Annáll haustannar 2006 við Fjölbrautaskóla Vesturlands

Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur miðvikudaginn 23. ágúst. Þann sama dag fengu nemendur afhentar stundaskrár. Regluleg kennsla hófst svo morguninn eftir, fimmtudaginn 24. ágúst.

Stundatöflurnar sem nemendur fengu voru að því leyti öðru vísi en undanfarin ár að nú hófst skóladagurinn klukkan 8:30 en ekki klukkan 8. Fyrir þessari nýbreytni voru ýmsar ástæður en sú sem vó þyngst var að með því að byrja kennsluna klukkan hálf níu var nemendum sem búa sunnan Hvalfjarðar gert kleift að koma með strætisvagni og mæta samt á réttum tíma í skólann.

Í upphafi annar var 601 nemandi innritaður í skólann, þar af 163 nýnemar sem luku tíunda bekk grunnskóla í vor. Nú í annarlok hefur nemendum fækkað ögn og þegar taldir eru saman þeir sem hafa horfið frá námi á önninni og þeir sem hætt hafa í einstökum áföngum er brottfall nemenda um það bil 8%. Þetta er talsvert meira brottfall en undanfarin haust og verulegt áhyggjuefni fyrir starfsfólk skólans og samfélagið allt.

*

Nokkrar breytingar urðu á starfsliði skólans í sumar. Þórólfur Ævar Sigurðsson íþróttakennari lét af störfum. Í hans stað var Helgi Magnússon ráðinn til að kenna Íþróttir. Harpa Hreinsdóttir íslenskukennari er í námsleyfi í vetur. Í stað hennar kom Inga Sigurðardóttir.

Steingrímur Benediktsson var ráðinn til kennslu í raungreinum og tölvugreinum, Gísli Björnsson til kennslu í bygginga- og mannvirkjagreinum og Edda Einarsdóttir til kennslu á starfsbraut.

Auk þeirra Eddu, Gísla, Helga, Ingu og Steingríms sem komu í fullt starf við kennslu í upphafi haustannar voru tveir kennarar ráðnir í hlutastarf: Jónína Halla Víglundsdóttir í heilbrigðisgreinum og Gísli Þráinsson í bygginga- og mannvirkjagreinum. Ennfremur kom kennari frá Þýskalandi, Antonia Jung, að skólanum á haustönn og var til aðstoðar við þýskukennslu.

Aðrar breytingar á starfsliði voru að Rúna Björk Gísladóttir kom aftur til starfa á skrifstofu eftir barneignarleyfi og Kristbjörg Kjerúlf kom aftur til starfa við ræstingar eftir ársleyfi.

*

Þótt skólinn hafi verið settur með formlegum hætti 23. ágúst hófst kennsla fyrir eldri nemendur í húsasmíði nokkrum dögum fyrr, því þeir sóttu verklega tíma á trésmíðaverkstæði skólans helgina á undan. Undanfarin misseri hefur verið vaxandi aðsókn að námi í húsasmíði. Hluti nemendanna nýtur verklegrar kennslu um helgar og tekur bóklega hlutann að mestu í fjarnámi. Með þessari tilhögun kemur skólinn til móts við þarfir fullorðinna sem vilja afla sér starfsmenntunar samhliða vinnu. Þetta er annað árið í röð sem skólinn býður upp á nám í húsasmíði með þessum hætti. Á annarri starfsmenntabraut, sem er sjúkraliðabrautin, hófst kennsla sem er löguð að þörfum fullorðins fólks nú í haust. Nemendurnir stunda fjarnám í bóklegum sérgreinum brautarinnar og mæta í staðbundnar lotur, sem eru heilir dagar frá morgni til kvölds, til að fá tilsögn í verklegum greinum og þeim þáttum námsins sem erfitt er að miðla um tölvunet. Nú eftir áramót bætist þriðja námsbrautin við þar sem hægt verður að stunda námið samhliða vinnu, en þá hefst fjarkennsla í sérgreinum viðskiptabrautar með staðbundnum lotum á laugardögum.

