Atli Harðarson

Annáll haustannar 2002 í Fjölbrautaskóla Vesturlands


Fjölbrautaskóli Vesturlands var settur miðvikudaginn 21. ágúst. Daginn áður fóru kennarar á Selfoss og sátu þar fund með kennurum Fjölbrautaskóla Suðurlands og Suðurnesja. Þessir þrír skólar, á Akranesi, Selfossi og í Keflavík, hafa lengi haft samstarf. Stjórnendur þeirra hittast nokkrum sinnum á ári og bera saman bækur sínar og þeir, ásamt fleiri skólum, stóðu saman að útgáfu Námsvísis fjölbrautaskóla fram yfir miðjan síðasta áratug.
Með lögum um framhaldsskóla sem Alþingi samþykkti árið 1996 var skólum gert skylt að gefa út skólanámskrá. Hér við Fjölbrautaskóla Vesturlands var hafist handa við gerð skólanámskrár um leið og aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins leit dagsins ljós um mitt ár 1999. Fyrsta útgáfa skólanámskrárinnar kom út sumarið 2000. Ritstjórn hennar var skipuð Gunnari Magnússyni kennara, Jóni Árna Friðjónssyni kennara og Herði Ó. Helgasyni sem þá var aðstoðarskólameistari. Skólanámskráin tók við af Námsvísi fjölbrautaskóla sem var samvinnuverkefni nokkurra skóla, eins og áður er getið. Nú í byrjun skólaársins 2002 til 2003 kom önnur útgáfa skólanámskrárinnar úr prentun. Í henni eru upplýsingar um nám við skólann, skólareglur og starfshætti og henni er dreift til allra nemenda.
    Nokkrar breytingar urðu á starfsliði skólans í sumar og í haust. Björn Ingi Finsen, Gunnar Gunnarsson, Magnús Einarsson, María Elísabeth Wechner og Snjólaugur Þorkelsson létu af störfum. Jóhanna Hálfdánsdóttir fór í ársleyfi frá skólanum og Hannes Þorsteinsson og Ólafur Haraldsson komu úr leyfi nú í ágúst.
    Sex nýir kennarar hófu störf við skólann í ágúst. Þeir eru: Gunnar H. Kristinsson stundakennari í landafræði, Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir sem kennir á starfsbraut og annast íslenskukennslu fyrir útlendinga, Katrín Jónsdóttir frönskukennari, Kristján E. Guðmundsson félagsfræðikennari, Theódór Óskarsson kennari í málmiðngreinum og Ævar Buthmann sem kennir ensku og þýsku.
    Hulda Sigurðardóttir var ráðin umsjónarmaður heimavistar. Í mötuneyti skólans tók Guðríður Árnadóttir við af Kolbrúnu Díego.
    Við upphaf haustannar voru nemendur í skólanum á Akranesi 607 talsins og við deildina í Stykkishólmi voru 13 nemendur. Framhaldsdeild í Ólafsvík starfaði ekki á önninni enda sóttu fáir um skólavist þar í haust. Þótt nemendur á Akranesi hafi verið 607 í upphafi annar var tala þeirra komin niður fyrir 590 þegar önninni lauk því eins og ævinlega hætta nokkrir í skólanum á miðri önn. Þetta brottfall er þó mun minna núna en í fyrrahaust enda erfiðara fyrir ungt fólk að fá vinnu nú en þá.

*
Fimmtudaginn 12. september voru 25 ár liðin frá stofnun fjölbrautaskóla á Akranesi. Í tilefni afmælisins komu nemendur og kennarar saman á sal skólans í þriðju kennslustund dagsins. Samkoman hófst á ávarpi Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra. Því næst skemmtu nemendurnir Rut Berg Guðmundsdóttir, Hrefna Gunnarsdóttir, Elsa Jóhannsdóttir Kiesel og Leifur Jónsson með söng og hljóðfæraleik og Helga Braga Jónsdóttir leikkona og fyrrum nemandi við skólann steig á svið og skemmti viðstöddum með glensi og gríni eins og henni einni er lagið. Kynnir var Gyða Bentsdóttir.
Fleira var gert til hátíðabrigða í tilefni af afmælinu. Meðal annars var gefið út afmælisrit og því dreift á öll heimili á Vesturlandi. Ritstjórar afmælisritsins eru þeir Jón Árni Friðjónsson kennari og Kristján Kristjánsson rithöfundur.
