánægjuleg heimsókn og eflir hún eflaust tengsl nemenda skólans í Stykkishólmi við móðurskólann á Akranesi. Á fimmtudaginn koma síðan nemendur FVA í Snæfellsbæ í heimsókn í sama tilgangi. Í deild FVA í Snæfellsbæ eru nú 25 nemendur.14.9. Námsferð í Dali
Nemendur í íslenskuáföngunum ÍSL103, ÍSL202 og ÍSL313 fóru í morgun í ferðalag ásamt kennurum sínum. Ferðinni var heitið í Dali vestur. Fyrst fór hópurinn til Eiríksstaða í Haukadal þar sem Eiríkur rauði bjó og sögur herma að sonur hans Leifur heppni hafi fæðst. Að þeirri heimsókn lokinni var ferðinni heitið til nokkurra sögustaða úr Laxdælu, en sú skemmtilega saga er einmitt skyldulesing hjá flestum nemendum FVA. 113 nemendur taka þátt í ferðinni ásamt 3 kennurum.8.9. Kolbrún til Sydney
Nú líður senn að því að Ólympíuleikarnir í Sydney hefjist. Stór hópur frá Íslandi keppir á leikunum. Meðal keppenda er Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sundkona en hún er nemandi í FVA. Kolbrúnu fylgja bestu óskir héðan frá skólanum, við erum stolt af að eiga fulltrúa á ÓL 2000 og vitum að Kolbrún mun standa sig með sóma í Sydney eins og annars staðar.21.8. Skólahald hefst
Fjölbrautaskóli Vesturlands verður settur miðvikudaginn 23.8. kl. 10 Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 13.10 sama dag. Hér koma nokkrar fréttir sem tengjast upphafi skólaársins:Skólanámskrá FVA
Menntamálaráðuneytið gaf út Aðalnámskrá framhaldsskóla í apríl í fyrra. Í henni segir að hver skóli skuli gefa út skólanámskrá er lýsi námsframboði, sérkennum og sérstöðu skólans og þeim starfsháttum og verklagsreglum sem þar gilda. Nú er komin út Skólanámskrá FVA. Auk ofantalinna þátta eru í henni áfangalýsingar þeirra áfanga sem kenndir eru í FVA og brautalýsingar. Þessar lýsingar eru í samræmi við Aðalnámskrá framhaldssskóla en nemendur sem hefja nám í FVA nú í haust munu stunda nám samkvæmt þeirri námskrá. Eldri nemendur halda áfram námi samkvæmt Námsvísi fjölbrautaskóla frá 1996. Í einstaka tilvikum munu þó nemendur sem hófu nám á s.l. skólaári fylgja nýju námskránni.Nýjar skólasóknarreglur - eining fyrir góða skólasókn
Menntamálaráðuneytið hefur á nýjan leik heimilað framhaldsskólum að gefa einingu fyrir skólasókn. Þetta hefur það í för með sér í FVA að skólasóknarreglurnar sem tóku gildi haustið 1999 hafa nú verið endurskoðaðar og þeim breytt á þann veg að nú geta nemendur fengið námseiningu fyrir góða skólasókn. Einingar fyrir skólasókn má nota sem einingar í frjálsu vali. Sömuleiðis verða nú einingar dregnar frá þeim nemendum sem sækja skólann illa. Nýju skólasóknarreglurnar eru birtar í Skólanámskrá FVA og þær er einnig að finna hér að framan. Reglurnar eru mjög áþekkar þeim skólasóknarreglum sem voru í gildi fyrir haustið 1999, en reynslan af þeim var mun betri en af reglunum sem voru í gildi á síðasta skólaári.Nýr húsvörður
Pétur Óðinsson húsasmíðameistari hefur verið ráðinn húsvörður FVA í stað Sigurgeirs Sveinssonar sem verið hefur húsvörður FVA til margra ára. Sigurgeir hefur söðlað um innan skólans og mun kenna í tréiðnaðardeildinni á komandi skólaári.Nýr heimavistarstjóri
Anna Bjarnadóttir íþróttakennari hefur verið ráðin heimavistarstjóri FVA. Anna kemur í stað þeirra Sigríðar Einarsdóttur og Óla Páls Engilbertssonar sem hafa verið vistarstjórar um nokkurt skeið, en þau eru flutt til Danmerkur.Nýr námsráðgjafi
Á komandi skólaári munu þrír námsráðgjafar starfa við skólann. Guðrún Jóhannesdóttir dönskukennari hefur verið ráðin námsráðgjafi og mun hún sinna námsráðgjöf ásamt þeim Ólöfu H. Samúelsdóttur og Ólafi Haraldssyni.Breytt fyrirkomulag bóksölu
Penninn - Bókabúð Andrésar á Akranesi hefur tekið við hlutverki bóksölu NFFA. Í bókabúðinni verða til sölu allar námsbækur sem nemendur FVA þurfa að nota og auk þess öll önnur venjuleg námsgögn að undanskildum ljósritum. Skrifstofa FVA mun annast sölu allra ljósritaðra kennsluhefta sem nemendur þurfa að kaupa.9.6. Góð aðsókn að skólanum
Umsóknarfrestur um skólavist í FVA skólaárið 2000 - 2001 er liðinn. Mjög góð aðsókn er að skólanum, heldur fleiri nemendur hafa nú sótt um skólavist en á sama tíma í fyrra. Alls eru umsóknirnar 691, þar af 180 frá nemendum sem luku 10. bekk grunnskóla nú í vor. Aðsókn að deildum skólans á Snæfellsnesi er einnig mjög góð, 30 nemendur sóttu um nám í Stykkishólmi og 25 í Snæfellsbæ. Aðsókn að verknámsdeildum er einnig mjög góð og komast færri að en vilja því í verknámsdeildunum er einungis hægt að vera með 12 nemendur saman í hópi. 24 nemendur verða í grunndeild rafiðna, sömuleiðis á fyrstu önn í málmiðngreinum og 12 nemendur verða í grunndeild tréiðna. auk þess eru nemendur í framhaldsnámi í öllum þessum deildum. Samtals eru u.þ.b. 140 nemendur í iðnnámi hér í FVA. Að venju voru margir sem sóttu um heimavistarpláss, eða samtals 120. Heimavistin tekur aðeins 64 nemendur svo biðlisti um pláss þar er langur. Þessi aðsókn sýnir enn og aftur nauðsyn þess að fjölga heimavistarplássum og mun barátta skólans og skólanefndar um að fá leyfi til þess halda áfram. Vonandi verður árangur af þeirri baráttu sýnilegur áður en næsta skólaár er liðið.
Fréttir frá skólaárinu: 1999-2000; 2000-2001; 2001-2002; 2002-2003; 2003-2004; 2004-2005; 2005-2006; 2006-2007