Annáll vorannar 2005 við Fjölbrautaskóla Vesturlands

Kennsla við Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2005 hófst fimmtudaginn 6. janúar. Daginn áður höfðu nemendur fengið stundatöflur sínar afhentar. Að þessu sinni voru gerðar töflur fyrir 542 nemendur sem er sami fjöldi og við upphaf vorannar 2004. Tæpur helmingur, eða 47% nemenda var á stúdentsbrautum, 23% á iðnbrautum, 18% á almennri námsbraut og 12% á öðrum brautum. Um 97% nemenda eiga lögheimili á Vesturlandi þar af um tveir þriðju á Akranesi.

Að jafnaði eru heldur færri nemendur í skólanum á vorönn en á haustönn. Á þessu skólaári er mismunurinn á fjölda við upphaf haust- og vorannar 70 nemendur, því í byrjun haustannar voru 612 nemendur í skólanum.

Fyrir flesta nemendur lauk skólastarfi á vorönn þann 19. maí þegar þeir fengu einkunnir sínar afhentar. Önninni lýkur þó með formlegum hætti nú í dag þegar 50 nemendur verða brautskráðir frá skólanum. Af þeim sem nú útskrifast ljúka 28 stúdentsprófi, 18 burtfararprófi af iðnbraut, 2 af viðskiptabraut, 1 af sjúkraliðabraut og 1 lýkur ársnámi sem skiptinemi.

Þeir 28 nemendur sem nú ljúka stúdentsprófi hafa allir tekið tvö samræmd stúdentspróf en nú á vorönn 2005 var stúdentsefnum í fyrsta sinn skylt að taka samræmd próf.

*

Í byrjun janúar voru teknar í notkun fimm nýjar kennslustofur á neðri hæð í nýbyggingu skólans. Ráðgert er að í sumar verði lokið smíði á kennslustofum á efri hæð nýbyggingarinnar sem og nýju anddyri, lyftu og gangvegi úr efri hæð B-byggingar í efri hæð C-byggingar. Á næstu haustönn verður svo unnið að breytingum á stofum sem nú heita C201 til C204.

*

Þriðjudaginn 22. febrúar heimsótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skólann ásamt nokkrum embættismönnum úr ráðuneytinu og hélt fund með kennurum. Fundarefni var stytting námstíma til stúdentsprófs og breytingar á framhaldsskólum í tengslum við hana. Fundurinn þótti takast vel, umræður voru miklar og málaefnalegar og ráðherra og ráðuneytismenn svöruðu spurningum kennara.

Daginn eftir heimsókn ráðherra hófust opnir dagar sem svo eru nefndir. Í þrjá daga er þá ekki kennt eftir stundaskrá heldur boðið upp á námskeið og kynnisferðir sem of langt yrði upp að telja en fremst á listanum voru box, bridge og bútasaumur og aftast þæfing og þungarokk. Í undirbúningsnefnd opinna daga voru kennararnir Dröfn Viðarsdóttir, Linda Dröfn Jóhannesdóttir og Gunnar Magnússon og nemendurnir Eyrún Eva Haraldsdóttir, Friðmey Jónsdóttir, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Vala María Ingólfsdóttir og Vera Líndal Guðnadóttir.

Meðan nemendur Fjölbrautaskólans tóku þátt í dagskrá opnu dagana buðu stærðfræðikennarar nemendum í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi til stærðfræðikeppni. Keppni þessi er upprunninn við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og haldin samtímis við nokkra framhaldsskóla. Þetta var í sjöunda sinn sem keppnin var haldin hér við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þátttakendur voru alls 224 úr 11 grunnskólum.

Dagskrá opinna daga lauk með árshátíð nemendafélagsins föstudagskvöldið 25. febrúar en hún er annar af stærstu viðburðunum í félagslífi nemenda á hverri vorönn. Hinn er leiksýning. Að þessu sinni sýndi leiklistarklúbbur nemendafélagsins leikritið Stæltu stóðhestana eftir Nýsjálendingana Anthony McCarten og Stephen Sinclair. Frumsýning var 8. apríl. Leikstjóri var Ingrid Jónsdóttir og leikendur Björn Dan Karlsson, Elvar Árni Þrastarson, Guðmundur Ó. Kristjánsson, Jón Gunnar Garðarsson, Jón Gústi Jónsson, Jón Ingi Þrastarson, Viðar Freyr Viðarsson og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir.

