Annáll haustannar 2004 við Fjölbrautaskóla Vesturlands

Kennsla við Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 2004 hófst þriðjudaginn 24. ágúst. Í upphafi annar voru nemendur á Akranesi 612 talsins. Í fyrsta sinn um langt árabil starfaði skólinn aðeins á einum stað því deildin í Stykkishólmi var lögð niður þegar Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði tók til starfa.


Aðsókn að skólanum er svipuð og undanfarin ár en 150 nemendur sem luku tíunda bekk síðasta vor sóttu um skólavist í haust. Sambærileg tala frá haustinu 2003 er 152. Nýi skólinn í Grundarfirði virðist því ekki hafa teljandi áhrif á aðsókn að skólanum hér á Akranesi.

Fyrir flesta nemendur lauk skólastarfi á önninni í gær, 17. desember, þegar þeir fengu einkunnir sínar afhentar. Önninni lýkur þó með formlegum hætti nú í dag þegar 43 nemendur, 17 piltar og 26 stúlkur, útskrifast frá skólanum. Af þessum 43 nemendum ljúka 34 stúdentsprófi, 6 burtfararprófi af iðnbraut, 2 af sjúkraliðabraut og 1 af íþróttabraut.

*

Í sumar urðu nokkrar breytingar á starfliði skólans.

Brynja Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur sem kenndi sérgreinar á sjúkraliðabraut lét af stöfum í vor. Það gerði einnig Sjöfn Pálfríður Jónsdóttir sem hafði starfað lengi við skólann, síðast sem kennari í fatasaumi. Sigtryggur Karlsson kennari fór í eins árs námsorlof. Kennararnir Leó Jóhannesson og Tómas Ísleifsson sem ráðnir voru til eins árs veturinn 2003 til 2004 hurfu til annarra starfa. Leó kom svo aftur eftir miðja önn þegar hann var ráðinn til forfallakennslu.

Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir og Jón Árni Friðjónsson sneru til baka úr eins árs námsorlofi. Marta Dögg Pálmadóttir kom aftur til starfa eftir barneignarleyfi. Guðrún Jóna Gunnarsdóttir var ráðin til að kenna sérgreinar á sjúkraliðabraut.
Þrír kennarar voru ráðnir tímabundið vegna veikinda fastráðinna kennara, þeir eru Ingunn Anna Jónasdóttir, Atli Rafn Kristinsson og Leó Jóhannesson sem fyrr er getið.

Egill Ragnarsson forstöðumaður mötuneytis er í leyfi á skólaárinu og Kristbjörg Kjerúlf gegnir starfi hans á meðan. Inga Lilja Guðjónsdóttir lét af störfum við ræstingar og Guðríður Árnadóttir var ráðin í hennar stað.

*

Samkvæmt lögum um framhaldsskóla frá 1996 skiptar menntamálaráðherra fimm manna skólanefnd til fjögurra ára í senn. Af fimm nefndarmönnum skulu tveir skipaðir samkvæmt tilnefningu sveitarstjórna og þrír án tilnefningar. Hlutverk skólanefndar er skilgreint í lögunum þar sem segir meðal annars: „Skólanefnd markar áherslur í starfi skólans. Hún gerir árlega starfs- og fjárhagsáætlun fyrir skólann til þriggja ára sem háð er samþykki menntamálaráðherra. Skólanefnd gerir í upphafi hvers árs fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgist með að henni sé framfylgt.“

Nú í haust hafði skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands setið í fjögur ár svo ráðherra skipaði nýja. Nefndarmenn sem valdir voru án tilnefningar eru: Bergþór Ólason, Bergþóra Jónsdóttir og Þorgeir Jósefsson. Þeir sem tilnefndir voru af sveitarfélögum eru Borghildur Jósúadóttir og Hólmfríður Sveinsdóttir. Nefndin hélt sinn fyrsta fund þann 20. október og þar var Þorgeir Jósefsson kjörin formaður hennar. Þorgeir fór einnig með formennsku í fráfarandi skólanefnd.

