Annáll vorannar 2007 við Fjölbrautaskóla Vesturlands

Kennsla við Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2007 hófst um hádegi mánudagsins 8. janúar. Að morgni sama dags höfðu nemendur fengið stundatöflur sínar afhentar.

Í byrjun annar voru 585 nemendur í skólanum sem er 5 nemendum færra en í byrjun haustannar. Undanfarin ár hefur munurinn á nemendafjölda haustannar og vorannar verið heldur meiri en þetta. Skýringin á því að nemendur voru fleiri nú en undanfarnar vorannir er einkum fjölgun í hópi fullorðinna nemenda.

Á síðasta skólaári var tekið að bjóða upp á kennslu í húsasmíði fyrir fólk í fullri vinnu. Sú kennsla er að nokkru leyti fjarkennsla en verklegum þáttum er sinnt í staðbundnum lotum um helgar. Í byrjun haustannar 2006 hófst kennsla með svipuðu sniði á sjúkraliðabraut, þar sem kennslufyrirkomulagið er miðað við þarfir fullorðins fólks sem stundar vinnu með skóla. Nú í byrjun vorannar bættist þriðja námsbrautin við þegar boðið var upp á viðskiptanám með vinnu. Góð aðsókn er að þessum námsleiðum þar sem tímasókn er þjappað á fáa daga og nemendum boðin fjarkennsla þess á milli. Við sjáum því fram á aukin umsvif á sviði fullorðinsfræðslu á næstu misserum.

Rúm 60% af nemendum sem voru í skólanum á þessari önn eiga lögheimili á Akranesi og um það bil 95% eiga lögheimili á Vesturlandi. Nemendur skiptast þannig á námsbrautir að rúm 40% stunda nám til stúdentsprófs, um það bil 20% eru á almennri námsbraut og tæp 40% eru í iðnnámi og öðru starfstengdu námi. Kynjaskipting er nokkuð jöfn, þó eru piltar ívið fleiri eða um 54% nemenda.

*

Frá því töflubreytingum lauk og þar til próf byrjuðu hættu 32 nemendur í skólanum og til viðbótar skráðu 116 nemendur sig úr einstökum áföngum. Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urðu til þess að námshópar minnkuðu að meðaltali um 7,9%. Til samanburðar má nefna að á vorönn 2006 var brottfallið 7,6% og á vorönn 2005 var það 6,5%.

*

Í upphafi annar urðu þær breytingar á starfsliði skólans að Kolbrún Leifsdóttir lét af störfum við ræstingar og í hennar stað kom Bryndís Þóra Gylfadóttir.

*

Þann 6. febrúar voru 20 ár liðin síðan Fjölbrautaskóli Vesturlands hlaut það nafn sem hann nú hefur og þann 12. september í haust verða liðin rétt 30 ár síðan hann var settur í fyrsta sinn. Í ár er því haldið upp á tvö merkisafmæli. Í tilefni af þessum tímamótum var opið hús í skólanum seinni part fimmtudagsins 15. mars. Þar gafst forráðmönnum nemenda og öllum öðrum sem áhuga höfðu tækifæri til að skoða skólann, spjalla við starfsfólk og kynna sér námsgreinarnar sem kenndar eru.

Þegar skólinn var stofnaður, 12. september 1977, hét hann Fjölbrautaskólinn á Akranesi. Þann 6. febrúar 1987 gerðu 32 sveitarfélög á Vesturlandi og menntamálaráðuneytið samning um rekstur skólans og þá var nafni hans breytt og hefur hann síðan heitið Fjölbrautaskóli Vesturlands. Síðan sveitarfélögin 32 undirrituðu fyrst samning um Fjölbrautaskóla Vesturlands hafa nokkur þeirra sameinast og sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi hafið samstarf um rekstur framhaldsskóla í Grundarfirði. Nú eru sveitarfélögin sem eiga aðild að samningi um skólann því aðeins sex talsins: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur og Skorradalshreppur.

*

Skólastarfið á önninni gekk sinn gang eins og jafnan. Það voru opnir dagar og það var stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema eins og alltaf á vorönn. Að þessu sinni var stærðfræðikeppnin að öllu leyti kostuð af Sparisjóði Akraness og hefur skólinn gert við hann samning um að kosta keppnina á hverju ári til 2011. Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn nær samningum af þessu tagi og er vonandi að Sparisjóðurinn verði fordæmi fyrir önnur fyrirtæki.