Skólinn er í sókn á fleiri sviðum en fullorðinsfræðslu. Nú í haust annaðist hann kennslu í náttúrufræði fyrir 10. bekk Brekkubæjarskóla. Nemendurnir komu hingað þrisvar í viku í tíma hjá Hannesi Þorsteinssyni og Steingrími Benediktssyni. Jafnframt hafði náttúrufræðikennari í 10. bekk Grundaskóla samráð við kennara hér. Þeir nemendur í tíundu bekkjum grunnskólanna sem stóðu sig best hafa þegar náð prófi í náttúrufræði 103 á framhaldsskólastigi og munu glíma við meira framhaldsskólanámsefni eftir áramót þegar þeir taka áfangann náttúrufræði 123. Þegar þessir nemendur koma hingað næsta haust verða þeir því með 6 fullgildar einingar í farteskinu. Þetta samstarf lofar góðu og vonir standa til að það auki áhuga unglinga á náttúruvísindum og auðveldi þeim duglegustu að ljúka framhaldsskólanámi á styttri tíma.

Samvinna Fjölbrautaskólans og grunnskólanna nær til fleiri sviða en náttúrufræðikennslu því nokkrir nemendur grunnskólanna taka hér einstaka áfanga í öðrum greinum. Þegar stundatöflur skólanna eru unnar er þess gætt að grunnskólanemar, sem lokið hafa samræmdum prófum í dönsku, ensku eða stærðfræði í 9. bekk, eigi þess kost að sækja tíma í þessum fögum í Fjölbrautaskólanum jafnframt náminu í 10. bekk.

*

Að venju hélt nemendafélagið böll, kaffihúsakvöld og íþróttamót. Stærsti viðburðurinn í félagslífi nemenda á önninni var föstudaginn 20. október. Dagurinn hófst á „skammhlaupi“ þar sem nemendur skiptust í lið og kepptu í tugum greina. Seinna um daginn hélt nemendafélagið sína árlegu hljómsveitakeppni í Bíóhöllinni. Að þessu sinni nefndist keppnin Námurokk. Hljómsveitin sem sigraði heitir Ypsilon. Hana skipa Aðalsteinn Árnason á trommur, Ylfa Flosadóttir söngvari, Sigurður Bachmann gítarleikari og Björn Breiðfjörð bassaleikari. Í öðru sæti var hljómsveitin Syna og í þriðja sæti hljómsveitin Darwin Blue. Ylfa Flosadóttir úr hljómsveitinni Ypsilon var valin besti söngvari keppninnar; Besti trommari Aðalsteinn Árnason sem trommaði bæði með Ypsilon og Synu; Besti gítarleikari Sigurður Bachmann úr hljómsveitinni Ypsilon; Besti bassaleikari Björn Breiðfjörð, einnig úr hljómsveitinni Ypsilon.

*

Eins og jafnan gáfust okkur sem störfum í skólanum fjölmörg tilefni til að vera stolt af nemendum okkar og gleðjast yfir árangri þeirra. Yrði of langt að telja þau öll svo hér læt ég duga að nefna að Íþróttasamband fatlaðra valdi tvo nemendur af starfsbraut skólans til þátttöku í „Special Olympics“ Evrópuleikunum sem fram fóru í Róm 30. september til 5. október. Þeir eru Andri Jónsson sem keppti í frjálsum íþróttum og Freyr Karlsson sem keppti í sundi.

*

Læt ég nú lokið annál haustannar 2006 og óska ykkur sem útskrifist frá skólanum til hamingju með þann áfanga sem þið hafið náð um leið og ég hvet ykkur til að halda áfram að afla ykkur menntunar og þroska. Við sem störfum hér í skólanum hlustum eftir fréttum af því þegar þið verðið sjálfum ykkur til sóma og skólanum um leið. Þið megið vera stolt af að hafa lokið námi við Fjölbrautaskóla Vesturlands og við sem hér störfum viljum vera stolt af ykkur og því sem þið vinnið.

Atli Harðarson