Atli Harðarson
Annáll vorannar 2002

Útskriftarnemar, ágætu gestir!
Margt bar til tíðinda á þeirri önn sem nú er að ljúka. Bókasafn skólans flutti í nýtt húsnæði og unnið var að breytingum á eldra húsnæði safnsins en þar verður vinnuaðstaða og aðgangur að tölvum fyrir nemendur.
    Stofnuð var ný námsbraut við skólann, stóriðjubraut sem starfrækt verður í samvinnu við Norðurál og Íslenska Járnblendifélagið. Einnig hófst samvinna Fjölbrautaskólans, Símenntunarmiðstöðvarinnar og Garðyrkjuskóla ríkisins en þessar þrjár stofnanir munu standa saman að námi fyrir umsjónarmenn íþrótta- og golfvalla. Í tengslum við þetta samstarf bættist enn ein námsbraut við í skólanámskránni okkar og nefnist hún grasvallabraut.
    Á næsta skólaári verður fitjað upp á fleiri nýjungum í skólastarfinu. T.d. verður boðið upp á sérstakan stuðningsáfanga fyrir nemendur sem glíma við lestrarerfiðleika. Einnig verður nemendum með afburða námshæfileika gefinn kostur á að ljúka stúdentsprófi á þrem árum. Hingað til hefur einn og einn nemandi gert þetta en þessir fáu hafa fundið sínar eigin leiðir til að klára nám á skemmri tíma án sérstaks stuðnings frá skólanum.
    Eins og undanfarin ár var haldin stærðfræðikeppni fyrir nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja grunnskóla á Vesturlandi. Hún fór fram hér í skólanum miðvikudaginn 27. febrúar. Alls voru rúmlega 180 unglingar skráðir til keppni sem er talsvert fleiri en undanfarin ár. Stærðfræðikeppnin er orðin fastur liður í starfi skólans og styrkir tengsl hans við grunnskóla á Vesturlandi.
    Þann 18. febrúar færðu hjónin Sigrún Halla Karlsdóttir og Kristján Sveinsson skólanum milljón krónur að gjöf til minningar um son sinn Karl Kristin Kristjánsson, en hann lést af slysförum þann 10. apríl árið 2000. Vexti af þessu fé skal nota til að veita viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum eða til verkefnis innan skólans sem kemur félagslífi nemenda til góða. Standa vonir til að hann verði lyftistöng fyrir heilbrigt og uppbyggilegt félagslíf meðal nemenda.
    Það sem hæst bar í félagslífi nemenda á þessari önn var stórglæsileg árshátíð og vel heppnuð leiksýning en leiklistarklúbbur nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands sýndi Grænjaxla eftir Pétur Gunnarsson. Leikstjóri var Sigríður Árnadóttir. Orri Harðarson stjórnaði tónlistarflutningi. Einnig má nefna að nemendur skólans tóku þátt í tónlistarkeppni, keppni í flutningi franskra ljóða, keppni í málmsuðu o. fl. fl. sem of langt yrði upp að telja.
    Það er kunnara en frá þurfi að segja að neysla vímuefna spillir lífsgleði og heilsu nokkurra nemenda við þennan skóla eins og aðra. Til að vinna gegn þessu böli var ráðinn forvarnafulltrúi við skólann síðasta sumar. Öllum sem starfa að þessum málum er ljóst að það er þungt að róa gegn straumnum en því fleiri sem leggjast á árarnar því betur miðar og þess vegna er það mikið fagnaðarefni að á þessari önn hóf jafningjafræðslan á ný starf hér við skólann. Stjórn foreldrafélagsins hefur einnig sýnt áhuga á forvarnastarfi. Vil ég nota tækifærið og hvetja þá foreldra sem mál mitt heyra og munu eiga unglinga í skólanum næsta vetur til að taka virkan þátt í starfi foreldrafélagsins og mæta á fundi sem það boðar. Einnig hvet ég unglinga til þátttöku í starfsemi jafningjafræðslunnar.
    Samskipti skólans við menntastofnanir í öðrum löndum hafa vaxið mikið á þessu skólaári. Í febrúar fóru 2 kennarar við rafiðnadeild skólans í námsferð til Kaupmannahafnar. Í apríl komu hingað 9 nemendur og einn kennari frá Muurame í Finnlandi og nú í maí komu 2 kennarar frá Finnlandi og 4 frá Ítalíu í heimsókn.
