Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur fimmtudaginn 21. ágúst. Kennsla samkvæmt stundaskrá hófst daginn eftir. Við upphaf haustannar voru 608 nemendur skráðir í skólann á Akranesi, þar af voru nýnemar 161. Við deildina í Stykkishólmi voru 26 nemendur. Ekki voru forsendur til að reka framhaldsdeild í Ólafsvík því umsækjendur um nám þar voru of fáir. Þó stundaði einn fatlaður nemandi í Ólafsvík nám á starfsbraut á vegum Fjölbrautaskóla Vesturlands og var Hrönn Þórisdóttir ráðin til að kenna honum. Nemendur Fjölbrautaskóla Vesturlands voru því samtals 635 við upphaf haustannar. Undir lok september bættust 14 við þegar kennsla hófst á námsbraut í rafsuðu í kvöldskóla.
Annáll haustannar 2003 við Fjölbrautaskóla Vesturlands
38 nemendur hættu í skólanum á önninni. Til viðbótar skráðu nokkrir sig úr einstökum áföngum. Alls nam þetta brottfall rúmlega 6% af því námi sem lagt var upp með í byrjun annar. Þetta brottfall er nokkuð undir meðaltali allra framhaldsskóla á landinu undanfarin ár sem er um 8,8%.* Nokkrar breytingar urðu á starfsliði skólans í sumar og í haust. Brynja Ólafsdóttir Kjerúlf lét af störfum við skólann. Hún hafði verið fjármálastjóri frá því skólinn var stofnaður árið 1977. Síðan ég hóf hér störf, og sjálfsagt líka fyrir þann tíma, hefur Brynja notið trausts og virðingar samstarfsmanna sinna og ég held ég mæli fyrir munn okkar allra sem hér störfum þegar ég óska henni farsældar og færi henni bestu þakkir fyrir samstarfið. Nýr fjármálastjóri var ráðinn nokkru áður en Brynja hætti. Hann heitir Samúel Grímsson.
Jón Árni Friðjónsson sögu- og íslenskukennari og Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir sögu- og stærðfræðikennari fóru í námsleyfi og kenna ekki við skólann í vetur. Í þeirra stað voru ráðnir Leó Jóhannesson og Tómas Ísleifsson. Leó kennir sögu og Tómas stærðfræði og heilbrigðisfræði. Edda Einarsdóttir kennari á starfsbraut lét af störfum við skólann síðastliðið vor og annar kennari á starfsbrautinni, Marta Dögg Pálmadóttir, fór í barneignarleyfi. Jóhanna Hálfdánsdóttir frönskukennari kom úr námsorlofi og Katrín Jónsdóttir, sem ráðin var tímabundið í stað Jóhönnu, fór frá skólanum. Þráinn Sigurðsson kennari í málmiðngreinum kom aftur til starfa eftir árshlé.
Í vor hætti Harpa Hreinsdóttir íslenskukennari störfum sem umsjónarmaður erlendra samskipta og í sumar tók Kristján E. Guðmundsson félagsfræðikennari við því verkefni. Harpa og Kristján eru bæði kennarar í fullu starfi við skólann.
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir sem verið hafði í leyfi undanfarin ár kom aftur til starfa sem forstöðumaður skólabókasafns og Erla Sigurfljóð Olgeirsdóttir lét af störfum á bókasafni skólans en hvarf þó ekki frá skólanum því hún er í hlutastarfi við kennslu í jóga.
Sjöfn Jónsdóttir lét af störfum á heimavist skólans en hún mun áfram kenna fatasaum. Bára K. Guðmundsdóttir tók við af Sjöfn á heimavistinni og sér um þvotta og þrif þar.* Í september heimsóttu okkur tíu ítalskir unglingar og tveir kennarar frá framhaldsskóla í Milano sem heitir ITIS Giorgi. Unglingarnir dvöldu hér í þrjár vikur og kennararnir í viku hvor. Í október var heimsóknin endurgoldin og fjórir kennarar héðan fóru í viku og tíu nemendur okkar í þrjár vikur til Milano. Þetta er annað árið í röð sem Fjölbrautaskóli Vesturlands og ITIS Giorgi skiptast á nemendum og kennurum. Samskipti okkar við Ítalíu hafa verið allmikil á undanförnum árum því auk mannaskipta við ITIS Giorgi hafa kennarar hér tekið þátt í samstarfi við kennara í Napoli. Þess má og geta að nú á skólaárinu 2003 til 2004 er ítalskur skiptinemi, Anna Rita, hér við skólann.