Næst á eftir menntamálaráðherra fer skólanefnd með æðsta vald í málefnum skólans. Fundi hennar sitja, auk nefndarmannanna fimm, skólameistari, aðstoðarskólameistari, einn áheyrnarfulltrúi nemenda, sem er Jón Ingi Þrastarson, og einn áheyrnarfulltrúi kennara sem er Sigurgeir Sveinsson.
Þeim sem vilja fylgjast með störfum nefndarinnar bendi ég á að fundargerðir hennar liggja frammi á vef skólans.

*

Fimmtudaginn 28. október, heimsótti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra skólann. Eftir að hafa spjallað við nemendur og kennara sátu ráðherra og aðstoðarmenn hennar fund með formanni skólanefndar, skólameistara, aðstoðarskólameistara, Páli S. Brynjarssyni bæjarstjóra í Borgarbyggð og bæjarfulltrúunum Guðmundi Páli Jónssyni frá Akranesi og Helgu Halldórsdóttur úr Borgarbyggð. Á fundinum var ráðherra meðal annars tjáð það álit skólastjórnenda að brýnt sé hefja sem fyrst undirbúning að byggingu kennsluhúsnæðis fyrir tréiðnadeild og stækkun heimavistar. En skortur á heimavistarplássi veldur því að á hverju ári fara allmargir nemendur í aðra skóla þótt þeir vilji gjarna stunda nám hér.

*

Framkvæmdir við nýbyggingu ganga samkvæmt áætlun. Fimm kennslustofur á neðri hæð verða teknar í notkun nú eftir áramót. Í haust verða svo fimm stofur á efri hæð nýbyggingar teknar í notkun. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum innanhúss ljúki eftir um það bil eitt ár og í byrjun haustannar 2006 verði lokið við frágang á lóð og ný bílastæði Vallholtsmegin við skólann.

*

Aðalfundur foreldrafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands var haldinn þriðjudagskvöldið 12. október. Á fundinum kynnti Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir starf nemendafélagsins, en hún er gjaldkeri þess. Elín Sigurbjörnsdóttir fráfarandi formaður las skýrslu stjórnar og skólameistari sat fyrir svörum.

Eins og lög félagsins gera ráð fyrir var kjörin ný stjórn á fundinum. Hana skipa Margrét Þorvaldsdóttir, Gunnar Ringsted og Elísabet Steingrímsdóttir. Margrét og Elísabet eru Akurnesingar en Gunnar er úr Borgarbyggð.

*

Skólastarfið á önninni var viðburðaríkt eins og jafnan. Meðal þess sem fréttnæmt má telja er að í september fór hópur 15 nemenda í 10 daga námsferð til Gotlandseyjar við suðausturströnd Svíþjóðar. Í ferðinni vann hópurinn að rannsóknarverkefnum í dýra- og grasafræði. Tveir kennarar fóru með, þeir Hannes Þorsteinsson sem stjórnaði rannsóknarvinnunni og Kristján Guðmundsson sem er umsjónarmaður erlendra samskipta við skólann. Ferðin var styrkt af Nordplus junior sjóðnum.

Að venju tóku nemendur skólans þátt í ýmiss konar keppni og félagsstarfi á meðal framhaldsskólanema á landsvísu svo sem forritunarkeppni, stærðfræðikeppni og morfís-ræðukeppninni. Einn þeirra sem nú útskrifast frá skólanum, Jóhannes Guðbrandsson, komst í úrslit á efra stigi í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna.

Eins og jafnan hélt nemendafélagið böll, kaffihúsakvöld og íþróttamót. Stærsti viðburðurinn í félagslífi nemenda á önninni var föstudaginn 29. október. Dagurinn hófst á „skammhlaupi“ þar sem nemendur skiptust í 10 lið sem kepptu í tugum greina. Seinna um daginn hélt nemendafélagið sína árlegu hljómsveitakeppni í Bíóhöllinni. Að þessu sinni kallaðist hún Tæfurokk. Þar kepptu átta hljómsveitir. Sú sem var best að mati dómnefndar kallast Skaðrót. Hana skipa Lára Björgvinsdóttir, Sigurlaug Kjartansdóttir, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir og Þórhildur Jónsdóttir. Deginum lauk svo á dansleik.

*

Læt ég nú lokið annál haustannar 2004 og óska útskriftarnemum til hamingju með þann áfanga sem þeir hafa náð um leið og ég hvet þá til að halda áfram að afla sér menntunar og þroska.

Atli Harðarson