Síðasti viðburðurinn í félagslífi á vegum nemendafélagsins á þessari önn var lokaballið 29. apríl. Þar var tilkynnt um úrslit kosninga sem fram fóru fyrr um daginn. Þá kusu félagsmenn í nemendafélaginu nýja aðalstjórn. Þrír listar voru í framboði. Sigurvegarar kosninganna voru Stefán Halldór Jónsson sem var kjörinn formaður, Maren Lind Másdóttir, Jón Steinar Guðlaugsson og Högni Haraldsson. Þessir fjórmenningar munu því halda um stjórnartauma í nemendafélaginu á næsta skólaári.

Eins og jafnan tóku nemendur skólans þátt í félagslífi framhaldsskólanema á landsvísu, svo sem spurningakeppni, söngvakeppni og íslandsmóti iðnnema. Tveir af okkar mönnum komu heim með verðlaun af íslandsmóti iðnnema. Þetta voru þeir Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson og Sturlaugur A. Gunnarsson. Sá fyrrnefndi útskrifast héðan í dag og sá síðarnefndi gegndi formennsku í nemendafélagi skólans á skólaárinu sem nú er að ljúka.

*

Þann 19. apríl, komu Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst og Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga í heimsókn í Fjölbrautaskóla Vesturlands og sátu fund með Herði Ó. Helgasyni skólameistara, Atla Harðarsyni aðstoðarskólameistara, Hannesi Þorsteinssyni deildarstjóra í raungreinum og Dröfn Viðarsdóttur deildarstjóra í viðskiptagreinum. Á fundinum var rætt um möguleika á samstarfi háskóla og framhaldsskóla á Vesturlandi og hvernig skólarnir geti haft gagn og stuðning hver af öðrum. Fundarmenn skiptust á hugmyndum og ákváðu að hittast aftur á haustönn, en þá mun Guðbjörg boða sömu aðila til fundar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Með þessum fundi var stigið ofurlítið skref í þá átt að styrkja tengsl Fjölbrautaskólans við nágrenni sitt. En aukin tengsl við fyrirtæki, stofnanir og mannlíf á svæðinu er eitt þeirra markmiða sem skólinn hefur sett sér til næstu tveggja ára.

*

Fjölbrautaskóli Vesturlands þjónar breiðum hópi nemenda með misjafna getu, ólíkar þarfir og margvísleg hugðarefni. Til að rækja skyldur sínar við alla nemendur þarf starfsfólk skólans sífellt að halda vöku sinni, vera reiðubúið að tileinka sér nýja þekkingu og ný vinnubrögð og gæta þess að hver nemandi finni að hann skipti máli og okkur þyki mikilvægt að hann vinni vel og nái árangri. Nýbreytni og þróunarstarf er því ekki undantekning eða tilbreyting frá daglegri vinnu heldur stór hluti af starfi skólans. Meðal nýjunga sem teknar hafa verið ákvarðanir um fyrir næstu önn er að bjóða upp á kennslu á tveim nýjum námsbrautum. Þessar brautir eru annars vegar félagsmála- og tómstundabraut og hins vegar tölvufræðibraut. Ákveðið var að bjóða upp á þessar tvær brautir eftir að fyrir lágu niðurstöður könnunar á áhuga og þörfum ungs fólks í fjórðungnum sem Steinunn Eva Þórðardóttir vann fyrir skólann á síðasta ári. Þessi könnun var kostuð með styrk úr þróunarsjóði framahaldsskóla. Nú í vor fékk skólinn aftur styrk úr sama sjóði til að endurskoða vinnubrögð við gæðamat.

Á vorönn 2003 var mótað kerfi til að vinna heildstætt mat á starfi skólans. Eftir þessu kerfi hefur nú verið unnið í tvö ár og í ljós hafa komið ýmsir hnökrar á því. Styrkurinn verður notaður til að laga þá og bæta matskerfið sem unnið er eftir. Verkið verður unnið í sumar og haust undir leiðsögn dr. Sigurlínu Davíðsdóttur lektors í uppeldis- og menntunarfræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands en skólinn hefur samið við hana um að hún veiti sérfræðilega ráðgjöf.

*

Læt ég nú lokið annál vorannar 2005 og óska útskriftarnemum til hamingju með þann áfanga sem þeir hafa náð um leið og ég hvet þá til að halda áfram að afla sér menntunar og þroska.

Atli Harðarson