Annáll vorannar 2006 við Fjölbrautaskóla VesturlandsKennsla við Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2006 hófst mánudaginn 9. janúar. Daginn áður höfðu nemendur fengið stundatöflur sínar afhentar.
Að jafnaði eru heldur færri nemendur í skólanum á vorönn en á haustönn. Í upphafi skólaársins voru þeir rúmlega sex hundruð talsins en við upphaf vorannar var tala nemenda 542. Svo undarleg sem sú tilviljun er voru þeir líka 542 í upphafi vorannar 2005 og 2004. En þótt nemendafjöldi hafi verið sá sami í upphafi annar nú og í janúar undanfarin ár voru þeir að þessu sinni nokkru færri undir lokin, því brottfall var með meira móti nú á vorönninni. Frá því töflubreytingum lauk og þar til próf byrjuðu hætti 31 nemandi í skólanum og til viðbótar skráði 51 nemandi sig úr einstökum áföngum. Úrsagnir nemenda úr skóla og úr einstökum áföngum urðu til þess að námshópar minnkuðu að meðaltali um 7,6%. Til samanburðar má nefna að á vorönn 2005 var brottfallið 6,5% og á vorönn 2004 aðeins 5,3%.Um það bil 65% af nemendum skólans eiga lögheimili á Akranesi og um 30% á öðrum stöðum á Vesturlandi. Rúm 50% nemenda stunda nám til stúdentsprófs og rúm 30% eru á iðn- og starfsnámsbrautum og tæp 20% á almennri námsbraut. Kynjaskipting er nokkuð jöfn en 51% nemenda eru piltar og 49% stúlkur.
Í upphafi annar urðu þær breytingar á starfsliði skólans að Þröstur Þór Ólafsson kennari fór í leyfi til vors. Í stað hans var Jóhann Þóroddsson ráðinn til að kenna málmiðnagreinar. Einnig voru ráðnir þrír stundakennarar að skólanum: Anna Leif Elídóttir sem kenndi á starfsbraut, Anna Lára Steindal sem kenndi siðfræði á sjúkraliðabraut og Ólöf Sverrisdóttir sem kenndi leiklist. Ísabella Lárusdóttir lét af störfum í mötuneyti skólans og í stað hennar var Helga Guðmundsdóttir ráðin.
*
Meðal þess sem helst bar til tíðinda á önninni er að lokið var endurnýjun á kennsluhúsnæði þar sem gömlu skólahúsin tengjast nýbyggingu Vallholtsmegin á skólalóðinni. Með þessum breytingum hefur skólinn meðal annars fengið afar fullkomna aðstöðu til verklegrar kennslu í raunvísindum og er aðbúnaður náttúrufræðibrautarinnar hér því orðinn eins og best gerist við íslenska framhaldsskóla.
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla er orðin fastur liður í skólastarfinu á vorönn. Að þessu sinni fór hún fram 22. febrúar og tóku 175 nemendur þátt í keppninni. Talsvert fleiri voru skráðir til leiks en sumir komust ekki vegna óveðurs. Eins og undanfarin ár voru það stærðfræðikennarar skólans undir forystu deildarstjóra síns, Bjarnþórs G. Kolbeins, sem önnuðust framkvæmd keppninnar.
Samstarf við skóla í öðrum löndum er líka orðinn fastur liður í starfi Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nú á vorönn komu hingað í heimsókn 3 nemendur og 3 kennarar úr framhaldsskóla í Nice í Frakklandi og kynntu sér orkumál og virkjanir hér á landi. Frá okkur fóru í staðinn 4 nemendur og 2 kennarar í rafiðngreinum til Frakklands og Mónakó. Ferðir þessar voru kostaðar af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og undirbúning fyrir okkar hönd annaðist Kristján E. Guðmundsson sem hefur umsjón með samskiptum skólans við erlendar menntastofnanir.
Fjölbrautaskóli Vesturlands er stöðugri þróun. Hann bregst hratt við nýjum þörfum samfélagsins, nemendanna og atvinnulífsins. Nýjungarnar eru einhvern vegin svo sjálfsagðar að stundum finnst okkur eins og taki því varla að nefna þær. Nú í vetur var til dæmis boðið upp á verklegt nám í bygginga- og mannvirkjagreinum á helgarnámskeiðum fyrir fólk í fullri vinnu. Frumkvæði að þessari nýbreytni áttu kennarar í byggingagreinum, þeir Sigurgeir Sveinsson og Steinn Mar Helgason. Í sumar verður innritað í sjúkraliðanám sem verður sniðið að þörfum nemenda sem þurfa að stunda fulla vinnu með námi og búa annars staðar en á Akranesi.