Sunnudaginn 12. október komu 15 sænskir nemendur ásamt 3 kennurum í heimsókn. Nemendurnir stunda nám á náttúrufræðibraut framhaldsskóla sem heitir Donnergymnasiet og er á Gotlandi. Sænsku gestirnir dvöldu hér í 12 daga og fóru í fyrirtæki og orkuver og kynntust virkjun jarðvarma og vatnsorku og fræddust um náttúrufar Íslands og sögu.
Kristján E. Guðmundsson félagsfræðikennari hefur séð um skipulags- og undirbúningsvinnu vegna þessara samskipta við skóla í öðrum löndum en Hannes Þorsteinsson líffræðikennari annaðist sænsku gestina meðan þeir dvöldu hér.* Aðalfundur foreldrafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands var haldinn að kvöldi 30. september. Á fundinum var kjörin ný stjórn foreldrafélagsins. Í henni sitja Elín Sigurbjörnsdóttir, Rakel Jóhannsdóttir og Guðjón Brjánsson.
Félagslíf nemenda var með myndarbrag eins og svo oft áður. Nemendafélag skólans hélt fjóra dansleiki, gaf út skólablað, hélt nokkur kaffihúsakvöld og tók þátt í framhaldsskólamótinu í knattspyrnu, frjálsíþróttamóti framhaldsskólanna, forritunarkeppni, ræðukeppni og fleiri viðburðum. Stjórn félagsins er skipuð þeim Birnu Björnsdóttur, Eyjólfi Ingva Bjarnasyni, Jónínu Svavarsdóttur, Mána Atlasyni, Ragnheiði Björnsdóttur og formanninum Runólfi Óttari Kristjánssyni. Anna Bjarnadóttir íþróttakennari er stjórninni til halds og trausts og fundar með henni einu sinni í viku.
Hápunkturinn í félagslífi nemenda nú á haustönn var föstudaginn 7. nóvember. Dagurinn hófst á skammhlaupi, sem er orðið fastur liður í skólastarfinu á haustönn. Um kvöldið var svo tónlistarkeppni og ball. Átta hljómsveitir kepptu og er það mál manna sem vit hafa á rokktónlist að tónlistarflutningur þeirra hafi verið mjög góður og að hér í skólanum sé margt efnilegra tónlistarmanna, enda nýtur árleg tónlistarkeppni nemendafélagsins athygli langt út fyrir Vesturland. Dómnefnd úrskurðaði að besta hljómsveitin væri The boy and his Blob. Í örðu sæti varð hljómsveitin Sítrónudroparnir og Skaðrót í því þriðja.
Þótt nemendafélagið gegni lykilhlutverki í félagslífi nemenda koma fleiri við sögu því Jafningjafræðslan starfar að forvörnum hér í samráði við Steinunni Evu Þórðardóttur sem er forvarnafulltrúi skólans. Eins og undanfarin ár var einn dagur á önninni helgaður forvörnum og jafningjafræðslu.* Í byrjun október voru opnuð tilboð í fyrsta áfanga nýbyggingar sem hýsa mun tíu kennslustofur og tengjast eldri húsum skólans þar sem nú er lesstofa á neðri hæð og kennslustofur C203 til C205 á efri hæð. Þrjú tilboð bárust. Það lægsta var frá fyrirtækinu Loftorku ehf. í Borgarnesi. Bygginganefnd gekk til samninga við Loftorku um að skila húsnæðinu fokheldu í september 2004. Framkvæmdir hófust í síðustu viku og hefur byggingarsvæði Vallholtsmegin við skólann verið girt af.* Kennslu á haustönn 2003 lauk föstudaginn 28. nóvember og mánudaginn 1. desember hófust haustannarpróf. Nemendur fengu einkunnir afhentar í fyrradag og nú í dag lýkur önninni með því að 40 nemendur eru brautskráðir frá skólanum. Læt ég nú lokið annál haustannar 2003 og óska útskriftarnemum til hamingju með þann áfanga sem þeir hafa náð um leið og ég árna þeim heilla og hvet þá til að halda áfram að afla sér menntunar og þroska.Akranesi 19. desember 2003
Atli Harðarson