    Í október voru haldnir tónleikar á sal skólans og nokkrir kaflar úr litríkri tónlistarsögu hans rifjaðir upp. En frá því skólinn tók til starfa fyrir 25 árum hefur öflugt tónlistarlíf, mikil söngur, rokk og jass gætt skólastarfið lífi og lit. Fram komu tónlistarmenn úr hópi fyrrverandi og núverandi nemenda:  Tíbrá, Orri Harðar, Abbababb, Halli Melló, Sigríður Hrund, Hrefna Dögg, Valgerður Jónsdóttir og Crez. Kynnir var Ólafur Páll Gunnarsson. Undirbúning önnuðust Eiríkur Guðmundsson kennari, Guðgeir Guðmundsson nemandi við skólann og fleiri.
    Í nóvember var enn haldið upp á afmælið því þá stóðu Fjölbrautaskólinn, Sjúkrahúsið, Heilsugæslustöðin og Starfsmannafélag Akraness saman að því að bjóða öllum sem koma vildu á samkomu þar sem leikhópurinn Á senunni flutti dagskrá byggða á ljóðum Halldórs Laxness. En sjúkrahúsið, heilsugæslan og starfsmannafélagið eiga 50 ára afmæli um þessar mundir.
    Fjölmörg fyrirtæki og félög gáfu skólanum gjafir í tilefni afmælisins og styrktu útgáfu afmælisritsins. Öllum þessum aðilum eru hér færðar þakkir. Einnig ber að þakka þeim mörgu sem tóku þátt í vinnu og undirbúningi við hátíðahöldin.
*
Í september komu 8 ítalskir unglingar í heimsókn og dvöldu hér í þrjár vikur, tvær í skólanum og eina í fyrirtækjum á Vesturlandi. Þeir eru nemendur við framhaldsskóla í Mílanó sem heitir ITIS Giorgi. Nokkrir nemendur héðan heimsóttu þennan sama skóla síðasta vor.
    Auk þess að kynnast iðnaði og skólastarfi hér ferðuðust gestirnir um landið og fóru m.a. í réttir þar sem þeir hjálpuðu bændum að draga fé í dilka. Auk nemendanna komu tveir kennarar frá ITIS Giorgi. Þeir kynntu sér skólahald hér á Skaga og voru nemendunum til halds og trausts. Heimsóknir af þessu tagi víkka bæði sjóndeildarhring unglinganna og okkar sem eldri erum. Þær eru mögulegar vegna þess að í hópi kennara, nemenda og foreldra eru einstaklingar sem taka gestum opnum örmum, bjóða þeim að búa á heimilum sínum, fara með þá í ferðalög og hafa ofan af fyrir þeim. Þyrfti að kaupa alla þessa þjónustu fullu verði væri enginn kostur á slíkum nemendaskiptum. Þröstur, Flemming og Hjálmur sem skruppu með hópinn í Landmannalaugar eiga hrós og þakkir skyldar og líka þau Eiríkur, Steinunn, Flemming og Gyða sem voru gestgjafar kennaranna og síðast en ekki síst öll þau sem hýstu nemendur og sinntu þeim og eru fleiri en svo að ég reyni að telja þau öll upp.
    Á síðasta skólaári fór allstór hópur iðnnema og iðngreinakennara héðan í heimsóknir til skóla í Danmörku og á Ítalíu. Þessar ferðir voru styrktar af Leonardo starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Nú hefur aftur fengist framlag frá Leonardo til að senda nemendur og kennara í náms- og kynnisferðir. Einnig hefur skólinn fengið loforð um styrki úr norrænum sjóðum til að kosta heimsóknir til Norðurlanda. Á næstu önn mun því allstór hópur eiga þess kost að heimsækja skóla í öðrum löndum. Auk þessa tekur skólinn þátt í nokkrum fjölþjóðlegum verkefnum. Stefnt er að því að alþjóðlegt samstarf af þessu tagi verði fastur liður í starfi skólans. Það er Harpa Hreinsdóttir kennari sem sér um að skipuleggja samskipti við menntastofnanir í öðrum löndum og afla fjár til heimsókna og ferða.
*
Foreldrafélag Fjölbrautaskólans hélt aðalfund sinn þann 8. október. Á fundinum var kosin ný stjórn. Hana skipa: Sigurveig Stefánsdóttir formaður, Elín Sigurbjörnsdóttir og Ólöf Sumarliðadóttir. Sigurveig og Elín eru Akurnesingar en Ólöf er úr Borgarbyggð. Sigurveig var fyrir í stjórn félagsins ásamt Sigurði Guðna Sigurðssyni og Sóleyju Sigurþórsdóttur. Eins og áður hvet ég þá sem mál mitt heyra og eiga börn í skólanum á næstu önn til að taka þátt í starfi foreldrafélagsins.