    Þann 20. apríl fóru 20 nemendur af iðnbrautum skólans í 3 vikna námsferð til Danmerkur. Einnig heimsóttu 6 kennarar af málm- og tréiðnabrautum skóla í Danmörku. Í júní munu svo 8 nemendur í rafeindavirkjum og 3 kennarar heimsækja skóla og fyrirtæki í Mílanó á Ítalíu.
    Nú hef ég tæpt á nokkru því fréttnæmasta úr starfi skólans á liðinni önn. Það fréttnæmasta er þó ekki endilega það sem mestu varðar. Aðalatriðið er vitaskuld að hér hafa nokkur hundruð nemendur stigið skref fram á við á menntabrautinni. 60 þeirra eru að útskrifast í dag. Ég trúi því að þessu hópur eigi bjarta framtíð. Hann hefur dugnað og hæfileika til að vinna áfram að eigin þroska og verða náunga sínum og samfélagi  til gagns.
    Nú í lok vorannar lætur Snjólaugur Þorkelsson af störfum, en hann hefur starfað við skólann frá stofnun hans. Einnig hverfur Magnús Einarsson héðan og hefur störf við Borgarholtsskóla í haust. Við sem eftir sitjum óskum Snjólaugi og Magnúsi velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jóhanna Hálfdansdóttir frönskukennari verður í námsorlofi á næsta skólaári. Í stað hennar hefur Katrín Jónsdóttir MA verið ráðin til starfa. Ólafur Haraldsson og Hannes Þorsteinnson sem voru í leyfi á þessu skólaári koma aftur til starfa í haust.
    6. febrúar átti skólinn afmæli því þá voru 15 ár liðin síðan sveitarfélög á Vesturlandi og menntamálaráðuneytið gerðu samning um rekstur skólans og nafni hans var breytt úr Fjölbrautaskólinn á Akranesi í Fjölbrautaskóli Vesturlands.
Á þessu ári á skólinn raunar tvöfalt afmæli því í haust verða liðin 25 ár frá stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi sem var settur í fyrsta sinn 12. september 1977.
    Nú á morgunn, 23. maí, er enn eitt afmælið því þá hefði Þórarinn heitinn Ólafsson orðið níræður. Þórarinn var ráðinn kennari við Gagnfræðaskólann og Iðnskólann á Akranesi 1945. Hann kenndi við Fjölbrautaskólann frá stofnun hans til ársins 1979. Eftir það starfaði hann á bókasafni skólans til 1991. Samfelldur starfsferill Þórarins við skólana hér á Akranesi spannar því rúm 45 ár. Þórarinn lést þann 8. janúar árið 1995.
    Það gagn sem Þórarinn vann skólunum á Akranesi verður seint að fullu metið. Hann sameinaði þá mannkosti sem góður skóli ætti að meta öllu öðru fremur og innræta nemendum sínum. Því er vel við hæfi nú árið 2002, þegar Þórarinn er níræður og aldarfjórðungur er liðinn frá stofnun Fjölbrautaskólans á Akranesi, að stofna sjóð honum til heiðurs.
    Minningarsjóður Þórarins Ólafssonar verður formlega stofnaður við setningu Fjölbrautaskólans í ágúst. Sjóðurinn verður í vörslu skólameistara. Hann skal nota til að styrkja verkefni sem unglingar vinna á sviði íslenskrar náttúrufræði, þjóðfræði eða sögu. Styrki verður til dæmis hægt að nota til að kosta ferðir eða kaupa efni og gögn til rannsókna sem nemendur vinna sem hluta af námi í greinum sem tengjast landinu, náttúru þess og sögu.
    Þeir sem skrá sig á lista fyrir 17. júní 2002 verða stofnendur Minningarsjóðs Þórarins Ólafssonar. Með undirskrift skuldbinda stofnendur sig til að greiða 2.000 krónur í sjóðinn. Listar liggja hér frammi.
    Þeir sem skrá sig á lista heiðra í senn minningu Þórarins og fagna afmæli skólans.
    Lýk ég nú þessu spjalli, árna útskriftarnemum heilla og þakka öðrum gestum komuna.