En þótt flest gangi sinn vangang gerist alltaf eitthvað nýtt. Þegar hefur verið minnst á kennslu fyrir fullorðna. Annað sem vert er að nefna er að sveinspróf í tveim iðngreinum voru haldin á verkstæðum skólans, í húsasmíði í janúar og vélvirkjun í mars. Sveinspróf eru samræmd próf sem allir verðandi iðnaðarmenn gangast undir. Iðan annast prófin í umboði sveinsprófsnefnda og menntamálaráðuneytisins.

*

Þann 1. maí var athöfn á sal skólans þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Gísli Einarsson bæjarstjóri á Akranesi undirrituðu samning um byggingu 560 fermetra kennsluhúsnæðis fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þessi bygging mun rísa hér á norðvesturhorni skólalóðarinnar á næstu mánuðum.

*

Eins og jafnan hafði skólinn samstarf við menntastofnanir í öðrum löndum. Alla önnina var hér kennaranemi frá Slóveníu. Hún heitir Valerija Peternel og starfaði með enskukennurum skólans. Fjórir nemendur og einn kennari frá Kemi-Torneo starfsmenntaskólanum, sem er samstarfsskóli okkar í Norður Finnlandi, heimsóttu okkur. Einnig komu fimm nemendur og tveir kennarar frá samstarfsskóla okkar í Nice í Suður-Frakklandi. Frönsku og finnsku nemendurnir luku hluta af starfsþjálfun sinni hjá fyrirtækjum á Vesturlandi. Allar þessar heimsóknir eru styrktar af menntaáætlunum Evrópusambandsins og skipulag þeirra og undirbúningur hefur verið í höndum Kristjáns E. Guðmundssonar sem er umsjónarmaður erlendra samskipta við skólann.

*

Fyrir nokkrum misserum síðan var sú stefna mótuð hér við skólann að auka tengsl hans við mannlíf, fyrirtæki og stofnanir á Akranesi og í nágrannabyggðarlögum. Að þessu er unnið með ýmsu móti. Þegar hefur verið minnst á samning skólans við Sparisjóðinn. Nú á vorönn hefur skólinn einnig átt mjög gott samstarf við bæjaryfirvöld á Akranesi sem réðust í gerð myndarlegs kynningarrits um skólann. Það hefur verið borið á öll heimili á Vesturlandi og víðar. Á þessari önn hefur einnig verið unnið að því að auka samstarf skólans við grunnskólana á Akranesi.

*

Félagslíf nemenda var blómlegt að vanda. Hæst bar árshátíð og uppsetningu á söngleiknum Almost Famous.
Í aðalstjórn nemendafélagsins á því skólaári sem nú er að ljúka voru Þór Birgisson formaður, Rúnar Ólason gjaldkeri, Ragnheiður Friðriksdóttir ritari og Steinunn Eik Egilsdóttir meðstjórnandi. Nú undir annarlok var kosin ný stjórn sem mun leiða félagslíf nemenda næsta vetur. Hana skipa: Salvar Georgsson formaður, Bjarki Sigmundsson gjaldkeri, Harpa Jónsdóttir ritari, Bergur Líndal Guðnason meðstjórnandi og Rúnar Ólason meðstjórnandi. Væntum við góðs af starfi þeirra næsta vetur og treystum því að félagslíf nemenda haldi áfram að þróast með heillavænlegum hætti.

*

Eins og jafnan gáfust okkur sem störfum í skólanum fjölmörg tilefni til að vera stolt af nemendum okkar og gleðjast yfir árangri þeirra. Af mörgu er að taka en hér verður aðeins eitt nefnt sem er glæsilegur sigur í forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík þann 10. mars. Keppt var í 4 deildum. Við sendum eitt lið til keppni í delta deild, en í þeirri deild eru nemendur á fyrsta á ári í forritunarnámi. Í þessari deild kepptu 18 lið úr 10 skólum og fór okkar lið með sigur af hólmi. Í liðinu eru Elín Castensdóttir, Gísli Birgir Guðsteinsson og Guðmundur Freyr Hallgrímsson.

Læt ég nú lokið annál vorannar 2007 og óska ykkur sem útskrifist frá skólanum til hamingju með þann áfanga sem þið hafið náð um leið og ég hvet ykkur til að halda áfram að afla ykkur menntunar og þroska.

Við sem störfum hér í skólanum hlustum eftir fréttum af því þegar þið verðið sjálfum ykkur til sóma og skólanum um leið. Þið megið vera stolt af að hafa lokið námi við Fjölbrautaskóla Vesturlands og við sem hér störfum viljum vera stolt af ykkur og því sem þið vinnið.

Atli Harðarson