Planting our Future

- Sáð til framtíðar-


Sáð til framtíðar

Verkefni á vegum Comeniusáætlunar Evrópusambandsins

Í stuttu máli má segja að verkefnið snúist um umhverfismál, sjálfbærni og náttúruvernd; áhrif manna á landgæði og loftslag.  Framkvæmdin er hugsuð þannig að sendinefndir nemenda og kennara frá þátttökulöndum heimsæki þátttökuskólana og taki þátt í athöfnum tengdum útivist, svo sem gönguferðum, einhverjum framkvæmdum eða skoðunarferðum. Þannig fengju þátttakendur m.a. að kynnast sambúð manna og náttúru í ólíkum löndum, landnýtingu, uppblástur og landgræðslu.

Þetta eiga að vera þverfagleg verkefni, gætu bæði tengst náttúrufræðum,
menningarsögu, listum, tækni, samfélagi og vitanlega tungumálum. Dæmigerð viðfangsefni verða m.a. að gróðursetja tré, skoða landgræðslu, orku- eða endurvinnsluaðferðir, gista í fjallakofum o.s.frv.

Hinir einstöku skólar skipuleggja og standa fyrir vinnubúðum (workshops) þar sem þeir taka við fulltrúum hinna skólanna, að jafnaði einum kennara og tveimur nemendum. Þátttökulönd og -skólar eru 11 og því verður að gera ráð fyrir að gestir verði 30 alls. Nemendur munu gista hjá fjölskyldum nemenda í viðtökuskólanum en kennarar væntanlega yfirleitt á venjulegum gististöðum.

Vinnubúðirnar standa að jafnaði í fimm daga en gert er ráð fyrir að hver ferð taki eina viku. Nemendur sem taka þátt þurfa því að vera reiðubúnir að skjóta skjólshúsi yfir einn eða tvo gesti meðan á dvölinni stendur en fá í staðinn að fara sem fulltrúar skólans í heimsókn til einhvers annars þáttökulands og gista þar hjá fjölskyldum nemenda, væntanlega einhverjum sem þeir hafa hitt meðal gesta í eigin landi.

 

Þátttakendur
Allt að 20 nemendur verða valdir til að taka þátt í þessu verkefni. Þeir verða fulltrúar skólans út á við og verða að uppfylla ákveðin skilyrði, umfram allt það að mega við því að fórna tíma frá eigin námi til að glíma við annars konar nám. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur þurfi að bera sérstakan kostnað af ferðum sínum eða uppihaldi. Helstu formlegu skilyrðin eru þessi:

1. Geta tekið að sér að hýsa erlendan gest í fimm til sex daga eða geta veitt aðra aðstoð, t.d. við að útvega gistingu, ef þeir búa sjálfir ekki á Akranesi.
2. Vera reiðubúin(n) að fara í vinnuferð fyrir hönd skólans á tímanum sem verkefnin standa yfir og skv. nánara samkomulagi við skipuleggjendur.
3. Hafa lokið grunnáföngum.
4. Hafa góða enskukunnáttu.
5. Hafa sýnt bærilega ástundun í skólanámi.

7. Hafa áhuga á að taka þátt í verkefnum af því tagi sem hér um ræðir.
8. Vera tilbún(n) að liðsinna við móttöku erlendra gesta þegar á þarf að halda.
9. Æskilegt er nemendur séu á aldursbilinu 17 - 21 þegar að ferðalaginu kemur.

Athugið að ferðir ber sumar upp að vori og sumri, sbr. áætlun sem fylgir hér á eftir.

Þeir sem hafa áhuga á að sækja um þátttöku geta prentað út eyðublað hér en skulu skila því í hólf aðstoðarskólameistara eða á skrifstofu.

Umsóknareyðublað

Fundargestir á skipulagsfundi POF verkefnisins á Kaldadal í september 2011.

Áætlun um fundi og ferðir

Svíþjóð: 16. - 22. apríl 2012
Tyrkland: 6. - 12. maí 2012
Ungverjaland: 13. - 19. maí 2012
Eistland: 28. maí - 3. júní 2012
Austurríki: 3. - 9. júní 2012
Ísland: 9. - 15. sept. 2012
Þýskaland: 16. - 22. sept. 2012
Ítalía: 30. sept. - 6. okt.r 2012
Tékkland: 7. - 13. okt. 2012
Spánn: 14. - 20. okt. 2012
Pólland: 7. - 13. apríl 2013

Lokaráðstefna verður í lok apríl, 2013

Hinar íslensku vinnubúðir
Ý
msar hugmyndir hafa komið fram um viðfangsefni hinna íslensku vinnubúða sem ráðgerðar eru næsta haust. Sem dæmi má nefna:

Plöntun trjáaí skilgreindan skógræktarreit verkefnisins.
Jarðfræðiferð.
Heita vatnið, uppruni þess og nýting.
Fornleifaathugun á útróðrarstöðum á Snæfellsnesi eða Suðurnesjum.
Göngur og réttir.
Hálendisferð, gisting í fjallaskála og athugun á útilegumannaslóðum.
Heimsóknir á endurvinnslustaði og í orkuver.

 

 


Fjölbrautaskóli Vesturlands
Akranesi

Vefur POF-verkefnisins


Samstarfslönd og - bæir FVA

Austurríki: Bregenz

Eistland: Valga

Ítalía: Torino

Pólland: Dabrowa Gornicza

Spánn: Andujar

Svíþjóð: Halsberg

Tékkland: Prag

Tyrkland: Sivas

Ungverjaland: Vac

Þýskaland: Norden

 

   
Heimsóknir á þessa síðu