Kennsla við Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2004 hófst þann 8. janúar. Í upphafi annar voru nemendur á Akranesi um það bil 560 og við framhaldsdeildina í Stykkishólmi voru þeir rúmlega 20 talsins. Þetta er svipaður fjöldi og á vorönn undanfarin ár.
Nemendahópurinn skiptist þannig að 20% voru á almennri námsbraut, 44% á stúdentsbrautum, 24% á iðnbrautum, 5% á viðskiptabraut, 3% á sjúkraliðabraut og samtals um 4% á öðrum brautum.
Kennt var á sömu námsbrautum og síðasta skólaár að öðru leyti en því að nú bættist við námsbraut í rafsuðu og voru sérgreinar þeirrar brautar kenndar í samráði við Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Kennslan fór fram að kvöldlagi og nemendur voru flestir nokkuð eldri en þorri þeirra sem hér sækir tíma fyrripart dags.
Fyrir flesta nemendur lauk skólastarfi á vorönn þann 19. maí þegar þeir fengu einkunnir sínar afhentar. Önninni lýkur þó með formlegum hætti nú í dag þegar 47 nemendur útskrifast frá skólanum, þar af einn skiptinemi.
*
Fjölbrautaskóli Vesturlands starfar samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaga í fjórðungnum. Þegar samningurinn var endurnýjaður í maí árið 1998 skrifuðu fulltrúar 20 sveitarfélaga undir hann. Í byrjun þessa árs höfðu sveitarfélögin á norðanverðu Snæfellsnesi sagt samningnum upp enda mun nýr framhaldsskóli í Grundarfirði hefja störf næsta haust. Þetta markar þáttaskil í sögu skólans því Stykkishólmsdeildin verður lögð niður. Á þessum tímamótum færum við stafsfólki framhaldsdeilda á Snæfellsnesi þakkir fyrir samstarfið á liðnum árum um leið og við óskum Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði heilla og farsældar.
*
Í desember hófust framkvæmdir vegna nýbyggingar sem rís Vallholtsmegin á skólalóðinni og mun hýsa 10 kennslustofur þar sem meðal annars verður aðstaða til að kenna raungreinar. Loftorka hf. Borgarnesi vinnur fyrri hluta verksins og mun skila húsinu fokheldu í september. Föstudaginn 30. apríl voru opnuð tilboð í seinni áfanga byggingarinnar og buðu 4 fyrirtæki í verkið.
*
Skólastarf á vorönn 2004 gekk samkvæmt áætlun og stórtíðindalaust. Eins og undanfarnar annir hafði skólinn töluverð samskipti við menntastofnanir í öðrum löndum. Í mars komu 4 nemendur og 1 kennari frá verkmenntaskólanum í Kemi-Tornio í Finnlandi í heimsókn. Nemendurnir dvöldu í tvær vikur. Í apríl heimsóttu okkur svo 2 nemendur og 1 kennari frá Palmcrantzskolan í Östersund á Vermalandi í Svíþjóð og dvöldu nemendurnir í tvær vikur. Í báðum tilvikum var um að ræða nemendur í verknámi og báðar heimsóknirnar voru styrktar af norrænum sjóðum. Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur áður haft samskipti við þessa sömu skóla í Finnlandi og Svíþjóð og nemendur og kennarar á verknámsbrautum hér hafa heimsótt þá. Kristján Guðmundsson félagsfræðikennari hefur umsjón með erlendum samskiptum og sá hann um móttökur og skipulag þessara heimsókna.
Þann 1. mars, hélt Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands opin fræðslufund á sal skólans og var hann vel sóttur. Á fundinum flutti Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur erindi um samskipti foreldra við börn og unglinga.
Hin árlega stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi var haldin miðvikudaginn 18. febrúar. Keppni þessi er upprunnin hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Hún er haldin samtímis við framhaldsskóla víða um land. Þetta er í sjötta sinn sem unglingum af Vesturlandi gefst kostur á að taka þátt í keppninni. Alls voru 285 unglingar úr 14 skólum skráðir til keppni og hafa aldrei verið fleiri. Undirbúning og skipulag keppninnar og yfirferð úrlausna önnuðust stærðfræðikennarar skólans undir forystu Bjarnþórs G. Kolbeins deildarstjóra í stærðfræði.
Eins og fyrri ár voru þeim nemendum sem stóðu sig best í stærðfræðikeppninni veitt peningaverðlaun sem gefin voru af fyrirtækjum á Vesturlandi. Eigendur og yfirmenn fyrirtækja í fjórðungnum hafa jafnan brugðist við af rausnarskap þegar við höfum leitað til þerra og beðið þá að styrkja keppnina. Er gott til þess að vita að skólinn eigi velvild og vinarhug hjá forystumönnum í atvinnulífi á svæðinu.