Undanfarið ár hafa íþróttakennarar við skólann unnið að því undir forystu Önnu Bjarndóttur deildarstjóra í íþróttagreinum að gera kennslu í líkamsrækt fjölbreytilegri og koma þannig til móts við ólíkan áhuga og ólíka getu og á þeirri önn sem nú er að ljúka var boðið upp á fjóra mismunandi íþróttaáfanga fyrir nemendur sem hafa lokið fyrsta árs námsefninu. Enn eru nýjungar á döfinni í íþróttamálum því á næstu önn verður boðið upp á samþættingu náms og knattspyrnuæfinga fyrir afreksmenn í þeirri íþrótt, og hefur skólinn samið um aðstöðu til þess í nýja íþróttahúsinu sem nú rís á Jaðarsbökkum. Hugmyndir um samþættingu framhaldsskólanáms og knattspyrnuæfinga hafa komið úr ýmsum áttum en ég held að ekki sé á neinn hallað þótt kennurunum Hafliða Páli Guðjónssyni og Eiríki Guðmundssyni sé þakkað sérstaklega fyrir að fylgja málinu eftir.
Ýmislegt fleira þróunarstarf er í gangi við skólann. Allt þetta skólaár hefur hópur sjö kennara unnið með aðstoðarskólameistara að endurbótum á aðferðum við gæðamat í skólanum. Þessir kennarar eru Anna Bjarnadóttir, Bjarnveig Ingvarsdóttir, Garðar Norðdahl, Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, Hjálmur Geir Hjálmsson, Kristján E. Guðmundsson og Ursula Karlsdóttir. Samhliða starfi þessa hóps hefur verið unnið að endurskoðun á markmiðskafla skólanámskrár og mun skýrari markmiðssetning og skilvirkara gæðamat væntanlega efla starf skólans á næstu árum.
*
Þann 26. apríl undirrituðu fulltrúar kennarafélags skólans og skólastjórnendur samning um launakjör kennara. Fram að því höfðu kjör kennara að mestu verið ákvörðuð af miðlægum kjarasamningi stéttarfélags við fjármálaráðherra. Með vinnustaðasamningum um röðun kennara í launaflokka og greiðslur fyrir störf þeirra er stigið mikilvægt skref í átt að auknu rekstrarlegu sjálfstæði skólans.
*
Félagslíf nemenda var öflugt eins og undanfarin ár. Árshátíð nemendafélagsins fór fram með miklum glæsibrag í tengslum við opna daga í byrjun mars. Tveim dögum eftir árshátíð, laugardaginn 4. mars, frumsýndi Leiklistarklúbbur nemendafélagsins söngleikinn Vegas. Texti söngleiksins er eftir Ólaf Sk. Þorvaldz sem jafnframt var leikstjóri en tónlistin er vel þekkt lög eftir meistara á borð við Deep Purple, Rolling Stones og Pearl Jam. Tókst flutningurinn hið besta og þegar einn leikenda, Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir sem stundar nám á félagsfræðabraut hér við skólann, mætti með lag úr söngleiknum í söngvakeppni framhaldsskólanna fór hún með sigur af hólmi. Sigur Helgu Ingibjargar er ein af mörgum staðfestingum sem við höfum fengið á því hvað tónlistarlíf meðal nemenda okkar stendur með miklum blóma.
Um mánaðamót mars-apríl var forvarnavika í samvinnu nemendafélags fjölbrautaskólans, félagsheimila, tómstundahúss og unglingadeilda grunnskólanna á Akranesi og í Borganesi. Í tilefni hennar var nemendum boðið upp á hollar og mannbætandi skemmtanir eins og tónleika, kaffihúsakvöld og sundlaugarpartí.
Í aðalstjórn nemendafélagsins á því skólaári sem nú er að ljúka voru Stefán Halldór Jónsson formaður, Maren Lind Másdóttir gjaldkeri, Jón Steinar Guðlaugsson ritari og Högni Haraldsson meðstjórnandi. Stjórnarkjör í félaginu fer fram í lok vorannar og þau sem voru kjörin til forystu á næsta skólaári eru Þór Birgisson formaður, Rúnar Ólason gjaldkeri, Ragnheiður Friðriksdóttir ritari og Steinunn Eik Egilsdóttir meðstjórnandi. Væntum við góðs af starfi þeirra næsta vetur og treystum því að félagslíf nemenda haldi áfram að þróast með heillavænlegum hætti.
*
Læt ég nú lokið annál vorannar 2006 og óska útskriftarnemum til hamingju með þann áfanga sem þeir hafa náð um leið og ég hvet þá til að halda áfram að afla sér menntunar og þroska.
Atli Harðarson