Foreldraráð Fjölbrautaskóla Vesturlands

Skýrsla stjórnar veturinn 2007 - 2008

Á fjölmennum foreldrafundi síðastliðið haust var foreldrafélag skólans endurreist. Kosin var stjórn félagsins sem skipuð er þannig:

• Borghildur Jósúadóttir (borg hjá grundaskoli.is)
• Guðrún S. Gísladóttir
• Brynhildur Björnsdóttir
• Anney Ágústsdóttir
• Andrea A. Guðjónsdóttir
• Ragnheiður Sigurðardóttir
• Sigurjón Einarsson
• Halldóra Gylfadóttir.

Aðalverkefni vetrarins var foreldraröltið. Á stofnfundinum gekk listi og um 70 manns skráðu sig í röltið. Við nutum ómældrar aðstoðar þeirra Rúnu og Eyglóar á skrifstofu skólans við að hringja í forelrana og viljum við nota tækifærið og þakka þeim kærlega fyrir. Þetta var ekki auðvelt en alltaf tókst þeim að manna röltið. Án þeirra hefði þetta ekki gengið svon vel.

Við í stjórn félagsins erum mjög ánægð með þetta framtak og var ekki annað að heyra á þeim foreldrum sem tóku þátt. Ekki gátum við fundið annað en að nemendum skólans þætti notalegt að hafa okkur fyrir utan á böllunum og sumum fannst mjög gaman að spjalla.

Hörður skólameistari tilnefndi foreldrafélagið til Foreldraverðlauna heimilis og skóla fyrir foreldraröltið og Heiðrún tilnefndi mig fyrir starf mitt sem formaður félagsins. Við Heiðrún vorum viðstaddar afhendingu verðlaunanna og um leið fengu allir viðurkenningarskjal fyrir að vera tilnefndir. Þetta þótti okkur í foreldrafélaginu mikill heiður. Ég vissi reyndar ekki að þetta var í fyrsta skipti sem hægt var að tilnefna einhver frá framhaldsskólanum og leikskólanum. Okkur þótti mjög gaman að fá þessa tilnefningu og þökkum við Herði og Heiðrúnu fyrir að muna eftir okkur.

Við höfum verið að velta fyrir okkur möguleika á póstlista fyrir foreldra barna undir 18 ára. Upp kom hugmynd um að foreldrar gætu skráð sig á heimasíðu skólans á slíkan lista. Það væri mjög gott að hafa slíkan lista og þannig yrði upplýsingaflæði innan foreldrafélagsins. Ég ráðlegg foreldrum að hafa heimasíðu FVA í forgangi á netinu í tölvunni og fylgjast þannig með því sem er að gerast í skólanum.

Í fyrra stóð foreldrafélagið fyrir fræðslufundi með sýslumanni og lögreglu. Almenn ánægja var með þennan fund og munum við halda slíkan fund aftur seinna í haust og stefnum að öðrum fræðslufundi eftir áramótin. Við munum leita eftir tillögum frá foreldrum um efni þess fundar. Ég vil sem dæmi nefna að við gætum haldið fræðslufund um ADHD.

Ein af þeim hugmyndum sem við höfum verið að ræða er hugsanleg samvinna við nemendafélagið. Við trúum því að foreldrafélagið geti verið góður stuðningur við nemendafélagið í ýmsum verkefnum. Foreldrar gætu komið að ýmsum uppákomum eins og Kaffihúsakvöldum, bakað, skreytt eða aðstoðað á annan hátt. Við erum með röltið í kringum böllin, við komum líka að Tónlistarkeppninni, en það var fyrst og fremst í formi gæslu. Svo er það árshátíðin, frumsýningarpartý, slaufan og eflaust eitthvað fleira. Foreldrafélgið og nemendafélagið gætu til dæmis verið með félagsvist svo að eitthvað sé nefnt. Bakað saman vöfflur á kaffihúsakvöldi. Það væri gaman að fá að hitta stjórn nemendafélagsins og velta upp ýmsum möguleikum.

Við viljum nota tækifærið og benda foreldrum á að skoða skýrslu um verkefnavinnu í öllum 9. bekkjum grunnskólanna sem unnin voru á Forvarnardaginn 21. nóv. 2007. Skýrsluna má finna á heimsíðu skólans inn á síðu Foreldrafélagsins.

Þar kemur þetta fram: „Það vekur athygli að þvert á það sem margir gætu haldið þá vilja unglingar upp til hópa verja meiri tíma með foreldrum sínum og fjölskyldum. Þeir hafa margar hugmyndir og óskir í þeim efnum en í yfirgnæfandi meirihluta eru einfaldir og hversdagslegir hlutir eins og að borða saman, spila, fara saman í bíó og/eða horfa á mynd, elda og baka saman og fara í ferðalög.“

Við vorum líka að spá í að safna saman dósunum sem við hirðum í kringum skólann á foreldraröltinu. Við gætum stofnað reikning fyrir nemendur og nýtt efnið til að kaupa skreytingaefni fyrir kaffihúsakvöld eða eitthvað í þeim dúr.

Fyrir hönd foreldrafélagsins
Borghildur Jósúadóttir