*
Félagslíf nemenda var með glæsibrag eins oft áður. Meðal þess sem hæst bar á önninni var sýningar leiklistarklúbbs á Kardimommumbænum eftir Thorbjörn Egner. Leikstjóri var Jón Páll Eyjólfsson. Rúmlega 30 leikarar komu fram í sýningunni og meira en 50 nemendur komu að verkefnum sem tengjast henni, svo sem tónlist, förðun, leikmynd, leikskrá, búningum, lýsingu, sviðsmynd og hárgreiðslu. Í stjórn leiklistarklúbbs voru Elsa Jóhannsdóttir Kiesel, Þór Bínó Friðriksson og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir. Framkvæmdastjórar sýningarinnar voru Bjarki Þór Guðmundsson, Sturlaugur A. Gunnarsson og Þór Bínó Friðriksson.
Opnir dagar voru 25. til 27. febrúar en á slíkum dögum sem jafnan eru um miðja vorönn er ekki kennt samkvæmt venjulegri stundatöflu heldur boðið upp á ýmis námskeið. Að þessu sinni var áhersla lögð á listir og skapandi starf. Skipulag og undirbúningur var í höndum kennaranna Önnu Bjarnadóttur, Önnu Láru Steindal, Helenu Valtýsdóttur og Hjördísar Árnadóttur og nemendanna Auðar Ingu Ingimarsdóttur, Jónínu Svavarsdóttur, Þorkels Steindal, Karítasar Jónsdóttur, Sigurlaugar Kjartansdóttur og Soffíu Helgadóttur. Þessa daga í lok febrúar var líka haldin söngvakeppni og árshátíð á vegum nemendafélagsins. Í fyrsta sæti í söngvakeppninni var Elsa Jóhannsdóttir Kiesel sem nú útskrifast frá skólanum. Undirbúning og skipulag árshátíðar önnuðust nemendurnir Valgerður Valsdóttir, Ragnheiður Þórðardóttir, Unnur Jónsdóttir, Sigrún Guðnadóttir og Tinna Björg Kristinsdóttir.
Of langt yrði upp að telja allt sem gerst hefur í félags- og menningarlífi nemenda á önninni. Héðan fór lið á Íslandsmót iðnnema sem haldið var í Iðnskólanum í Hafnarfirði og þar vann Svanur Þór Sigurðsson til verðlauna í rafvirkjun. Nemendur héðan komust nokkuð langt í spurningakeppninni Gettu betur en biðu loks lægri hlut fyrir liði Verzlunarskóla Íslands. Gettu-betur-lið skólans var skipað þeim Heiðari Lind Hanssyni, Jóhannesi Guðbrandssyni og Þóru Geirlaugu Bjartmarsdóttur.
Eins og jafnan hélt nemendafélagið böll og kaffihúsakvöld. Stjórn félagsins, sem hélt utan um þetta allt saman, var skipuð þeim Birnu Björnsdóttur, Eyjólfi Ingva Bjarnasyni, Jónínu Svavarsdóttur, Mána Atlasyni, Ragnheiði Björnsdóttur og Runólfi Óttari Kristjánssyni. Tvö þau fyrsttöldu, Birna og Eyjólfur útskrifast frá skólanum í dag. Fyrir nokkru var ný stjórn nemendafélagsins kjörin og mun hún annast umsjón með félagslífinu næsta vetur. Hana skipa: Sturlaugur Agnar Gunnarsson, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Axel Már Karlsson og Steinar Helgason.
*
Námsframboð við Fjölbrautaskóla Vesturlands er fjölbreytilegt. Hér er hægt að stunda allar gerðir af bóknámi til stúdentsprófs, iðnnám í bygginga-, rafiðna og málmiðnagreinum og nám á ýmsum starfstengdum brautum svo sem viðskipta-, uppeldis- og sjúkraliðabraut. Auk þess býður skólinn upp á almenna námsbraut og nám á starfsbraut fyrir fatlaða nemendur. Hann leitast við að mæta þörfum sem flestra íbúa á svæðinu fyrir kennslu á framhaldsskólastigi. Þessar þarfir breytast sem tímar líða. Því er nauðsynlegt að endurskoða námsframboð skólans af og til.
Snemma á þessu ári, þegar menntamálaráðuneytið auglýsti eftir umsóknum um styrki til þróunarstarfs í framhaldsskólum, sótti skólinn um styrk til að vinna rannsókn á þörf fyrir starfsmenntun á Vesturlandi. Alls bárust ráðuneytinu 95 umsóknir og ákvað ráðherra að veita styrk til 35 verkefna, þar á meðal verkefnis Fjölbrautaskóla Vesturlands sem hér um ræðir. Ráðgert er að vinnan við rannsóknina hefjist í sumar og henni ljúki í september. Niðurstöður verða notaðar til að endurskoða námsframboð skólans og vinna áætlun um stofnun nýrra námsbrauta.
*
Læt ég nú lokið annál vorannar 2004 og óska útskriftarnemum til hamingju með þann áfanga sem þeir hafa náð um leið og ég hvet þá til að halda áfram að afla sér menntunar og þroska.
Atli Harðarson