Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur þriðjudaginn 23. ágúst. Þann sama dag fengu nemendur afhentar stundaskrár. Regluleg kennsla hófst svo morguninn eftir, miðvikudag 24. ágúst.
Í upphafi annar voru 618 nemendur innritaðir í skólann, þar af 142 nýnemar sem luku tíunda bekk grunnskóla í vor. Nú í annarlok hefur nemendum fækkað ögn og þegar taldir eru saman þeir sem hafa horfið frá námi á önninni og þeir sem hætt hafa í einstökum áföngum er brottfall nemenda um það bil 5%. Á landsvísu er brottfall hjá okkur með minnsta móti, en engu að síður of mikið.
*
Nokkrar breytingar urðu á starfsliði skólans í sumar. Kennararnir Gunnar Haukur Kristinsson, Hörður Ragnarsson og Sigtryggur Karlsson létu af störfum. Kristbjörg Kjerúlf starfmaður í mötuneyti, Rúna Björk Gísladóttir starfsmaður á skrifstofu og Þórólfur Ævar Sigurðsson íþróttakennari fóru í leyfi. Aðrir sem unnu við skólann á síðasta skólaári en voru hér ekki í haust eru: Atli Rafn Kristinsson og Ingunn Jónasardóttir sem önnuðust forfallakennslu; Fjóla Bjarnadóttir og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir sem unnu í mötuneytinu.
Kennarar sem komu nýir til starfa í byrjun haustannar eru Ásdís Sigurðardóttir íþróttakennari sem leysir Þórólf Ævar af, Elínborg Halldórsdóttir sem kennir skapandi starf á félagsmála- og tómstundabraut, Eydís Aðalbjörnsdóttir landafræðikennari og Ingibjörg Haraldsdóttir sem kennir frístundafræði á félagsmála- og tómstundabraut.
Aðrir starfsmenn sem voru ekki á síðasta skólaári eru Edda Einarsdóttir sem leysir Rúnu af á skrifstofu og Guðmundur Egill Ragnarsson sem er kominn aftur til starfa sem forstöðumaður mötuneytis eftir árs leyfi.
*
Byggingaframkvæmdir við skólann ganga samkvæmt áætlun. Nú í haust var byrjað að kenna í 5 nýjum stofum á efri hæð nýbyggingarinnar og þar með eru allar nýju kennslustofurnar komnar í notkun. Enn er unnið að breytingum á eldra húsnæði þar sem meðal annars er verið að innrétta stofur fyrir verklega kennslu í raungreinum. Þær verða teknar í notkun á vorönninni og verður aðstaða til raungreinakennslu hér í skóla þá með besta móti.
Bætt aðstaða til kennslu í raunvísindum er löngu tímabær og bætir úr brýnni þörf nú þegar aðsókn að náttúrufræðibraut skólans er meiri en verið hefur. En nýnemar sem hófu nám hér í haust skiptast á alls 14 námsbrautir og er stærsti hópurinn á náttúrufræðibraut.
*
Á þeirri önn sem nú er að ljúka hófst kennsla á tveim nýjum námsbrautum við skólann. Þetta eru annars vegar Félagsmála og tómstundabraut og hins vegar Tölvufræðibraut.
Þótt það fari ekki allt mjög hátt er á hverri önn unnið að margvíslegri nýbreytni og skólaþróun hér við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Námsframboð skólans og starf hans allt er sífellt lagað að breytilegum þörfum og kröfum nýrra tíma. Nú á haustönn 2005 voru til dæmis kenndir 17 áfangar við skólann sem aldrei hafa verið kenndir áður. Þar af eru 6 valáfangar sem eru að öllu leyti skapaðir af kennurum hér. Útlit er fyrir að á næstu önn verði kenndur 21 nýr áfangi við skólann.
Þróunarstarf við skólann er af margvíslegu tagi og snýst ekki eingöngu um nýjar námsbrautir og nýja áfanga. Til dæmis má nefna að um þessar mundir vinna skólinn og bókaútgáfan Bjartur saman að verkefninu Hjálmaklettur, sem er vefur um Egils sögu. Verkefni þetta hefur hlotið styrk frá þróunarsviði menntamálaráðuneytisins sem er veittur í samráði við iðnaðarráðuneytið og er hluti af áætlun sem kallast Átak um menntun og menningu á landsbyggðinni. Fjölbrautaskóli Vesturlands er eini framhaldsskólinn sem tekur þátt í þessu átaki, en alls bárust 54 umsóknir til ráðuneytisins og þar af hlutu 16 verkefni brautargengi.
*
Nú í haust sem endranær tekur Fjölbrautaskóli Vesturlands þátt í alþjóðlegu samstarfi skóla og menntastofnana. Á önninni sem er að ljúka komu kennarar frá Finnlandi og Frakklandi í heimsókn í skólann til að undirbúa námsferðir nemenda sinna sem munu dvelja hér um nokkurra vikna skeið á næsta ári. Í byrjun október fór hópur nemenda héðan í námsferð til Danmerkur og Svíþjóðar þar sem þeir fræddust um sögu Norðurlanda. Eins og undanfarin ár hefur Kristján E. Guðmundsson kennari umsjón með erlendum samskiptum fyrir skólans hönd.
*
Eins og jafnan hélt nemendafélagið böll, kaffihúsakvöld og íþróttamót. Stærsti viðburðurinn í félagslífi nemenda á önninni var föstudaginn 28. október. Dagurinn hófst á „skammhlaupi“ þar sem nemendur skiptust í 9 lið og kepptu í tugum greina. Seinna um daginn hélt nemendafélagið sína árlegu hljómsveitakeppni í Bíóhöllinni. Að þessu sinni kallaðist keppnin Partýrokk. Something beyond var valin besta hljómsveit keppninnar en hana skipa: Jóhann Aðalsteinn Árnason trommuleikari; Sigurður Bachmann Sigurðsson gítarleikari; Bergur Líndal Guðnason söngvari og gítarleikari; Björn Breiðfjörð Gíslason bassaleikari. Þeir fjórmenningar eru allir fæddir 1989 og luku því grunnskóla síðasta vor.
*
Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur nú starfað í 28 ár og útskrifaðir nemendur eru vel á þriðja þúsund. Þeir hafa víða gert garðinn frægan og yrði of langt að telja það allt. En okkur sem hér störfum finnst við eiga svolítið í þeim öllum og við höfum mörg tilefni til að gleðjast þegar fréttir berast af velgengni þeirra og afrekum.
Læt ég nú lokið annál haustannar 2005 og óska ykkur sem útskrifist frá skólanum til hamingju með þann áfanga sem þið hafið náð um leið og ég hvet ykkur til að halda áfram að afla ykkur menntunar og þroska. Við sem störfum hér í skólanum hlustum eftir fréttum af því þegar þið verðið sjálfum ykkur til sóma og skólanum um leið. Þið megið vera stolt af að hafa lokið námi við Fjölbrautaskóla Vesturlands og við sem hér störfum viljum vera stolt af ykkur og því sem þið vinnið.
Atli Harðarson