*
Nýjungar og breytingar eru hluti af eðlilegum gangi tilverunnar og má því segja að skólastarfið hafi gengið sinn vanagang nú á haustönninni. Vert er að nefna að aðstoð við nemendur með lestrarerfiðleika var aukin verulega þegar boðið var upp á sérstakan áfanga í námstækni fyrir þá. Kennararnir Edda Einarsdóttir, Gyða Bentsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Linda Dröfn Jóhannesdóttir og Ólöf H. Samúelsdóttir unnu undirbúningsvinnu og kennslan á önninni var í höndum þeirra Gyðu og Ólafar. Við bindum vonir við að þetta starf skili árangri og verði til þess að færri nemendur dragist aftur úr eða gefist jafnvel upp í námi vegna lestrarerfiðleika.
    Önnur nýlunda í skólastarfinu er að skólinn bauð nú í fyrsta sinn upp á kennslu í íslensku fyrir útlendinga sem eru nýfluttir til landsins og kunna lítið eða ekkert í málinu. Framhald verður á þessari kennslu á vorönninni. Kennari er Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir.
    Fjarskipta- og tölvubyltingin heldur áfram hér eins og annars staðar og nú er verið að grafa fyrir ljósleiðara inn í hús skólans. Annars er það helst fréttnæmt af þessum vettvangi að ekki þykir lengur tíðindum sæta þó nemendur og kennarar birti efni á vefnum (eins og t.d. var gert með myndarbrag í stærðfræði 513 hjá Bjarnþóri Kolbeins og í félagsfræði 383 hjá Kristjáni Guðmundssyni nú á önninni). Staðbundið nám og fjarnám blandast saman í auknum mæli og allmargir nemendur við skólann stunda nú fjarnám við aðra skóla samhliða náminu hér.
*
Í ráði er að halda áfram að byggja hér á skólalóðinni. Á fjárlögum fyrir árið 2003 er framlag til að greiða fyrir hönnun á kennsluhúsnæði sem taka mun við af skúrunum sem eru Vallholtsmegin við skólann og áttu aldrei að vera annað en bráðabirgðahúsnæði. Samningar hafa náðst við menntamálaráðuneyti um að bygging nýs kennsluhúsnæðis hefjist á árinu 2004.
*
Hápunktur í félagslífi nemenda á önninni var 1. nóvember. En þann dag var hið árlega skammhlaup haldið með tilheyrandi ærslum og gauragangi. Öll venjuleg kennsla samkvæmt stundaskrá var felld niður og nemendum skipt í 9 lið sem kepptu í reikningi, reiptogi, dönsku og „dragshow-i“ og öllu þar á milli. Seinna um daginn var svo tónlistarkeppnin Hetjurokk á vegum nemendafélagsins og um kvöldið var slegið upp balli. Fjöldi efnilegra tónlistarmanna kom fram á Hetjurokkinu í Bíóhöllinni. Að mati dómnefndar var Fóður besta hljómsveitin en hún er skipuð þeim Sturlu Birgissyni söngvara, Ólafi Pétri Péturssyni gítarleikara, Samúel Þorsteinssyni á bassa og Valgeiri Sigurðssyni sem spilar á trommur.
    Fleira má tína til úr félagslífi nemenda. Þeir héldu fjóra dansleiki, tóku þátt í frjálsíþróttamóti framhaldsskólanna á Laugarvatni, forritunarkeppni í Háskólanum í Reykjavík, nokkrir skruppu á íþróttamót og ball í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki og þannig má lengi telja. Aðaldriffjöður félagslífsins er nemendafélagið. Í stjórn þess eru: Þorkell Steindal formaður, Guðgeir Guðmundsson, Sylvía Hlynsdóttir, Karítas Jónsdóttir, Runólfur Kristjánsson. Þeim til halds og trausts er Anna Bjarnadóttir íþróttakennari og félagsmálastjóri sem fór að með á Laugarvatn og með á Sauðárkrók og er með í næstum öllu sem gerist. Með sömu drift og dugnaði býst ég við að félagslífið á vorönninni verði jafnöflugt ef ekki enn kraftmeira en í haust.
*
Við sem störfum við skólann erum stolt af nemendum okkar þegar þeir sýna manndóm og dugnað. Við erum líka stolt af fyrrverandi nemendum þegar við fréttum um afrek þeirra og frægðarverk. Ég held við höfum t.d. flest verið dálítið montin fyrir hönd skólans þegar borgarstjórinn í Reykjavík veitti Sigurbjörgu Þrastardóttur fyrrum nemanda okkar bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar þann 1. nóvember síðast liðinn.
    Í dag útskrifast héðan myndarlegur hópur nemenda. Ekki finnst mér ólíklegt að nokkrir þeirra eigi eftir að gera garðinn frægan og auka veg þessa skóla.